Morgunblaðið - 22.03.1977, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977
47
Sveitarstjórnarkosningarnar í Frakklandi:
par[s _ 21. marz — einkaskeyti AP til
Morgunbladsins.
HÓFSAMIR og hægri sinnaðir
stjórnmálaleiðtogar í Frakk-
landi viðurkenndu í dag að þeir
yrðu að breyta um aðferðir í
stjórnmálabaráttunni ef takast
ætti að koma í veg fyrir að
bandalag sósíalista og
kommúnista kæmist til vanda
eftir þingkosningarnar sem
fram eiga að fara í marz að ári.
„Við verðum að fara varlega í
sakirnar," sagði Jaques Chirac,
fyrrverandi forsætisráðherra,
en hann vann kosningarnar um
borgarstjóraembættið í París,
og er það einn af örfáum
kosingasigrum stjórnmáia-
flokkanna f sveitastjórnar-
kosningum. „Við getum unnið
kosningarnar 1978, en við verð-
um að þekkja andstæðinga okk-
ar betur en við gerum nú, og
hefja sams konar sókn á hend-
ur þeim og þeir hafa notað
gegn okkur,“ sagði Chirac enn-
fremur.
Chirae sagði þó ekki eins og
ýmsir aðrir stjórnmálamenn,
sem eru náiægt miðju i
frönskum stjórnmálum, að sig-
ur vinstri manna í yfir 70 af
hundraði meiriháttar borga og
bæja í Frakklandi sýndi að sú
stefna að hræða Frakka með
sivaxandi samneyzlu skrifstofu-
veldi og minnkandi ein-
staklingsfrelsi ef vinstri menn
næðu völdum í landinu, hefði
ekki orðið affarasæl. Bæði
Chirac og Raymond Barre voru
mjög eindregnir gegn aukinni
samneyslu í kosningabarátt-
unni.
Alexandre Sanguinetti, fyrr-
verandi leiðtogi gaullista, segir
greinilegt, að sifellt dragi úr
ógnvekjandi áhrifum
kommúnismans á franska kjós-
endur, og hafi tekizt að sann-
færa þá um ástandið í Austur-
Evrópu muni aldrei komast á í
Frakklandi.
Jean-Pierre Fourcade, ráð-
herra í stjórn d’Eastings, telur
að verulegur hluti þeirra kjós-
enda, sem áður hafi verið fylgj-
andi forsetanum og umbóta-
stefnu hans, hafi nú sveigzt aft-
u'r til vinstri. Það sé einmitt
þessi hopur, sem ráða muni úr-
slitum i kosningunum árið
1978, og and-kommúnískur
áróður og slagorð muni ekki
hafa úrslitaáhrif á afstöðu
hans.
Raymond Barre forsætisráð-
herra vill ekki skýra úrslitin
með því að stjórninni hafi. mis-
tekist að hafa hemil á verð-
bólgu, atvinnuleysi og stjórnun
meiriháttar mála i landinu,
heldur sé ástæðan missætti
stjórnarflokkanna. Hins vegar
telur forsætisráðherrann ekki
horfur á að hægt sé að jafna
þann ágreining á næstunni, sér-
staklega ekki þar sem þeir
Jacques Chirac og Giscard
d’Eastingséu annarsvegar.
Kosningarnar hafa orðið per-
sónulegur hnekkur fyrir
Giscard d’E:sting. Auk þeirra
155 borga, sem nú eru komnar
undir yfirráð vinstri manna,
féll iðnaðarráðherra Frakk-
lands Michel d’Ornano, en það
var forsetinn sjálfur, sem stóð
fyrir því að hann bauð sig fram
í borgarstjórnarkosningunum i
Paris. Víðast hvar i landinu
hefur raunin orðið sú, að þau
Simuniynd AP.
Chirac kátur — Jacques Chirac, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, fagnar sigri I
borgarstjórakosningunum f Parfs f aðalstöðvum flokks sfns á sunnudagskvöld. Fremst á myndinni er
eiginkona hans.
Getum unnið 1978 með
því að nota baráttuað-
ferðir andstæðinganna
— segir Chirac hinn nýi borgarstjóri Parísar
öfl innan stjórnarflokkanna,
sem styðja stjórnina af heilum
hug, hafa orðið undir af því að
flokkarnir hafa ekki staðið
saman gegn einingu vinstri
flokkanna.
Heimildir innan ríkis-
stjórnarinnar telja líklegt að
forsetinn muni skipta um ýmsa
ráðherra á næstunni í því
augnamiði að styrkja stjórnina.
Ennfremur telja þessir
heimildarmenn líkur á þvi að
d'Easting muni taka upp nýja
stefnu i lánamálum innan
skamms og veita meira fé til
þeirra landsvæða þar sem at-
vinnuleysi er sérstakt vanda-
mál.
t grein á forsíðu segir rit-
stjóri Le Monde I dag, að stjórn-
arflokkarnir verði að taka upp
nýja stefnu á næstunni eigi
þeim að takast að halda völdum
í landinu.
„Þeir verða að sjálfsögðu að
sameinast — finna sameigin-
legan málefnagrundvöll, og
hætta að lýsa því yfir að breyt-
inga sé þörf í þjóðfélaginu án
þess þó að skilgreina hvers kon-
ar þjóðfélag þeir vilji koma á.
Helzta vandamálið er að gera
sér grein fyrir hvaða framtíð
Vesturlönd geta boðið þegnum
sínum og hvaða hugsjónum
unga kynslóðin, sem þarf að
horfast í augu við verðbólgu,
atvinnuleysi og brenglað verð-
mætamat, á að keppa að gera að
raunveruleika. Stjórnir
Evrópurlkjanna þurfa nú hvar-
vetna að greiða það gjald, sem
er afleiðing af skorti þeirra á
hugmyndum og hæfileikum til
að sjá fram i tímann,” segir í
forsíðugreininni.
Úrslitatölur kosninganna frá
franska innanrikisráðuneytinu
sýna, að vinstri menn hafa auk-
ið fylgi sitt frá þvi í siðustu
sveitarstjórnarkosingum árið
1971 47.4 af hundraði í 51 af
hundraði í þeim borgum lands-
ins, sem telja 30—100 þúsund
íbúa. Enn liggja úrslit í landinu
öllu ekki fyrir, en þó er ljóst, að
vinstri flokkarnir hafa unnið
ótvíræðan meirihluta i
kosningunum.
Brezhnev hótar
Bandaríkjastjórn
Moskvu 21. marz — Reuter
Sovétleiötoginn Leonid
Brezhnev ásakaði ( dag
Bandarfkin um afskipti af
innanrfkismálum Sovét-
ríkjanna og sagði að and-
ófsmenn, sem nytu
stuðnings bandarfsku
stjórnarinnar, væru hand-
bendi og fulltrúar heims-
valdastefnunnar.
Brezhnev var auðsjáan-
lega að svara stuðnings-
yfirlýsingum Carters
Bandarfkjaforseta við
málsvara mannréttinda í
kommúnistarfkjum, og
sagði hann að sambúð
rfkjanna gæti ekki haldið
áfram að þróast til hins
betra ef ekki iinnti afskipt-
um Bandarfkjamanna.
Brezhnev sagði þetta i ræðu á
16. þingi sovézkra verkalýðs-
félaga í Kreml, og benti á að at-
hafnir andófsmanna beindust
gegn ríkinu og því vörðuðu þær
við lög. Fréttamenn segja að þetta
sé harðasta ræða Brezhnevs síðan
tilraunir hófust til að slaka á
spennunni á milli Sovétríkjanna
og Bandarikjanna fyrir 7 árum.
Carter
Hann sagði að helzti
þröskuldurinn á vegi batnandi
sambúðar væru „tilraunir opin-
berra aðila i Bandaríkjunum til
að hafa afskipti af innanrikismál-
um Sovétrikjanna.” Án þess að
nefna Carter beint sagði
Brezhnev: “ Við munum ekki þola
afskipti nokkurs aðila af innan-
ríkismálum okkar af nokkru
Brezhnev
Pólland:
Fékk 9 ár — nú í
hungurverkfalli
Varsjá 21. marz Reuter
VERKAMAOURINN Czeslaw Chomicki, sem dæmdur var til nlu
ára fangelsisvistar fyrir þátttöku sfna f óeirðunum f Radom f
júnf-mánuði s.l. ætlar að hefja fimm daga hungurverkfall f dag.
Þetta er f fjórða skipti, sem Chomicki efnir til slfks hungurverk-
falls sfðan hann var dæmdur.
Honum var gefið að sök að hafa borið eld að bækistöðvum pólska
kommúnistaflokksins f Radom, en hann játaði aldrei á sig sakar-
giftir.
tilefni. Batnandi sambúð við slik
skilyrði er óhugsandi.”
Nú eru aðeins sex dagar þar til
Cyrus Vance, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, kemur í opinbera
heimsókn til Moskvu, en það eru
fýrstu beinu samskiptin á milli
stjórnar Carters og leiðtoga
Sovétríkjanna. Brezhnev minnti
áheyrendur sína á komu Vance og
sagði: „Við skulum sjá til hvaða
boðskap hann mun flytja okkur,"
en hann benti á að hann hefði
ekki orðið var við nein merki frá
stjórn Carters um vilja til að bæta
sambúð rikjanna.
Brezhnev setti afstöðu Banda-
rikjamanna til mannréttinda ekki
í beint samband við viðræðurnar
um takmörkun kjarnorkuvopna,
Salt-viðræðurnar, en fréttamenn
segja að innihaid ræðunnar hefði
verið það, að erfitt gæti orðið að
endurnýja Salt-samninginn frá
1972 sem rennur út í október, ef
Bandarikjamenn drægju ekki úr
baráttu sinni fyrir mann-
réttindum.
■ ■■ 1
, ERLENT,