Morgunblaðið - 06.03.1977, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.03.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 19,77 29 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Stýrimann og háseta vantar á netabát sem er að byrja netaveið- ar frá Keflavík. Góð trygging fyrir góða menn. Upplýsingar í símum 92-1 579 og 1817. Skrifstofumaður óskast Útgáfufyrirtæki óskar eftir traustum og röskum manni til að annast ýmis skrif- stofustörf. Eiginhandarumsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf leggist inná afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 10. mars, merktar: „Traustur og röskur — 1 722". Akraneskaupstaður auglýsir hér með starf aðalbókara laust til umsóknar. Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og bæjarritari. Umsóknir er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, þurfa að berast fyrir 15. marz n.k. Bæjarritari. Viðskipta- fræðinemi sem á eftir eitt ár í námi, óskar eftir atvinnu í sumar, sem tengist náminu. Möguleiki á fastri vinnu í fyrirtækinu að loknu námi. Vegna símaleysis er farið fram á, að tilboð verði send Morgunblaðinu merkt: „ATV — 4794". Félag farstöðvar- eiganda óskar að ráða starfskraft á skrifstofu sína, bókhalds- og vélritunarkunnátta nauðsyn- leg. Vinnutími frá kl. 1—5 eða eftir samkomulagi. Eiginhandarumsóknir sendist til félagsins fyrir 1 2. þ m. Félag Farstöðvareiganda, Hamraborg 1—3, Kópavogi pósthólf 196 Reykjavík. Við auglýsum eftir Aðalbókara til starfa hjá stóru og traustu fyrirtæki sem ' notar skýrsluvélar við bókhald og alla úrvinnslu. Æskilegt er að umsækjandi sé viðskiptafræðingur eða hafi hliðstæða menntun. Reynsla í bókhaldi, stjórnun og skipulagi á því sviði er nauðsynleg. Góð kjör í boði. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undir- rituðum fyrir 10. mars 1977. Atvinna endurshoóun hf J Suðurlandsbraut 18, Reykjavik, Simi 86533 Viljum ráða röska og vandvirka konu til iðnaðarstarfa. Upplýsingar á staðnum — ekki í síma. Sigurður Elíasson h. f. Auðbrekku 52, Kópavogi. Skrifstofumaður Óskast til starfa hjá opinberri stofnun nú þegar. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn- leg. Umsóknir er tilgreini m.a. aldur, menntun og fyrri störf leggist inn á af- greiðslu Mbl. merkt F: 1550 fyrir 12 mars n.k. Ljósmæður takið eftir Ein staða Ijósmóður er laus frá 1. júní við Sjúkrahús Akraness. Einnig vantar Ijós- mæður til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur yfirljósmóðir í síma 93-231 1. Hagvangur hf. óskar að ráða Sölu- og lagerstjóra fyrir einn af viðskiptavinum sínum. Fyrirtækið: — Meðalstórt, traust innflutningsfyrir- tæki með heildsölu og smásölu á sviði véla og varahlutaþjónustu. — A höfuðborgarsvæðinu. í boði er: — Starf við lagervörzlu, afgreiðslu, sölu og samsetningu vökvatækja og tengibúnaðar. — Sjálfstætt starf á nýju sviði, sem viðkomandi verður að taka þátt í að byggja upp á skipulegan hátt. — Góð laun, þegar reynslutíma lýkur farsællega. — Framtíðarstarf. Við leitum að starfskrafti: — Sem er laghentur og hefur tækni- kunnáttu; er lipur og samvizkusam- ur. — Sem getur séð um uppbyggingu og vörzlu lagers, bæði vara og spjald- skrár. — Sem helzt hefur einhverja ensku- kunnáttu. — Sem er reglusamur og stundvís. Skriflegar umsóknir, ásamt yfirliti yfir menntun, starfsferil og mögulega með- mælendur, sendist fyrir 14. marz 1977 til: Hagvangur hf. c/o Sigurður R. Helgason, Rekstrar- og þjóðhagfræðiþjónusta, Klapparstíg 26, Reykjavík. Farið verður með allar 'umsóknir sem algert trúnaðarmál Öllum umsóknum verður svarað Vanan háseta vantar strax á netabát frá Þorlákshöfn. Upplýsingar í síma 99-3877. Hásetar Vanan háseta vantar á 1 20 lesta netabát sem er að hefja róðra. Aflasæil skipstjóri. Upplýsingar í síma 92-7688. Forstöðumaður Kona eða karl óskast að vistheimilinu Sólborg, Akureyri frá 1. maí n.k. Um- sóknir er greini menntun og fyrri störf skulu sendast forstöðumanni heimilisins fyrir 20. mars. Sendisveinn óskast Stórt fyrirtæki, sem hefur aðsetur í Iðn- garðahverfinu, óskar eftir röskum sendi- sveini til starfa. Þarf að hafa vélhjól til umráða. Þeir sem áhuga hafa, sendi vinsamlegast nafn sitt til blaðsins með upplýsingum um fyrri störf. Merkt S.E. 1 552. Læknir og forstöðumaður. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra auglýsir eftir yfirlækni við Endurhæfingarstöð félagsins. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu félagsins, Háaleitisbraut 1 3, fyrir 1 . apríl n.k. Ennfremur auglýsir félagið eftir starfs- manni, konu eða karli, til þess að veita forstöðu sumardvalaheimili félagsins í Reykjadal. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu félagsins Háaleitisbraut 1 3, fyrir 1. apríl n.k. Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Laus staða Tímaburidin lektorsstaða í sérhæfðri handlæknisfræði við tannlæknadeild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Staðan verður veitt til þriggja ára frá 1. júlí 1977 að telja. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um ritsmíðar og rannsóknir svo og náms- feril og störf, skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja- vík, fyrir 10. apríl nk. Menntamálaráðuneytið, 4. mars 1977. Al GLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.