Morgunblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1977 17 Hvernig gat það farið fram hjá ræðismannsskrifstofu Frakka í Bayrouth hver maðurinn Youssef Raji var? aö Fatah geri nú upp við Abou I)aoud og komi honum fyrir kattarnef? Ekkert slíkt gerist. Hann er hvítþveginn og gerðir hans látnar falla í gleymsku. Verndari hans er hinn almáttugi Abou Ayad, og hann er tryggur Yasser Arafat. Var það þá bara vegabréfið hans, sem fór til MUnchen? Síðari hluta mánudags 10. janúar 1977 berst leyniskjal til Parísar, í Rabelais-götu, steinsnar frá hringtorginu á Champs Elysées. Það er frá Jerúsalem og komið með diplómatapósti til sendiherra israels. Þarna er skýrsla í smá- atriðum um allar ferðir Abou Daouds, sem sýnir aö Palenstínu- maðurinn hefur þrisvar sinnum komið til MUnchen fyrir Olympíu- leikana og hafði fengið upplýs- ingar hjá Baader- Meinhof-hópnum um skipulagið í Ólympíuþorpinu. Abou Daoud hefur svo farið frá MUnchen 5. september, daginn sem árásin var gerð á iþróttamennina. Miðvikudaginn 12. janúar 1977 ræðst Reinhard Beck, talsmaður dómsmálaráðherra Bayern, gegn kenningunni um lánað vegabréf. Hann segir: „Abou Daoud sjálfur sást í mörgum hótelum í MUnchen. Fjölmörg vitni hafa þekkt hann og geta staðfest það." Hvernig gat ræðismaður Frakka í Beyrout komist hjá því að þekkja andlitsdrætti svo alkunnugs manns? Vegabréfsárit- unin var gefin í flýti. Það er góð afsökun og kannski rétt. Og þó. Ræðismannsskrifstofan hefur i föstu starfi sínu franskan njósn- ara Sdece. Hann bar áður nafnið „Max". Við höndina er öryggis- skápurinn. Þar á hver foringi Palestínumanna sína möppu með mynd af honum og jafnvel fingra- förum þeirra. 1 sendinefndinni til Parísar voru þó ekki nema tveir menn. Ekki þurfi að taka langan tíma að fá einfalda hefðbundna staðfestingu til öryggis. Jafnvel í allri þeirri óreiðu sem nú er í Beyrouth. Á maður að trúa því að Sdece hafi látið svona mikilvæga persónur renna sér úr greipum? Hefur upplýsingunum verið stungið undir stól í París, ef þær hafa þá farið frá Beyrouth? A fimmtudagskvöld gaf Raymond Barre forsætisráðherra út yfirlýs- ingu: „Hin hefðbundna athugun, sem jafnan fer fram i ræðis- mannsskrifstofunni, gaf ekki til kynna hver þessi maður var, sem gekk undir nafninu Youssef Raji.“ Upplýsingarnar um að Abou Daoud væri kominn til Frakk- lands komu sem sagt ekki frá Sdece, heldur frá Moddad, leyni- þjónustu israelsmanna. í Jerú- salem litu menn svo á að ekki ætti að gera Frökkum fyrst viðvart, en sögðu sem svo: „Upplýsingum um þetta verður betur tekið frá Þýzkalandi en ef þær kæmu frá Ísrael. F’östudaginn 7. janúar lagði erindreki Mossads í Munchen leið sína í innanrikisráðuneytið Bayern. „Abou Daoud er í París," upplýsti hann. „Þið ættuð að fara fram á það að Frakkar framselji hann." Þýska lögreglan sendir upplýs- ingarnar áfram til Parísar. Mossad bíður eftir þessum af- skiptum, áður en þaðan er send tilkynning til frönsku lögregl- unnar. Við þessar upplýsingar stóð innanríkisráðherrann, Poniatiswki, andspænis erfiðu vali. „Ef Frakkar létu Abou Daoud nú fara svo lítið bæri á, þá ættu þeir á hættu miklar árásir Israels- manna," sagði einn embættis- mannanna mér i trúnaði. Jarðarför Mahmoud Saleh átti ekki að fara fram fyrr en daginn eftir, á laugardeginum. Tíma- skortur gat ekki orðið nein afsök- un hér. Abou Daoud og Abou Mezer, fulltrúar utanríkisþjón- Ellefu fþróttamenn voru drepnír á Olympfuleikunum f Miinchen. Hér eru þrfr af hryðjuverkamönnum Palestfnumanna við komuna til Libanon. Þjóðverjar slepptu þeim eftir árás á Lufthansaflugvél í október. ustu PLO, voru búnir að vera í París síðan á miðvikudag. Fulltrúi P:Iestínumanna í París, M. Kallak, hafði séð um allan undirbúning. Hann hafði keypt legstað í Pére-Lachaise kirkju- garðinum, gengið frá forms- atriðum við prestinn og jarðar- fararstjórann varðandi líkið, átt tal við lögregluna um líkfylgdina inni í kirkjugarðinum. Hann hafði líka tilkynnt utanríkisráðu- neytinu nöfn hinna opinberu full- trúa Palestínuaraba, þ.e. nafn Youssefs Raji, eins og stóð í vega- bréfinu, en ekki hið rétta nafn mannsins. „Ekki veit ég hvort franska sendiráðinu í Beyrouth var opin- berlega kunnugt um hver bróðir Youssef Raji er," sagði Kallak, sem er ungur maður með asíu- svip, við fréttamann Express." En hvernig gat það farið fram hjá þeim að þetta var Abou Daoud? Hann er blaðafulltrúi PLO. 1 hverri viku er birt mynd af honum í blöðum í Líbanon. Þessi stóri maður með þykku gleraugun er heldur ekki maður, sem fer fram hjá manni, eða vekur enga athygli. ..“ Mr. Kallak gerir lögreglunni líka viðvart, eins og hann er van- ur að gera í hvert skipti sem hátt settir Palestínumenn koma til Frakklands. Það er gert í þvi skyni að tryggja þeim vernd. Parísarlögreglan hafði þyí sett tvo lögreglumenn á vakt við dyrnar á Hótel Residence Saint- Honore, 214 faubourg Saint Honoré. „Við völdum þetta hótel, af því það er svo nálægt skrifstofunum okkar viö Haussmann- breiðgötuna," segir Kallak háðs- lega. „Það var mjög handhægt. Að auki er innanríkisráðuneytið þarna alveg á næstu grösum. 1 því er visst öryggi. . Fimmtudaginn 6. janúar tekur ráðuneytisstjórinn fyrir Norður- Afríku, Pierre Cerles, á móti Palestínumönnunum síðdegis í utanríkisráðuneytinu. Frakkar hafa áhuga á því að taka þátt í skipan mála í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, og tryggja þá skipan. Það er þáttur í stjórnarstefnu Frakka við Mið- jarðarhaf. Þeir mundu ekki hafna því áð eiga sæti á ráðstefnunni i Genf þann dag, sem tekst að fá andstæðingana alla til að setjast þar að einu samningaborði. Auk þess hefur París undanfarna mánuði verið nokkurs konar sam- komustaður, þar sem velviljaðir ísraelsmenn og Palestínumenn hafa hitzt svo lítið bar á fyrir milligöngu Pierres Mendes France. Og utanríkisráðuneytið franska hefur fengið það við- fangsefni að opna leiðir. 0 Sönnun Öryggislögreglan fréttir sem sagt föstudaginn 7. janúar að gestur utanríkisráðuneytisins sé Abou Daoud. Þar kemur gott tækifæri til að undirstrika mistök Sdeces eða eitthvert brall. En Marcel Chalet, yfirmaður öryggis- lögreglunnar, er ekki neinn æsingamaður eða fyrir það að taka mikla áhættu. Hann vill því fá fyrirmæli frá Poniatowski ráð- herra. Þegar K:llak kemur til að hitta vini sína kl. 19.30 á föstudags- kvöld er heilmikið af lögreglu- bílum fyrir framan hótelið í Saint-Honore stræti. Hann kemur rétt í þann mund, sem óeinkennis- klæddur rannsóknalögreglu- maður er að spyrja eftir Abou Daoud. Kallak ætlar að blanda sér í málið. En lögreglumaðurinn kveðst hafa skipun um að koma með Daoud í innanríkisráðu- neytið. Kallak vill haf samband við utanríkisráðuneytið, en mót- mælum hans er ekki sinnt. Kallak hefur látið hafa eftir sér að lög- reglumennirnir hafi sagt honum að vera alveg rólegum: „Þetta er ekkert alvarlegt. Aðeins verið að fá staðfestingu á því hver maður- inn er. Vinur yðar verður látinn laus strax aftur." Þegar svo er komið, vita hvorki forsetinn, forsætisráðherrann né utanríkisráðherrann um þetta. Abou Daoud er ekki tekinn fast- ur, í réttri merkingu þess orðs, heldur aðeins sóttur til að gefa upplýsingar. Tveimur klukku- stundum síðar eða kl. 22 hringir Werner Maihoffer, innanríkisráð- herra Þýzkalands, til Poniatow- ski, innanríkisráðherra Frakka. „á morgun sendum við beiðni um framsal," segir hann. „Já, sendið mér fljótt skeyti," svarar franski ráðherrann. Frakkar, sem búa við eina stjórn , þekkja ekki nema sam- bandsstjórnina í Bonn. En hand- Ekkjur og börn fsraelsku fþróttamannanna mótmæla fyrir framan franska sendiráð- ið í Tel Aviv 12. janúar. an Rinarfljóts er málið ekki svo einfalt. Þar er sambandsríki. Árásin á íþróttamennina var gerð í Miinchen, höfuðborg Bayern, sem hefur sína eigin stjórn, þar sem kristilegir demókratar ráða. Ráðherrann í Bonn getur því ekki sjálfur sent franska ráðherranum beiðni um framsal. Hann verður að „senda áfram" beiðni frá bayerskum yfirvöldum. Samt sem áður leyfir hann sér að senda eftirfarandi skeyti kl. 22.57: „Hérmeð tilkynni ég opinberlega að þýzk stjórnvöld munu á morg- un fara fram á það við frönsk stjórnvöld að framselja M. Abou Daoud, alias Saas Wali, alias Raji Youssef." Saad Wali er nafnið á vegabréfinu, sem Abou Daoud kveðst hafa lánað í Sofiu. Raji, aftur á móti er rangt. Fyrir milligöngu dómara í sam- bandsríkinu er á laugardagsmorg- un gefin út í Bayern handtöku- skipun og ákæra. Það er ekki krafa um afhendingu, Bayarar hyggjast undirbúa málið á tutt- ugu dögum. Innanríkisráðherr- ann franski gerir sig ánægðan með þetta í svipinn. Kl. 17 er afhendingarmál Abou Daouds tekið fyrir. Stjórnvöld virðast ekki hafa af þessu neinar áhyggj- ur fyrr en kl. 2 á mánudag. Þá eru sendíherrar Araba kallaðir á fund í utanríkis- og innanríkisráðu- neytunum. „PLO hefur gert slæma skyssu með því að senda hingað Abou Daoud," segir einn franski ráð- herrann ásakandi. Og fulltrúar stjórnarinnar í Bayrouth viður- kenna það. „En jafnvel þó PLO hafi gert skyssu, þá hefðu Frakkar átt að loka augunum fyrir henni," segir M. Mohamed Bedjaoui, sendi- herra Alsir. Hvert smáatriði er undir smásjá í Israel, þar sem menn bíða, vega og meta aðstæður og gera sínar athugasemdir. Itzhak Rabin for- sætisráðherra hefur fengið frétt- ina á föstudagskvöld. Á laugardag á að vera fundur í Mossad um mál Abou Daouds. Mossad hefur verið sakað um að elta uppi og reyna að ráða niðurlögum allra þeirra, sem á einhverju stigi lögðu á ráðin og framkvæmdu hryðjuverkin á Ólympíuleikunum. I bók, sem ger- ir ekki alltaf nægan greinarmun á staðreyndum og orðrómi, en er samt mjög athyglisverð, segja David Tinnin og Dag Christensen frá þessum mannaveiðum. Elting- arleikurinn við Rauða prinsinn", eins og það heitir hjá Mossad. Sunnudaginn 9. janúar ákveða stjórnvöld í Jerúsalem að krefjast framsals Abou Daouds. „Krafa ísraelsmanna kemur á engan hátt í stað kröfu Þjóðverja," segir í orðsendingu til sendiherra ísraels í Bonn. En málið helst ekki í höndum ráðuneytanna. Kosning- ar standa fyrir dyrum í tsrael. Fjórir stjórnarandstöðuflokkar fara fram á umræður um málið í Knessetþinginu. Þær eru ákveðn- ar á þriðjudag. „1 fjögur og hálft ár höfum við beðið eftir því að geta sagt við börnin okkar, að búið sé að hand- taka morðingja föður þeirra," seg- ir ekkjá eins fórnarlambsins, frú Amki Spitzer. Um tvöleytið á mánudag skellur óveðrið á í París. Skeyti frá Bo.nn gefur til kynna vandræði Þjóð- verja, sem ekki eru neitt a'stir í að fá Abou Daoud. Yrði hægt að gæta svo erfiðs fanga í 20 daga í Santé-fangelsinu? Ef Þjóðverjar bera nú aldrei fram formlega kröfu um framsal? Oróinn í Arabalöndunum gerir þá kvíðna. Ef sendiherra F’rakka í Aden eða einhvers staðar annars staðar yrði nú tekinn sem gísl og stungið upp á mannaskiptum? 0 Feluleikur Einasta leiðin eru dómstólarnir. Akærudómstóllinn á að koma Framhald á bls. 31 Cirein »r franska vikuritinu í Exprcss uni málið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.