Morgunblaðið - 06.03.1977, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1977
Arnþór Einarsson
forstjóri - Minning
A morgun, 7. þessa mánaðar,
fer fram frá Kópavogskirkju
jarðarför Arnþórs Einarssonar,
áður forstjóra í kjötvinnslustöð-
inni Búrfelli hér í borg, en hann
lézt á Landakotsspítala 24. febrú-
ar eftir þunga vanheilsu og þján-
ingar síðustu misserin og mjög
fyrir aldur fram. Þessa fyrrver-
andi sóknarbarns míns og einka-
vinar er mér bæði ljúft og skylt að
minnast með nokkrum orðum.
Arnþór Einarsson var fæddur
að Búðarhóli í Austur-Landeyjum
1. nóvember 1918. Foreidrar hans
voru þau Einar Högnason og Jón-
heiður Einarsdóttir, hjón að
Búðarhóli. Rætur Jónheiðar lágu
frá traustum bændastofni bæði í
Fljótshlíð og Landeyjum eystri.
En Einar var af hinni merku
Presta-Högnaætt, sem er bæði
fjölmenn og kunn, einkum um
Suðurland. Fátæk voru þau hjón
að veraldargæðum, eins og flestir
1 þá daga, en rík af mannkostum
og mannhylli. Tvö yndisleg börn,
Arnþór og Arnheiði, gaf lífið
þeim líka snemma til að annast og
unna. En ,,það er svo oft 1 dauð-
ans skuggadölum, að dregur
myrkva fyrir lífsins sól“.
1 blóma lífs síns og öllum
kunnugum harmdauði, lést Einar
Högnason úr bráðri lungnabólgu
20. júní 1931. Stóð þá Jónheiður
uppi með börnin þeirra tvö, 12 og
8 ára gömui, og fósturdóttur á
líku aldursskeiði. Það þurfti
styrkan konuhug og hönd til þess
að sjá slfkri fjölskyldu farborða
við lítinn búrekstur á kreppuár-
um. En þetta tókst vonum framar.
Aðeins 12 ára gamall varð Arnþór
eins konar fyrirvinna á búi móður
sinnar. Liðu svo sex erfið ár, þar
sem hinir ungu kraftar hans uxu
við hverja raun. En vorið 1937
fluttist fjölskyldan alfarið til
Reykjavíkur. Frá þeim tima mátti
segja að sigurganga hennar hæf-
ist. Systkinin efnismiklu, Arnþór
og Arnheiður, komust hér fljótt
til frekari menntunar, manndóms
og starfa. Ungur réðst Arnþór til
starfa við kjötvinnslustöðina Búr-
fell hér f borg, sem þá var rekin á
vegum Garðars Gfslasonar stór-
kaupmanns. Búrfell við Lindar-
götu varð æ síðan vettvangur lífs
hans og starfs, meðan kraftar ent-
ust. Þar vann hann af mikilli at-
orku og kostgæfni við frábærar
vinsældir viðskiptamanna og ann-
arra. Forstjóri fyrirtækisins Búr-
fells var hann um áratuga skeið
og jafnframt meðeigandi sfðari
árin.
Ennfremur var hann f 20 ár
formaður Félags islenzkra kjöt-
iðnaðarmanna og heiðursfélagi
þess síðari árin. Segir þetta best
söguna um þær vinsældir og
traust, sem hann naut meðal sam-
ferðamanna sinna. Þá var og
félagshyggja ýmiss konar Arnþóri
í blóð borin. í mörg ár starfaði
hann í Oddfellowreglunni hér í
Reykjavík við góðan orðstir og
almenna viðurkenningu. Sýnir
það meðal annars ítökin, sem
hann átti í samtfð sinni.
Það voru óneitanlega frið brúð-
hjón, sem stóðu frammi fyrir mér
17. júní 1945. En þá gekk Arnþór
að eiga elskulega stúlku úr
Reykjavík, Sólveigu Kristjáns-
dóttur. Allt samlíf þeirra og sam-
starf varð upp frá þvf eins og
fegursta symfónía. Ástrík og
örugg og traust stóð hún við hlið
hans æ siðan og vakti yfir honum
sjúkum til síðustu stundar. Þau
eignuðust brátt yndislegt heimili
sólarmegin í Kópavogsásnum,
nánar tiltekið að Kópavogsbraut
2. Þar naut Jónheiður, móðir
Arnþórs, ylríks skjóls, meðan
leiðir lágu saman. Þar uxu efni-
legu börnin þeirra þrjú upp sem
ffflar í túni. Þar andaði á móti
manni bæði utan húss og innan
þeirri birtu, yl og snyrtimennsku,
sem óvfða átti sína líka. Þar var
því glöðum gott að koma og þó
engu síður hinum, sem liðs eða
hjálpar þurftu við. Björtum
stundum á heimili þeirra hjóna
mun ég og kona mfn aldrei
gleyma.
Arnþór Einarsson var öndvegis-
maður, bæði sem ástríkur
heimilisfaðir og starfsmaður !•
sinni grein. Hann var sívinnandi
og sívakandi yfir þvf, sem lífið fól
honum að sinna. Eftir hann liggur*
því mikið og ávaxtaríkt starf bæði
heima og að heiman. Hann var
maður verkhygginn og verklag-
inn, svo að flest lék f hans hönd-
um. Greind hans var mjög góð, og
hann kunni glögg skil á mönnum
og málefnum. Var og fastur fyrir
um skoðanir, þegar á reyndi. En
jafnframt var hann Ijúfmenni í
allri framkomu og valmenni að
gerð. Vinsældir hans voru því
miklar og verðskuldaðar. Allir,
sem þekktu hann að ráði, munu
nú horfa saknaðaraugum á eftir
honum héðan.
Við Arnþór Einarsson vorum
tengdir órofa vináttuböndum.
Engan vandalausan mann þótti
mér vænna um en einmitt hann.
Við áttum lfka svo margar bjartar
stundir saman, bæði á heimilum
okkar og f sumarbústað við
Hlíðarvatn f Selvogi á vegum vin-
ar okkar, Kjartans Sveinssonar
skjalavarðar. Með Arnþóri var
svo unaðslegt að dvelja úti í
skauti sumarnáttúrunnar. Við
hann einan var svo ánægjulegt að
eiga sálusamfélag f kyrrð og ræða
dýpstu rök lífsins, heima og
geima. Með honum var svo auð-
velt að gleyma heimi, sorgum og
þrautum. Minningarnar um þær
stundir tek ég áreiðanlega með
mér ófölnaðar héðan.
Það er sárt að sjá á bak kærum
ástvini og vini, sem hverfur héð-
an á rúmlega miðjum aldri eftir
þjáningaleiðum. En lífið er nú
einu sinni samkvæmt okkar
öruggu trú skapað fyrir tvo
heima. Og við ráðum svo litlu um
það, hvenær og hvernig skipt er
yfir. Þrátt fyrir lágan aldur var
hlutur Arnþórs Einarssonar orð-
inn hár f þjónustu við lífið. Minn-
ingin um líf hans vermir okkur
um hjartarætur um leið og hún
bendir fram til nýrra heima. Fyr-
ir því tökum við óhikað undir hin
sígildu orð skáldsins:
Anda, sem unnast
fær aldregi
eilffd að skilið.
Börn Arþórs og Sólveigar eru
hér talin í aldursröð:
1. Erna Jóna, sjúkraþjálfari í
Noregi.
2. Kristján Geir, sölustjóri f Búr-
felli, kvæntur Báru Kristjánsdótt-
ur.
t Jarðarför föðru míns, tengdaföður, bróður og afa, SIGURÐAR KR. ÞÓRÐARSONAR, Skipholti 32, sem lézt að Vífilsstöðum, 22 febrúar fer fram frá Fossvogskirkju. þriðjudaginn 8 marz kl 10 30 Blóm og kransar afbeðnir, þeim, sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Halldór Sigurðsson, tengdadóttir, systur og barnaborn t Móðir okkar. ÁSA ÁSGRÍMSDÓTTIR. Drafnarstfg 2, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7 marz kl 3 Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á liknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Ásgrímur Ásgeirsson, Sigriður Ásgeirsdóttir.
t Útför konu minnar SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR, Ljósheimum 4, fer fram frá Fríkirkjunni, þriðjudaginn 8 marz kl. 1 5 Blóm afbeðin, en þeim, sem vilja minnast hennar er bent á Minningar- sjóð Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Theodór Gfslason. t Faðir minn, stjúpfaðir okkar og afi JÓNAS FR. GUÐMUNDSSON Hringbraut 80, Reykjavík verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8 febrúar kl. 3 eh. Fyrir hönd allra vandamanna Stella Matthew, Jóna K. Björnsdóttir, Jónína Björnsdóttir, Jóhann Björnsson. Kolbrún Jónsdóttir, Ólafía Ingvarsdóttir.
Eiginkona mín GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR. Langholtsvegi 140. lést í Landakotspitala fimmtudagínn 3 marz Fyrir hönd aðstandenda Klemens Kristmannsson. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins mins og föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR ÁRMANNS INGIMUNDARSONAR. Helga Glsladóttir, dætur. tengdasynir og barnabörn.
Útför móður okkar HALLFRÍÐAR PÁLMADÓTTUR. Sporðagrunni 5. fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8 mars, kl 13.30 Börn og tengdabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför bróður okkar SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, Laufási, Þingeyri. Guð blessi ykkur öll. Systkini hins látna og aðrir vandamenn
t Maðurinn minn, faðír okkar, tengdafaðir og afi ARNÞÓR EINARSSON t Við þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar,
Kópavogsbraut 2. GUÐLAUGS EINARSSONAR
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 7 þ.m. kl 1 30 hæstaréttarlögmanns.
e.h Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Ennfremur þökkum við læknum, hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki á deild E-6 Borgarspítalanum fyrir góða umönnun í veikindum hans.
Sólveig Kristjánsdóttir Guðrún Guðlaugsdóttir. Júllus Kristinsson,
Erna Jóna Arnþórsdóttir Auður Lilja Arnþóisdóttir Einar Guðlaugsson. Auður Egilsdóttir.
Kristján Geir Arnþórsson Bára Kristjánsdóttir Kristján Guðlaugsson, Soffía Snorradóttir,
Njörður og Arnþór Svana Guðlaugsdóttir, Sunna Guðlaugsdóttir.
3. Auður Lilja, námsmær i heima-
húsum.
Frú Sóveigu Kristjánsdóttur,
börnum hennar, mágkonu og öðr-
um venslamönnum sendir fjöl-
skylda mín innilegustu samúðar-
kveðjur. Við þökkum hjartanlega
vináttu og tryggð, birtu og yl, sem
frá fjölskyldu þeirra streymdi inn
f líf okkar fyrr og síðar. Og við
biðjum nú þann, sem yfir okkur
öllum vakir, að gefa þeim styrk í
stríði og þol í þungri raun.
í minningum okkar er bjart yfir
lífi og starfi Arnþórs Einarssonar,
þótt skemmra yrði en skyldi. Sú
birta fylgir honum nú ófölnuð
héðan á leið til hærri heima.
Jón Skagan.
Hinn 24. febrúar s.l. lést Arn-
þór Einarsson forstjóri og meist-
ari f kjötiðnaði, eftir erfiða sjúk-
dómslegu á Landakotsspítala.
Arnþór Einarsson fæddist 1.
nóvember 1918 að Búðarhóli í
Austur-Landeyjum, Rangarvalla-
sýslu; sonur Einars Högnasonar
bónda þar og konu hans, Jónheið-
ar Einarsdóttur frá Arngeirsstöð-
um, Fljótshlfð.
Föður sinn missti Arnþór árið
1931, en móðir hans hélt áfram
búskap til ársins 1937. Arnþór var
þann tfma hjá móður sinni að
undanskilinni einni vetrarvertfð
er hann fór til Vestmannaeyja til
sjóróðra.
Sumarið 1937 fluttist Arnþór
ásamt móður sinni og systur sinni
Arnheiði til Reykjavíkur og héldu
þar heimili saman.
17. júní 1945 giftist Arnþór
konu sinni, Sólveigu Kristjáns-
dóttur, Júliussonar, vigtarmanns
í Reykjavík, og konu hans Geir-
laugar Pálsdóttur.
Árið 1947 fluttu þau hjónin,
Arnþór og Sólveig, í sumarbústað
að Kópavogsbraut 2, þar sem þau
þar með urðu meðal frumbyggja í
Kópavogi. Þar byggðu þau upp
fagurt heimili og ræktuðu f kring-
um húsið þannig að allt ber vitni
smekkvísi og samhug þeirra
hjóna og góðra barna þeirra.
Jónheiður móðir Arnþórs var á
heimili sonar sfns og tengdadótt-
ur siðustu 20 ár ævi sinnar, en
hún lést 84 ára gömul.
Börn þeirra hjóna eru: Kristján
Geir, nú sölustjóri hjá hlutafél-
aginu Búrfelli, Erna Jóna, sjúkra-
þjálfari f Noregi, og Auður Lilja,
nemandi í Kvennaskólanum f
Reykjavík. Eitt barnabarn eiga
þau hjón, en það er barn þeirra
hjóna Kristjáns Geirs og Báru
Kristjánsdóttur frá Patreksfirði.
Litli drengurinn var skírður Arn-
þór við kistulagningarathöfn afa
sfns. Uppeldissystur á Arnþór er
heitir Erna Elíasdóttir, hún býr á
Egilsstöðum.
Þegar Arnþór flutti til Reykja-
víkur var mikið atvinnuleysi og
þvf fór hann enn einu sinni til
Vestmannaeyja og reri þaðan
eina vetrarvertfð.
Og þegar Arnþór kom frá Vest-
mannaeyjum, réðst hann til hins
þekkta athafnamanns Garðars
Gfslasonar til starfa við Kjötverzl-
unina Búrfell.
Framleiðslu stjórnaði þar þýsk-
ur kjötiðnaðarmaður, sem kenndi
Arnþóri til 1940 en þá var kennar-
inn handtekinn, ásamt fleiri Þjóð-
verjum, og fluttur til Englands
vegna styrjaldarástands er þá
rikti. Það varð tii þess að Arnþór
tók að sér störf kennarans og
rekstur Kjötverzlunarinnar Búr-
fells, og hafði það starf á hendi
t
Faðir okkar sonur og bróðir
SIGURÐUR ÞORLEIFSSON,
Hraungerði, Grindavlk.
andaðist 2. þ.m.
Börn. foreldrar og systkini.
t
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda
samúð vegna fráfalls
EGGERTS ÓLAFSSONAR
húsgagnasmiðs
Laufásvegi 64.
Haukur Eggertsson
og vandamenn.