Morgunblaðið - 06.03.1977, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977
27
Lamaði
maðnrinn
JESÚS dvaldi um hríð úti í
óbyggðum til að hvílast og
biðjast fyrir. En þegar hann
kom aftur til Kapernaum, þar
sem hann átti heima, fréttist
þegar, að hann væri kominn.
Menn streymdu að, svo að hús-
ið fylltist og mannþröng stóð
einnig fyrir utan dyrnar. Jesús
talaði til þeirra Guðs orð. Allt í
einu heyrðist þrusk ofan af
þakinu. Þangað voru komnir
fjórir menn með vin sinn, sem
var lamaður. Þeir höfðu ekki
komizt inn í húsið til Jesú, en
þeir vissu, að Jesús gæti hjálp-
að þessum vini þeirra. Nú var
aðeins eitt til ráða, þeir klifu
upp á flatt þakið og rufu gat á
það. Síðan létu þeir sfga niður
sængina, sem lamaði maðurinn
lá f, og hann kom niður þar
sem Jesús var.
Þegar Jesús sá, hversu sterk
trú þeirra var, sagði hann við
lamaða manninn: Barnið mitt,
syndir þínar eru fyrirgefnar.
Margir urðu undrandi á
þessum orðum, og nokkrir
fræðimenn, sem þarna voru,
hugsuðu: Hvers vegna segir
hann þetta. Enginn geturtalað
þannig nema Guð. Enginn get-
ur fyrirgefið syndir nema Guð
einn.
Jesús sá hugsanir þeirra og
sagði: Hvers vegna hugsið þið
þetta? Hvort er auðveldara að
. segja: Syndir þínar eru fyrir-
gefnar— eða segja: Statt upp,
tak sæng þína og gakk? Og til
þess að sýna þeim, að sonur
guðs hefði vald til að fyrirgefa
syndir, sagði hann við lamaða
manninn: Ég segi þér, statt
upp, tak sæng þína og far heim
til þín. Maðurinn stóð upp og
tók sængina og gekk út í aug-
sýn allra, svo aó allir urðu frá
sér nurhdir og lofuðu Guð. Þeir
fannst þetta svo stórkostlegt,
að þeir sögðu hver við annan:
Aldrei höfum við séð neitt
þessu lfkt.
Erókles hinn
EINU sinni, ekki fyrir
löngu, var uppi voldugur
konungur, er Erókles
hét. Erókles hinn mikli
átti voldugt ríki, sem var
í Mið-Afríku. Hann átti
einnig fríða konu og
fylgdarlið.
Einn góðan veðurdag
kom bréfdúfa til Erókles-
ar og lét hann fá bréf,
sem var svohljóðandi:
„Erókles, komdu strax til
Þýskalands og þú skalt
búast við að vera þar í
tvo eða þrjá daga. Bið að
heilsa, Skarphéðinn A.
Erókles var fyrst á báð-
um áttum um það, hvort
hann ætti að fara, og
ákvað svo að fara og vita
hvað Skarphéðinn vinur
hans hefði að segja.
Hann bjóst í flýti til ferð-
ar og kvaddi konu sína.
Þegar Erókles var alveg
að koma að Þýskalandi
með einkaflugvél sinni,
var sem stærðar land-
svæði væri alelda. Hann
flýtti sér að lenda og sjá
hvað væri að gerast. Þeg-
ar hann fór að athuga
þetta betur sá hann ljós
mikið sem lýsti upp stór-
mikli
an hallargarð. Og loks
komst hann að raun um
að þetta var hallargarður
Skarphéðins og þar væri
mikið samkvæmi. Honum
var boðinn dans og vfn,
en hann hló bara og
sagði: Skarphéðinn hefur
kallað mig til samkvæmis
með sterkum ljósköstur-
um til þess að láta mér
bregða i brún og halda að
hér væri um að ræða
stórbruna.
Saga og myndskreyting:
Ingibjörg Óðinsdóttir, 11
ára, Kópavogi.
VESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
Þér getið auðveldlega séð
hve stór GOLF er
BOLF hefur allt sem nútímabíll þarf að
hafa. Allt frá nýtísku undirvagni upp f
þróaða vél, — frá hinum fullkomna búnaði
upp í hið mikla rými.
BOLF hefur orðið afar vinsæll. Þegar
hafa rúmlega ein milljón BBÍF-bíla verið
framleiddir. BOtJF er nú ekið í 120
löndum víðsvegar um heim. Vissulega
viðunandi árangur af ekki eldri bíl.
I—
I
I
I
VIÐGERÐA- OG VARAHLUTA-
ÞJÓNUSTA
HEKLAhf
Laugavegi 170—1 72 — Sími 21240
1 1 EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU w«rðMnbi#þ«t»
Lítið á hve stór hann er að innan: með 2,38
ferm. setplássi. Opnið lyftidyrnar að aftan
og sjáið allt farangursrýmið sem kemur I
Ijós, það er um 1 100 Iftrar frá gólfi til lofts,
eftir að aftursætið hefir verið lagt fram.
Takið eftir hve Iftið pláss þarf fyrir vélina:
13%, hin 87% af rýminu eru fyrir þig og
fjölskyldu þína. En þessi 13% eru vel nýtt,
50 ha vél er þar staðsett, sem napr 140
km/klst. hraða. Bensfneyðsla aðeins 8 litr-
ar á 100 km. — eða 75 ha vél, sem nær
100 km hraða á 12,3 sek. Hámarkshraði
yfir 160 km/klst. Bensineyðsla 8,5 Iftrar á
100 km.
Hlutafjárútboð
stendur yfir
Verkalýðsfélög sem
hyggjast nota forkaupsrétt
sendi tilkynningu hið fyrsta.
Frestur rennur út 15. apríl.
Éíi Alþýðubankínn hf.
Laugavegt 31 sfmi 28-700
YOKOHAMA
gróf mótorhjóladekk:
300-16 með slöngu kr. 5.630 -
275-17 með slöngu kr. 5.290 -
300-17 með slöngu kr. 5.981.-
250-18 með slöngu kr. 5.542 -
Sendum í póstkröfu.
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
HÖFÐATÚNI 8
SÍMAR 16740 OG 38900