Morgunblaðið - 22.03.1977, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.03.1977, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 HAFA SKAL ÞAÐ SEM SANNARA REYNIST i Athugasemd frá knattspyrnudeild Armanns DANIR töldu sig fá himnasendingu er tsland dróst á móti þeim ( heimsmeistarakeppninni, og segja okkur mjög auðveldan andstæðing, auðveidari en Spánverja. Af fréttum danska f jölmiðla má helzt draga þá ályktun að það sé nánast formsatriði að leika við íslendinga. En vafalaust verða þeir Ólafur H. Jónsson, Viggó Sigurðsson, Viðar Sfmonarson og Ágúst Svavarsson sem sjást hér f baráttu f leik f B-keppninni f Austurrfki á öðru máli. Danir telja sig örugga í átta liða úrslitin á HM C-RL0ILUNN FER FRAM Á JÓTLANDI OG FJÓNI í dagblaðinu Timanum 4 marz sl mátti lesa feitletraða fyrirsögn: „Ár- menntngar að syngja sitt síðasta' á knattspyrnusviðinu Með þessum orðum geysist íþrótta- fréttaritari blaðsins fram á ritvöllinn sem vargur i vígahug, líkastur verkfæri annars aðila. ekkert skal til sparað, stór orð og fullyrðingar sitja i fyrirrúmi. frekari heimilda er ekki leitað. höggið skal af ríða en um afleiðingar er ekki spurt „Kollegi' hans á Þjóðviljanum iklæð ist sama leiguham 16 marz sl . og nú skal fullkomna verkið. hvergi er dregið áf. linurnar dregnar skarpari og bani heillar deildar búinn staður og stund Miklir menn erum við Hrólfur minn! Það var ekki ætlun okkar i Knatt- spyrnudeild Ármanns að bera tima- bundna erfiðleika og ágreinmg við fyrrv. form. deildarinnar á torg. en hjá þvi verður þvi miður ekki komist eftir æsiskrif þau sem um getur hér að ofan. en þar mun fyrrv form a m k i öðru tilvikinu vera heimildamaður að. þ.e.a.s. víðtal Þjóðviljans. Þykir þvi rétt að greina í stuttu máli frá þróun mála hjá deildinni siðustu mánuði og um leið leiðrétta stærstu rangfærslurnar. Það er mikið rétt sem um getur i fyrrgreindum skrifum iþróttafréttaritar- anna, að fyrrv form knattspyrnu- deildarinnar hefur starfað að málefnum deildarinnar allt frá stofnun hennar, og stendur síst á fyrrverandi félögum hans í Ármanni að þakka þau margvíslegu störf og þann dugnað sem hann hefur sýnt á mörgum sviðum, en það vegur oft einnig þungt á metaskálunum hvernig skilið er við Það er sannfæring okkar að fyrrv form hlyti að liða miklu betur ef hann hefði skilað af sér með sóma. boðað til aðalfundar. gert grein fyrir siðasta starfsári, og gefið kost á því að ný stjórn væri kosin undir eðlilegum kringumstæðum Þvi miður fékk sagan ekki þennan endi Þegar Ijóst var að engar ráðstafanir höfðu verið gerðar með skipun nýrrar stjórnar. tóku nokkrir af stofnendum og eldri félagar sig saman um að athuga með áframhaldandi starf deildarinnar Var nú tekið til við að kanna stöðu deildarinnar. bæði hvað fjárhag og skipulag snerti. með tilliti til þess að fyrir lægi Ijóst hvernig málum var komið er ný stjórn tæki við Hefur siðan verið unnið að því að koma starfseminm aftur i eðlilegt horf og ný stjórn hefur verið skipuð í fyrrgr bfaðaskrífum eru erfíðleikar deildarinnar tíundaðir. og að þvi er virðist næsta ómögulegt að sigrast á þeim, en sem betur fer eru innan deildarinnar menn sem búa yfir mun meiri kjarki en fyrrgr iþróttafréttaritar- ar Menn verða einfaldlega að sætta sig við það, að það tekur tima að koma hlutunum í lag þegar fráhvarf forsvars- manna félaga ber að eins og lýst hefur verið hér að ofan Þegar hefur verið ráðin mikil bót og hyllir undir lausn annarra vandamála Úlfaldi gerður úr mýflugu í margnefndum blaðaskrifum er full- yrt að flóttinn frá félaginu sé gifurlegur og félagaskiptabeiðnum bókstaflega rigni yfir KSÍ þessa dagana. Við gerum greinarmun á úða og úrhelli Sannleíkur þessa máls er sá að eftir að fyrrv form „hvarf frá deildinni og hætti þar af leiðandi þjálfun 3 flokks félagsins, gerist hann svo til samstund- is þjálfari 3 fl Vals, ásamt með því að komast til valda í varastjórn þess félags F.ins og fram kemur i viðtali hans við Þjóðviljann, ráðlagði hann „öllum' er „leituðu ráða' með föður- legri umhyggju að skipta umsvifalaust um félag. og „halda hópmn . ef þjálfaravandamál Ármanns væru ekki leyst fyrir ákveðinn tima Þessi timatak- mörk munu þó hafa verið undanskilin i ráðleggingum til fyrrum 3 flokks félaga Ármanns. sem hann sjálfur hafði þjálfað. þvi mikill hluti flokksins hafði þegar hafið æfmgar undir hans stjórn hjá Val. löngu áður en umrædd- ur frestur var útrunninn Um mánaðamótin jan—febr sl var fenginn þekktur unglingaþjálfari til starfa fyrir 3 flokk félagsins, Því miður hætti hann störfum fljótlega. þar sem 3 fl drengir sem eftir voru „týndu jafnt og þétt tölunni, „einhverra hluta vegna og svo „undarlega' vill til að nú æfa þeir flestir undir stjórn fyrrv form hjá knattspyrnudeild Vals Ein- kenmleg tilviljun Var núeðlilega brostin forsenda fyrir áframhaldandi starfi hins nýja þjálfara, enda fullkommn skilningur milli hans og forráðamanna deildarinnar að starf hans yrði bundið þátttöku drengjanna i æfingum Að sjálfsogðu hörmum við afdrif þessa flokks félagsins og fráhvarf þess- ara drengja, en viljum um leið óska þeim alls góðs hjá sinu ný|a félagi. þvi við vitum að þeirra var mikil þörf, Þannig endar sagan um flóttann mikla Rekstrarhagnaður deildarinnar í viðtali við Þjóðviljann segir fyrrv. form orðrétt: „og það vantaði ekki að reksturinn gengi vel. knattspyrnudeild- in var rekin með hagnaði þrátt fyrir mikil og kostnaðarsöm ferðalög, sem félagið greiddi að öllu leyti' Þarna virðist debet- og kredit-hliðum eitthvað ruglað saman. þar sem fyrir liggur að allir tekjustofnar deildarinnar. fast að einni milljón, sem af eru þessu rekstrarári þe frá 1 okt 1976. hafa farið til greiðslu vanskilaskulda frá sl. starfsári Ef fullyrðingar fyrrv form um afkomu deildarinnar eiga að fást staðist þá erum við enn að greiða niður „rekstrarhagnað Sl starfsárs Slikt hlýtur að vera einsdæmt Niðurlag Rétt og skylt er að geta þess að i Þjóðviljanum 17 marz sl er beðist afsökunar á skrifum blaðsins 16. marz, og vírðist sem iþróttafréttaritari blaðs- ins hafi bakað sér óþarfa vinnu daginn áður. en við nánari athugun verður ekki séð hvað hann er að afsaka. né hverjum hann er að hlífa og við hvað Ástæða þess að grein íþr fr ritara Timans frá 4 marz sl hefur ekki verið Jön Hermannsson mun þjálfa Ármannsliðið I sumar. svarað fyrr, er eínfaldlega sú. að þeir menn sem hafa verið að „klóra i bakk- ann' eins og hann kallaði það, einsettu sér að láta slúðurdálkaskrif lönd og leið að sinni. en einbeita frekar kröftum sinum að lausn aðkállandi vandamála deildarinnar Hvaða tilgangi þjónar slikur fréttaflutningur Timans og Þjóð- viljans? Hverjum er verið að gera greiða? Skilningur okkar er sá, að tilgangur iþróttafréttamennsku sé að efla og byggja upp heilbrigða iþróttastarfsemi með þvi að flytja sannar og'réttar fréttir af iþróttaviðburðum og iþróttastarfi. en forðast niðurrifsstarfsemi sem þessa i lengstu lög Okkur er full Ijóst að fyrrgr. íþróttafr ritarar þurfa að gegna einskonar sölumennsku fyrir stofnanir sinar, en þeim væri hollt að muna, og ættu reyndar að kunna skil á þvi, að svikin vara selst aldrei mjög lengi. en afleiðingarnar sér engin fyrir Þvi miður þjóna slik skrif þeim eina til gangi að skaða þann sem fyrir þeim verður. i þessu tilfelli Knattspyrnudeild Ármanns, og með þvi torveldað og tortryggt allt það viðreisnar- og upp- byggingastarf sem unnið er að Það er ekki ætlun okkar að elta lengur ólar við „misvitra' blaðamenn, en áðurnefndir iþróttafréttaritarar skyldu varast spakmælið „Við íllt má notast, en ei við ekkert' Það er von okkar og trú að allir félagar eldri sem yngri og sérstaklega foreldrar og forráðamenn yngri félaga. takí viljann fyrír verkið þó fullur sigur hafi ekki náðst enn, og styðji með okkur uppbyggingu og eðlilegt starf deildarinnar Reykjavik. 17 marz 1977 KNATTSPYRNUDEILD ÁRMANNS C-RIÐILLINN sem íslendingar munu leika I ( A- heimsmeistarakeppninni í Dan- mörku næsta vetur mun fara fram ( fjórum borgum: Óðinsvé- um, Ringe, Frederica og Velje. Eru borgir þessar á Fjóni og á Jótlandi. Verður miðstöð riðilsins ( Óðinsvéum og munu öll liðin, tsland, Sovétrlkin, Danmörk og Spánn, búa þar, en ferðast sfðan á milli keppnisstaðanna. Ekki mun endanlega frá þv( gengið hvar hver leikur verður, en Danir voru nokkuð hikandi að fastsetja leik- ina, fyrr en búið væri að draga f riðlana. Mikil gleói var ríkjandi meðal danskra handknattleiksáhuga- manna í gjer, þegar fréttist um mótherja heimaliðsins í riðlinum. Telja Danir sig þar með algjör- lega örugga um að komast í átta liða úrslitin. Þó -segja sum dönsku blaðanna, að Spánverjar kunni að verða erfiðir. Þau virð- ast hins vegar sammála um að það verði íslendingarnir sem haldi heim eftir að keppninni í riðlin- um lýkur, og segja að Danir hafi fengið veikasta liðið í þriðja hópnum, en hins vegar það stek- asta úr fyrsta hópnum og fjórða hópnum. A-riðill keppninnar sem i eru Vestur-Þýzkaland, Júgóslavía, Tekkóslóvakia og Bandarikin fer fram í borgunum Árhus, Randers, Alborg og Thisted. B-riðillinn, sem í eru Rúmenar, Ungverjar, A-Þjóðverjar og Afríkuríki, fer fram í Herring, Esbjerg, Ribe og Avenrá og D-riðillinn, sem Pól- land, Sviþjóð Asíuríki og Búlgaría leika í, fer fram í Bröndbyhallen, Helsingör, Köge, Næstved og Kalundborg. Ekki hefur verið endanlega frá þvi gengið hvar keppni í milli- riðlunum fer fram, en þó ákveðið að leikir fari m.a. fram í Hilleröd, Rönnede, Fredrekssund, Hróars- keldu, Nyköbing og Akirkeby á Borgundarhólmi. Úrslitaleikir keppninnar munu hins vegar allir fara fram í Bröndbyhallen. Danir áætla að kostnaður við framkvæmd keppninnar verði um 2,6 milljónir danskra króna, þeir hafa þegar tryggt sér alla þá upp- hæð og um leið og fyrsti áhorf- andinn kaupir aðgöngumiða að keppninni verður hagnaður. Ætti danska handknattleikssambandið að geta grætt verulega á keppn- inni, þar sém búizt er við að um 90.000 áhorfendur kaupi sig inn á leikina og miðaverðið verður 30—40 kr. Þar fyrir utan er búizt við þvi að um 35.000 ,,prógrömm“ seljist á 10 kr. stk. Hefur verið mjög vel vandað til þess og hefur Lockeys-auglýsingaskrifstofan í Kaupmannahöfn tekið það verk að sér. Þá hefur danska handknatt- leikssambandið veitt MEKA- fyrirtækinu einkarétt á fram- leiðslu á minjagripum vegna keppninnar, en ekki hefur fengizt Helge Paulsen, formaður danska handknattleikssambandsins f HM bol og með HM bolta. uppgefið hvað sambandið fékk fyrir þann rétt. Hefur fyrirtækið þegar hafið framleiðslu á þessum gripum, má nefna sem dæmi að seldir verða bolir með HM- merkinu, sígarettukveikjarar, minnispeningar og fl. Þá mun danska póst- og símamálastjórnin gefa út nýtt frímerki í tilefni keppninnar og fjölmörg dönsk fyrirtæki hafa heitið handknatt- leikssambandinu stuðningi, gegn þvi að þau fái tækifæri til þess að auglýsa vörur sínar. Þannig munu fyrirtækin Addidas og Puma sjá öllum þeim sem starfa við mótið fyrir einkennisklæðnaði og Tuborgverksmiðjurnar munu kosta uppihald leikmanna þátt- tökuliðanna að verulegu leyti, auk þess sem fyrirtækið býður til lokahófs sem á að verða stærra i sniðum en gerzt hefur til þessa. Danir áforma að taka vel á móti gestum sinum, og er þegar ákveð- ið að hvert lið fái a.m.k. einn túlk, og langferðabifreiðar til afnota á meðan keppninni stendur. Þegar fréttir bárust um það frá Austur- riki að bæði Svíar og íslendingar hefðu tryggt sér þátttökurétt í lokakeppninni, sögðu forráða- menn danska sambandsins, meira þó í gamni en alvöru, að þeir gætu sparað sér tvo túlka, þar sem allir Svíar skyldu dönsku og þá ekki síður Islendingar. Þá er gert ráð fyrir að blaða- menn fái góða þjónustu, en búizt er við miklum fjölda þeirra til Danmerkur meðan á keppninni stendur. Ekki hefur verió gengið frá samningum um sjónvarpstöku i heimsmeistarakeppninni, en bú- izt er við að gengið verði frá þeim samningum á næstunni. Hefur danska sjónvarpið boðið Hand- knattleikssambandinu upphæð sem svarar til 15 milljóna íslenzkra króna fyrir réttinn, en því boði hafnaði sambandið þegar í stað. Mun sjónvarpið nú hafa hækkað það boð um meira en helming, enda sér þaó fram á að mikil eftirspurn verður eftir myndum þess. Keppnin í Danmörku mun hefj- ast 26. janúar og henni á að ljúka 6. febrúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.