Morgunblaðið - 22.03.1977, Side 21
mÓrGÚNRLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
21
Unglingalandsliðið
tapaði tvívegis
fyrir V-Þjóðverjum
ÍSLENZKA unglingalandsliðið í hand-
knattleik, sem skipað er leikmönn-
um 21 árs og yngri lék tvo landsleiki
við Vestur Þjóðverja um helgina.
Fóru leikirnir fram f Vellmar og
Hildesheim og unnu Þjóðverjarnir
sigur í þeim báðum, þeim fyrri
18—15 og þeim seinni 14—7.
Fyrri leikurinn fór fram á föstu-
dagskvöld og var hann lengst af
mjög jafn. Þjóðverjarnir komust f
2—0, en íslendingum tókst fljótlega
að jafna, og í hálfleik var staðan jöfn
8—8, Framan af seinni hálfleik var
leikurinn einnig í járnum og var t.d.
jafnt á tölunni. 11. En Þjóðverjarnir
reyndust svo sterkari á endasprett-
inum og sigruðu sem fyrr segir með
18 mörkum gegn 15.
Beztu leikmenn íslenzka liðsins f
þessum leik voru þeir Þorbergur
Aðalsteinsson, sem átti mjög góðan
leik bæði f sókn og vörn, og Steindór
Gunnarsson, sem barðist af miklum
krafti f vörninni og var að venju
einnig drjúgur f sóknarleiknum. Þor-
bergur var markhæstur íslenzku pilt-
anna með 8 mörk, þar af 4 úr víta-
köstum. Konráð Jónsson skoraði 4
Steindór Gunnarsson 2 og Hannes
Leifsson 1.
Framhald á bls. 46
Páll löglegur
DÓMSTÖLL Handknattleikssam-
bands íslands kom saman til
fundar í gær, og tók fyrir kæru
ÍR-inga á Víkinga fyrir aö Páll
Björgvinsson lék með Víkingslið-
inu gegn ÍR á dögunum, en sem
kunnugt er hafði Páll fyrr á þessu
keppnistimabili leikið með 3.
deildar liði Akraness. Dómararnir
voru sammála í úrskurði sfnum,
sem var á þá leið, að löglega hefði
verið að félagaskiptum Páls
staðið og hann því fullgildur og
löglegur leikmaður með Víkings-
liðinu i umræddum leik.
Kristinn byrjar vel meö ÍA
UM HELGINA fóru fram tveir leikir I Litlu-bikarkeppninni i knatt-
spyrnu. Léku Akurnesingar við FH-inga á Akranesi, en Breiðablik og
Keflavik léku í Kópavogi. Báðir þessir leikir voru allsæmilegir, miðið
við tima og aðstæður, en nokkur for var á völlunum þar sem þeir voru
leiknir.
Akurnesingar sigruðu FH-inga með þremur mörkum gegn einu og
skoraði Kristinn Björnsson, sem lék þarna sinn fyrsta leik með hinu
nýja félagi sinu fyrsta mark leiksins. Ólafur Danivalsson jafnaði fyrir
FH, en undir lok leiksins skoraði hinn ungi og skemmtilegi sóknar-
maður Akurnesinga, Pétur Pétursson, tvö mörk með skömmu millibili.
Leikur Breiðabliks og Keflavikur var ekki eins vel leikinn, en þó áttu
bæði liðin allgóða spretti. Lyktaði leiknum með jafntefli 1 — 1. Pór
Hreiðarsson skoraði fyrir Breiðablik, en Rúnar Georgsson fyrir Kefla-
vlk.
Einar til Polizei Hannover
ÉINAR Magnússon handknattleiksmaður hefur nú ákveðið að
yfirgefa H:mburger SV I vor og ganga yfir f raðir Polizei
Hannover.
Eins og nafnið bendir til er félag þetta í Hannover I V-
Þýzkalandi og er það tengt lögreglunni á staðnum. Liðið er um
þessar mundir f efsta sæti 2. deildar og nær öruggt um að komast
upp f 1. deild. Reiknar Einar með þvf að verða hjá liðinu 1—2 ár,
og í samtali við Mbl. sagði hann, að samningurinn við félagið
væri mjög hagstæður að sfnu mati.
Polizei Hannover leika m.a. tveir fyrrverandi landsliðsmenn,
og er annar þeirra Bernt Munk, sem margir kannast við. Guðjón
Magnússon hefur ekki gengið frá sfnum málum en hann verður
ekki hjá Hamburger nema til vorsins.
Gfsli Þorsteinsson hefur þarna gengið tra einum keppinauta sinna, en varð svo að láta f minni pokann
fyrir Viðari f úrslitum.
VIÐAR LAGÐIGÍSLA í
ÚRSUTUM JÚDÚMÓTSINS
VIÐAR Guðjohnsen, Armanni,
bar sigur úr býtum f opnum
flokki á júdómeistaramóti ís-
lands sem fram fór f iþróttahúsi
Kennaraháskóla íslands á sunnu-
daginn. Keppti Viðar til úrslita
við Gfsla Þorsteinsson, félaga
sinn úr Ármanni, og var það all-
skemmtileg og hörð viðureign.
Gísli fékk vfti á sig snemma f
glfmunni, fyrir að stfga út af dýn-
unni, og seinna í glfmunni náði
Viðar að sveifla honum f gólfið og
fá wasari-stig, sem nægðu til sig-
urs. Sýndi Viðar mikið öryggi f
keppninni, og var tækni hans
áberandi betri en flestra keppi-
nauta hans. Aðeins einu sinni átti
Viðar f erfiðleikum, en það var f
glfmu við Hákon Halldórsson.
Fékk hvorugur stig í glímunni, en
Viðari var dæmdur sigurinn, þar
sem hann náði að sækja heldur
meira.
í undanúrslitum glímdi Viðar
við Kristmund Baldursson frá
Keflavík, sér miklu þyngri mann,
og vann nokkuð öruggan sigur.
Kristmundur er hins vegar ekkert
lamb að leika við, og hafði áður
unnið góða sigra i keppninni.
Gísli Þorsteinsson keppti við
Benedikt Pálsson i undanúr-
slitunum. Hafði Benedikt betur
lengst af, en að lokum náði Gísli
honum i gólfið og gat haldið
honum þar í tilsettan tima. Voru
það þvi þeir Benedikt og
Kristmundur sem deildu með sér
þriðju verðlaununum i mótinu.
Til stendur að Viðar Guðjohn-
sen fari til Japans í vetur eða vor
til æfinga, en hingað til hafa ekki
fengist tilskilin leyfi til dvalar
hans þar. Stendur það þó vonandi
til bóta, og víst er að ef Viðar fær
ákjósanlega aðstöðu til æfinga
þarf varla að þvi að spyrja að
hann kemst i fremstu röð í íþrótt-
inni.
Norðurlandamótið
Norðurlandamótið i júdó fer
fram í Noregi um næstu helgi, og
hefur Júdósambandið ákveðið að
senda þangað fullskipaða sveit.
Hafa eftirtaldir júdóménn verið
valdir til fararinnar: Svavar
Carlsen, JFR, Gisli Þorsteinsson,
Á, Viðar Guðjohnsen, Á, Kári
Jakobsson, Á, Halldór Guðnason,
JFR, Sigurður Pálsson, JFR og
Jóhannes Haraldsson, UMFG.
Svavar Carlsen var ekki meðal
keppenda í opna flokknum, —
mun ætla að einbeita sér að
keppni Norðurlandamótsins, en á
þeim vettvangi hefur hann oft
staðið sig mjög vel.
Kvennaflokkur
Þau óvæntu úrslit urðu í
kvennaflokki á mótinu á sunnu-
daginn að Anna Lára Friðriks-
dóttir, Á, vann þar sigur. Var hún
reyndar jöfn að vinningum við
þær Sigurveigu Pétursdóttur og
Þóru Þórisdóttur og urðu tækni-
stig að skera úr urn vinninginn, og
af þeim hafði Anna Lára flest.
Anna er mun léttari en hinar
stúlkurnar tvær, og sigur hennar
þeim mun athyglisverðari. í
fjórða sæti í keppninni varð svó
Anna Llndal. Allar þessar stúlkur
eru úr Ármanni.
Stenmark hélt sýningu í Aare
SÆNSKI skíðagarpurinn Ingemar
Stenmark hefur nú tryggt sér sig-
ur i heimsbikarkeppninni i alpa-
greinum annað árið i röð. Um
helgina fóru fram mót i svigi og
stórsvigi í Aare i Svíþjóð og vann
Stenmark sigur I báðum greinum.
Þar með hefur hann hlotið 314
stig, og getur enginn keppinauta
hans náð þeim stigafjölda. Afrek
Stenmarks er stórglæsilegt, ekki
sizt ef tekið er tillit til þess að
hann byrjaði mjög illa i mótum
vetrarins, og var það ekki fyrr en
liða tók að jólum að hann náði sér
verulega á strik.
Svigkeppnin fór fram á laugar-
daginn og i henni vann Stenmark
yfirburðasigur. Samanlagður timi
hans var 1:38.93 min., en Franco
Bieler, ítaliu. varð i öðru sæti á
1:40,52 min. og Gustavo Thoeni
frá ítaliu varð þriðji á 1.40,52
min. Helzti keppinautur Sten-
marks um heimsbikarinn, Klaus
Hedegger frá Austurriki, varð hins
vegar að gera sér fimmta sætið að
góðu á 1:41,51 min. Með þessum
sigri hafði Stenmark raunverulega
tryggt sér heimsbikarinn, og var
gifurlegur fögnuður rikjandi meðal
aðdáenda hans i Sviþjóð.
Í gær, mánudegi, var svo keppt i
stórsvigi, og þá sýndi Stenmark
sennilega betur hæfni sina en
nokkru sinni fyrr. í keppni þessari
hafði hann raunar ekki til svo
mikils að vinna, þar sem heims-
bikarinn var orðinn hans, en eigi
að siður var „keyrt" á fullri ferð
og i fyrri ferðinni fór Stenmark
hreinlega á kostum. Hraði hans
var með ólikindum — miklu betri
en . nokkurs annars. í seinni
ferðinni hélt Stenmark upptekn-
um hætti. Hann fór brautina að
þvi er virtist upp á lif og dauða. i
miðri brautinni hlekktist honum á,
en tókst að bjarga sér út úr erfið-
leikunum og ná sér á strik aftur.
Var timi hans hvorki meira né
minna en 2,20 sekúndum betri en
næsta manns, en svo mikill tima-
munur er óvenjulegur — oftar er
barizt um sekúndubrot en
sekúndur i mótum sem þessum.
Eftir keppnina i Sviþjóð hefur
Ingemar Stenmark hlotið samtals
314 stig i heimsbikarkeppninni,
Klaus Heidegger er með 248 stig.
Austurrlkismaðurinn Klaus Heidegger t.v og Svlinn Ingemar Stenmark
t.v. — tveir efstu menn I heimsbikarkeppninni I ár.