Morgunblaðið - 22.03.1977, Side 41
fólk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
41
Steinn
Steinarr
kom
honum
á sporið
+ „Ég varð eiginlega ljóðskáld
fyrir tilviljun. Ég hafði farið á
bókasafn til að fá þar lánaðar
skáldsögur eftir Steinbeek en
þegar ég kom heim, uppgötvaði
ég, að meðal þeirra bóka var
ljóðabók eftir Islendinginn
Stein Steinarr. Sú bók varð til
þess að ég sá kveðskap I nýju
ljósi og tók að langa til að
skrifa ljóð sjálfur." Sá sem
segir frá er Peter Larsen,
danskt skáld, sem nýlegagaf út
sfna aðra ljóðabók.
Larsen gefur sfnar bækur út
sjálfur og það sem meira er,
hann selur þær ekki I bóka-
búðum, heldur gefur.
„Það eru tvær ástæður til
þess að ég gef bækurnar
mfnar,“ segir hann í viðtali við
dagjblaðið Nordjysk Amtstid-
ende. „í fyrsta lagi vegna þess
að ég vil, að þær nái til sem
allra flestra lesenda, I öðru lagi
vegnð þess að ég vil segja öllum
þeim, sem við sjúkdóma eiga að
strfða, að þeir megi ekki gefast
upp. Þvf þá verður tilveran til-
gangslaus."
Þrátt fyrir ungan aldur talar
Larsen af reynslu — hann er 27
ára, þvf hann hefur um 15 ára
skeið þjáðst af vöðvarýrnun
sem hefur ágerst svo mjög sfð-
ustu 5 ár að hann hefur gefist
upp við að lifa eðlilegu lffi.
„Það er staðreynd að þessi
sjúkdómur hefur gjörbreytt
Iffi mfnu,“ segir hann. „En ég
Peter Larsen.
held að það hafi verið til góðs.
Ég sneri baki við veitinga-
húsunum og drykkjuskapnum
en fór f staðinn að hugsa um
lífið og tilveruna. Ég er gjör-
breyttur maður, miklu betri
heldur en ef ég hefði aldrei
orðið veikur. Ég kæri mig ekki
um að láta vorkenna mér. Af
þvf verður maður aðeins meira
veikur. Ég sakna einskis og
mér leiðist aldrei. Ég á marga
góða vini og ég hef góðan tfma
til að lesa og skrifa. Ég hef sætt
mig við sjúkdóminn og hann
hefur kennt mér að lifa.“
Peter Larsen sendi Gylden-
dal-bókaforlaginu handritið að
fyrri bók sinni f von um að þeir
vildu gefa hana út, en fékk
hana endursenda. „Þá ákvað ég
að gefa hana út sjálfur. Mér lá
svo mikið á hjarta og ég hélt að
það gæti kannski orðið öðrum
til gleði að lesa ljóðin mfn. Ég
sendi dagblöðunum eintak og
var svo heppinn að eitt þeirra
skrifaði mjög lofsamlega um
bókina og það varð til þess að
fjöldi manns kom til mfn og
fékk eintak og margir komu
aftur til að tala um Ijóðin við
mig. Ég leita sannleikans f ljóð-
um mfnum. Hversu langt ég er
kominn verða lesendurnir að
dæma um. Ég hef ekki hlotið
mikla menntun. Lauk aðeins
skyldunámi f skóla og þekki
lftið til annarra Ijóðskálda.
Núna þegar ég hefi lokið við
þessa bók mfna gæti ég hugsað
mér að skrifa skáldsögu. Hæfi-
lega blöndu af trúarlegum og
heimspekilegum hugleið-
ingum,“ segir Peter Larsen að
lokum. Og að lokum Iftið sýnis-
horn úr nýju bókinni.
Et glimt
med öjet
og et forár
der forsvandt
Et undertryk
Kærtegn
og en sommer
gik hen.
Það er sagt að öll eigum við
tvifara. þó við höfum i fæstum
tilvikum litið hann augum. Stað-
genglar frægra persóna komast
sjaldan hjá þvi að vita af þvi.
Fyrrverandi Bandarikjaforseti,
Richard Nixon, á sér tvifara sem er
leikari og kallar sig Richard Dixon.
Tvífararnir
Hann hefur haft drjúgar tekjur af
tvífarahlutverkinu. Kissinger, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, á sér
tvífara hér á landi og hefur það oft
valdið honum óþægindum er hann
hefur verið erlendis. Á þessum
myndum sjáum við þrjár þekktar
persónur, eða svo sýnist okkur.
Það er þá fyrst þessi sem er
ótrúlega likur John Wayne en
heitir réttu nafni Hal Lawrence og
er einhverskonar fulltrúi. Konan
heitir Jackie Frank en rnargir hafa
haldið hana vera Elisabet Taylor.
Og siðan er það sjálfur. Telly
,,Kojak" Savalas eða réttu nafni
George Davalos, sem er kaup
maður og verslar með leðurvorur.
Öll eru þau búsett i Bandarikjun
um.
Höfum fengið
nýjar gerðir af
Kodak Instamatic
Tele-lnstamatic sem hefir 2 linsur,
normal og aðdráttarlinsu og er samt mjög ódýr.
Lítið inn og skoðið þessar skemmtilegu
og ódýru myndavélar
HANS PETERSEN HF
Kodak — Mamiya — Yashica — Braun
BANKASTRÆTI S 20313 GLÆSIBÆ S 82590
I VIÐ SELJUM I
Kodak
I VORUR [
„Köldborð”
Smurt brauð
Heitur
veizlumatur
Adeins þad bezta frá BRAUÐBÆ
„Stoftur gestgjafi — Ánægðir gestir”
JÉL
Bmuðbær
Veitingahús
við Óðinstorg, sími 20490.
Pöntunarsímar: 25640 — 25090 — 20490