Morgunblaðið - 01.06.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JUNI 1977
Sement
hækkar
um 15%
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ heim-
ilaði I gær sementsverksmiðjunni
15% hækkun á sementi og kostar
tonnið nú 17.300 krónur, þar af
eru 3.300 krónur f flutningasjóð.
Fyrir helgina heimilaði verð-
lagsskrifstofan hækkun á steypu
án sements. Mun láta nærri að sú
hækkun hafi hleypt kostnaði við
steypu í meðalstórt einbýlishús
upp um 130 þúsund krónur en
þessi hækkun á sementinu mun
síðan hækka steypukostnað um
annað eins.
Saltfisk-
ur hækkar
um 20%
VERÐLAGSSTJÓRI heimilaði í
gær um 20% hækkun á saltfiski
til neyzlu hér innanlands. Hækk-
ar saltfiskurinn úr kr. 395 hvert
kíló í kr. 474.
Saltfiskur hefur ekki hækkað í
rösklega ár, og sú hækkun sem nú
var heimiluð er aðeins hluti
þeirra kostnaðarhækkana sem
orðið hafa við framleiðslu hans á
þessu tímabili.
Tólf laxar
á land á
Ferjubakka
.3YRJUNIN hefur verið stirð
vegna mikilla leysinga og skíts f
ánni, en við höfum fengið tólf
laxa til dagsins f dag,“ sagði
Kristján Fjeldsted á Ferjubakka,
er Mbl. spurði hann um netaveið-
ina f Hvftá f Borgarfirði.
„Við máttum byrja þann 20.
mai, sem var föstudagur, en þá
kom helgin svo þetta fór ekki í
gang fyrr en á miðvikudag raun-
verulega," sagði Kristján. Laxar-
nir tólf, sem komnir eru á land,
sagði Kristján að væru 8—12
pund. „En nú hefur minnkað í
ánni og vatnið hreinsazt, þannig
að með deginum í dag má segja,
að við séum komnir í fullan
gang.“
Enskur þing-
maður ræð-
ir við Einar
Ágústsson
„ÞAÐ ER rétt, að nýkjörinn þing-
maður Grimsby, Austin Mitchell,
hefur óskað eftir viðtali við mig
til að skýra sinn málstað í fisk-
veiðimálum, eins og hann orðar
það, og mun ég hitta hann að máli
í dag,“ sagði Einar Ágústsson
utanríkisráðherra, er Mbl. ræddi
við hann í London í gær, en ráð-
herrann er f einkaerindum í
London á heimleið úr sumarfríi.
Sagði Einar aðra fundi með
þingmönnum eða ráðamönnum
ekki á dagskrá, enda lægi leið
hans aðeins í gegn um London
heim úr sumarleyfi.
Skuttogarar
í árekstri
TVEIR skuttogarar, Erlingur frá
Sandgerði og Bjarni Benedikts-
son frá Reykjavík, lentu í árekstri
á miðunum í Víkurál s.l. föstudag.
Báðir togararnir skemmdust, Erl-
ingur þó meira, en hvorugur
þurfti að leita hafnar eftir óhapp-
ið.
Ekki er enh ljóst með hvaða
hætti áreksturinn varð, þar sem
sjópróf f málinu hafa ekki farið
fram. Morgunblaðið frétti hins
vegar í gær, að stjórnborðssfður
togaranna hefðu rekist saman.
Nýjar rannsóknarleið-
irreyndarvið Kröflu
„Bölvaö kukV* segja jarðvísindamenn
EKKI munu enn liggja fyrir
niðurstöður á athugunum
bandarfskrar konu, Frances K.
Farrelly að nafni, á Kröflu-
svæðinu, en konu þessa kvaddi
Guðmundur Einarsson verk-
fræðingur, sérlegur ráðunaut-
ur iðnaðarráðuneytisins um
gufuöflun við Kröflu sér til
aðstoðar f sl. viku, þar sem hún
er talin gædd þeim hæfileikum
að skynja hvað er á seyði f
iðrum jarðar. Skoðaði konan
Mývatnssvæðið og kannaði með
búnaði sem hún hafði
meðferðis, en átti sfðan fund
með nokkrum jarðvfsinda-
mönnum nyrðra. Þeir
jarðvfsindamenn sem mest
hafa rannsakað þetta svæði, eru
hinsvegar ekkert sérlega ginn-
keyptir fyrir vfsindum konunn-
ar og einn þeirra kallaði athug-
anir hennar „bölvað kukl“ f
samtali við Morgunblaðið, og
kvaðst hafa mestu skömm á
þessu tiltæki.
Morgunblaðið hafði samband
við Pál Flygenring, ráðuneytis-
stjóra í iðnaðarráðuneytinu, og
spurði hann hvort kona þessi
hefði verið fengin hingað til
landsins með vitneskju
ráðuneytisins. Páll svaraði því
til, að þáttur ráðuneytisins í
þessu máli hefði verið sá, að
samkvæmt ráðleggingum
Gunnarrs Böðvarssonar
--- ,ars ---------------------
prófessors vestur í Banda-
ríkjunum hefði ráðuneytið sent
Guðmund Einarsson, sérlegan
ráðgjafa sinn, á ráðstefnu um
jarðhitamál f Bandarfkjunum
og af hálfu Orkustofnunar
hefðu einnig sótt þessa ráð-
stefnu þeir Karl Ragnars og
Valgarð Stefánsson.
Páll sagði, að f tengslum við
þessa ráðstefnu hefði
Guðmundur komist í samband
við framangreinda konu, og
óskað leyfis til að fá að koma
með hana hingað til lands sér
til ráðuneytis. Páll kvað ráðu-
neytið hafa veitt það leyfi, en
að öðru leyti væri koma kon-
unnar ekki f neinum tengslum
við iðnaðarráðuneytið heldur
væri hún fyrst og fremst
persónulegur aðstoðarmaður
Guðmundar Einarssonar og
hún verið hér algjörlega á hans
vegum án frekari afskipta ráðu-
neytisins.
Páll kvað ið'naðarráðuneytið
hins vegar hafa gengist fyrir
þvf að fá hingað til landsins
ný-sjálenzka vfsindamanninn
Robert Bolton sem væri einn
helzti sérfræðingur veraldar á
sviði jarðhitafræði, og væri
hann væntanlegur til landsins í
júlí. Hefði verið óskað eftir
komu hans hingað til lands að
ráðum Gunnars Böðvarssonar,
sem áður er getið.
Efnahagsnefnd Evrópu-
ráðsins fundar í Rvík
EFNAHAGSNEFND Evrópuráðs-
ins heldur fund f Reykjavfk 2.—
4. júnf n.k. Fundinn sækja 40
nefndarmenn, þingmenn frá 19
aðildarlöndum, en af islands
hálfu sitja fundinn Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Pétur Sig-
urðsson.
Efnahagsnefndin kemur saman
milli þriggja árlegra funda ráð-
gjafaþings Evrópuráðsins og eru
þeir fundir haldnir í aðildarlönd-
unum til skiptis.
Hér munu nefndarmenn kynna
sér sérstaklega íslenzk málefni og
Framhald á bls. 24.
Veiðiferðir togar-
anna lengdar vegna
yfirvinnubannsins
AFLI íslenzku togaranna var
sæmilegur undan Vestfjörðum í
sfðustu viku og nú sfðustu daga
hefur verið góður afli hjá mörg-
um togurum í kantinum austur af
Beruf jarðarál.
I gær komu tveir togarar til
Reykjavíkur Ingólfur Arnarson
með 240 tonn og Vigri með 190
tonn. Miðað við þann stutta
vinnudag, sem nú er og fyrirhug-
að verkfall á föstudaginn verður
ekki hægt að láta fleiri togara
landa í vikunni í Reykjavík.
Marteinn Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Reykjavíkur sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær, að
auk Ingólfs Arnarsonar hefðu
tveir aðrir B.Ú.R. togarar, Þor-
móður goði og Snorri Sturluson,
átt að landa i þessari viku, en
Loðna og ufsi
í Siglufirði
Siglurirði, 31. mai.
SIGLUVÍKIN kom í dag með 80
tonn. Vart hefur orðið við stóra
loðnu hér inni í firðinum og fisk-
ur, sem dreginn er á færi hér út
af er úttroðinn af loðnu. Þá hefur
ufsi gengið í torfum hér inn allan
fjörð.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins hélt hér fund í dag. Á morgun
verður byrjað að ryðja Lágheiði.
— Fréttaritari.
hætt hefði verið við það, og veiði-
ferð togaranna framlengd um
viku. Var Þormóður goði kominn
með 130 tonn í gær og Snorri
Sturluson 140—150 tonn.
Ritstjóri
Stúdenta-
blaðsins
dæmdur
FYRIR helgina var dæmt I
Hæstarétti I máli nokkurra ein-
staklinga sem stóðu að undir-
skriftasöfnun Varins lands á sín-
um tíma gegn ritstjóra Stúdenta-
blaðsins, Gesti Guðmundssyni.
Dómurinn gekk mjög á sömu
lund og hinir fyrri, og var hann
þyngdur frá því sem dæmt hafði
verið i héraði.
Ummælin voru dæmd ómerk,
en Gesti var gert að greiða 10
þúsund kr. sekt til ríkissjóðs, auk
25 þúsund króna til að standa
straum af birtingu dómsins og
skal dómurinn birtur í Stúdenta-
biaðinu. Þá var Gesti gert að
greiða 80 þús. kr. i málskostnað.
Meirihluti dómsins komst að
þeirri niðurstöðu að fébætur ættu
ekki við i þessu tilfelli, en tveir
dómarar, Halldór Þorbjörnsson
og Guðmundur Ingvi Sigurðsson
skiluðu sératkvæði um þetta
atriði, eins og oftast áður.
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
m
VÆNTANLEGA verður fyrsti
lax vertíðarinnar kominn á
land um hádegisbilið I dag því
að i morgun kl. 7 ætluðu stjórn-
armenn SVRF að hef ja veiðar i
Norðurá og einnig átti að hefja
veiði I Laxá á Ásum.
Aðrar helztu árnar
fylgja sfðan eftir frá 10. — 20.
þ.m. ! stuttu samtali við Mbl.
sagði Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri, að vatn væri nú með
minnsta móti I ánum og lítill
snjór I f jöllum, en þó væri eng-
in ástæða til að kviða, veiðin sl.
7 ár hefði verið 56000—74000
laxar á ári og fremur lfklegt að
veiðin f ár yrði einhvers staðar
á þvf bili þótt erfitt væri að slá
nokkru föstu um það.
Flokkinn skortir tengsl við
félagaí verkalýðshreyfingu
— segir í dreifibréfi Alþýðu-
bandalagsmanna í Breiðholti
Alþýðubandalagið f Breiðholti gengst fyrir fundi um kjaramálin
f kvöld f Glæsbæ, og sem fundarboð hafa forsvarsmenn banda-
lagsins f Breiðholti litið dreifa dálitlum bæklingi undir heitinu
Kjósið milli kosninga, þar sem fram kemur töluvert óvægin
gagnrýni á Alþýðubandalagið og forustulið þess. Kvartað er
undan litlu virku starfi almennra stuðningsmanna bandalagsins,
t.d. f samanburði við Sjálfstæðismenn, að tengsl skorti við
almenna félaga f verkalýðshreyfingunni og almennir flokksmenn
séu áhrifalitlir f starfi flokksins. Skýra stefnumótun skorti
varðandi verkefni Ifðandi stundar og stjórnmálaforingjum
Alþýðubandalagsins „virðist auðveldara að velja veggfóður á
veggi himnarfkis en gefa svör við þvf hvernig leysa eigi
verðbólgu vandann," eins og segir orðrétt f bæklingnum.
ER ALBVÐUBANDALAGIÐ
VIRK PÓLITtSK HREYFING?
Því miður gildir það um
Alþýðubandalagið í- næstum
sama mæli og aðra flokka, að
oftast virðist réttara að taia um
söfnunar- og smölunarlið í
kosningum en raunverulega
pólitíska hreyfingu. Megin-
ástæðan fyrir þessu ástandi er,
hve illa hefur gengið að fá fólk
til starfa í flokknum. I Breið-
holtsdeildinni eru einungis um
100 félagar. Til samanburðar
verður að hafa f huga að í
hverfasamtökum sjálfstæðis-
manna í Breiðholtinu eru skv.
upplýsingum Sjálfstæðisflokks-
ins um 2000 manns. Þetta sýnir
að stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins hafa ekki talið
flokkinn sér nægilega
nákominn til þess að þeir vildu
ganga í hann.
Til þess að breyta þessu þarft
þú að ganga í flokkinn.
HVAÐ ER AÐ FLOKKNUM?
Skýra stefnumótun skortir
varðandi verkefni líðandi
stundar. Stjórnmálaforingjum
Alþýðubandalagsins virðist
auðveldara að velja veggfóður á
veggi himnaríkis en gefa svör
við því hvernig leysa skuli verð-
bólguvandann.
Flokkinn skortir tengsl við
almenna félaga i verkalýðs-
hreyfingunni.
í starfi flokksins reynist
erfitt fyrir almennan flokks-
mann að fá áheyrn og hafa
áhrif.
Þessu verður ekki breytt
nema þú komir í flokkinn og
spyrjir t.d. hvort eðlilegt sé:
0 að formaður flokksins flytji
tillögu ásamt fleiri þing-
mönnum hans, um sérstakan
bensínskatt á Reykvíkinga?
0 að þingmaður Alþýðu-
bandalagsins leggi til að reist
verði tunnuverksmiðja I Vik í
Mýrdal með þeim rökstuðningi
að Vík liggi vel við þeim
stöðum, sem verka síld?
Til hvers eru slíkar tillögur,
þegar ljóst er, að við Breiðholts-
búar höfum nú þegar mestan
bensinkostnað allra lands-
manna, vegna þess hve langt
þarf að sækja vinnu, og
hundruð kílómetra eru til
næstu hafnar frá hinum hafn-
lausa stað Vík í Mýrdal.
Til þess að breyta þessu,
þarft þú að koma í flokkinn.
ER ALÞVÐUBANDALAGIÐ
VERKALVÐSFLOKKUR?
Svo er sagt, en almennt
verkafólk er fátt á flokksskrá.
Það sýnir að mikið skortir á að
Alþýðubandalagið sé raunveru-
legur verkalýðsflokkur. Þetta
leiðir af óljósri stefnu flokksins
og stöðugu daðri hans við af-
Framhald á bls. 24.