Morgunblaðið - 15.10.1976, Side 47
MORGIINBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. OKTÖBER 1976
47
Framarar komu
á óvart með
öruggum sigri
#
yfir I R-ingum
Árni Guðjónsson hefur þarna sloppið laus á ifnunni f Ieik FH og Dankersen f
fyrrakvöld og skorar eitt af mörkum sfnum. Axel Axelsson er aðeins áhorfandi, en
það var ekki oft í þessum leik sem hann var í því hlutverki. Axel sýndi allar sínar
beztu hliðar í leiknum og skoraði 10 glæsileg mörk.
HERFILEGT TAP VALS
A MÚTI DANKERSEN
Valur - Dankersen 10:24
A miðvikudagskvöldið voru
leiknir þrír leikir í Reykjavfkur-
mótinu í körfuknattleik. Fyrst
léku KR og Fram í meistaraflokki
kvenna og unnu KR-stúlkurnar
stórsigur 54—15. Heldur var
þetta rislár leikur, en KR-ingar
voru mun betri og verðskulduðu
fyllilega þennan stóra sigur gegn
afar lélegu Framliði.
Hinir tveir leikirnir voru f
meistaraflokki karla og voru þeir
mjög spennandi og tvísýnir. Ur-
slit urðu nokkuð óvænt, sérstak-
lega í leik IR og Fram, en þann
leik unnu Framarar með 10 staga
mun, nokkuð sem ekki var búist
við. Stúdentar sigruðu svo Val í
fjörugum og spennandi leik þar
sem villuvandamálið réði mestu
um gang leiksins.
Valur—IS 87—93. Þetta var
spennandi og skemmtilegur leik-
ur þó að Stúdentar tækju forystu
snemma í leiknum og hefðu for-
ystu í leikhléi 45—36 voru Vals-
menn aldrei langt á eftir og tókst
að minnka muninn niður í 1 stig f
seinni hálfleik. Það sem fyrst og
fremst réð úrslitum þessa leiks
var frábær frammistaða Bjarna
Gunnars Sveinssonar, en við hann
réðu Valsarar hreinlega ekkert og
skoraði hann hvorki meira né
Bjarni Gunnar Sveinsson — ðtti
mjög góðan ieik með stúdentun-
um og skoraði 42 stig.
minna en 32 stig auk þess, sem
hann losaði sig við báða miðverði
Vals f seinni hálfleik en þeir fóru
báðir útaf með fimm villur, flest-
ar vegna brota á Bjarna Gunnari.
Reyndar voru flestir Valsmanna
komnir með fimm villur þegar
líða tók á leikinn og síðustu tvær
mínúturnar voru aðeins fjórir
þeirra eftir inni á vellinum. Stú-
dentar léku þennan leik vel, voru
harðir bæði f vörn og sókn og gáfu
Valsmönnum engan frið og var
sigur þeirra fyllilega verðskuld-
aður. Bestu menn þeirra voru
Bjarni Gunnar, en hann var
óstöðvandi í sókninni og klettur í
vörninni og hirti flest fráköst báð-
um megin, auk þess sem hann
skoraði 32 stig. Jón Indriðason
átti einnig góðan leik og skoraði
hann 20 stig, en annars áttu stú-
dentar allir fremur góðan leik.
Aðal vandamál Valsmanna er
hvað mikið af villum þeir fá á sig,
þeir verða að leika betri varnar-
leik svo að þeir þurfi ekki að
grípa til grófra brota til að stöðva
andstæðinginn, það hefur ekkért
lið efni á því að missa sfna beztu
menn útaf hvað þá að leika aðeins
með fjóra menn inn á síðustu
mínútur leiksins, enda réð villu-
vandamálið ábyggilega miklu um
úrslitin.
Annars held ég að Valsarar
verði mjög sterkir í vetur og þeir
geta líka ennþá orðið reykjavíkur-
meistarar, það er mikið eftir enn
af mótinu. Stigahæstu menn Vals
voru þeir Torfi Magnússon með
21 stig og Þórir Magnússon með
19, en þeir voru beztu menn Vals
ásamt Ríkharði Hrafnkelssyni.
IR—Fram74—84. Þetta voru
mjög óvænt úrslit, f fyrra voru
iR-ingar í öðru sæti Islandsmóts-
ins en Framarar urðu næst neðst-
ir, unnu aðeins tvo leiki, en nú
hafa Framarar fengið Anton
Bjarnason sem þjálfara og einnig
eru leikmenn liðsins að öðlast þá
reynslu sem þá hefur skort og
breytir það miklu. Þá hafa IR-
ingar misst menn eins og Agnar
Friðriksson og Birgi Jakobsson og
ennfremur er Kristinn Jörunds-
son ekki enn byrjaður að leika
með liðinu. Þetta er greinilega
meiri missir en liðið þolir og hef-
ur það nú tapað tveimur fyrstu
leikjum sínum í mótinu. Annars
var gangur leiksins sá að jafnt var
fram í miðjan fyrri hálfleik, en þá
sigu Framarar fram úr og héldu
forystu til leiksloka. Það var ljótt
að sjá hvað ÍR-ingar létu mótlætið
fara í skapið á sér og rifrildi
þeirra við dómarana lauk með því
að Þorsteini Hallgrímssyni var
vísað af leikvelli og verður hann
þvf væntanlega í banni í næsta
leik ÍR.
Fyrir þennan leik er ekki hægt
að hæla nokkrum ÍR-inga, en flest
stig þeirra gerðu Kolbeinn
Kristinsson 18 og Jón Jörundsson
14. Framarar voru frfskir í leikn-
um og börðust mjög vel allan leik-
inn, áttu flest fráköst og gerðu
margar laglegar körfur. Það háir
þeim vissulega hve lítil breidd er
í liðinu, en þeir, sem léku mestall-
an leikinn, áttu allir^ góðan dag.
Flest stig gerðu Eyþór Kristjáns-
son 18 og Helgi Valdemarsson 24.
H.G.
ISLENZKT handknattleiksiið
hefur ekki f annan tfma fengið
slfka útreið hjá erlendu liði á
heimavelli eins og Valsmenn f
gærkvöldi. Þeir voru eins og smá-
börn f viðureign sinni við þýzka
liðið Dankersen f Laugardalshöll-
inni og töpuðu með 14 marka
mun, 10:24. Valsmenn áttu afleit-
an dag bæði f vörn og sókn og það
hefði ekki komið mönnum á
óvart, þótt munurinn hefði orðið
20 mörk, þvflfkur munur var á
liðunum. Þýzka liðið lék skfnandi
handknattleik og væri gaman að
sjá það f reglulegum baráttuieik
við fslenzkt lið.
Dankersen náði fljótt yfirburða
stöðu, komst í 3:0 og þegar rúmar
20 minútur voru búnar af leik-
tímanum var staðan orðin 10:2
Þjóðverjunum í vil. Voru mörg
markanna skoruð úr hraðaupp-
hlaupum, sem voru mjög vel út-
færð hjá þýzku Ieikmönnunum.
Það var kannski engin furða að
þau heppnuðust hraðaupphlaupin
hjá þeim, því undantekning var
ef Valsmenn flýttu sér í vörnina
eftir að hafa gloprað boltanum.
Staðan f hálfleik var 12:4. 1
byrjun seinni hálfleiks var leikur-
inn í jafnvægi en brátt sótti f
sama farið og Þjóðverjarnir juku
jafnt og þétt forskotið. Mörk Vals-
manna komu með löngum hléum,
— Persónu-
frádráttur
Framhald af bls. 48
nú verið að vinna að endurskoðun
á skattalögunum.
Samsvarandi persónuafsláttur
fyrir hjón eða einstætt foreldri
var 145 þúsund kr. miðað við
grunninn 1975, hækkaði i ár f
181.250 kr. en yrði samkvæmt
nýju vísitölunni 229.100 kr. á
næsta ári.
Skattstiginn breytist einnig í
samræmi við hækkun þessarar
vísitölu, en vert er að ftreka að
hér er enn gengið út frá óbreytt-
um skattalögum. En þannig voru
árið 1975 lögð 20% á fyrstu 600
þúsund krónurnar af skattgjalds-
tekjum einstaklinga en á fyrstu
850 þús. krónurnar af tekjum
það lengsta var 12 mínútur.
Áhorfendur voru að vonum sár-
óánægðir og margir þeirra voru
búnir að yfirgefa Laugardalshöll-
ina löngu áður en flautað var til
leiksloka. Þá stóðu á töflunni þær
ótrúlegu tölur 10:24, Þjóðverjun-
umfvil.
Sem fyrr segir var þýzka liðið
skemmtilegt á að horfa. Það lék
fastan varnarleik og sóknarlotur
þess voru oft hraðar og skemmti-
legar. Hraðaupphlaupin voru sér-
staklega vel útfærð, og gætu
íslenzk lið lært margt af Þjóðverj-
unum f þeim efnum. Það er
kannski ekki rétt að tala um Þjóð-
verja i þessu sambandi, því eins
og allir vita leika tveir fslenzkir
handknattleiksmenn með liðinu,
þeir Ólafur Jónsson og Axel
Axelsson. Augu áhorfenda beind-
ust sem vonlegt var fyrst og
fremst að þeim. Ólafur var róleg-
ur til að byrja með en tók sig á í
sfðari hálfleik og skoraði þá 3
mörk, þar af eitt með sfnum
frægu undirskotum og fékk að
launum gott lófaklapp. Axel skor-
aði 4 mörk en átti nokkur skot
framhjá markinu. Báðir virðast
vera f góðri æfingu. Annars voru
beztu menn liðsins þeir Becker
(nr. 6), Waltke (nr. 9), geysi-
sterkur varnarmaður, og mark-
vörðurinn Karcher.
hjóna en síðan komu 40% á tekj-
ur umfram þessi mörk. I ár komu
20% á fyrstu 750 þús. kr. af skatt-
gjaldstekjum einstaklinga en á
fyrstu 1.062.500 kr. hjá hjónum og
síðan 40% á tekjur umfram það
en á næsta ári munu 20% koma á
fyrstu 948 þús. krónurnar af tekj-
um einstaklinga en á fyrstu
1.343.000 kr. skattgjaldstekna
hjóna og síðan 40% á tekjurnar
sem þar eru umfram.
Á sama hátt voru barnabætur
með einu barni árið 1975 kr. 30
þúsund, hækkuðu í 37.500 kr. í ár
og verða samkvæmt framan-
greindri visitölu 47.400 kr. á
næsta ári. Barnabætur með fleiri
börnum en einu voru árið 1975,
miðað við vísitöluna 100, kr. 45
þúsund, hækkuðu f 56.250 í ár og
verða á næsta ári 71.100 krónur
miðað við framangreindar for-
sendur.
Um Valsliðið þarf ekki að hafa
mörg orð, það átti ömurlegan leik.
Mörk Dankersen: Becker 5,
Axel Axelsson 4, Ólafur Jónsson
3, Waltke 3, Meyer 3, aðrir minna.
Mörk Vals: Jón Karísson 4 (1
víti), Jón Pétur Jónsson 2, Þor-
björn Guðmundsson 2, Gunn-
steinn Skúlason 1 og Steindór
Gunnarsson 1 mark.
Dómarar voru Gunnar Gunnars-
son og Sigurður Hannesson. Þeir
dæmdu mjög vel.
— Flugvélar
Framhald af bls. 48
fari í mikla skoðun en að sögn
Péturs Sigurðssonar er ekki
ákveðið, hvort sú skoðun fer fram
hér heima eða erlendis, ,,um það á
eftir að semja," sagði hann.
„Við gerum ráð fyrir að þegar
TF-SÝR kemur úr skoðuninni,
verði báðar Fokker-vélarnar not-
aðar af fullum krafti við gæzlu-
störf. Enda er það svo að öll vit-
neskja um 200 mílurnar í framtíð-
inni mun koma frá flugvélunum.
Ef eitthvað er óeðlilegt þá verða
varðskipin síðan send á vettvang,
þau komast aldrei nema yfir brot
af því hafsvæði, sem er innan 200
milna markanna," sagði Pétur að
lokum.
— Skuttogarar
Framhald af bls. 48
berg ÓF 12 með 11.6 lestir og
Bessi IS 410 með 11.5 lestir.
Ef litið er á meðalskiptaverð-
mæti pr. kfló er það hæst hjá
Framnesi ÍS 708, kr. 54.80, þá
kemur Guðbjartur IS með 53.40
kr. og Páll Pálsson IS 102 með kr.
53.30. Af stærri skuttogurum er
Kaldbakur EA 301 með hæsta
meðalskiptaverðmæti pr. kíló, kr.
50.90, annar Akureyrartogari er f
þriðja sæti, Harðbakur EA 303,
með 47.30 og f þriðja sæti er lika
Akureyrartogari, Sléttbakur, með
kr. 43.10.