Morgunblaðið - 10.02.1977, Page 17

Morgunblaðið - 10.02.1977, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1977 17 ÞORSKURINN Atbragð annarra fiska, segir New York Times og birtir um hann haug af uppskriftum % Þorskurinn er ekki hátt skrifaður hjá okkur íslendingum nema þá sem einhver traustasta og drýgsta tekjulindin sem þessi þjóð hefur nokkru sinni átt. Það er þá helst þegar búið er að salta hann og þurrka sem honum er ennþá hleypt upp á diskana hjá okkur sjálfum — sums staðar. En erlendis er hann ennþá metinn að verðleikum og kemst þar jafnvel á síður stórblaða sem sérstakt góðgæti. Útlendingar stinga honum heldur ekki einfaldlega í pottinn og bíða þá hálfsofandi eftir því að hann eigi að heita soðinn. Þeir umgangast hann ekki eins og hvert annað tros nema síður sé. Þeir beita þvert á móti hinum listrænustu vinnubrögðum við matreiðslu hans. Núna í janúar var meistari þorskur stóra númerið í matreiðsludálkum New York Times, þar sem sérfræðingur hins heimskunna blaðs skrifaði meðal annars: „Fátt er betur til þess fallið að lífga upp á matseðilinn en nýveiddur þorskur úr Atlantsál- um. Hann á sér fáa keppinauta meðal fiska hvað bragðgæðin varðar og glæsileikann. Þar að auki er hann ekki sérlega dýr, svo að sælkerar geta neytt þessarar úrvalsfæðu án þess samtímis að éta sig út á gaddinn.“ — New York Times birti líka eftirfarandi uppskrift- ir sem við hyggjum að lesendum muni finnast forvitnilegar — og jafnvel freistandi að reyna. POTTRÉTTER ÚR ÞORSKI OG KARTÖFLÚM. 700 gr. nýr þorskur (roðflettur og beinlaus) 100 gr. saltað svínaflesk (eða bacon) skorið í litla teninga. 1 bolli smáttskorinn laukur. 1 lauf hvítlaukur (marið) 1 lárviðarlauf. 'n tsk saffron (má sleppa) '/>- kg kartöflur — afhýddar og skornar í litl teninga (ætti að vera um 3 bollar) 4 bollar fisksoð af beinum þorsksins. '4 bolli smásöxuð steinselja (má einnig nota þurrkaða þá um 1 tsk.) 1/8 tsk: Cayenn-pipar salt og nýmalaður pipar til bragðbætis. 2 bollar mjólk. Skerið þorskinn í litla bita og setjið til hliðar, steikið fleskið í þykkbotna potti þar til mest af feitinni hefur bráðnað og fleskið er aðeins farið að brúnast. Bætið þá út í feitina lauknum og látið hann verða mjúkan. Þá er hvitlaukurinn, saffronið og lárviðarlaufið sett út í feitina og allt látið malla við vægan hita í u.þ.b. 5 mín. Hrært öðru hvoru Kartöflunum nú bætt út í og hrært vel í, síðan fisksoðinu, steinseljunni, salti, pipar og cayenn-pipar. Suðan látin koma upp, Iátið malla rólega í 30 mín. Bætið þá út í fiskinum og látið sjóða í aðeins um 1 mín. Setjið mjólkina út i og suðan látin koma upp. Borið á borð í pottinum og piparkvörnin látin vera við höndina ef bragðbæta þyrfti réttinn. Uppskriftin er ætluð fyrir 4—6 manns. TÆR FISKSÚPA 700 gr. fiskbein — hreinsuð vel undir rennandí vatni. 4 bollar vatn. 3 kvistar steinselja (eða litil tesk. af þurrkaðri stein- selju), salt og nýmalaður pipar til bragðbætis. Allt soðið saman i um 5 mín. Sigtað. Borið fram með ristuðu brauði og smjöri. Nægir fyrir 4. Hér kemur siðan reglulegur veislumatur: LÉTTSOÐINN HEILL ÞORSKÚR. „ STÓR ÞORSKUR, $—5 kg — vel hreinsaður og tálknin fjarlægð en hausinn látinn vera á fiskinum. 2 bollar þurrt hvítvín. 12 bollar vatn. 1 tesk. rósmarin. 1 Iárviðarlauf. '/•j bolli gróft saxaður laukur. 1 stk. sterkur rauður pipar (mexikanskur). Má notast við 2—3 dropa af tabasco-sósu ef piparinn er ekki fyrir hendi. 4 greinar ný steinselja (eða '/> tesk. þurrkuð) lOgreinar nýtt dill (eða 1 '/> tesk. þurrkað). salt og nýmalaður pipar til bragðbætis. Þorskurinn hreinsaður og skafinn vel, lagður til hliðar. Blandið öllu öðru úr uppskriftinni saman í stóran fiskipott. Sjóðið hægt í 15. mín. — Látið kólna lítillega. Setjið nú fiskinn út í pottinn, sjóðið hægt í 15—20 mín. Berið fiskinn fram í heilu lagi á fati, sem hefur fyrst verið hitað. Með þessum rétti á aö bera fram olíusósu. (Athugasemd þýðanda: Hér mun vera átt við fiskipott af þeirri tegund sem hér er stundum nefndur „lax- pottur". Pottar þessir eru aflangir, með grind í botn- inum, þannig er hægt að lyfta fiskinum upp í heilu lagi og án þess að hann detti í sundur.). OLÍUSÓSA MEÐ APPELSÍNU ___________OG DILL-BRAGÐl.___________ 1 eggjarauða, 2 matsk. Franskt sinnep, 1 bolli matar- olía (helst ólífuolía), ‘4 bolli saxað nýtt dill (eða 1 tesk. þurrkað) safi úr '/> appelsínu, salt og pipar til bragðbætis. Setjið eggjarauðuna í djúpa skál og blandið út í hana sinnepinu salti og pipar. Í þessu er hrært kröftuglega með sósuþeytara. Oliunni er bætt varlega út í smátt og smátt. Gætið þess að hræra stöðugt í á meðan, annars vill blandan skiljast að. Þegar þetta tekur að þykkna er appelsínusafanum og dillinu blandað við og hrært vel í. Ofangreind uppskrift er ætluð fyrir 10—12 manns. LÉTTSOÐIN ÞORSKFLÖK MEÐ SMJÖRSÓSÚ. 4 stykki úr þorskflaki, um 100 gr. hvert stykki (roðflett) V> bolli mjólk. 1 lárviðarlauf — salt og nýmalaður pipar. '/> laukur, er stungið hefur verið í 1 heilum negulnagla. 1 /8 tesk Cayenn-pipar. 3 greinar steinselja (eða tæp tesk. þurrkuð) Setjið þorskflökin í djúpa pönnu eða víðan pott og látið vatn aðeins fljóta yfir þau. Bætið út í mjólkinni, lárviðarlaufinu, salti, pipar, lauk, cayenn og steinselju. Suðan látin koma upp og malla rólega i u.þ.b. 3 mín. Takiö af hitanum og látið bíða í pottinum í nokkrar mínútur. FTökin færð varlega upp úr pottinum á heitt fat. Srhjörsósu hellt yfir og borið fram með soðnum kartöflum er dilli hefur verið stráð yfir. SMJÖRSÓSA 8 matsk. smjör, 1 lauf marinn hvítlaukur. Smjörið brætt með hvítlauknum út í, látið standa örlitla stund. Síðan hitað aftur, hvítlaukurinn tekinn úr áður en smjörinu er hellt yfir fiskinn. Bon appetit. Járniðnaðurinn: Viðhalds- og viðgerðarvinna eftir reikningi gefur minnstan hagnað EINS konar gegnumlýsing á vandamálum fyrirtækja innan járniðnaðarins undir forsjá dansks sér- fræðings leiddi í ljós, að arðsemi þessara fyrirtækja er of lftil, og lágmarks- hagnaður þyrfti að vera 3—5 sinnum meiri en reyndin sýndi, svo og að viðgerðar- og viðhalds- vinna eftir reikningi sé sú starfsemi járniðnaðarins sem minnstan hagnað gefur og jafnvel tap í ýmsum tilvikum. Þá kom og i ljós að verðbólgan leiðir tíðum til óraunhæfra fjár- festinga i byggingum og vélum, þar sem raunsæir útreikningar mundu sýna óeðlilega lága ávöxt- un fjármagns og að stjórnendur fyrirtækja skorti í mörgum til- vikum skilning á hagstjórnar- þætti rekstursins, svo og að þeir noti ekki bókhaldskerfið sem raunverulega uppsprettu upplýs- inga og tæki til að koma auga á og skýrgreina aðsteðjandi vandamál. Þótti engum vafa undirorpið að stjórnendur ísl. fyrirtækja gætu notað rekstrarleg hag- og stjórnartæki með jafnmiklum árangri og keppinautar þeirra er- lendis. Loks kom fram, að íslenzk- ur málmiðnaður á marga ónýtta möguleika. Það var í síðustu viku að 12 járniðnaðarfyrirtæki tóku þátt í skipulagðri hugmyndaleit á vegum Iðnþróunarstofnunar íslands en undir stjórn René Mortensen, forstjóra stofnunar- innar Institutet for Lederskap og Lonsomhed i Kaupmannahöfn. Var þetta lióur i tækniaðstoðar- áætlun, sem staðið hefur yfir um eins árs skeið með tilstyrk Iðn- þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og ljúka mun á miðju þessu ári. Hvert þessara fyrirtækja varð aðnjótandi ráðgjafarþjónustu, sem stóð yfir i hálfan eða heilan dag. Þar voru vandamál fyrir- tækjanna tekin til eins konar gegnumlýsingar með sérstökum greiningaraðferðum og i kjölfarið fylgdi kerfisbundin leit að hug- myndum til betri arðsemi. Árang- urinn hér varð um 270 hugmyndir að meðaltali fyrir hvert fyrirtæki eftir vikuna eða svipað hlutfall og fæst með áþekkum aðferðum er- lendis. í fréttatilkynningu Iðn- þróunarstofnunar segir, að um 10% hugmyndanna megi undan- tekningalítið nota i reynd. Auk danska sérfræðingsins tóku tveir Islenzkir starfsmenn UNIDO, þeir Sighvatur Eiriksson og Hlöðver Örn Ölason, þátt I þessari at- hugun ásamt verkefnisstjóranum Mogens Höst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.