Morgunblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1977
11
Ungur stýrimaður í Ólafsvík hefur fundið upp útbúnað við lagningu netatrossa, sem
hefur í för með sér að hún verður mun hættuminni en áður hefur verið, svo sem
Morgunblaðið skýrði frá nú fyrir helgi. Á þessari mynd sést uppfinningamaðurinn
Höskuldur Magnússon, stýrimaður á mb. Stefáni Kristjánssyni SH, leggja netagrjót-
ið að rennu, sem flytur síðan grjótið útbyrðis i lagningu.
Japanir færa
út í 200 mílur
Tokyo, 26. janúar. Reuter
JAPANSKA stjórnin sendi Sovét-
stjórninni mótmælaorðsendingu f
dag og krafðist þess að sovézkir
togarar hættu að losa úrgangsefni
f sjóinn og skemma þar með
japönsk veiðarfæri.
Starfsmenn japanska utanríkis-
ráðuneytisins segja að með orð-
sendingunni hafi verið sendar
ljósmyndir sem sýni sovézk skip
losa úrgangsefni eins og
blikkdósir í sjóinn.
Fyrr í dag samþykkti japanska
stjórnin að leggja fram frumvarp
innan skamms um útfærslu
japönsku landhelginnar úr
þremur mílum í 12 mílur.
Reiðir japanskir fiskimenn
losuðu á föstudag úrgangsefni
sem þeir sögðu að væru úr sovézk-
um skipum og kröfðust þess að
landhelgin yrði fljótlega færð út í
12 mílur.
Mamouru Shigemitsu sendi-
herra Japans i Moskvu, segir að
útfærslan í 12 milur muni ekki
hafa alvarleg áhrif á viðræður
sem ráðgert er hefjist milli
fulltrúa landanna í Moskvu 15.
marz.
Shigemitsu hefur verið
kallaður heim til Tokyo til skrafs
og ráðagerða. Hann sagði
japönsku fréttastofunni Kyoko að
Rússar væru reiðubúnir að fallast
á útfærslu japönsku land-
helginnar i 12 mílur.
Hins vegar segir sendiherrann
að umræðurnar muni fyrst og
fremst fjalla um afstöðu Japana
til útfærslu sovézku fiskveiðilög-
sögunnar i 200 milur.
Norræn veflist á
Kjarvalsstöðum
ÚRVAL norrænnar veflistar mun á næstunni verða til sýnis á Kjarvals-
stöðum. Verða þar sýnd 116 verk eftir 95 listamenn frá öllum
Norðurlandanna, þ.á m. eru verk eftir 6 íslendinga. Verður sýning þessi
opin frá 29. janúar til 20. febrúar n.k., og meðan á sýningu stendur
munu Flugleiðir veita fólki utan af landi sérstakan helgarafslátt á
fargjöldum
í fréttatilkynningu frá listráði Kjarvalsstaða segirað Norðurlandabúar hafi
lagt stund á veflist frá örófi alda. Hafi það í fyrstu verið af ríkri nauðsyn, þ e
til að skýla líkamanum fyrir veðri og vindum, en síðar til augnayndis eða til
heiðurs Guði. Nú er svo komið, að hvert um sig eiga Norðurlöndin
listamenn í greininni
Það mun hafa verið fyrir tveimur árum að vinnuhópur veflistarmanna í
Danmörku kom saman til að leggja drög að stórri sýningu sem gæfi fyllri
hugmynd um það sem væri að gerast í veflist á Norðurlöndum, en hópnum
fannst að listasöfn sýndu listgreininni lítinn sóma.
Þessi sýning skyldi siðan fara um öll Norðurlöndin. Auglýst var eftir
verkum og bárust alls 665 og úr þeim voru svo valin þau 1 16 sem sýnd
eru. Alls sendu 1 6 fslenzkir listamenn verk, en úr þeim voru valin verk eftir
6 höfunda, sem þykir hátt hlutfall.
Þessi sýning hófst í Listasafninu í Álaborg, fór þaðan til Höviködden
listamiðstöðvarinnar í Ósló, þaðan til Listasafnsins i Málmey, síðan til
Waino Aaltonen-listasafnsins i Ábo, en þaðan kemur sýningin hingað að
Kjarvalsstöðum Héðan fer hún svo til Listaskálans í Þórshöfn.
Hafa gagnrýnendur allsstaðar lokið miklu lofsorði á þessa sýningu.
Menntamálaráðuneytið og menntamálaráð styrktu hana, en undirbúning og
upþsetningu önnuðust þær Ásgerður Búadóttir, Þorbjörg Þórðardóttir,
Sigrún Sverrisdóttir og Ragna Róbertsdóttir.
Sem fyrr segir verður sýningin opin frá 29 janúar til 20. febrúar, á
venjulegum opnunartima Kjarvalsstaða