Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 47

Morgunblaðið - 22.03.1977, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 47 Sveitarstjórnarkosningarnar í Frakklandi: par[s _ 21. marz — einkaskeyti AP til Morgunbladsins. HÓFSAMIR og hægri sinnaðir stjórnmálaleiðtogar í Frakk- landi viðurkenndu í dag að þeir yrðu að breyta um aðferðir í stjórnmálabaráttunni ef takast ætti að koma í veg fyrir að bandalag sósíalista og kommúnista kæmist til vanda eftir þingkosningarnar sem fram eiga að fara í marz að ári. „Við verðum að fara varlega í sakirnar," sagði Jaques Chirac, fyrrverandi forsætisráðherra, en hann vann kosningarnar um borgarstjóraembættið í París, og er það einn af örfáum kosingasigrum stjórnmáia- flokkanna f sveitastjórnar- kosningum. „Við getum unnið kosningarnar 1978, en við verð- um að þekkja andstæðinga okk- ar betur en við gerum nú, og hefja sams konar sókn á hend- ur þeim og þeir hafa notað gegn okkur,“ sagði Chirac enn- fremur. Chirae sagði þó ekki eins og ýmsir aðrir stjórnmálamenn, sem eru náiægt miðju i frönskum stjórnmálum, að sig- ur vinstri manna í yfir 70 af hundraði meiriháttar borga og bæja í Frakklandi sýndi að sú stefna að hræða Frakka með sivaxandi samneyzlu skrifstofu- veldi og minnkandi ein- staklingsfrelsi ef vinstri menn næðu völdum í landinu, hefði ekki orðið affarasæl. Bæði Chirac og Raymond Barre voru mjög eindregnir gegn aukinni samneyslu í kosningabarátt- unni. Alexandre Sanguinetti, fyrr- verandi leiðtogi gaullista, segir greinilegt, að sifellt dragi úr ógnvekjandi áhrifum kommúnismans á franska kjós- endur, og hafi tekizt að sann- færa þá um ástandið í Austur- Evrópu muni aldrei komast á í Frakklandi. Jean-Pierre Fourcade, ráð- herra í stjórn d’Eastings, telur að verulegur hluti þeirra kjós- enda, sem áður hafi verið fylgj- andi forsetanum og umbóta- stefnu hans, hafi nú sveigzt aft- u'r til vinstri. Það sé einmitt þessi hopur, sem ráða muni úr- slitum i kosningunum árið 1978, og and-kommúnískur áróður og slagorð muni ekki hafa úrslitaáhrif á afstöðu hans. Raymond Barre forsætisráð- herra vill ekki skýra úrslitin með því að stjórninni hafi. mis- tekist að hafa hemil á verð- bólgu, atvinnuleysi og stjórnun meiriháttar mála i landinu, heldur sé ástæðan missætti stjórnarflokkanna. Hins vegar telur forsætisráðherrann ekki horfur á að hægt sé að jafna þann ágreining á næstunni, sér- staklega ekki þar sem þeir Jacques Chirac og Giscard d’Eastingséu annarsvegar. Kosningarnar hafa orðið per- sónulegur hnekkur fyrir Giscard d’E:sting. Auk þeirra 155 borga, sem nú eru komnar undir yfirráð vinstri manna, féll iðnaðarráðherra Frakk- lands Michel d’Ornano, en það var forsetinn sjálfur, sem stóð fyrir því að hann bauð sig fram í borgarstjórnarkosningunum i Paris. Víðast hvar i landinu hefur raunin orðið sú, að þau Simuniynd AP. Chirac kátur — Jacques Chirac, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, fagnar sigri I borgarstjórakosningunum f Parfs f aðalstöðvum flokks sfns á sunnudagskvöld. Fremst á myndinni er eiginkona hans. Getum unnið 1978 með því að nota baráttuað- ferðir andstæðinganna — segir Chirac hinn nýi borgarstjóri Parísar öfl innan stjórnarflokkanna, sem styðja stjórnina af heilum hug, hafa orðið undir af því að flokkarnir hafa ekki staðið saman gegn einingu vinstri flokkanna. Heimildir innan ríkis- stjórnarinnar telja líklegt að forsetinn muni skipta um ýmsa ráðherra á næstunni í því augnamiði að styrkja stjórnina. Ennfremur telja þessir heimildarmenn líkur á þvi að d'Easting muni taka upp nýja stefnu i lánamálum innan skamms og veita meira fé til þeirra landsvæða þar sem at- vinnuleysi er sérstakt vanda- mál. t grein á forsíðu segir rit- stjóri Le Monde I dag, að stjórn- arflokkarnir verði að taka upp nýja stefnu á næstunni eigi þeim að takast að halda völdum í landinu. „Þeir verða að sjálfsögðu að sameinast — finna sameigin- legan málefnagrundvöll, og hætta að lýsa því yfir að breyt- inga sé þörf í þjóðfélaginu án þess þó að skilgreina hvers kon- ar þjóðfélag þeir vilji koma á. Helzta vandamálið er að gera sér grein fyrir hvaða framtíð Vesturlönd geta boðið þegnum sínum og hvaða hugsjónum unga kynslóðin, sem þarf að horfast í augu við verðbólgu, atvinnuleysi og brenglað verð- mætamat, á að keppa að gera að raunveruleika. Stjórnir Evrópurlkjanna þurfa nú hvar- vetna að greiða það gjald, sem er afleiðing af skorti þeirra á hugmyndum og hæfileikum til að sjá fram i tímann,” segir í forsíðugreininni. Úrslitatölur kosninganna frá franska innanrikisráðuneytinu sýna, að vinstri menn hafa auk- ið fylgi sitt frá þvi í siðustu sveitarstjórnarkosingum árið 1971 47.4 af hundraði í 51 af hundraði í þeim borgum lands- ins, sem telja 30—100 þúsund íbúa. Enn liggja úrslit í landinu öllu ekki fyrir, en þó er ljóst, að vinstri flokkarnir hafa unnið ótvíræðan meirihluta i kosningunum. Brezhnev hótar Bandaríkjastjórn Moskvu 21. marz — Reuter Sovétleiötoginn Leonid Brezhnev ásakaði ( dag Bandarfkin um afskipti af innanrfkismálum Sovét- ríkjanna og sagði að and- ófsmenn, sem nytu stuðnings bandarfsku stjórnarinnar, væru hand- bendi og fulltrúar heims- valdastefnunnar. Brezhnev var auðsjáan- lega að svara stuðnings- yfirlýsingum Carters Bandarfkjaforseta við málsvara mannréttinda í kommúnistarfkjum, og sagði hann að sambúð rfkjanna gæti ekki haldið áfram að þróast til hins betra ef ekki iinnti afskipt- um Bandarfkjamanna. Brezhnev sagði þetta i ræðu á 16. þingi sovézkra verkalýðs- félaga í Kreml, og benti á að at- hafnir andófsmanna beindust gegn ríkinu og því vörðuðu þær við lög. Fréttamenn segja að þetta sé harðasta ræða Brezhnevs síðan tilraunir hófust til að slaka á spennunni á milli Sovétríkjanna og Bandarikjanna fyrir 7 árum. Carter Hann sagði að helzti þröskuldurinn á vegi batnandi sambúðar væru „tilraunir opin- berra aðila i Bandaríkjunum til að hafa afskipti af innanrikismál- um Sovétrikjanna.” Án þess að nefna Carter beint sagði Brezhnev: “ Við munum ekki þola afskipti nokkurs aðila af innan- ríkismálum okkar af nokkru Brezhnev Pólland: Fékk 9 ár — nú í hungurverkfalli Varsjá 21. marz Reuter VERKAMAOURINN Czeslaw Chomicki, sem dæmdur var til nlu ára fangelsisvistar fyrir þátttöku sfna f óeirðunum f Radom f júnf-mánuði s.l. ætlar að hefja fimm daga hungurverkfall f dag. Þetta er f fjórða skipti, sem Chomicki efnir til slfks hungurverk- falls sfðan hann var dæmdur. Honum var gefið að sök að hafa borið eld að bækistöðvum pólska kommúnistaflokksins f Radom, en hann játaði aldrei á sig sakar- giftir. tilefni. Batnandi sambúð við slik skilyrði er óhugsandi.” Nú eru aðeins sex dagar þar til Cyrus Vance, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, kemur í opinbera heimsókn til Moskvu, en það eru fýrstu beinu samskiptin á milli stjórnar Carters og leiðtoga Sovétríkjanna. Brezhnev minnti áheyrendur sína á komu Vance og sagði: „Við skulum sjá til hvaða boðskap hann mun flytja okkur," en hann benti á að hann hefði ekki orðið var við nein merki frá stjórn Carters um vilja til að bæta sambúð rikjanna. Brezhnev setti afstöðu Banda- rikjamanna til mannréttinda ekki í beint samband við viðræðurnar um takmörkun kjarnorkuvopna, Salt-viðræðurnar, en fréttamenn segja að innihaid ræðunnar hefði verið það, að erfitt gæti orðið að endurnýja Salt-samninginn frá 1972 sem rennur út í október, ef Bandarikjamenn drægju ekki úr baráttu sinni fyrir mann- réttindum. ■ ■■ 1 , ERLENT,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.