Morgunblaðið - 26.07.1977, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JULI 1977
„Of snemmt að
vera með spá-
dóma á ferðinni”
- segir orkumálastjóri um
mælingarnar á holu 7 við Kröflu
„ÉG tel nú nokkuð snemmt að
vera með einhverja spádóma á
ferðinni,“ sagði Jakob Björnsson
orkumálastjóri, er Mbl. ræddi við
hann í gær vegna þess álits
Einars Tjörva Elfassonar, yfir-
verkfræðings Kröflunefndar, að
lfkur bentu til að gufutregðan á
Kröflusvæðinu væri fyrst og
fremst bortæknilegt vandamál.
„Sannleikurinn er sá“, sagði
Jakob Björnsson, „að það veit
enginn ennþá, hvort gufutregðan
stafar af bortækninni eða ekki,
hvort jarðhitasvæðinu er um að
kenna eða Baðir þessir þættir eiga
einhverja sök.“
Verkfall
rafvirkja
hjá ríkinu
Á MIÐNÆTTI f nótt átti að koma
til framkvæmda verkfall hjá raf-
virkjum hjá Rafmagnsveitum
rfkisins, en eftir því sem Morgun-
blaðið vissi bezt stóð þá enn yfir
fundur með deiluaðilum hjá
Framhald á bls. 27
Jakob sagði það rétt, að í holu 7
hefðu fundizt þrengsli. „Og við
erum svona að velta þvf fyrir okk-
ur af hvaða orsökum þetta er eða
hvaða þýðingu það hefur.
Við munum halda rannsóknun-
um áfram og fara í það að dýpka
holu 9. Síðan vonumst við til að
okkur takist að ná þessu gataða
fóðurröri upp og hafa þannig
samanburð á því, hvernig holur
haga sér með og án fóðurröra.
Þetta er líka spurning um
öryggi holanna, þvi það er tals-
verð hætta á því að hola hrynji
saman, ef ekkert fóðurrör er i
henni. Það er auðvitað hugsanlegt
að þetta fóðurrör hafi einhver
áhrif á rennslið, en það verður þá
auðvitað að vega og meta ávinn-
inginn af meira innstreymi á móti
áhættunni af að hola hrynji sam-
an.“
Þegar Mbl. spurði orkumála-
stjóra, hvort ekki væri hægt að
endurhanna fóðurrörin, ef þau
reyndust orsök gufutregðunnar,
svaraði hann. „Það er hugsanlegt
að það sé hægt að breyta fóðurrör-
unum.“ En um hugsanlegan tíma,
sem slíkt verk tæki eða kostnað
við það, vildi orkumálastjóri engu
spá.
Fokker lenti
á Gunnars-
holti
FOKKER-Vél frá Flugfélagi ís-
lands lenti f gær á flugvellin-
um hjá Gunnarsholti í Rangár-
vallasýslu eftir að flugvöllur-
inn f Reykjavík hafði lokast
vegna þoku. Mikil þoka var f
Reykjavfk f gærmorgun, og
enda þótt allar vélar flugfélags-
ins færu f loftið var hins vegar
ekki unnt að lenda á flugvellin-
um. Ein vélanna fór til Vest-
mannaeyja og á heimleiðinni
kom í Ijós að Reykjavfkurflug-
völlurinn var enn lokaður. Tók
flugstjóri vélarinnar, Ingimar
Sveinbjörnsson, yfirflugstjóri
Fí f innanlandsfluginu, þá það
ráð, að hann lenti vélinni á
Gunnarsholti og hélt þar kyrru
fyrir þar til Reykjavfkurflug-
vöilur opnaðist að nýju.
UNNIÐ er af fullum krafti að
rannsókn á ávísanamálsins mikla,
sem verið hefur f rannsókn f hálft
annað ár. Vinna nú að rannsókn-
inni átta manns, þrír rannsóknar-
lögreglumenn, fjórir laganemar
og rannsóknardómarinn Ilrafn
Bragason.
„Það má segja svona í gamni að
þetta sé orðin ný stofnun i ríkis-
tSLANDSMETIÐ FALLIÐ — Glóa Harðar G. Albertssonar, knapi Vilhjálmur Hrólfsson sigrar Loku
Þórdfsar H. Albertsson, knapi Sigurður Sæmundsson, og setur nýtt Islandsmet f 350 metra stökki 24,4
sek. Loka, sem átti gamla Islandsmetið f greininni, varð önnur. Ljósm. Mbl. t.g.
Ný íslands-
met í skeiði
•t
og 350 metra
stökki
TVÖ NV tslandsmet voru sett á
akppreiðum Skeiðfélagsins á
Viðivöllum sl. laugardag. Fann-
ar Harðar G. Albertssonar,
knapi Aðalsteinn Aðalsteinss-
on, setti nýtt met f 250 metra
skeiði 22,2 sek. en eldra metið
var 22,5 sek. og það átti Óðinn
Þorgeirs Jónssonar f Gufunesi.
Hitt metið setti Glóa Harðar G.
Albertssonar, knapi Vilhjálm-
ur Hrólfsson og var það f 350
metra stökki. Hljóp hún vega-
lengdina á 24,4 sek. og sló þar
með met Loku Þórdfsar II. Al-
bertsson 24,9 sek. en Loka varð
f öðru sæti og hljóp á 25 sek.
sléttum.
Hörð keppni var einnig i öðr-
um greinum á kappreiðunum
og til dæmis komu þrjú fyrstu
hrossin í 250 metra stökkinu öll
að marki á sama tíma 18,8 sek.
en sjónarmunur skildi þau að.
Þetta voru Ægir Harðar G. Al-
bertssonar, Lotta Steingríms
Björnssonar og Gjálp Þorkels
Bjarnasonar. I 800 metra stökki
sigraðí Geysir Helga og Harðar
Harðarsonar á 62,3 sek. og i
1500 metra brokki sigraði
Leiknir, Sigurðar Sæmdunds-
sonar á 3 mín. 10.3 sek.
Vöruskiptajöfnuðurinn:
Skip og flugvélar fluttar inn
fyrir röska 4,5 milljarða í júní
Átta manns vinna
í ávísanamálinu
kerfinu, en sannleikurinn er sá,
að rannsóknin er svo viðamikil að
ekki þýðir annað að hafa í henni
marga menn ef henni á einhvern-
tíma að ljúka," sagði Hrafn
Bragason í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hrafn kvað ógerlegt
að spá um það hvenær rannsókn-
inni lyki en sagðist vona að henni
lyki á þessu ári.
Vöruskiptajöfnuðurinn f júnf-
mánuði varð óhagstæður um 7,8
milljarða króna og þegar litið er á
fyrri hluta ársins, þ.e. sex fyrstu
mánuðina er hann orðinn óhag-
stæður um tæpa 6.5 milljarða eft-
ir að hafa verið hagstæður lengst
framan af árinu. Sköpum skipti
að f júnfmánuði nam innflutning-
urinn 15,7 milljörðum króna en
útflutningurinn rétt tæplega 8
milljörðum króna. Það sem af er
árinu til júlfloka nemur innflutn-
ingurinn samtals 54,3 milljörðum
en útflutningur 47,9 milljöðrum.
Það sem mestu veldur um þenn-
an mikla halla er að í júnimánuði
eru tekin með i reikninginn öll
skipa- og flugvélakaup sem orðið
hafa fyrri hluta ársins, en and-
virði skipa sem flutt hafa verið
inn á þessu timabili er rétt tæpir
fjórir milljarðar og andvirði flug-
véla er 712,9 miiljónir króna.
Skipin sem hér um ræðir eru 3
skuttogarar frá Póllandi fyrir 1,6
milljarða, 2 skuttogarar frá Nor-
egi fyrir tæpa 1,2 milljarða, einn
skuttogari frá Frakklandi fyrir
276,8 milljónir og annar frá Italíu
fyrir 197 milljónir, einnig 2 fiski-
skip frá Noregi fyrir 73,4 milljón-
ir, eitt frá Bretlandi fyrir 19,6
' milljónir, vöruflutningaskip frá
Danmörku fyrir 426,1 milljón,
tollgæzlubátur frá Bretlandi fyrir
28,8 milljónir og dýpkunar-
prammi fyrir 154 milljónir króna.
Framhald á bls. 27
Tveir nýir myndaflokkar
þegar sjónvarp byrjar aftur
SJÖNVARPIÐ tekur að nýju til
starfa eftir sumarleyfin 1. ágúst
n.k. eða á mánudaginn kemur, og
af því tilefni snéri Mbl. sér til
Péturs Guðfinnssonar, fram-
kvæmdastjóra sjónvarpsins, til að
spyrjast fyrir um það hvort ein-
Deilt um ráðningu yfirlækn-
is við Borgarspítalann
BIRGIR Guðjónsson læknir
hefur með bréfum til heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra
og borgarstjórnar Reykja-
vikdur kært ráðningu Þórðar
Harðarsonar læknis f stöðu
yfirlæknis lyflæknisdeildar við
Borgarspftalann f Reykjavfk og
störf og niðurstöður dómnefnd-
ar f þvf sambandi. Gerir Birgir,
sem var einn af sex umsækj-
endum um fyrrnefnda stöðu,
kröfu til þess að ráðning
Þórðar f stöðu yfirlæknis við
lyflæknisdeild Borgarspftalans
verði felld úr gildi, jafnframt
þvf sem álit stöðunefndar um
hæfni umsækjenda verði fellt
úr gildi og ný nefnd fjalli um
hæfni umsækjenda.
Olfar Þórðarson, formaður
stjórnar Borgarspitalans, sagði
að Birgir hefði dregið umsókn
sína til baka áður en ráðning f
stöðuna var afgreidd af stjórn-
inni og hann fengi því ekki séð
að Birgir gæti kært ráðningu f
stöðuna. Jón Ingimarsson skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
sagði að bréf Birgis væri enn til
athugunar í ráðuneytinu.
Fyrrnefnd staða yfirlæknis
var auglýst laus til umsóknar
með umsóknarfresti til 1. júlf
1976 og var ráðið í stöðuna í
nóvembermánuði sl. af stjórn
Borgarspítalans. Birgir Guð-
jónsson læknir var eins og áður
sagði einn af sex umsækj
endum, en umsókn sína dr
hann til baka, þegar hann hafð
fengið vitneskju um að stöðu-
nefnd, sem fjalla skal um hæfni
umsækjenda um stöður tiltek-
inna embættismanna í heil-
brigðiskerfinu svo sem yfir-
lækna, raðaði honum f fimmta
sæti miðað við hæfni umsækj-
enda. Kærði Birgir þetta álit
stöðunefndarinnar þá, þ.e. í
nóvembermánuði 1976 til heil-
brigðisráðuneytisins en ráðu-
neytið hafnaði kröfu hans sem
órökstuddri með bréfi 28.
desember sl.
Með bréfum dagsettum 9. maí
sl. kærir Birgir enn fyrrnefnda
ráðningu til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra auk
borgarstjórnar Reykjavíkur.
Sem rökstuðning við kröfur sín-
ar bendir Birgir á að það álit
stöðunefndar að Þórður
Harðarson sé lyflæknir sé
efnislega rangt. Röðun umsækj-
enda af stöðu nefnd eftir hæfni
í töluröð sé efnislega röng og
formlega ólögleg. Orðrétt segir
um þetta atriði í rökstuðningi
Birgis: „Hún er efnislega röng
þar eð nefndin fór rangt með
sérfræðiheiti Þórðar Harðar-
sonar og þar eð hún hirti ekki
um að afla gagna um hæfni
annarra umsækjenda að neinu
marki. Slík gögn liggja nú fyrir
varðandi undirritaðan. Hún er
formlega röng þar eð 33. gr. 1.
nr. 56/1973 mælir einungis
fyrir um umsögn um hæfni um-
sækjenda. Lita ber þvi svo á að
röðun sé bönnuð a.m.k. í þeim
Framhald á bls. 26
hverjar nýjungar yrðu f dag-
skránni frá þvf sem var fyrir sum-
arleyfi.
Pétur sagói, að alla jáfna væri
hlutfail innlends efnis lágt fyrst
eftir sumarieyfi en nú yrði það
jafnvel enn lægra en endranær
vegna uppsetninga nýrra tækja í
upptökusal i tengslum við litvæð-
ingu sjónvarpsins auk þess sem
námskeiðahald væri þar fyrir
hugað allan næsta mánuð.
Af nýju erlendu efni nefndi
Pétur, að í ágúst yrði tekinn til
sýninga brezkur heimildamynda-
flokkur, er nefndist Leitin aó
upptökum Nílar. Væri þarna
raunverulega um leikna heim-
ildamynd að ræða, er lýsti könn-
un Afríku seinni hluta síðustu
aldar og væri hann í sex þáttum.
Þá yrðu sú breyting á laugardags-
Framhald á bls. 27
12 net hirt
í Húnaflóa
Veiðieftirlitsmaðurinn f Húna-
vatnssýslum hefur f sumar hirt 12
net f sjó f Ilúnaflóa vegna brota á
lögum um laxveiðar. Netin eru í
vörzlu sýslumannsins f Húna-
vatnssýslu, Jóns tsberg.
Sýslumaður tjáði Morgunblað-
inu í gær, að töluvert hefði borizt
af kærum um ólöglegar netalagn-
ir nálægt veiðiám, og þá helst i
Miðfirði en bannað er að hafa net
Framhald á bls. 27