Morgunblaðið - 06.03.1977, Side 27

Morgunblaðið - 06.03.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977 27 Lamaði maðnrinn JESÚS dvaldi um hríð úti í óbyggðum til að hvílast og biðjast fyrir. En þegar hann kom aftur til Kapernaum, þar sem hann átti heima, fréttist þegar, að hann væri kominn. Menn streymdu að, svo að hús- ið fylltist og mannþröng stóð einnig fyrir utan dyrnar. Jesús talaði til þeirra Guðs orð. Allt í einu heyrðist þrusk ofan af þakinu. Þangað voru komnir fjórir menn með vin sinn, sem var lamaður. Þeir höfðu ekki komizt inn í húsið til Jesú, en þeir vissu, að Jesús gæti hjálp- að þessum vini þeirra. Nú var aðeins eitt til ráða, þeir klifu upp á flatt þakið og rufu gat á það. Síðan létu þeir sfga niður sængina, sem lamaði maðurinn lá f, og hann kom niður þar sem Jesús var. Þegar Jesús sá, hversu sterk trú þeirra var, sagði hann við lamaða manninn: Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar. Margir urðu undrandi á þessum orðum, og nokkrir fræðimenn, sem þarna voru, hugsuðu: Hvers vegna segir hann þetta. Enginn geturtalað þannig nema Guð. Enginn get- ur fyrirgefið syndir nema Guð einn. Jesús sá hugsanir þeirra og sagði: Hvers vegna hugsið þið þetta? Hvort er auðveldara að . segja: Syndir þínar eru fyrir- gefnar— eða segja: Statt upp, tak sæng þína og gakk? Og til þess að sýna þeim, að sonur guðs hefði vald til að fyrirgefa syndir, sagði hann við lamaða manninn: Ég segi þér, statt upp, tak sæng þína og far heim til þín. Maðurinn stóð upp og tók sængina og gekk út í aug- sýn allra, svo aó allir urðu frá sér nurhdir og lofuðu Guð. Þeir fannst þetta svo stórkostlegt, að þeir sögðu hver við annan: Aldrei höfum við séð neitt þessu lfkt. Erókles hinn EINU sinni, ekki fyrir löngu, var uppi voldugur konungur, er Erókles hét. Erókles hinn mikli átti voldugt ríki, sem var í Mið-Afríku. Hann átti einnig fríða konu og fylgdarlið. Einn góðan veðurdag kom bréfdúfa til Erókles- ar og lét hann fá bréf, sem var svohljóðandi: „Erókles, komdu strax til Þýskalands og þú skalt búast við að vera þar í tvo eða þrjá daga. Bið að heilsa, Skarphéðinn A. Erókles var fyrst á báð- um áttum um það, hvort hann ætti að fara, og ákvað svo að fara og vita hvað Skarphéðinn vinur hans hefði að segja. Hann bjóst í flýti til ferð- ar og kvaddi konu sína. Þegar Erókles var alveg að koma að Þýskalandi með einkaflugvél sinni, var sem stærðar land- svæði væri alelda. Hann flýtti sér að lenda og sjá hvað væri að gerast. Þeg- ar hann fór að athuga þetta betur sá hann ljós mikið sem lýsti upp stór- mikli an hallargarð. Og loks komst hann að raun um að þetta var hallargarður Skarphéðins og þar væri mikið samkvæmi. Honum var boðinn dans og vfn, en hann hló bara og sagði: Skarphéðinn hefur kallað mig til samkvæmis með sterkum ljósköstur- um til þess að láta mér bregða i brún og halda að hér væri um að ræða stórbruna. Saga og myndskreyting: Ingibjörg Óðinsdóttir, 11 ára, Kópavogi. VESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA Þér getið auðveldlega séð hve stór GOLF er BOLF hefur allt sem nútímabíll þarf að hafa. Allt frá nýtísku undirvagni upp f þróaða vél, — frá hinum fullkomna búnaði upp í hið mikla rými. BOLF hefur orðið afar vinsæll. Þegar hafa rúmlega ein milljón BBÍF-bíla verið framleiddir. BOtJF er nú ekið í 120 löndum víðsvegar um heim. Vissulega viðunandi árangur af ekki eldri bíl. I— I I I VIÐGERÐA- OG VARAHLUTA- ÞJÓNUSTA HEKLAhf Laugavegi 170—1 72 — Sími 21240 1 1 EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU w«rðMnbi#þ«t» Lítið á hve stór hann er að innan: með 2,38 ferm. setplássi. Opnið lyftidyrnar að aftan og sjáið allt farangursrýmið sem kemur I Ijós, það er um 1 100 Iftrar frá gólfi til lofts, eftir að aftursætið hefir verið lagt fram. Takið eftir hve Iftið pláss þarf fyrir vélina: 13%, hin 87% af rýminu eru fyrir þig og fjölskyldu þína. En þessi 13% eru vel nýtt, 50 ha vél er þar staðsett, sem napr 140 km/klst. hraða. Bensfneyðsla aðeins 8 litr- ar á 100 km. — eða 75 ha vél, sem nær 100 km hraða á 12,3 sek. Hámarkshraði yfir 160 km/klst. Bensineyðsla 8,5 Iftrar á 100 km. Hlutafjárútboð stendur yfir Verkalýðsfélög sem hyggjast nota forkaupsrétt sendi tilkynningu hið fyrsta. Frestur rennur út 15. apríl. Éíi Alþýðubankínn hf. Laugavegt 31 sfmi 28-700 YOKOHAMA gróf mótorhjóladekk: 300-16 með slöngu kr. 5.630 - 275-17 með slöngu kr. 5.290 - 300-17 með slöngu kr. 5.981.- 250-18 með slöngu kr. 5.542 - Sendum í póstkröfu. Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR HÖFÐATÚNI 8 SÍMAR 16740 OG 38900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.