Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
5
Leyfileg
manndráp
ÞAÐ er ekki Idi Amin, sem
fjallað er um í þætti með
þessu nafni — heldur er
hér um að ræða aðra mynd
af þremur um ógnvekjandi
afleiðingar sígarettureyk-
inga. Meðal annars er
spurt um, hvort banna eigi
sígarettuauglýsingar, og
*
sýnd er aðgerð á krabba-
meinssýktu lunga.
Þýðandi er Gréta
Hallgríms og þulur Jón O.
Edwald.
Þessi eina mynd úr
myndaflokknum hefur
verið sýnd áður í sjónvarp-
inu.
Klukkan 20.45:
Bílslys
m
Janani Luwum erkibiskup
Erinayo Oryema ráðherra
erlendri gagnrýni, því
hann væri saklaus af öllum
glæpum. Er sagt að hann
hafi ennfremur sagt í þess-
um viðræðum: „Þetta er
hegning guðs, því guð vill
ekki að aðrir þjáist.
Þá verður í þættinum
Utan úr heimi rætt við tvo
íslenzka menn, sem fóru I
opinberri sendinefnd til að
kanna markaðsmál íslend-
inga í Nígeríu. Mennirnir,
sem rætt verður við, eru
Valgarð Ólafsson hjá SÍF
og Stefán Gunnlaugsson
deildarstjóri i utanríkis-
ráðuneytinu.
Fór þessi sendinefnd
utan til þess að kanna
markaðsmál í Afríku al-
mennt utan hinna hefð-
bundnu markaðssvæða ís-
lendinga.
Athugasemd
að gefnu tilefni
—frá Signrgeiri Jónssyni bæjarfógeta
VEGNA móðursýkilegra skrifa aö
undanförnu út af því að lögreglan
í Kópavogi lógaði einum hundi í
síðast liðnum mánuði, þykir mér
óhjákvæmilegt að leggja aðeins
orð í belg.
Vil ég þá fyrst nefna nokkur
atriði almenns eðlis.
1. Hundahald er bannað i Kópa-
vogskaupstað og hefur verið í
h.u.b. tvo áratugi. Bæjarstjórn
hefur heimild til að veita undan-
þágur og eru tvær slíkar nu i
gildi.
2. Þrátt fyrir ofangreint bann
og þar með lagabrot hvers og eins,
sem hefur hund hér i umdæminu
án undanþágu bæjarstjórnar, hef-
ur löggæsla því miður ekki verið
skeleggari en svo síðustu árin, að
engin afskipti hafa verið höfð af
hundum, sem hafa verið i full-
kominni vörslu í húsum, á lóðum
eigenda eða verið teymdir á al-
mannafæri. Hið eina sem sinnt
hefur verið, er að lausir hundar á
almannafæri hafa verið teknir ef
undan hefur verið kvartað og til
þeirra náðst. Sama er ef hundar
hafa sannanlega bitið menn og
skaðað. Dýrum þessum er yfirleitt
lógað af lögreglumanni, sem
hefur sérstaklega verið ráðinn til
þessa starfa af bæjaryfirvöldum.
Þá hefur eigendum hunda, sem
alvarlega hefur verið kvartað yfir
af nágrönnum, verið settur
frestur til þess að losa sig við þá.
3. Það skal játað hér með, að ég
hef sem lögreglustjóri, ekki lagt
fyrir lögreglumenn í lögregluliði
Kópavogs að leita uppi hunda-
eigendur og færa þeim hunda,
sem teknir eru á viðavangi. Ég
hef heldur ekki gefið lögreglulið-
inu fyrirmæli um að færa
bruggurum brugg, sem þeir
kynnu að hafa týnt á almanna-
færi. Ég hef yfirleitt ekki lagt
fyrir lögregluliðið að dekra við
lögbrjóta. í samræmi við framan-
greinda skoðun mína á starfi
lögreglustjóra, verð ég að lýsa þvi
yfir, að ég sækist ekki eftir
traustsyfirlýsingum á borð við
yfirlýsingu, sem kom fram undir
stórfyrirsögn i blaði einu hinn 17.
þ.m., um að lögreglan í Reykjavik
hafi sýnt hundaeigendum skiln-
ing (gagnstætt þvi sem sé i Kópa-
' vogi).
Um mál það, sem mestu lætin
hafa orðið út af að undanförnu,
þ.e. að hundi töldum (líkl.
ranglega) úr Mosfellssveit, sem
var á flækingi á almannafæri í
Kópavogi, var lógað, ætla ég að
vera fáorður að sinni.
Það mál hefur verið kært fyrir
sakadómi Kópavogs og vék ég að
sjálfsögðu sæti sem sakadómari í
málinu samstundis (hinn 10.
þ.m.). Þar var ekki aðeins kært
atferli starfsmanns við embætti,
sem ég veiti forstöðu, heldur jafn-
framt stjórn min á lögregluliðinu.
Ég mun koma sem sakborningur
fyrir þann dómara, sem falin
verður meðferð máls þessa, alveg
eins og lögreglumaðurinn. Þar
munum við báðir svara til saka,
ég fyrir almenn fyrirmæli til
lögregluliðsins, en ekki þetta at-
vik sérstaklega, og hann vegna
þeirra saka, sem hann er borinn.
Ég svara til saka fyrir réttum og
löglegum dómstólum landsins og
það gerir lögreglumaðurinn að
sjálfsögðu einnig, en ég mun ekki
láta einn eða neinn þvæla mér út i
þvarg um málið á öðrum vett-
vangi. Það er von mín að sá mikli
meirihluti, sem ekki hefur látið
glepjast af ólátum þeim, sem hin-
ir svokölluðu hundavinir hafa
stofnað til á undanförnum árum,
bíði með sinn dóm, þangað til um
mál þetta hefur verið fjallað fyrir
hinum reglulegu og löglegu dóm-
stólum landsins. Þangað til biðst
ég undan því, að þurfa að eiga
frekari orðastað við þá ritsnill-
inga sem hafa látið ljós sitt skína
um mál þetta að undanförnu.
Kópavogi, 19. marz 1977.
Sigurgeir Jónsson.
Uggandi
um hag fatl-
aðra á Norð-
urlöndum
ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra
var 20. marz.
Af því tilefni ákvað stjórn
Bandalags fatlaðra á Norður-
löndum á síðasta stjórnarfundi
sínum að láta fara frá sér eftir-
farandi ályktun:
Stjórn Bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum, sem er mál-
svari 130 þúsund fatlaðra
Norðurlandabúa, er uggandi
um hag þeirra vegna ríkjandi
efnahagsátands.
Hvað varðar ástand á vinnu-
markaði, þá á fatlað fólk í
miklum erfiðleikum við að fá
atvinnu við sitt hæfi.
örorkulifeyrir er ófullnægj-
andi á flestum Norðurland-
anna. Hækkun örorkubóta er
réttlætismál.
Við skipulagningu bygginga
og umhverfissköpun i heild
ber að taka fullt tillit til
fatlaðra og þar er mikilla átaka
þörf. Aðgengilegt húsnæði er
eitt brýnasta hagsmunamál
fatlaðs fólks.
Bifreiðamálum fatlaðra
verði komið í betra horf og
almenningsfaratæki hönnuð
eftir þörfum þeirra. Komið
verði til móts við þann hóp
Framhald á bls. 43
SATA GR/Z sprautukannan er óvenju létt og vel byggð sprautukanna sem
sprengir efnið vel í breiðum og jöfnum úða.
SATA GR/Z sprautukannan er með mikro loftstillingu og einnig
fáanleg með lofthreinsara.
SATA GR/Z sprautukannan hentar sérstaklega vel fyrir bílamálara vegna hinna
einstöku eiginleika. SATA er þýsk gæðavara. Allir varahlutir fyrirliggjandi.
EIN ALVCG
EINSTÖK
Verð frá kr. 22.800.- Sparslkönnur kr. 19.700.-
Remaco hf.
Skeljabrekku 4. Kópavogi, sími 44200.