Morgunblaðið - 01.06.1977, Side 36
C*LÝSIN(»ASÍMINN ER:
22480
$tf0imtMabiÍfr
MIÐVIKUDAGUR 1. JUNl 1977
Ljósm. Mbl RAX.
KVEIKT var f breiðu af gömlum dekkjum hjá fyrirtækinu Hlaðbæ við Fffuhvammsveg f Kópavogi
skömmu eftir hádegi f gær. Breiddist eldurinn hratt um dekkjabreiðuna og varð af gffurlegt
reykjarkóf og mökkur, sem greina mátti um allt höfuðborgarsvæðið. Hlaðbær hefur sankað til sfn
miklu af ónýtum dekkjum, og vinnur sfðan úr þeim mottur sem notaðar eru við jarðvegssprengingar.
Þegar slökkviliðið fékk tilkynninguna um eldinn um kl. 1.20 f gærdag var sagt að þar logaði f fáeinum
dekkjum við skúr, en þótti þá ekki ástæða til að senda nema einn slökkvibfl á vettvang úr Arbæjar- og
Breiðholtshverfum. Þegar sá bfll kom á staðinn um 6 mfnútum eftir tilkynninguna var eldurinn
orðinn allmagnaður, og voru þá þegar sendir tveir bflar til viðbótar, og tókst þá fljðtlega að slökkva
eldinn. Mikinn reykjarmökk lagðí hins vegar til himins meðan dekkinn brunnu og eftir að byrjað var
að slökkva í þeim. 1 gærkvöldi gaus eldur aftur upp í dekkjabreiðunni.
VMSÍ og Sókn fyrst
tíl að ljúka sérkröfum
Starfsstúlknafélagið Sókn undir-
ritaði í gær samkomulag við
vinnuveitendur um afgreiðslu
sérkrafna innan 2 'A % ramma
kauptaxtahækkana. Er þetta
annað félagið, sem gengur frá sér-
kröfum sfnum, en áður hafði
Verkamannasamhandið undirrit-
að sams konar samkomulag á
hvftasunnudag. I gær voru stanz-
lausir fundir með hinum ýmsu
sérkröfuhópum á Loftleiða-
hótelinu og samkvæmt
upplýsingum, sem Morgunblaðið
aflaði sér f gær munu nú allflest
félög ef ekki öll hætt að neita
þeirri tillögu sáttanefndar að af-
greiða sérkröfur með þessari
aðferð. Sum iðnaðarmannafélög
setja þó enn mjög ströng skilyrði
Y firvinnubanni
afiétt í Búðardal
Verkalýðsfélagið Valur í
Búðardal hefur aflétt yfirvinnu-
banninu. „Aðstaðan var orðin sú
að um helmingur starfandi félaga
var kominn á undanþágur og þar f
stærsti hópur þeirra, sem yfir-
vinna býðst,“ sagði Gfsli Gunn-
laugsson, formaður félagsins, f
viðtali við Mbl. í gærkvöldi.
„Aframhaldandi yfirvinnubann
hefði náð til um 15 manna f bygg-
ingarvinnu og þótti okkur engin
Auglýsendur
athugið
Vegna verkfalls og yfirvinnu-
banns kemur Morgunblaðið
ekki út laugardaginn 4. júní.
Auglýsingar sem birtast eiga í
sunnudagsblaði 5. júní þurfa
að hafa borizt auglýsingadeild-
inni fyrir kl. 18.00 I dag,
miðvikudaginn 1. júní.
ástæða til að láta yfirvinnubann
bitna á svo litlum hópi til leið-
inda og hugsanlegra deilna innan
félagsins.“
Akvörðunin um að aflétta yfir-
vinnubanninu var tekin á fundi
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
með sjö atkvæðum gegn einu,
einn sat hjá.
„Það var úrskurður Alþýðusam-
bands Islands að starfsfólki
mjólkurbúa bæri að vinna á
laugardögum og sunnudögum,
átta tímana, vegna sérsamninga
þar um,“ sagði Gísli, „og svo barst
okkur undanþágubeiðni frá
fóðuriðjunni í Ólafsdai, sem okk-
ur fannst ekki stætt á að hafna,
ekki sízt þegar haft er í huga, að í
Gunnarsholti er unnin yfirvinna
með þegjandi samkomulagi
verkalýðsfélagsins þar.
Þegar málin voru komín þarna,
var um helmingur starfandi
félaga komin á undanþágur og
stór hluti þeirra, sem eftir voru,
eru skrifstofufólk, sem enga yfir-
vinnu vinnur hvort eð er. Þá voru
eftir um 15 byggingarmenn, sem
áframhaldandi yfirvinnubann
hefði komið við.“
fyrir samþykki sfnu og sögðu
nokkrir samningamenn vinnu-
veitenda f gær að skilyrði þessara
hópa jafngiltu sem næst neitun.
Skammt mun í samkomulag um
sérkröfur t.d. hjá Iðjufélögunum,
sem ákváðu í gær að fresta
fundum um sérkröfurnar þar til í
dag á meðan skoðuð yrðu ýmis
atriði, sem enn væri ekki sam-
komulag um túlkun á. Þó var gert
ráð fyrir að þau mál leystust og að
jafnvel yrði unnt að ganga frá
sérkröfusamkomulagi i dag. Þá
munu verzlunarmenn vera
komnir þó nokkuð á veg með að
meta sfnar sérkröfur innan hins
samræmda ramma, svo og kjöt-
iðnaðarmenn, en þeir eru eini
Framhald á bls. 24.
Kröfur sjómanna á kaupskipum;
Háar prósentur,
því kaupið er lágt
— segir Guömundur Hallvarðsson
hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur
afhenti f gær kröfur fyrir háseta
á kaupskipum, en áður höfðu
vinnuveitendum verið afhentar
kröfur yfirmanna á kaupskipum.
Gerðist það hinn 17. maf sfðastlið-
inn. Guðmundur Hallvarðsson
hjá Sjómannafélagi Reykjavfkur
kvað kröfu sjómannanna f
prósentum ef til vill nokkuð háa,
en þegar prósentur væru skoð-
aðar yrði að lfta á hve lágt kaup-
Mjólkur-
lítrinn
hækkar
um 1 kr.?
SAMKVÆMT lögum átti nýtt
verð á búvörum að taka gildi í
dag, 1. júnf, en ekki hafði í
gær verið ákveðið hvenær nýja
verðið tæki gildi, og var talið
lfklegt að það yrði jafnvel á
morgun. Þær breytingar, sem
orðið hafa á verðlagsgrund-
velli landbúnaðarvara frá sfð-
ustu verðbreytingu, eru
einkum þær að fóðurbætis-
kostnaður hefur lækkað en
áburður og varahlutir hækkað
mest en samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar
hefur verðlagsgrundvöllurinn
hækkað um tæplega 0,8%.
Fyrrnefnd hækkun verðlags-
grundvallar jafngildir því að
grundvallarverð hvers
mjólkurlítra til bónda hækki
um rúma 60 aura og grund-
vallarverð dilkakjötskílós
hækkar um rúmlega 4 krónur.
Hækkun útsöluverðs búvara
verður yfirleitt nokkru hærri
en hækkun grundvallar-
verðsins en mismunandi vegna
áhrifa niðurgreiðslna og sölu-
skatts þar sem honum er til að
dreifa. Þannig má gera ráð
fyrir að hver mjólkurlítri
hækki um 1 krónu. Ríkis-
stjórnin hafði ekki samþykkt
nýtt verð á búvöru í gær og
ekki var vitað hvort einhverjar
breytingar yrðu gerðar á
niðurgreiðslum búvara að
þessu sinni.
gjald á kaupskipum í rauninni
væri.
Yfirmenn á kaupskipum leggja
nú fram sameiginlegar kröfur og
kvað Guðmundur kröfur háset-
anna vera áþekkar að hlutfalli og
yfirmannanna. Þó hafði Morgun-
blaðið í gær frétt að kröfur yfir-
manna væru nokkuð á annað
hundra prósent, en hásetanna
gætu í sumum tilfellum farið yfir
200 prósent.
Guðmundur Hallvarðsson kvað
mestu kröfuna vera hækkun á
fastakaupi og greiðslu vegna
óreglulegs vinnutíma. Krafan er
að háseti í byrjunarkaupi fái 130
þúsund krónur fyrir 40 stunda
vinnuviku, en núna hefur slíkur
maður rétt liðlega 70 þúsund
krónur. Síðan er gerð krafa um
36% greiðslu vegna óreglulegs
vinnutíma og fjarveru og langra
fjarvista frá heimili. Slíkt álag
hefur ekki verið áður í kjara-
samningum sjómanna á kaupskip-
um. Þá er krafa um 4% bil milli
flokka, sem verið hefur 3V6%.
Vegna þeirra, sem sigla langtím-
um erlendis er krafizt 20% álags
á kaup, en þar hefur verið 10%
álag og 35% álags ef fjarvera
verður lengri en 5 mánuðir. Slíkt
álag var 25%.
Guðmundur kvað það lengi
hafa veri kröfu Sjómannafélags-
ins að greitt skyldi vaktaálag.
Hann kvað sjómenn á kaupskip-
um hafa farið mjög halloka fyrir
öðrum, sem ynnu í landi kjara-
lega séð á síðustu árum. Nefndi
hann sem dæmi að lægsta dag-
vinnukaup háseta væri 444 krón-
ur á klukkustund, en iægsti
hafnarverkamaður, sem ynni í
lest hefði á dagvinnutima 518
krónur, í Straumsvík hafa menn
fyrir vélgæzlu- og verkamanna-
störf 607 krónur á lægsta taxta,
Framhald á bls. 24.
7 bílar í
árekstri
SVARTAÞOKA var á Hellisheiði
í gærmorgun og urðu þrír árekstr-
ar, þar af lentu þrír bílar i einum.
Talsvert tjón varð á bifreiðunum
sjö, en fólk slasaðist ekki.
Góður árangur bor-
holu í Bæjarsveit
KoUvarpar hún áformum um virkjun Deildartunguhvers?
BORANIR eftir heitu vatni fyrir Borgarnes f Bæjarsveit hafa gefið
góða raun, og kann sá árangur sem þarna hefur náðst að breyta
töluvert öllum viðhorfum f hitaveitumálum Borgnesinga. (Jr borhol-
unni fást nú um 30 sekúndulftrar af sjálfrennandi vatni og er það um
91 stigs heitt.
Hingað til hafa verið
áform um að Akranesbær,
Borgarnes og Hvanneyri
stæðu saman að því að
virkja Deildartunguhver
til hitaveitu fyrir alla þessa
staði. en fyrir liggur að sú
framkvæmd yrði mjög
kostnaðarsöm í ljósi þess
hversu langan veg þyrfti
að leiða vatnið, þó einkan-
lega fyrir Akranes.
Árangur borholunnar í
Bæjarsveit kann þó nú að
breyta öllum þessum
áformum hvað þátttöku
Borgarness og hugsanlega
einnig Hvanneyrar í virkj-
un Deildartunguhvers
snertir, en Morgunblaðinu
tókst ekki að ná í sveitar-
stjórann i Borgarnesi til að
spyrja hann nánar um
þetta atriði.