Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 14
14 ---------------------------------— MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22, JVl ARZ-497? Kosningarnar í Indlandi, . . Kosningarnar í Indlandi . . . Kosningarnar i Indlandi . . . Kosningarn George Fernandes heilsar stuðningsmönnum sfnum á mánudag áður en hann mætti f dómsal, þar sem hann svarar til saka fyrir meinta tilraun til að steypa stjórninni af stóli. Fernandes vann mikinn kosningasigur, en hefur setið f fangelsi alla kosningabaráttuna. simamynd ap hneppa J fangelsi í 20 mánuði. Narain sagði við fréttamenn i dag að Indíra sypi nú seyðið af þess- um fangelsunum, því að ósigur Kongressflokksins væri mestur í héruðunum í N-Indlandi, þar sem flestir andstæðingar hennar hefðu verið fangelsaðir án réttar- halda. Auk Indiru og Sanjays féllu margir valdamestu menn landsins einnig i sinum kjördæmum þ.á m. Bansi Lal, varnarmálaráðherra, Charan Shukla, upplýsingamála- ráðherra, Hari Ram Gokhale, lög- gjafarmálaráðherra, sem samdi stjórnarskrárbreytingarnar á sl. ári, og Swaran Singh, fyrrum varnarmálaráðherra, sem var einn af virtustu stjórnmálamönn- um landsins. Hann tapaði með 100 þús. atkvæða mun i Punjab. Shukla, sem keyrði í gegn algera ritskoðun í landinu á sl. tveimur árum, tapaði með 86 þús. atkvæð- um og aðstoðarmaður hans, Dharam Sinah, tapaði með rúm- lega 200 þúsund atkvæðum í Gihar í A-Indlandi. George Ferandes, leiðtogi sósíalista, sem enn er í haldi í Nýju-Delhí sakaður um undirbún- ing að stjórnarbyltingu sigraði í kjördæmi sinu i Bihar með 300 þúsund atkvæðum. Fernandes Neyðarástandið og vönunarherferðin urðu Indíru Gandhí að falli Nýju-Delhí og vírtar 21. marz, Reuter, NTB-AP. ÓSIGUR Indíru Gandhís og Kongressflokksins á Ind- landi í þingkosningunum þar kom eins og þruma úr heiðskfru lofti og eiga stjórnmálafréttaritarar víða um heim erfitt með að vinna orð, sem ná að lýsa þvf sem gerzt hefur í f jölmennasta lýðræðisríki heims. Ljós er, að þegar Indfra boðaði kosningar í janúar eftir að neyðarástand hafði ríkt í landinu í 19 mánuði, gerði hún sér ekki í hugarlund að indverska þjóðin hafnaði henni og Kongressflokknum svo ákveðið að hún sjálf HARÐVÍTUG BARÁTTA Sigur stjórnarandstöðusam- steypunnar Janata grundvallast á harðvítugri baráttu hennar gegn neyðarástandinu og vönunarher- ferð stjörnar Indíru, en um 7 milljónir manna voru variaðar á sl. tveimur árum i umdeildri og oft miskunnarlausri herferð. For- ystumenn Janataflokksins byggðu alla baráttu sína á loforð- um um að ef flokkurinn fengi meirihluta á þingi myndu borgararéttindi, lýðræðisréttindi og prentfrelsi endurreist strax og ný rikisstjórn hefði verið mynd- uð. Alls er talið að um 60 þúsund manns úr hópi andstæðinga for- sætisráðherrans og Kongress- flokksins hafi verið hnepptir í fangelsi án réttarhalda þann 21 mánuð, sem neyðarástandið var í gildi. Margir úr þeirra hópi voru ekki látnir lausir fyrr en í janúar, er kosningar voru boðaðar, en hafa nú verið kjörnir á þing. Síðdegis í dag tilkynntu margar héraðsstjórnir í landinu, að þús- undum manna yrði þegar í stað sleppt úr haldi, eftir að ríkis- stjórnin hafði formlega aflýst neyðarástandinu. félli með 55 þúsund atkvæða mun í eigin kjördæmi og sonur hennar, Sanjay, einhver valdamesti maður lands- ins eftir að neyðarástandinu var lýst yfir, félli með 80 þúsund atkvæðum í nærliggjandi kjördæmi. Indíra Gandhí hafði í kvöld ekki viðurkennt ósigur sinn opinberlega en gert var ráð fyrir að hún gerði það á morgun. Hins vegar kallaði hún ríkisstjórn sína saman til aukafundar síðdegis í dag, þar sem neyðarástandinu var aflýst formlega eftir 21 mánuð. MIKILVÆG TÍMAMÓT Með ósigri Kongressflokksins eru mörkuð mikilvæg tímamót í sögu Indlands því nú er lokið nær 30 ára samfelldum valdatíma fjöl- skyldu Gandhís, en faðir hennar, Jawarlal Nehrú, varð fyrsti for- sætisráðherra landsins er það hlaut sjálfstæði 1947. Sjálf hefur Indíra verið forsætisráðherra í 11 ár. Indíra Gandhí tapaði í kjör- dæmi sínu fyrir sósíalistaleið- toganum Rai Narain, sem hún lét hefur ekki komið í kjördæmi sitt um árabil, en stúdentar og lög- fræðingar gengu í lið með fjöl- skyldu hans í kosningarbarátt- unni og drógu brúðulíki hans í hlekkjum eftir götunum í kjör- dæminu. ÓLEYSANLEG VERKEFNI Þegar Indíra Gandhí tók við embætti forsætisráðherra 19. janúar 1966 tók hún að sér verk- efni, sem virtist algerlega óleysanlegt. Gífurleg fátækt, hungur, sjúkdómar náttúruham- farir og mikill hluti þjóðarinnar ólæs voru aðeins nokkur af þeim vandamálum sem þessi 600 millj- ón manna þjóð átti við að striða. Þrátt fyrir þetta allt hélt Indíra velli og hún hafði tryggt sér alger völd í landinu þótt það væri á kostnað lýðræðisins. Mestu erfið- leikarnir sem hún átti við að striða á valdaferli sínum hófust 1975, er stjórnarandstaðan hótaði að steypta henni úr stóli og þá greip hún til þess ráðs að lýsa yfir neyðarástandinu 26. júní, aðeins nokkrum dögum eftir að dómstóll hafði dæmt hana seka um kosningasvik og Kongressflokkur- inn hafði beðið mikið afhroð í fylkiskosningum í Gujarat. Dómurinn í Allhabad hefði átt að hafa sjálfkrafa í för með sér að Indíra fengi ekki að gegna kjörnu embætti í 6 ár, en framkvæmd dómsins var frestað meðan hæsti- réttur fjallaði um áfrýjun hennar. Ógilti hæstiréttur dóminn í nóvember sama ár og þar með fékk hún frjálsar hendur til að hagræða málum þannig að hún og ríkisstjórn hennar gætu gert þær ráðstafanir, sem taldar voru nauð- synlegar. Raj Narain, sem sigraði hana i kosningunum um helgina, var maðurinn, sem höfðaði málið gegn henni upphaflega. SATUNG ÍFANGELSI Indíra Gandhí er þekkt fyrir að taka sínar eigin ákvarðanir og greinilegt var á sínum tíma, að það kom mörgum ráðherrum hennar í opna skjöldu er neyðar- ástandinu var lýst yfir. Indíra hefur allt sitt líf verið mitt í hringiðu valda og stjórnmála í Indlandi. Hún var ákafur læri- sveinn Mahatma Gandhís, leið- toga sjálfstæðisbaráttu Indlands, og sat sem ung stúlka í fangelsi fyrir að hvetja til sjálfstæðis. Hún var pólitískur trúnaðarrhaður föð- ur síns, Jawaharlals Nehrús, er hann var forsætisráðherra. Um uppeldi sitt sagði hún einu sinni: „Móðir mín kenndi mér að standa fast í báða fætur, en faðir menn þreytist aldrei á að hvetja mig til að beita stjörnu fyrir vagn minn.“ Með þetta tvennt að leiðarljósi tókst Indíru að leika á óvini sína innan og utan Kongressflokksins, en á sama tíma að missa ekki sjónar á takmarkinu um sósíalískt lýðræði á Indlandi. Fyrsti áfangi á leið hennar í valdastól var 1959, er hún var kosin forseti Kongress- flokksins. 1964 varð hún upplýs- ingamálaráðherra og tveimur árum síðar forsætisráðherra. DESAI OG JP. Hinn mikli sigur Janata, sem er samsteypa fjögurra lýðræðis- flokka, sem andvígir eru kommúnisma, er fyrst og fremst að þakka tveimur mönnum Morarji Desai, sem er 81 árs, fyrr- um aðstoðarforsætisráðherra, og Jayaprakash Narayan, 74 ára, föður Janatasamsteypunnar, sem Sanjay Gandhi sér sína sæng upp reidda Nvju Dclhi 21. marz — NT8 MIKILL ósigur Sanjay Gandhis á sunnudaginn táknar lfklega endalokin á stjórnmálaferli hans en honum hefur skotið upp á himin stjórnmálanna í Indlandi með ótrúlegum hraða. Margir hafa Iitið á Sanjay sem arftaka móður sinnar, Indriru Gandhi, og afa sfns, Jawaharlal Nehru, fyrsta forsætisráð- herra Indiands. Litið var á kosingarnar sem hreint formsatriði — sæti Sanjays á þingi var álitið öruggt. Frá því að hann gekk í ungliðasamtök Kongress- flokksins 1975 hefur hann verið auglýstur ákaft í fjöl- miðlum, sem voru undir yfirráðum stjónarinnar. Það varð fljótt ljóst, að hann var orðinn einn helzti ráðgjafi móður sinn- ar og stjórnarandstaðan Sanjay Gandhi, sonur Indiru Gandhi, beið mikinn ðsigur f kosningunum. Hér er hann á fundi f kjördæmi sfnu stutfu fyrir kosningarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.