Morgunblaðið - 10.02.1977, Qupperneq 23
23
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 1977
Bandaríkjamenn
hætta að bólusetja
gegn svínainflúensu
Farið varlega í bólusetningu hér
BANDARÍSK heilbrigðisyfirvöld
hafa ákveðið að falla frá fyrri
ákvörðun stjórnvalda um alls-
herjarbólusetningu gegn svinain-
flúensu þar vestra, að þvf er
Ólafur Ölafsson, landlæknir, tjáði
Morgunbiaðinu f gær, en honum
hafði þá nýlega borizt skýrsla um
þessa ákvörðun frá aðalstöðvum
heilbrigðisstofnunarinnar í
Atlanta.
Að sögn Ólafs verður nú sá hátt-
ur hafður á að aðeins verða bólu-
settir þeir, sem læknar telja
brýna þörf á að bólusetja með
tilliti til þess að viðkomandi þoli
ekki háan hita og er þar fyrst og
fremst um aldrað fólk að ræða. í
allmörgum tilfellum í Bandaríkj-
unum hafa samhlióa bólusetn-
ingu komið fram aukaverkanir i
mynd vægrar lömunar, sem þó
hefur oftast nær ekki reynzt
varanleg en einnig hafa fáeinir
látizt af þessum sökum. Ekkert
nýtt tilfelli svínainflúensu hefur
komið upp nema hvað grunur var
um eitt tilfelli i Noregi. Það var
strax einangrað og hefur ekkert
frekar frétzt af þvi, að sögn land-
læknis.
Hér á landi hefur töluvert af
öldruðu fólki verið bólusett gegn
svinainflúensu. Að sögn Ólafs
hefur þó verið farið mjög gæti-
lega í sakirnar og engra auka-
verkana hefur orðið vart hér á
landi. Tók Ólafur fram, að bólu-
efnið, sem hér væri notað, væri
frá öórum lyfjaframleiðanda en
það sem notað hefði verið i
Bandarikjunum.
Varðandi inflúensu að öðru
leyti sagði landllæknir, að fréttir
hefðu borizt af því, að inflúensa
af B-stofni gengi nú I hluta
Bandarikjaanna. Hér á landi hef-
ur his vegar lítið borið á faröldr-
um það sem af er vetri og enginn
meiriháttar farsótt komið upp.
Kvistað í Hljómskálagarðinum
Eins og annars staðar er nauðsynlegt að kvista limgerðið í Hljóm-
skálagarðinum annað slagið til að þétta vöxtinn. Þó gerðið standi
næsta ræfilslegt eftir þá jafnar það sig örugglega fljótlega og
verður bæjarprýði á ný strax f sumar.
Skotar gáf u leikinn og Island
komst beint í 2. umferd Ol-
ympíumótsins í „tele-skák”
EINS og fram hefur komið f Mbl.,
er fyrsta Ólympfumótið f „tele-
skák“ f þann veginn að hefjast. 1
fyrstu umferð átti Island að
keppa við Skota, en þeir hafa nú
dregið sig út úr keppninni öllum
á óvart, og er tsland þar með
komið f aðra umferð keppninnar
eða 8-þjóða úrslit, en 14 þjóðir
höfðu tilkynnt þátttöku í keppn-
inni.
Með „tele-skák“ er átt við skák-
keppni, þar sem leikirnir eru
fluttir milli keppenda um telex,
ritsima, talsíma eða útvarp
(amatör), jafnframt því sem
skákklukkur eru notaðar til að
mæla tima keppenda. í gildi er
almenn reglugerð fyrir hvers
konar keppni af þessu tagi.
Ólympfumótið i tele-skák er
alþjóðleg sveitakeppni milli
þjóða, þar sem keppt er um sér-
stakan bikar, sem FIDE og ICCF
hafa gefið.
Keppnin mun verða haldin á
tveggja ára fresti með útsláttar-
fyrirkomulagi. I hverri sveit
skulu vera átta keppendur, og
hefur skákstjórn mælzt til þess að
i hverri sveit séu ein kona og einn
unglingur, en það er þó samkomu-
lagsatriði milli keppnisaðila.
.Skákreglur FIDE munu gilda hér
eins og í venjulegri skákkeppni,
að svo miklu leyti sem við verður
komið. Hámarkstimi hverrar
Framhald á bls. 24.
1
1 Reykjavík og Vestmannaeyjum er beðið eftir loðnunni, en á báðum stöðunum hefur verið dauft yfir
vertíðinni til þessa. (ljósm. Mbl. Ól. K. Mag.).
Þorlákshöfn, Vestmannaeyjar og Reykjavík:
Janúarmánuður léleg-
ur hjá netabátunum
ÞAÐ SEM af er vertiðinni hefur verið tregur afli hjá netabátum úr
Þorlákshöfn, en heldur hefur það verið skárra hjá þeim sem stunda
Ifnuna, en það eru aðeins 3 bátar. Sömu sögu er að segja af þeim fáu
bátum, sem leggja upp afla sinn í Reykjavík, og í Vestmannaeyjum
er varla hægt að segja að vertíðin sé byrjuð enn. Þar bíða menn
eftir loðnunni eins og víðar og reikna ekki með gamalkunnri
vertíðarstemmningu fyrr en í marz.
Pétur Friðriksson á hafnar-
vigtinni í Þorlákshöfn sagði í
samtali við Mbl. í gær að þaðan
væru gerðir út 16 bátar á net, 3
á linu og 1 á troll. Afli hefði
verið sæmilegur á línuna, en
hins vegar hefði ekkert fengizt
í netin, verið steindautt eins og
hann orðaði það. — Þó kom
Búrfellið inn með 30 tonn á
mánudaginn og er það það lang-
bezta hjá bátunum það sem af
er vertíðinni. Það þarf varla að
taka það fram, að aflinn var
tveggja nátta, þvi tiðin hefur
verið erfið til sjávarins og sjald-
an gefið tvo daga i röð, sagði
Pétur.
Hann bar saman janúarmán-
uð núna og í fyrra og sagði að
aflinn í ár væri miklu minrii en
i fyrra. Aflahæsti báturinn í
mánuðinum í fyrra var Friðrik
Sigurðsson með 210 tonn, af
aflahæsti báturinn i mánuðin-
um núna hefði verið Höfrungur
með 160 tonn.
Á vigt Fiskvinnslunnar og
Eyjabergs í Vestmannaeyjum
fengum við þær fréttir að ekk-
ert hefði verið að hafa hvorki á
net eða troll. 1 fyrradag hefði
bezti trollbáturinn, sem Ieggur
upp hjá fyrrnefndum fyrir-
tækjum, verið með 3H tonn og
afli eina netabátsins, sem þessi
fyrirtæki gera út, var með 890
kg. — Janúar og febrúar eru
orðnir steindauðir mánuðir og
hér kemst ekki vertíðarbragur
á fyrr en í marz núorðið. Þá
lifnar yfir og aðkomufólkið fer
að koma hingað. Nú bíðum við
bara eftir loðnunni og einhverj-
ir bátar eru á leiðinni, sögðu
þeir í Eyjum í gærdag.
Frá Reykjavík eru gerðir út
allmargir bátar á vertíðina, en
aðeins örfáir þeirra leggja upp
í Reykjavík. Aflanum er i flest-
um tilfellum landað á Suður-
nesjum og hann keyrður til
vinnsluhúsanna í Reykjavík.
Asþór er eini báturinn sem rær
á línu og leggur upp i Reykja-
vík. Var hann með 47 tonn i 5
róðrum f janúar, en oftast var
lagt tvisvar sinnum í hverjum
róðhi. Kom Asþór inn í gær með
8 tonn af ágætum fiski. AIls
komu bátarnir með 143 tonn á
land í Reykjavík í janúarmán-
uði i 19 róðrum.
Þrir bátar eru á trolli frá
Reykjavík, Skjaldborg, Fram
og Asver. Netabátunum frá
Reykjavík fjölgar næstu daga
því áhafnir Guðbjargar og Sifj-
ar eru langt komnar með að
steina niður netin. Er Sif ný-
kcypt til Reykjavíkur og eru
eigendur Hjallavík hf, en skip-
ið var áður i eigu Meitilsins i
Þorlákshöfn.
Bandaríska innanríkisráðuneytið:
Gefur út bækling um eldgosið
og hraunkælingu í Eyjum
BANDARÍSKA innanrlkisráðu-
neytið hefur gefið út bækling
sem nefnist: Maður gegn eld-
f jalli: Eldgosið í Heimaey, og þar
er lögð höfuðáherzla á árangur-
inn sem náðist f hraunkælingu
meðan á gosinu stóð og hvaða
lærdóm aðrar þjóðir, sem þurfa
að glfma við sams konar náttúru-
öfl, geti dregið af þessu braut-
ryðjandastarfi sem unnið var f
Vestmannaeyjum.
Bæklingurinn er 19 bls. og þar
er eldgosinu og baráttunni við
hraun og ösku lýst i máli og
myndum. Dr. Richard S. Williams
jr., jarðfræðingur við bandarisku
jarðfræðimiðstöðina og helzti höf-
undur bæklingsins, segir að lær-
dómurinn sem draga megi af gos-
inu i Vestmannaeyjum geti haft
verulega þýðingu fyrir önnur eld-
fjallasvæði á jörðunni og þar á
meðal fyrir landshluta í Banda-
rikjunum.
Sérstaklega benti Williams á,
að árangurinn sem náðist i
Heimaey hefði sérstakt mikilvægi
fyrir Hawaii-eyjar en þar er búizt
við eldgosi I Mauna Loa, stærsta
eldfjalli heims, einhvern tima fyr-
ir júli 1978 samkvæmt spá frá
bandarisku jarðfræðimiðstöðinni
sem gefin var út á siðasta ári. Ef
það eldgos hefur I för með sér
verulegt hraunrennsli á löngum
tima, þá er talin hætta á að hraun-
ið nái að eyða hluta Hiloborgar,
sem er I senn miðstöð efnahags-
lífs og samgangna á eynni.
Williams heldur því fram, að
starfið sem fram fór á Heimaey
með þvi að nota sjó til að kæla
hraunið og gerð varnargarða til
að stöðva eða beina hrauninu
ákveðna leið hafi verið viðamesta
tilraunin hingað til i því skyni að
ná tökum á hraunstraumi meðan
á gosi stóð. Hann segir jafnframt
að árangur eyjaskeggja i barátt-
unni við eldfjallið hafi leitt til
þess að önnur samfélög, er búi við
samsvarandi hættur af eldgosum
íhugi nú þann lærdóm sem draga
megi af eldgosinu i Heimaey og
hafi jafnframt haft í för með sér
að fá eldsumbrot i veröldinni hafi
verið ljósmynduð meira.
Meðal íslenzkra visindamanna
sem vitnað er til i bæklingi þess-
um eru Valdimar K. Jónsson,
Matthias Matthíasson, Sigurður
Þórarinsson, Sigurður Steinþórs-
son, Þorleifur Einarsson, Hrefna
Kristmannsdóttir og Nils Óskars-
son, en höfundur bæklingsins
beina sérstöku þakklæti til Þor-
björns Sigurgeirssonar,
prófessors, Magnúsar Magnús-
sonar, prófessors, og Steingrims
Hermannssonar, forstjóra Rann-
sóknaráðs rikisins.