Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 14
14
---------------------------------—
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22, JVl ARZ-497?
Kosningarnar í Indlandi, . . Kosningarnar í Indlandi . . . Kosningarnar i Indlandi . . . Kosningarn
George Fernandes heilsar stuðningsmönnum sfnum á mánudag áður en hann mætti f dómsal, þar sem
hann svarar til saka fyrir meinta tilraun til að steypa stjórninni af stóli. Fernandes vann mikinn
kosningasigur, en hefur setið f fangelsi alla kosningabaráttuna. simamynd ap
hneppa J fangelsi í 20 mánuði.
Narain sagði við fréttamenn i dag
að Indíra sypi nú seyðið af þess-
um fangelsunum, því að ósigur
Kongressflokksins væri mestur í
héruðunum í N-Indlandi, þar sem
flestir andstæðingar hennar
hefðu verið fangelsaðir án réttar-
halda.
Auk Indiru og Sanjays féllu
margir valdamestu menn landsins
einnig i sinum kjördæmum þ.á m.
Bansi Lal, varnarmálaráðherra,
Charan Shukla, upplýsingamála-
ráðherra, Hari Ram Gokhale, lög-
gjafarmálaráðherra, sem samdi
stjórnarskrárbreytingarnar á sl.
ári, og Swaran Singh, fyrrum
varnarmálaráðherra, sem var
einn af virtustu stjórnmálamönn-
um landsins. Hann tapaði með 100
þús. atkvæða mun i Punjab.
Shukla, sem keyrði í gegn algera
ritskoðun í landinu á sl. tveimur
árum, tapaði með 86 þús. atkvæð-
um og aðstoðarmaður hans,
Dharam Sinah, tapaði með rúm-
lega 200 þúsund atkvæðum í
Gihar í A-Indlandi.
George Ferandes, leiðtogi
sósíalista, sem enn er í haldi í
Nýju-Delhí sakaður um undirbún-
ing að stjórnarbyltingu sigraði í
kjördæmi sinu i Bihar með 300
þúsund atkvæðum. Fernandes
Neyðarástandið og
vönunarherferðin urðu
Indíru Gandhí að falli
Nýju-Delhí og vírtar 21. marz, Reuter, NTB-AP.
ÓSIGUR Indíru Gandhís og Kongressflokksins á Ind-
landi í þingkosningunum þar kom eins og þruma úr
heiðskfru lofti og eiga stjórnmálafréttaritarar víða um
heim erfitt með að vinna orð, sem ná að lýsa þvf sem
gerzt hefur í f jölmennasta lýðræðisríki heims.
Ljós er, að þegar Indfra boðaði kosningar í janúar eftir
að neyðarástand hafði ríkt í landinu í 19 mánuði, gerði
hún sér ekki í hugarlund að indverska þjóðin hafnaði
henni og Kongressflokknum svo ákveðið að hún sjálf
HARÐVÍTUG BARÁTTA
Sigur stjórnarandstöðusam-
steypunnar Janata grundvallast á
harðvítugri baráttu hennar gegn
neyðarástandinu og vönunarher-
ferð stjörnar Indíru, en um 7
milljónir manna voru variaðar á
sl. tveimur árum i umdeildri og
oft miskunnarlausri herferð. For-
ystumenn Janataflokksins
byggðu alla baráttu sína á loforð-
um um að ef flokkurinn fengi
meirihluta á þingi myndu
borgararéttindi, lýðræðisréttindi
og prentfrelsi endurreist strax og
ný rikisstjórn hefði verið mynd-
uð. Alls er talið að um 60 þúsund
manns úr hópi andstæðinga for-
sætisráðherrans og Kongress-
flokksins hafi verið hnepptir í
fangelsi án réttarhalda þann 21
mánuð, sem neyðarástandið var í
gildi. Margir úr þeirra hópi voru
ekki látnir lausir fyrr en í janúar,
er kosningar voru boðaðar, en
hafa nú verið kjörnir á þing.
Síðdegis í dag tilkynntu margar
héraðsstjórnir í landinu, að þús-
undum manna yrði þegar í stað
sleppt úr haldi, eftir að ríkis-
stjórnin hafði formlega aflýst
neyðarástandinu.
félli með 55 þúsund atkvæða mun í eigin kjördæmi og
sonur hennar, Sanjay, einhver valdamesti maður lands-
ins eftir að neyðarástandinu var lýst yfir, félli með 80
þúsund atkvæðum í nærliggjandi kjördæmi.
Indíra Gandhí hafði í kvöld ekki viðurkennt ósigur
sinn opinberlega en gert var ráð fyrir að hún gerði það á
morgun. Hins vegar kallaði hún ríkisstjórn sína saman
til aukafundar síðdegis í dag, þar sem neyðarástandinu
var aflýst formlega eftir 21 mánuð.
MIKILVÆG
TÍMAMÓT
Með ósigri Kongressflokksins
eru mörkuð mikilvæg tímamót í
sögu Indlands því nú er lokið nær
30 ára samfelldum valdatíma fjöl-
skyldu Gandhís, en faðir hennar,
Jawarlal Nehrú, varð fyrsti for-
sætisráðherra landsins er það
hlaut sjálfstæði 1947. Sjálf hefur
Indíra verið forsætisráðherra í 11
ár.
Indíra Gandhí tapaði í kjör-
dæmi sínu fyrir sósíalistaleið-
toganum Rai Narain, sem hún lét
hefur ekki komið í kjördæmi sitt
um árabil, en stúdentar og lög-
fræðingar gengu í lið með fjöl-
skyldu hans í kosningarbarátt-
unni og drógu brúðulíki hans í
hlekkjum eftir götunum í kjör-
dæminu.
ÓLEYSANLEG
VERKEFNI
Þegar Indíra Gandhí tók við
embætti forsætisráðherra 19.
janúar 1966 tók hún að sér verk-
efni, sem virtist algerlega
óleysanlegt. Gífurleg fátækt,
hungur, sjúkdómar náttúruham-
farir og mikill hluti þjóðarinnar
ólæs voru aðeins nokkur af þeim
vandamálum sem þessi 600 millj-
ón manna þjóð átti við að striða.
Þrátt fyrir þetta allt hélt Indíra
velli og hún hafði tryggt sér alger
völd í landinu þótt það væri á
kostnað lýðræðisins. Mestu erfið-
leikarnir sem hún átti við að
striða á valdaferli sínum hófust
1975, er stjórnarandstaðan hótaði
að steypta henni úr stóli og þá
greip hún til þess ráðs að lýsa yfir
neyðarástandinu 26. júní, aðeins
nokkrum dögum eftir að dómstóll
hafði dæmt hana seka um
kosningasvik og Kongressflokkur-
inn hafði beðið mikið afhroð í
fylkiskosningum í Gujarat.
Dómurinn í Allhabad hefði átt að
hafa sjálfkrafa í för með sér að
Indíra fengi ekki að gegna kjörnu
embætti í 6 ár, en framkvæmd
dómsins var frestað meðan hæsti-
réttur fjallaði um áfrýjun hennar.
Ógilti hæstiréttur dóminn í
nóvember sama ár og þar með
fékk hún frjálsar hendur til að
hagræða málum þannig að hún og
ríkisstjórn hennar gætu gert þær
ráðstafanir, sem taldar voru nauð-
synlegar. Raj Narain, sem sigraði
hana i kosningunum um helgina,
var maðurinn, sem höfðaði málið
gegn henni upphaflega.
SATUNG ÍFANGELSI
Indíra Gandhí er þekkt fyrir að
taka sínar eigin ákvarðanir og
greinilegt var á sínum tíma, að
það kom mörgum ráðherrum
hennar í opna skjöldu er neyðar-
ástandinu var lýst yfir. Indíra
hefur allt sitt líf verið mitt í
hringiðu valda og stjórnmála í
Indlandi. Hún var ákafur læri-
sveinn Mahatma Gandhís, leið-
toga sjálfstæðisbaráttu Indlands,
og sat sem ung stúlka í fangelsi
fyrir að hvetja til sjálfstæðis. Hún
var pólitískur trúnaðarrhaður föð-
ur síns, Jawaharlals Nehrús, er
hann var forsætisráðherra. Um
uppeldi sitt sagði hún einu sinni:
„Móðir mín kenndi mér að standa
fast í báða fætur, en faðir menn
þreytist aldrei á að hvetja mig til
að beita stjörnu fyrir vagn minn.“
Með þetta tvennt að leiðarljósi
tókst Indíru að leika á óvini sína
innan og utan Kongressflokksins,
en á sama tíma að missa ekki
sjónar á takmarkinu um sósíalískt
lýðræði á Indlandi. Fyrsti áfangi
á leið hennar í valdastól var 1959,
er hún var kosin forseti Kongress-
flokksins. 1964 varð hún upplýs-
ingamálaráðherra og tveimur
árum síðar forsætisráðherra.
DESAI OG JP.
Hinn mikli sigur Janata, sem er
samsteypa fjögurra lýðræðis-
flokka, sem andvígir eru
kommúnisma, er fyrst og fremst
að þakka tveimur mönnum
Morarji Desai, sem er 81 árs, fyrr-
um aðstoðarforsætisráðherra, og
Jayaprakash Narayan, 74 ára,
föður Janatasamsteypunnar, sem
Sanjay Gandhi
sér sína sæng
upp reidda
Nvju Dclhi 21. marz — NT8
MIKILL ósigur Sanjay
Gandhis á sunnudaginn
táknar lfklega endalokin á
stjórnmálaferli hans en
honum hefur skotið upp á
himin stjórnmálanna í
Indlandi með ótrúlegum
hraða. Margir hafa Iitið á
Sanjay sem arftaka móður
sinnar, Indriru Gandhi, og
afa sfns, Jawaharlal
Nehru, fyrsta forsætisráð-
herra Indiands. Litið var á
kosingarnar sem hreint
formsatriði — sæti
Sanjays á þingi var álitið
öruggt.
Frá því að hann gekk í
ungliðasamtök Kongress-
flokksins 1975 hefur hann
verið auglýstur ákaft í fjöl-
miðlum, sem voru undir
yfirráðum stjónarinnar.
Það varð fljótt ljóst, að
hann var orðinn einn
helzti ráðgjafi móður sinn-
ar og stjórnarandstaðan
Sanjay Gandhi, sonur Indiru Gandhi, beið mikinn ðsigur f kosningunum. Hér er hann á fundi f kjördæmi
sfnu stutfu fyrir kosningarnar.