Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
29
Sæluvika Skag-
firðinga hafin
Sauðárkróki, 21. marz
SÆLUVIKA Skagfirðinga hófst
hér I gær með guðsþjónustu f
Sauðárkrókskirkju. Sóknarprest-
urinn, séra Sigfús J. Árnason,
predikaði. Klukkan fjögur var
opnuð málverkasýning I Safna-
húsi Skagfirðinga. Þar eru til
sýnis og sölu verk þriggja málara,
þeirra Einars Hákonarsonar,
„Er á meðan er“, leikrit Leik-
félags Sauðárkróks á sæluviku
Skagfirðinga. A m.vndinni eru
Ólafur Jóhannsson og Jón Ormur
Ormsson f hlutverkum sfnum. —
Ljósm.: Stefán Pedersen
Valtýs Péturssonar og Þórðar
Hall.
I gærkvöldi frumsýndi svo
Leikfélag Sauðárkróks gaman-
leikinn „Er á meðan er“ eftir
Kaufman og Hart fyrir fullu húsi
og við afbragðs undirtektir áhc-f-
enda. Leikstjóri er Ragnhildur
Steingrimsdóttir. í sýningur.ni
koma fram 19 leikarar og með
stærstu hlutverkin fara Elsa Jóns-
dóttir og Hafsteinn Hannesson.
1 dag, mánudag, er dagur barn-
anna og er margt til skemmtunar:
sýning Leikfélagsins, kvikmynda-
sýning, gagnfræðaskólanemar
skemmta með leikþáttum n g
fleiru og síðan er unglingadans-
leikur. Þá er í kvöld samkom;-
Sauðárkrókskirkju. Þar syngur
kirkjukór Sauðárkróks undir
stjórn Jóns Björnssonar tón-
skálds, Þórunn Ölafsdóttir syn~ui
og séra Pétur Ingjaldsson flytur
ræðu.
Á sæluvikunni er margt til
skemmtunar auk þess sem áður er
talið. Á þriðjudag og laugardag
syngur samkór Sauðárkróks
undir stjórn Gunnlaugs Ólsen,
Kvenfélag Sauðárkróks hefur
fjölbreyttar kabarettsýningar,
kvikmyndasýningar eru alla daga
og dansleikir flest kvöld.
Hér er afbragðsgott veður og
menn hugsa gott til glóðarinnar
að njóta sæluvikunnar.
— jón.
Afli Horna-
fjarðarbáta
mjög tregur
Höfn f Hornafirði, 21. marz.
ÁFLI Hornafjarðarbáta hefur
verið mjög tregur að undanförnu
og hafa bátarnir 10 sem héðan róa
fengið þetta 1,5 til 7 lestir I róðri.
Langaflahæsti báturinn er Giss-
ur hvíti, sem kominn er nokkuð
yfir 400 lestir, en Gissur hvíti var
lengi framan af á línu og aflaði
þá mjög vel. Þá hefur báturinn
einnig aflað hvað bezt 1 netin upp
á síðkastið. t gær voru bátarnir 10
með alls 37 lestir og af þessum
afla var Gissur hvfti með tæpar 10
lestir.
A
Brettingur
med sæmi-
legan afla
Vopnafirði, 21. marz
SKUTTOGARINN Brettingur
landaði 135 tonnum á Vopnafirði
1 síðustu viku. Aflann fékk togar-
inn á miðunum úti fyrir Aust-
fjörðum og hefur hann þá fengið
alls um 700 tonn frá áramótum,
sem er mun meiri afli en var á
sama tíma í fyrra.
Mikinn hluta síðastliðins árs
þurftu austfirzku togararnir að
sækja fjarlægari mið vegna yfir-
gangs Breta á miðum austfirzku
togaranna en þá voru þar að jafn-
aði 40 til 50 brezkir togarar að
veiðum. Nú hafa aðstæður breytzt
og er afli sæmilegur sem stendur.
— (iiunnlaugur.
A
Loðnubræðsl-
unni að ljúka
á Vopnafirði
Vopnafirði, 21. marz —
NU er búið að bræða rúmlega 20
þúsund tonnaf loðnu 1 Vopnafirði
en alls hafa komið á land 22.500
tonn og hefur bræðsla gengið
mjög vel.^ÁðéMVS, iftLeU,. ,bát3r
hafa komið með loðnu til Vopna-
fjarðar sfðan um miðjan febrúar.
Þrátt fyrir það er þetta mesta
magn, sem borizt hefur af loðnu
til Vopnafjarðar á einni vertíð.
Fyrir nokkru var lagt í tölu-
verðan kostnað við að koma upp
hrognaskilju á löndunarbryggj-
unni. Var það gert i þeim tilgangi
að fá hrogn til frystingar. Enn
sem komið er hefur skiljan lítið
sem ekkert verið notuð og mun
sennilega ekki verða á þessari
vertíð, nema til komi verulegir
flutningsstyrkir fyrir loðnufarma
til Vopnafjarðar.
— Gunnlaugur
A
Góður afli
hjá Sigluvík
Siglufirði, 21. marz.
SIGLUVÍK kom 1 gærkvöldi inn
með 80 tonn til löndunar af góð-
um fiski, en mikil bolfiskveiði er
nú hér nyðra. Þá hafa menn nú
lagt fyrstu grásleppunetin, en
afraksturinn er enn ekki Ijós.
Loðnubræðslan hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins bræðir nú 1.600
tonn á sólahring og i gær var
Suðri að lesta mjöl í Siglufirði.
Þar var þá bliðviðri mikið og
hlánuðu miklir skaflar.
— m.j.
A
Nýr bátur
til Þorláks-
hafnar
Þorlákshöfn, 21. marz.
Á MORGUN er væntanlegur til
Þorlákshafnar 217 lesta stálbátur.
Hann er keyptur frá Noregi og
hefur hlotið nafnið Jóhann Gísla-
son ÁR 42. Gelttingur h.f. er eig-
andi bátsins.
Skipstjóri verður Bjarnhéðinn
Elíasson, Vestmánnaeyjum.
Framkvæmdastjóri Glettings h.f.
er Þorleifur Björgvinsson, Skál-
holtsbraut 4, Þorlákshöfn. Þá má
til gamans geta að það sem af er
þessari vertið eru tveir bátar
Glettings langaflahæstir i Þor-
Iákshöfn, þeir Höfungur III með
581 tonn og Jón frá Hofi með 490
tonn. Vonandi fylgir gæfan einn-
ig hinum nýja báti félagsins.
S—£ nlintl
tslenzkar sýningarstúlkur sýna fatnað úr fslenzkri ull á tfzkusýningu f Bella Center.
SJÖ islenzk fyrirtæki
sýndu dagana 17. til 20.
marz sl. á kaupstefnunni
Scandinavian Fashion
Week í Bella Center í
Kaupmannahöfn en
fyrirtækin sýndu ullar-
og skinnavörur. Fyrir-
tækin, sem sýndu, voru
Álafoss, Gráfeldur,
Prjónastofa Borgarness,
Les Prjón, Hilda, Alís og
Sambandið, iðnaðardeild.
Sýningarsvæði íslenzku
fyrirtækjanna var sam-
tals 350 ferm. sem er
stærra svæði en íslenzk
fyrirtæki hafa nokkru
sinni sýnt á í Bella
Center.
Á sýninguna komu fleiri gest-
ir en nokkru sinni fyrr eða um
20% fleiri. Er þetta athyglis-
vert þar sem sýningargestir
reyndust færri á IGEDO sýn-
ingunni í Dusseldorf, sem var í
sömu viku og fjögur íslenzk
fyrirtæki tóku þátt i.
Sjö íslenzkar sýningarstúlkur
tóku þátt í sýningunni og höfðu
tízkusýningar þrisvar á dag.
Þóttu þær takast sérstaklega
vel og sáu þúsundir sýningar-
gesta sýningarnar.
Sérstakur hádegisverður var
haldinn fyrir blaðamenn, og
komu þangað um 30 blaðamenn
víðs vegar að, aðallega frá
Ein sýningardeilda fslenzku fyrirtækjanna á sýningunni.
íslenzka sýningarvaran seld-
ist vel enda þótt vissrar sölu-
tregðu gæti almennt í Evrópu
um þessar mundir, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
Útflutníngsmiðstöð iðnaðarins.
Sýningar á fslenzka fatnaðinum fóru fram þrisvar á dag meðan á
sýningunni stóð.
Norðurlöndum. Var boðið upp
á íslenzkt lambakjöt og íslenzkt
brennivín meðal annarra veit-
inga og haldinn sérstök tízku-
sýning. Fyrir hádegisverðinum
stóð íslenzki sendiherrann i
Kaupmannahöfn. Margir blaða-
mannana skoðuðu vöruna ræki-
lega og tóku myndir. Annars
hefur ísl. vörurnar verið lof-
samlega getið í þýzkum, ensk-
um og norrænum fagblöðum
fyrir sýninguna en að þessu
sinni var sérstök samvinna höfð
við blaðadeild Bella Center.
íslenzk ullar- og
skinnavara sýnd
í Kaupmannahöfn