Morgunblaðið - 06.03.1977, Blaðsíða 32
32
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977
SLAGBRANDlíR
ERLENDAR
FRÉTTIR
ROLLING Stones hafa nýlega
gert samning viS EMI-
plötufyrirtækiS I Bretlandi um út-
gáfu og dreifingu á plötum sinum
á næstu árum. Samningur þeirra
vi8 Atlantic-fyrirtækiB rann ný-
lega út og þá notuSu þeir tæki-
færiS til a8 flytja sig um set. „Er
þa8 ekki bezt vi8 hæfi a8 vi8
semjum vi8 brezkt fyrirtæki á
þessu afmælisári?" sagSi Mick
Jagger, en sem kunnugt er hefur
Elisabet Englandsdrottning nú
setiS á valdastóli i 25 ár. Rolling
Stones munu a8 sjálfsögSu hafa
**
meo
P ra
Gunnar
vinstri:
sio
gullplötur:
Þóröarson, Ólafur Þórðarson, Helgi Pétursson og ÁgUst Atlason.
0 Hljómplötusöfn liðsmanna Ríó
stórhækkuðu í verði á þriðjudags-
kvöldið, er í þau bættust gullplöt-
ur sem Fálkinn hf. veitti þeim
félögum f viðurkenningarskyni
fyrir mikla sölu á tveimur stórum
plötum þeirra. Plöturnar tvær
eru „Allt í gamni“, sem út kom
síðla árs 1973 og „Verst af öllu2
sem kom út á miðju síðasta ári.
Báðar hafa þær selzt í yfir 10
þúsund eintökum. Ríó hefur alls
leikið inn á sjö stórar plötur á
vegum Fálkans og hafa þær selzt í
yfir 52 þúsund eintökum — og
eru þá segulbönd talin með.
Á fundi með fréttamönnum sl.
þriðjudag afhenti Ólafur Haralds-
son, forstjóri Fálkans, félögunum
í Ríó gullplöturnar og þakkaði
þeim fyrir ánægjulega og
árangursríka samvinnu. Það kom
fram á fundinum, að forráða-
mönnum Fálkans er ekki kunn-
ugt um að aðrir íslenzkir lista-
menn hafi náð svo mikilli heildar-
sölu með plötum sínum. Fyrsta
stóra platan sem Ríó gerði var
hljómleikaplata og kom hún út i
desember 1970. Síðan hafa þeir
félagar gefið út að jafnaði eina
plötu á ári.
Ríó hét raunar Ríó tríó lengst af
og voru fyrstu liðsmenn þess þeir
Halldór Fannar, Helgi Pétursson
og Ólafur Þórðarson, en árið 1969
tók Ágúst Atlason sæti Halldórs.
Gunnar Þórðarson lék með á
öllum stóru plötunum og varð
fastur liðsmaður i Ríó fyrir
nokkrum árum, en þá var trióið
orðið að kvartett og felldi því
niður triósheitið. Ólafur Þórðar-
son sagði síðan skilið við félagana
áður en gerð nýjustu stóru plöt-
unnar, „Verst af öllu“, hófst, og
var Ríó þá aftur orðið tríó — en
heitir þá bara Ríó sem fyrr. Jónas
Friðrik Guðnason hefur átt stóran
þátt í velgengni Ríó, því að hann
RÍO
fær
gnll-
plötnr
fyrir
lOþns.
eintaka
söln
hefur samið flesta texta fyrir þá
alit frá upphafi og hefur raunar
stundum verið nefndur hirðskáld
Rió.
Á fundinum á þriðjudags-
kvöldið var úthlutað alls ellefu
gullplötum. Helgi, Ágúst og
Gunnar fengu tvær hver, Ólafur
fékk aðeins eina, þar sem hann
átti ekki aðild að seinustu plöt-
unni, tvær plötur voru sendar (i
ábyrgð væntanlega) til Jónasar
Friðriks norður á Raufarhöfn, en
hann átti ekki heimangengt
þennan dag, og Fálkinn fékk
sjálfur tvær plötur.
Helgi Pétursson mælti nokkur
þakkarorð fyrir hönd þeirra
félaga — og var það i samræmi
við það, að Helgi hafði yfirleitt
orð fyrir Rió á skemmtunum
forðum daga. Helgi þakkaði
Fálkanum og þá sérstakiega Ólafi
Haraldssyni fyrir hönd þeirra
félaga — og var það í samræmi
við það, að Helgi hafði yfirleitt
orð fyrir Ríó á skemmtunum
forðum daga. Helgi þakkaði
Fálkanum og þá sérstaklega Ólafi
Haraldssyni fyrir mjög skemmti-
lega samvinnu um margra ára
skeið og sagði að sér fyndust þessi
ár einhvern veginn hafa verið
stutt, því að margt hefði á dagana
drifið. Hann kvaðst sakna Jónasar
Friðriks úr þessum kjarna, sem
kominn væri til leiks í Óðali, en
Jónas þyrfti að gera upp og greiða
laun fyrir frystihúsið á Raufar-
höfn og einnig stæði til að fara að
endurbæta félagsheimilið og væri
Jónasar því þörf þar. Helgi kvað
samvinnu Ríó og Fálkans hafa
verið lipra og þægilega, gagn-
kvæm skoðanaskipti hefðu jafnan
verið um hvernig haga ætti
hverju máli. „Við höfum á marg-
an hátt verið heppnir í sam-
skiptunum við Fálkann, höfum
getað komið með stuttum fyrir-
vara og lagt inn hugmyndir sem
kannski hefðu þótt brjálæðislegar
á öðrum stöðum, og samt fengið
jáyrði," sagði Helgi, og bætti svo
við: „En 52 þúsund plötur segja
sina sögu um það hversu jákvæð-
ur Fálkinn hefur verið!“
í samtali við Slagbrand sagði
Ólafur Haraldsson, að vissulega
hefði það verið hagstætt fyrir
Fálkann að gefa út plötur Ríó. En
það hefði einnig verið hagstæð
útkoma fyrir RIó af þeirri útgáfu
og hin seinni árin hefðu þeir
félagar haft hagstæðari samninga
við fyrirtækið en aimennt tiðkast
i þessari grein. Og það sem Helgi
nefndi ,,brjá)æðislegar“ hug-
myndir, væri í rauninni ekki neitt
mál í samanburði við ýmislegt
annað sem tíðkast í plötuútgáfu
hér. Öll vinna væri ákaflega fag-
mannleg af hálfu Ríó, þeir önnuð-
ust sjálfir allar útsetningar og
kæmu með efnið fullæft og mótað
i upptökustúdíóið og væru eld-
fljótir aó taka plöturnar upp, yfir-
leitt ekki meira en 60—70 tíma og
væri þá allt meðtalið. — Þess má
geta i þessu sambandi, að algengt
er að íslenzkar stórar plötur séu
teknar upp á um 200 tímum. —
Og þótt Rió hefði hljóðritað
erlendis þá væri upptöku- og
ferðakostnaðurinn samanlagður
mun lægri en upptöku-
kostnaðurinn einn hjá mörgum
hljómveitum og listamönnum,
sem hljóðrituðu verk sín hér
heima. Þvi væri plötur Ríó
ódýrari í framleiðslu en margar
aðrar plötur og þar sem þeir Ríó-
félagar fengju prósentur af
hagnaði af útgáfunni, væri þetta
þeirra hagur lika að halda
kostnaði niðri. En gæðin væru þó
alltaf aðalatriðið, engu að siður,
sagði Ólafur Haraldsson að
lokum.
„Gullplötur ég góðar tel...
(Bræði þær og síðan sel...)
mörg hundruð milljónir króna í
tekjur af þessum nýja samningi á
næstu árum, þ.e. ef ekki fer allt í
upplausn vegna ffkniefnabrota
Keith Richards að undanförnu.
JACK Bruce er að koma fram á
sjónarsviðið á ný með nýja hljóm-
sveit, en enginn félaga hans í
hljómveitinni getur talizt mjög
þekktur.
BÍTLARNIR eru enn sem fyrr í
fréttum — nú vegna þess, að í
undirbúningi er útgáfa á tveggja
plötu albúmi með hljóðritunum
Irá hljómleikum þeirra í Holly
wood árið 1964. George Martin
hefur séð um úrvinnsluna.
CROSBY, Stills og Nash hafa tek-
ið saman á ný og eru að vinna að
gerð nýrrar plötu. Sambúð þeirra
hefur verið slitrótt frá upphafi.
BOOKER T og M.G.'s — gömul
og virt hljómsveit — eru einnig
gengin til samstarfsá ný.
QUEEN og Thin Lizzy hafa veriðá
hljómleikaferðalagi saman í
Bandaríkjunum að undanförnu.
Fregnir herma, að mikill rígur sé
á milli hjómsveitanna og þær spili
bókstaflega upp á líf og dauða á
hverju kvöldi í harðri samkeppni
um hylii áhorfendanna. Queen
hefur þó vinninginn, kannski
helzt vegna þess, að hún telst
aðalhljómsvwitin og spilar alltaf
á eftir Thin Lizzy.
LEONARD Cohen hefur hafið
hljóðritanir fyrir nýja plötu og
vinnur að þessu sinni með þeim
fræga Pil Specter, sem þykir
flestum fremri í að gera stór-
brotnar útsetningar og áheyrileg-
ar, en stundum yfirdrifnar.
MANFRED Mann komst á topp-
inn í Bandaríkjunum með iag eftir
Bruce Springsteen hinn banda
ríska — „Blinded by the light"
— og því þykir það ekki skrítið,
að Manfred ætlar að hafa annað
Springsteen-lag á næstu litlu
plötu.
PAICE, Ashton og Lord 6 þrír
gamlir jálkar, kunnir úr Deep
Purple og fleiri hljómsveitum —
eru að stíga fram í sviðsljósið á
ný og mun fyrsta stóra platan
þeirra nefnast „Malice in Wond-
erland".
ROUGH Diamonds nefnist ný
hljómsveit sem hefur m.a. innan-
borðs þá David Byron, fyrrum
söngvara Uria Heep, Clem v
Clempson úr Humble Pie og
Geoff Britton úr Wings. Hljóm-
sveitin hefur þegar lent f erfið-
leikum vegna nafnsins, því að
önnur hljómsveit hefur höfðað
mál og sagzt eiga allan rétt á
þessu nafni eftir þriggja ára
stanzlausa notkun!
ERMERSON, Lake og Palmer eru
búnir að taka upp tvær stórar
plotur sem koma á markað sam
an f albúmi á næstunni. Hver
liðsmaður ræður ferðinni á einni
plötuhlið g sfðan er hljómsveitin
samábyrg fyrir fjórðu plötuhlið-
inni.
Fleira er ekki f fréttum. Frá
veðurstofunni. . . —sh.
• GULLPLATA lítur út eins og
venjuleg plata, að litnum
undanskiidum, en hún á samt
ekkert erindi á plötuspilarann.
Hvorki hún né nál plötuspilarans
hefðu gott af að kynnast hvort
öðru. Platan á bezt heima uppi á
vegg — og þess vegna eru gull-
plötur alltaf afhentar innrammað-
ar — tilbúnar á vegginn.
En hvers vegna er þá verið að
gefa gullplötur? Það er vegna
þess, aó plötufyrirtækið vill
heiðra hljómíistarmennina fyrir
þann góða árangur sem náðst
hefur í sölu platna þeirra. Þeir
hafa yfirleitt þegar hlotið góð
laun í peningum — vissan hluta
af söluverðinu — og því er þeim
það sjálfsagt meira ánægjuefni að
fá varanlegan minjagrip um vel-
gengnina en peninga.
Hvað þarf plata að seljast í
mörgum eintökum til að fá á sig
gullhúð og fínan ramma? Það fer
eftir aðstæðum á hverjum stað.
Gjarnan er tekið mið af íbúa-
fjölda og þvi geta menn fengið
gullplötur fyrir tiu þúsund ein-
taka plötusölu á íslandi, en yrðu
að selja eina milljón platna í Bret-
landi til að fá sömu viðurkenn-
ingu. Yfirleitt eru mörkin höfð
það há í hverju landi, að liklegt
sé, að einungis fáar plötur verði
þessa heiðurs aðnjótandi. Ef
Bandaríkjamenn ættu til dæmis
að fara að veita gullplötu fyrir
l