Morgunblaðið - 06.03.1977, Side 32

Morgunblaðið - 06.03.1977, Side 32
32 MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977 SLAGBRANDlíR ERLENDAR FRÉTTIR ROLLING Stones hafa nýlega gert samning viS EMI- plötufyrirtækiS I Bretlandi um út- gáfu og dreifingu á plötum sinum á næstu árum. Samningur þeirra vi8 Atlantic-fyrirtækiB rann ný- lega út og þá notuSu þeir tæki- færiS til a8 flytja sig um set. „Er þa8 ekki bezt vi8 hæfi a8 vi8 semjum vi8 brezkt fyrirtæki á þessu afmælisári?" sagSi Mick Jagger, en sem kunnugt er hefur Elisabet Englandsdrottning nú setiS á valdastóli i 25 ár. Rolling Stones munu a8 sjálfsögSu hafa ** meo P ra Gunnar vinstri: sio gullplötur: Þóröarson, Ólafur Þórðarson, Helgi Pétursson og ÁgUst Atlason. 0 Hljómplötusöfn liðsmanna Ríó stórhækkuðu í verði á þriðjudags- kvöldið, er í þau bættust gullplöt- ur sem Fálkinn hf. veitti þeim félögum f viðurkenningarskyni fyrir mikla sölu á tveimur stórum plötum þeirra. Plöturnar tvær eru „Allt í gamni“, sem út kom síðla árs 1973 og „Verst af öllu2 sem kom út á miðju síðasta ári. Báðar hafa þær selzt í yfir 10 þúsund eintökum. Ríó hefur alls leikið inn á sjö stórar plötur á vegum Fálkans og hafa þær selzt í yfir 52 þúsund eintökum — og eru þá segulbönd talin með. Á fundi með fréttamönnum sl. þriðjudag afhenti Ólafur Haralds- son, forstjóri Fálkans, félögunum í Ríó gullplöturnar og þakkaði þeim fyrir ánægjulega og árangursríka samvinnu. Það kom fram á fundinum, að forráða- mönnum Fálkans er ekki kunn- ugt um að aðrir íslenzkir lista- menn hafi náð svo mikilli heildar- sölu með plötum sínum. Fyrsta stóra platan sem Ríó gerði var hljómleikaplata og kom hún út i desember 1970. Síðan hafa þeir félagar gefið út að jafnaði eina plötu á ári. Ríó hét raunar Ríó tríó lengst af og voru fyrstu liðsmenn þess þeir Halldór Fannar, Helgi Pétursson og Ólafur Þórðarson, en árið 1969 tók Ágúst Atlason sæti Halldórs. Gunnar Þórðarson lék með á öllum stóru plötunum og varð fastur liðsmaður i Ríó fyrir nokkrum árum, en þá var trióið orðið að kvartett og felldi því niður triósheitið. Ólafur Þórðar- son sagði síðan skilið við félagana áður en gerð nýjustu stóru plöt- unnar, „Verst af öllu“, hófst, og var Ríó þá aftur orðið tríó — en heitir þá bara Ríó sem fyrr. Jónas Friðrik Guðnason hefur átt stóran þátt í velgengni Ríó, því að hann RÍO fær gnll- plötnr fyrir lOþns. eintaka söln hefur samið flesta texta fyrir þá alit frá upphafi og hefur raunar stundum verið nefndur hirðskáld Rió. Á fundinum á þriðjudags- kvöldið var úthlutað alls ellefu gullplötum. Helgi, Ágúst og Gunnar fengu tvær hver, Ólafur fékk aðeins eina, þar sem hann átti ekki aðild að seinustu plöt- unni, tvær plötur voru sendar (i ábyrgð væntanlega) til Jónasar Friðriks norður á Raufarhöfn, en hann átti ekki heimangengt þennan dag, og Fálkinn fékk sjálfur tvær plötur. Helgi Pétursson mælti nokkur þakkarorð fyrir hönd þeirra félaga — og var það i samræmi við það, að Helgi hafði yfirleitt orð fyrir Rió á skemmtunum forðum daga. Helgi þakkaði Fálkanum og þá sérstakiega Ólafi Haraldssyni fyrir hönd þeirra félaga — og var það í samræmi við það, að Helgi hafði yfirleitt orð fyrir Ríó á skemmtunum forðum daga. Helgi þakkaði Fálkanum og þá sérstaklega Ólafi Haraldssyni fyrir mjög skemmti- lega samvinnu um margra ára skeið og sagði að sér fyndust þessi ár einhvern veginn hafa verið stutt, því að margt hefði á dagana drifið. Hann kvaðst sakna Jónasar Friðriks úr þessum kjarna, sem kominn væri til leiks í Óðali, en Jónas þyrfti að gera upp og greiða laun fyrir frystihúsið á Raufar- höfn og einnig stæði til að fara að endurbæta félagsheimilið og væri Jónasar því þörf þar. Helgi kvað samvinnu Ríó og Fálkans hafa verið lipra og þægilega, gagn- kvæm skoðanaskipti hefðu jafnan verið um hvernig haga ætti hverju máli. „Við höfum á marg- an hátt verið heppnir í sam- skiptunum við Fálkann, höfum getað komið með stuttum fyrir- vara og lagt inn hugmyndir sem kannski hefðu þótt brjálæðislegar á öðrum stöðum, og samt fengið jáyrði," sagði Helgi, og bætti svo við: „En 52 þúsund plötur segja sina sögu um það hversu jákvæð- ur Fálkinn hefur verið!“ í samtali við Slagbrand sagði Ólafur Haraldsson, að vissulega hefði það verið hagstætt fyrir Fálkann að gefa út plötur Ríó. En það hefði einnig verið hagstæð útkoma fyrir RIó af þeirri útgáfu og hin seinni árin hefðu þeir félagar haft hagstæðari samninga við fyrirtækið en aimennt tiðkast i þessari grein. Og það sem Helgi nefndi ,,brjá)æðislegar“ hug- myndir, væri í rauninni ekki neitt mál í samanburði við ýmislegt annað sem tíðkast í plötuútgáfu hér. Öll vinna væri ákaflega fag- mannleg af hálfu Ríó, þeir önnuð- ust sjálfir allar útsetningar og kæmu með efnið fullæft og mótað i upptökustúdíóið og væru eld- fljótir aó taka plöturnar upp, yfir- leitt ekki meira en 60—70 tíma og væri þá allt meðtalið. — Þess má geta i þessu sambandi, að algengt er að íslenzkar stórar plötur séu teknar upp á um 200 tímum. — Og þótt Rió hefði hljóðritað erlendis þá væri upptöku- og ferðakostnaðurinn samanlagður mun lægri en upptöku- kostnaðurinn einn hjá mörgum hljómveitum og listamönnum, sem hljóðrituðu verk sín hér heima. Þvi væri plötur Ríó ódýrari í framleiðslu en margar aðrar plötur og þar sem þeir Ríó- félagar fengju prósentur af hagnaði af útgáfunni, væri þetta þeirra hagur lika að halda kostnaði niðri. En gæðin væru þó alltaf aðalatriðið, engu að siður, sagði Ólafur Haraldsson að lokum. „Gullplötur ég góðar tel... (Bræði þær og síðan sel...) mörg hundruð milljónir króna í tekjur af þessum nýja samningi á næstu árum, þ.e. ef ekki fer allt í upplausn vegna ffkniefnabrota Keith Richards að undanförnu. JACK Bruce er að koma fram á sjónarsviðið á ný með nýja hljóm- sveit, en enginn félaga hans í hljómveitinni getur talizt mjög þekktur. BÍTLARNIR eru enn sem fyrr í fréttum — nú vegna þess, að í undirbúningi er útgáfa á tveggja plötu albúmi með hljóðritunum Irá hljómleikum þeirra í Holly wood árið 1964. George Martin hefur séð um úrvinnsluna. CROSBY, Stills og Nash hafa tek- ið saman á ný og eru að vinna að gerð nýrrar plötu. Sambúð þeirra hefur verið slitrótt frá upphafi. BOOKER T og M.G.'s — gömul og virt hljómsveit — eru einnig gengin til samstarfsá ný. QUEEN og Thin Lizzy hafa veriðá hljómleikaferðalagi saman í Bandaríkjunum að undanförnu. Fregnir herma, að mikill rígur sé á milli hjómsveitanna og þær spili bókstaflega upp á líf og dauða á hverju kvöldi í harðri samkeppni um hylii áhorfendanna. Queen hefur þó vinninginn, kannski helzt vegna þess, að hún telst aðalhljómsvwitin og spilar alltaf á eftir Thin Lizzy. LEONARD Cohen hefur hafið hljóðritanir fyrir nýja plötu og vinnur að þessu sinni með þeim fræga Pil Specter, sem þykir flestum fremri í að gera stór- brotnar útsetningar og áheyrileg- ar, en stundum yfirdrifnar. MANFRED Mann komst á topp- inn í Bandaríkjunum með iag eftir Bruce Springsteen hinn banda ríska — „Blinded by the light" — og því þykir það ekki skrítið, að Manfred ætlar að hafa annað Springsteen-lag á næstu litlu plötu. PAICE, Ashton og Lord 6 þrír gamlir jálkar, kunnir úr Deep Purple og fleiri hljómsveitum — eru að stíga fram í sviðsljósið á ný og mun fyrsta stóra platan þeirra nefnast „Malice in Wond- erland". ROUGH Diamonds nefnist ný hljómsveit sem hefur m.a. innan- borðs þá David Byron, fyrrum söngvara Uria Heep, Clem v Clempson úr Humble Pie og Geoff Britton úr Wings. Hljóm- sveitin hefur þegar lent f erfið- leikum vegna nafnsins, því að önnur hljómsveit hefur höfðað mál og sagzt eiga allan rétt á þessu nafni eftir þriggja ára stanzlausa notkun! ERMERSON, Lake og Palmer eru búnir að taka upp tvær stórar plotur sem koma á markað sam an f albúmi á næstunni. Hver liðsmaður ræður ferðinni á einni plötuhlið g sfðan er hljómsveitin samábyrg fyrir fjórðu plötuhlið- inni. Fleira er ekki f fréttum. Frá veðurstofunni. . . —sh. • GULLPLATA lítur út eins og venjuleg plata, að litnum undanskiidum, en hún á samt ekkert erindi á plötuspilarann. Hvorki hún né nál plötuspilarans hefðu gott af að kynnast hvort öðru. Platan á bezt heima uppi á vegg — og þess vegna eru gull- plötur alltaf afhentar innrammað- ar — tilbúnar á vegginn. En hvers vegna er þá verið að gefa gullplötur? Það er vegna þess, aó plötufyrirtækið vill heiðra hljómíistarmennina fyrir þann góða árangur sem náðst hefur í sölu platna þeirra. Þeir hafa yfirleitt þegar hlotið góð laun í peningum — vissan hluta af söluverðinu — og því er þeim það sjálfsagt meira ánægjuefni að fá varanlegan minjagrip um vel- gengnina en peninga. Hvað þarf plata að seljast í mörgum eintökum til að fá á sig gullhúð og fínan ramma? Það fer eftir aðstæðum á hverjum stað. Gjarnan er tekið mið af íbúa- fjölda og þvi geta menn fengið gullplötur fyrir tiu þúsund ein- taka plötusölu á íslandi, en yrðu að selja eina milljón platna í Bret- landi til að fá sömu viðurkenn- ingu. Yfirleitt eru mörkin höfð það há í hverju landi, að liklegt sé, að einungis fáar plötur verði þessa heiðurs aðnjótandi. Ef Bandaríkjamenn ættu til dæmis að fara að veita gullplötu fyrir l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.