Morgunblaðið - 22.03.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
HAFA SKAL ÞAÐ SEM
SANNARA REYNIST
i
Athugasemd frá knattspyrnudeild Armanns
DANIR töldu sig fá himnasendingu er tsland dróst á móti þeim ( heimsmeistarakeppninni, og segja
okkur mjög auðveldan andstæðing, auðveidari en Spánverja. Af fréttum danska f jölmiðla má helzt draga
þá ályktun að það sé nánast formsatriði að leika við íslendinga. En vafalaust verða þeir Ólafur H.
Jónsson, Viggó Sigurðsson, Viðar Sfmonarson og Ágúst Svavarsson sem sjást hér f baráttu f leik f
B-keppninni f Austurrfki á öðru máli.
Danir telja sig örugga í
átta liða úrslitin á HM
C-RL0ILUNN FER FRAM Á JÓTLANDI OG FJÓNI
í dagblaðinu Timanum 4 marz sl
mátti lesa feitletraða fyrirsögn: „Ár-
menntngar að syngja sitt síðasta' á
knattspyrnusviðinu
Með þessum orðum geysist íþrótta-
fréttaritari blaðsins fram á ritvöllinn
sem vargur i vígahug, líkastur verkfæri
annars aðila. ekkert skal til sparað, stór
orð og fullyrðingar sitja i fyrirrúmi.
frekari heimilda er ekki leitað. höggið
skal af ríða en um afleiðingar er ekki
spurt
„Kollegi' hans á Þjóðviljanum iklæð
ist sama leiguham 16 marz sl . og nú
skal fullkomna verkið. hvergi er dregið
áf. linurnar dregnar skarpari og bani
heillar deildar búinn staður og stund
Miklir menn erum við Hrólfur minn!
Það var ekki ætlun okkar i Knatt-
spyrnudeild Ármanns að bera tima-
bundna erfiðleika og ágreinmg við
fyrrv. form. deildarinnar á torg. en hjá
þvi verður þvi miður ekki komist eftir
æsiskrif þau sem um getur hér að
ofan. en þar mun fyrrv form a m k i
öðru tilvikinu vera heimildamaður að.
þ.e.a.s. víðtal Þjóðviljans. Þykir þvi rétt
að greina í stuttu máli frá þróun mála
hjá deildinni siðustu mánuði og um
leið leiðrétta stærstu rangfærslurnar.
Það er mikið rétt sem um getur i
fyrrgreindum skrifum iþróttafréttaritar-
anna, að fyrrv form knattspyrnu-
deildarinnar hefur starfað að málefnum
deildarinnar allt frá stofnun hennar, og
stendur síst á fyrrverandi félögum hans
í Ármanni að þakka þau margvíslegu
störf og þann dugnað sem hann hefur
sýnt á mörgum sviðum, en það vegur
oft einnig þungt á metaskálunum
hvernig skilið er við
Það er sannfæring okkar að fyrrv
form hlyti að liða miklu betur ef hann
hefði skilað af sér með sóma. boðað til
aðalfundar. gert grein fyrir siðasta
starfsári, og gefið kost á því að ný
stjórn væri kosin undir eðlilegum
kringumstæðum Þvi miður fékk sagan
ekki þennan endi
Þegar Ijóst var að engar ráðstafanir
höfðu verið gerðar með skipun nýrrar
stjórnar. tóku nokkrir af stofnendum
og eldri félagar sig saman um að
athuga með áframhaldandi starf
deildarinnar Var nú tekið til við að
kanna stöðu deildarinnar. bæði hvað
fjárhag og skipulag snerti. með tilliti til
þess að fyrir lægi Ijóst hvernig málum
var komið er ný stjórn tæki við Hefur
siðan verið unnið að því að koma
starfseminm aftur i eðlilegt horf og ný
stjórn hefur verið skipuð
í fyrrgr bfaðaskrífum eru erfíðleikar
deildarinnar tíundaðir. og að þvi er
virðist næsta ómögulegt að sigrast á
þeim, en sem betur fer eru innan
deildarinnar menn sem búa yfir mun
meiri kjarki en fyrrgr iþróttafréttaritar-
ar Menn verða einfaldlega að sætta
sig við það, að það tekur tima að koma
hlutunum í lag þegar fráhvarf forsvars-
manna félaga ber að eins og lýst hefur
verið hér að ofan Þegar hefur verið
ráðin mikil bót og hyllir undir lausn
annarra vandamála
Úlfaldi gerður úr mýflugu
í margnefndum blaðaskrifum er full-
yrt að flóttinn frá félaginu sé gifurlegur
og félagaskiptabeiðnum bókstaflega
rigni yfir KSÍ þessa dagana. Við gerum
greinarmun á úða og úrhelli
Sannleíkur þessa máls er sá að eftir að
fyrrv form „hvarf frá deildinni og
hætti þar af leiðandi þjálfun 3 flokks
félagsins, gerist hann svo til samstund-
is þjálfari 3 fl Vals, ásamt með því að
komast til valda í varastjórn þess
félags F.ins og fram kemur i viðtali
hans við Þjóðviljann, ráðlagði hann
„öllum' er „leituðu ráða' með föður-
legri umhyggju að skipta umsvifalaust
um félag. og „halda hópmn . ef
þjálfaravandamál Ármanns væru ekki
leyst fyrir ákveðinn tima Þessi timatak-
mörk munu þó hafa verið undanskilin i
ráðleggingum til fyrrum 3 flokks
félaga Ármanns. sem hann sjálfur
hafði þjálfað. þvi mikill hluti flokksins
hafði þegar hafið æfmgar undir hans
stjórn hjá Val. löngu áður en umrædd-
ur frestur var útrunninn
Um mánaðamótin jan—febr sl var
fenginn þekktur unglingaþjálfari til
starfa fyrir 3 flokk félagsins, Því miður
hætti hann störfum fljótlega. þar sem
3 fl drengir sem eftir voru „týndu
jafnt og þétt tölunni, „einhverra hluta
vegna og svo „undarlega' vill til að
nú æfa þeir flestir undir stjórn fyrrv
form hjá knattspyrnudeild Vals Ein-
kenmleg tilviljun
Var núeðlilega brostin forsenda fyrir
áframhaldandi starfi hins nýja þjálfara,
enda fullkommn skilningur milli hans
og forráðamanna deildarinnar að starf
hans yrði bundið þátttöku drengjanna i
æfingum
Að sjálfsogðu hörmum við afdrif
þessa flokks félagsins og fráhvarf þess-
ara drengja, en viljum um leið óska
þeim alls góðs hjá sinu ný|a félagi. þvi
við vitum að þeirra var mikil þörf,
Þannig endar sagan um flóttann mikla
Rekstrarhagnaður deildarinnar
í viðtali við Þjóðviljann segir fyrrv.
form orðrétt: „og það vantaði ekki að
reksturinn gengi vel. knattspyrnudeild-
in var rekin með hagnaði þrátt fyrir
mikil og kostnaðarsöm ferðalög, sem
félagið greiddi að öllu leyti'
Þarna virðist debet- og kredit-hliðum
eitthvað ruglað saman. þar sem fyrir
liggur að allir tekjustofnar deildarinnar.
fast að einni milljón, sem af eru þessu
rekstrarári þe frá 1 okt 1976. hafa
farið til greiðslu vanskilaskulda frá sl.
starfsári Ef fullyrðingar fyrrv form
um afkomu deildarinnar eiga að fást
staðist þá erum við enn að greiða
niður „rekstrarhagnað Sl starfsárs
Slikt hlýtur að vera einsdæmt
Niðurlag
Rétt og skylt er að geta þess að i
Þjóðviljanum 17 marz sl er beðist
afsökunar á skrifum blaðsins 16. marz,
og vírðist sem iþróttafréttaritari blaðs-
ins hafi bakað sér óþarfa vinnu daginn
áður. en við nánari athugun verður
ekki séð hvað hann er að afsaka. né
hverjum hann er að hlífa og við hvað
Ástæða þess að grein íþr fr ritara
Timans frá 4 marz sl hefur ekki verið
Jön Hermannsson mun þjálfa
Ármannsliðið I sumar.
svarað fyrr, er eínfaldlega sú. að þeir
menn sem hafa verið að „klóra i bakk-
ann' eins og hann kallaði það, einsettu
sér að láta slúðurdálkaskrif lönd og leið
að sinni. en einbeita frekar kröftum
sinum að lausn aðkállandi vandamála
deildarinnar Hvaða tilgangi þjónar
slikur fréttaflutningur Timans og Þjóð-
viljans?
Hverjum er verið að gera greiða?
Skilningur okkar er sá, að tilgangur
iþróttafréttamennsku sé að efla og
byggja upp heilbrigða iþróttastarfsemi
með þvi að flytja sannar og'réttar fréttir
af iþróttaviðburðum og iþróttastarfi. en
forðast niðurrifsstarfsemi sem þessa i
lengstu lög Okkur er full Ijóst að
fyrrgr. íþróttafr ritarar þurfa að gegna
einskonar sölumennsku fyrir stofnanir
sinar, en þeim væri hollt að muna, og
ættu reyndar að kunna skil á þvi, að
svikin vara selst aldrei mjög lengi. en
afleiðingarnar sér engin fyrir Þvi
miður þjóna slik skrif þeim eina til
gangi að skaða þann sem fyrir þeim
verður. i þessu tilfelli Knattspyrnudeild
Ármanns, og með þvi torveldað og
tortryggt allt það viðreisnar- og upp-
byggingastarf sem unnið er að
Það er ekki ætlun okkar að elta
lengur ólar við „misvitra' blaðamenn,
en áðurnefndir iþróttafréttaritarar
skyldu varast spakmælið „Við íllt má
notast, en ei við ekkert'
Það er von okkar og trú að allir
félagar eldri sem yngri og sérstaklega
foreldrar og forráðamenn yngri félaga.
takí viljann fyrír verkið þó fullur sigur
hafi ekki náðst enn, og styðji með
okkur uppbyggingu og eðlilegt starf
deildarinnar
Reykjavik. 17 marz 1977
KNATTSPYRNUDEILD ÁRMANNS
C-RIÐILLINN sem íslendingar
munu leika I ( A-
heimsmeistarakeppninni í Dan-
mörku næsta vetur mun fara
fram ( fjórum borgum: Óðinsvé-
um, Ringe, Frederica og Velje.
Eru borgir þessar á Fjóni og á
Jótlandi. Verður miðstöð riðilsins
( Óðinsvéum og munu öll liðin,
tsland, Sovétrlkin, Danmörk og
Spánn, búa þar, en ferðast sfðan á
milli keppnisstaðanna. Ekki mun
endanlega frá þv( gengið hvar
hver leikur verður, en Danir voru
nokkuð hikandi að fastsetja leik-
ina, fyrr en búið væri að draga f
riðlana.
Mikil gleói var ríkjandi meðal
danskra handknattleiksáhuga-
manna í gjer, þegar fréttist um
mótherja heimaliðsins í riðlinum.
Telja Danir sig þar með algjör-
lega örugga um að komast í átta
liða úrslitin. Þó -segja sum
dönsku blaðanna, að Spánverjar
kunni að verða erfiðir. Þau virð-
ast hins vegar sammála um að það
verði íslendingarnir sem haldi
heim eftir að keppninni í riðlin-
um lýkur, og segja að Danir hafi
fengið veikasta liðið í þriðja
hópnum, en hins vegar það stek-
asta úr fyrsta hópnum og fjórða
hópnum.
A-riðill keppninnar sem i eru
Vestur-Þýzkaland, Júgóslavía,
Tekkóslóvakia og Bandarikin fer
fram í borgunum Árhus, Randers,
Alborg og Thisted. B-riðillinn,
sem í eru Rúmenar, Ungverjar,
A-Þjóðverjar og Afríkuríki, fer
fram í Herring, Esbjerg, Ribe og
Avenrá og D-riðillinn, sem Pól-
land, Sviþjóð Asíuríki og
Búlgaría leika í, fer fram í
Bröndbyhallen, Helsingör, Köge,
Næstved og Kalundborg.
Ekki hefur verið endanlega frá
þvi gengið hvar keppni í milli-
riðlunum fer fram, en þó ákveðið
að leikir fari m.a. fram í Hilleröd,
Rönnede, Fredrekssund, Hróars-
keldu, Nyköbing og Akirkeby á
Borgundarhólmi. Úrslitaleikir
keppninnar munu hins vegar allir
fara fram í Bröndbyhallen.
Danir áætla að kostnaður við
framkvæmd keppninnar verði um
2,6 milljónir danskra króna, þeir
hafa þegar tryggt sér alla þá upp-
hæð og um leið og fyrsti áhorf-
andinn kaupir aðgöngumiða að
keppninni verður hagnaður. Ætti
danska handknattleikssambandið
að geta grætt verulega á keppn-
inni, þar sém búizt er við að um
90.000 áhorfendur kaupi sig inn á
leikina og miðaverðið verður
30—40 kr. Þar fyrir utan er búizt
við þvi að um 35.000 ,,prógrömm“
seljist á 10 kr. stk. Hefur verið
mjög vel vandað til þess og hefur
Lockeys-auglýsingaskrifstofan í
Kaupmannahöfn tekið það verk
að sér.
Þá hefur danska handknatt-
leikssambandið veitt MEKA-
fyrirtækinu einkarétt á fram-
leiðslu á minjagripum vegna
keppninnar, en ekki hefur fengizt
Helge Paulsen, formaður danska
handknattleikssambandsins f HM
bol og með HM bolta.
uppgefið hvað sambandið fékk
fyrir þann rétt. Hefur fyrirtækið
þegar hafið framleiðslu á þessum
gripum, má nefna sem dæmi að
seldir verða bolir með HM-
merkinu, sígarettukveikjarar,
minnispeningar og fl. Þá mun
danska póst- og símamálastjórnin
gefa út nýtt frímerki í tilefni
keppninnar og fjölmörg dönsk
fyrirtæki hafa heitið handknatt-
leikssambandinu stuðningi, gegn
þvi að þau fái tækifæri til þess að
auglýsa vörur sínar. Þannig munu
fyrirtækin Addidas og Puma sjá
öllum þeim sem starfa við mótið
fyrir einkennisklæðnaði og
Tuborgverksmiðjurnar munu
kosta uppihald leikmanna þátt-
tökuliðanna að verulegu leyti,
auk þess sem fyrirtækið býður til
lokahófs sem á að verða stærra i
sniðum en gerzt hefur til þessa.
Danir áforma að taka vel á móti
gestum sinum, og er þegar ákveð-
ið að hvert lið fái a.m.k. einn túlk,
og langferðabifreiðar til afnota á
meðan keppninni stendur. Þegar
fréttir bárust um það frá Austur-
riki að bæði Svíar og íslendingar
hefðu tryggt sér þátttökurétt í
lokakeppninni, sögðu forráða-
menn danska sambandsins, meira
þó í gamni en alvöru, að þeir gætu
sparað sér tvo túlka, þar sem allir
Svíar skyldu dönsku og þá ekki
síður Islendingar.
Þá er gert ráð fyrir að blaða-
menn fái góða þjónustu, en búizt
er við miklum fjölda þeirra til
Danmerkur meðan á keppninni
stendur.
Ekki hefur verió gengið frá
samningum um sjónvarpstöku i
heimsmeistarakeppninni, en bú-
izt er við að gengið verði frá þeim
samningum á næstunni. Hefur
danska sjónvarpið boðið Hand-
knattleikssambandinu upphæð
sem svarar til 15 milljóna
íslenzkra króna fyrir réttinn, en
því boði hafnaði sambandið þegar
í stað. Mun sjónvarpið nú hafa
hækkað það boð um meira en
helming, enda sér þaó fram á að
mikil eftirspurn verður eftir
myndum þess.
Keppnin í Danmörku mun hefj-
ast 26. janúar og henni á að ljúka
6. febrúar.