Morgunblaðið - 26.07.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.07.1977, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JULI 1977 Starfsmenn ríkis- verksmiðjanna fá 19,62% kauphækkun SAMKOMULAG milli vinnumála- nefndar rfkisins og starfsmanna rfkisverksmiðjanna; Áburðar- verksmiðjunnar, Sementsverk- smiðjunnar og Kísiliðjunnar, var undirritað á sunnudagsmorgun. Samkvæmt samkomulaginu kem- ur 19,62% kauphækkun á alla kauptaxta og 2,5% er varið til starfsaldurshækkana. Samkomulagið er þannig upp- byggt að 18.000 krónum var bætt ofan á ákveðinn flokk og þannig fékkst út 19,62% kauphækkun, sem siðan var látin ganga yfir alla flokkana. 2,5% var þannig skipt, að eftir þrjú ár í starfi kemur 4% kaup- hækkun og 5% hækkun eftir 5 ára starf. Þá fá vaktavinnumenn greiddar 15 minútur umfram við- veru á vinnustað. Gildistimisamkomulagsins er frá 22. júni sl. til 1. desember 1978 og á tímabilinu koma tvisvar 5000 krónur og einu sinni 4000 krónur á alla taxta miðað við sömu dagsetningar og voru í heildarsamkomulagi ASI og VSl. Yfirmenn á farskipum sömdu um 25,31% almenna kauphækkun YFIRMENN á farskipum fá 25,31% almenna kauphækkun samkvæmt samkomulagi því, sem undirritað var um eittleytið f gær. Til að mæta sérkröfum er varið 2,5% og aðrar meginhreytingar eru þær að mánaðarkaup er reiknað út miðað við 40 stunda vinnuviku og fridagakerfinu gjörbreytt. Þær breytingar hafa ekki kauphækkanir í för með sér, heldur fyrst og fremst aukinn rétt yfirmanna til töku frídaga. Kauphækkunin er tilkomin þannig, að 18.000 krónum á mán- uði var bætt við byrjunarlaun annars stýrimanns í fyrsta flokki, sem gerði 25,31% hækkun og síð- an var sú hundraðshlutahækkun látin ganga á öil önnur laun. Gildistími samkomulagsins er frá 1. ágúst til 1. april 1978 og áfangahækkanir eru þær sömu og samkomulag varð um milli yfir- manna á fiskiskipaflotanum og LIU, það er 4,8% hækkun 1. desember n.k., 4,5% hækkun 1. júni 1978 og 3,4% hækkun 1. september 1978. Þetta samkomulag nær til skip- stjóra á kaupskipum, stýrimanna, loftskeytamanna, vélstjóra og bryta, en ósamið er enn við Sjó- mannafélag Reykjavíkur vegna háseta, matsveina og þerna. Síðasti samningafundurinn fyr- ir undirritun samkomulagsins í gær stóð i réttar 20 klukkustund- ir, en samningsgerðin hefur stað- ið í langan tíma og nær sleitulaust síðustu þrjár vikurnar. Blönduós: Hitaveituframkvæmd- ir á undan áætlun „Hitaveituframkvæmdirn- ar hjá okkur eru á undan áætlun og reiknum við með því að flestöll hús a Blönduósi verði húin að fá heitta vatn fyrir vetur- inn,“ sagði Jón ísberg sýslumaður og oddviti á Blönduósi í samtali við Morgunblaðið. Hofsjökull við Sundahöfn. Stær sta skip á í slandi „MÉR Ifst mjög vel á skipið og vona að það reynist jafnvel og fyrirrennarinn sem var happa- fleyta“, sagði Páll Torp skip- stjðri á Hofsjökli, en, það er stærsta skip á tslandi og kom til Reykjavíkur á laugardag. Blm. var boðið að sjá skipið og talaði Mbl. við Pál Torp við það tækifæri. „Gamli Hofsjök- ull brann í júni 1974 og var farið að endurbyggja það 1975, þetta skip var afhent i Kristian- sand 15. júlí, en þar var það endurbyggt. Skipið á að vera í förum milli Islands og Banda- ríkjanna og flytja frystan fisk.“ Jöklar h/f hafa leigt Eimskipafélagi tslands skipið til 15. sept’ og bjóst Páll við framhaldsleigu eftir þann tima. Páll sagði að þetta skip væri stærra og fullkomnara í alla staði en það gamla, „til dæmis er losunarútbúnaður fullkomn- ari, það eru þrjú siðuop á bak- borða og hægt að setja færi- bönd i hverja lest sem liggur svo beint i verksmiðjur, og skipið er sérstaklega hannað með tilliti til iosunar í Banda- rikjunum." Hofsjökull hefur 8000 hest- afla aðalvél og hraði i reynslu- ferð var u.þ.b. 20.168 sjómílur. Skipið er búið öllum nýjustu siglingar- og öryggistækjum að sögn Páls, einnig eru vistarver- ur aliar nýjar og fullkomnar. Það er 118 m á lengd og 16 m breitt. Stjórn Jökla h/f skipa: Guð- finnur Einarsson, formaður, Eyjólfur Marteinsson, Gunnar Ólafsson, Sigurður Einarsson og Haraldur Sturlaugsson. For- stjóri félagsins er GIsli Ólafs- son. Yfirvélstjóri Hofsjökuls er Guðni Ólafsson og 1. stýrimað- ur er Helgi Eyjófsson. „Við búumst við miklu af þessu skipi,“ sagði Páll Torp skipstjóri að lokum. Páll Torp skipstjóri t.v. og Gunnar Ólafsson. Bakkaf jöröur: Koparmengað salt veldur skemmdum á saltfiski Almennu dansleikja- haldi hætt í Tjarnar- búð AKVAÐIÐ hefur verið að leggja niður almennt dans- leikjahald í Tjarnarbúð og er nú verið að gera miklar breyt- ingar á rekstri staðarins fyrir haustið. Sigursæll Magnússon, fram- kvæmdastjóri Tjarnarbúðar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að síðasti almenni dansleikurinn hefði þegar far- ið fram. Kvað hann nú gert ráð fyrir að leigja staðinn meira út en gert hefði verið til veizlu- og fundahalds. Enn væri ekki hægt að segja með hvaða hætti hið nýja rekstrarfyrirkomulag staðarins yrði, né hvort miklar breytingar yrðu gerðar á staðnum. Ákvarðanir yrðu teknar á næstu dögum og hægt yrði að segja frá breyttum rekstri liklega um miðjan næsta mánuð. Heita vatnið er leitt frá borholu að Reykjum við Reykjabraut, um 14 kílómetra leið. Lokið er lagn- ingu þriðjungs aðalleiðslunnar og er verkið á undan áætlun og sömuleiðis lagning dreifikerfisins í sjálfu þorpinu. Borinn Narfi boraði að Reykjum í fyrra og fæst úr holunni 70 gráða heitt vatn. Vatnið verður 57—58 gráður þeg- ar það kemur í hús á Blönduósi, því varmatap er nokkurt á leið- inni. Sagði Jón ísberg að vatnið væri tæplega nógu heitt þegar kaldast væn að vetrinum til en í athugun væri að byggja toppstöð til þess að hita vatnið upp þegar kaldast væri. Slík stöð kostar 15—20 milljónir og er meiningin að reisa hana á Blönduósi næsta sumar. t GÆRMORGUN var gerð tilraun til að ná slýinu, sem þekur nú mikinn hluta Tjarnarinnar í burtu og gaf hún góða raun. Til- raunahreinsunin fór þannig fram að slýinu var safnað saman við bakkann og þar kom sfðan til kasta hins nýja sogdælubfls borg VERULEGAR skemmdir hafa komið fram i fiski sem saltaður var hjá (Jtgerðarfélaginu Útver h.f. Bakkafirði, að þvf er Bjart- mar Pétursson framkvæmda- stjóri sagði f viðtali við Morgun- blaðið í gær. 18. júní s.l. komu til Bakka- fjarðar um 200 tonn af salti inn- flutt frá Frakkiandi. Er söltuð höfðu verið um 85 tonn af fiski um miðjan júlí fóru að koma í ljós gulir blettir á elsta fiskinum. Voru þá tekin fjögur sýni og send arinnar, sem dældi upp vatni og slýi, en skilaði síðan vatninu f Tjörnina aftur. Að sögn Hafliða Jónssonar garðyrkjustjóra gaf þessi tilraun það góða raun að haldið verður áfram á sömu braut. Þá væntan- lega strax í fyrramálið. til rannsóknar hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins. Þá kom i ljós að koparmagn saltsins var all verulega fyrir ofan leyfilegt há- mark. Ekki er ljóst hversu miklar skemmdir hafa orðið vegna þessa. Akveðið hefur verið að þvo þann fisk er ekki hafa komið gul- ir blettir á og salta hann að nýju með salti sem nýkomið er til landsins. Þessi skemmd á saltinu UM verslunarmannahelgina gengst HSÞ fyrir samkomu að Laugum f Reykjadal og verður skemmtunin haldin f nýju íþróttahúsi og þvf óháð veðri. Ekki verður selt inn á mótssvæðið heldur inn f húsið. Ýmislegt verður til skemmtun- ar á hátíðinni. A föstudag verður haldinn almennur dansleikur. A laugardag verður kvikmyndasýn- ing, íþróttakeppni, fallhlífastökk og almennur dansleikur. Á sunnudag verður barna- og ungl- hefur haft í för með sér að ekki hefur verið róið frá Bakkafirði í hálfan mánuð og hefur það leitt af sér verulegt tjón fyrir staðinn í heild þar sem Útver er eina fisk- vinnslufyrirtæki staðarins. Úr þessum skemmda farmi var einn- ig dreift verulegu magni á aðra Austfirði, en ekki er enn ljóst hvort um skemmdir er að ræða eða hversu miklar. ingaskemmtun. Séra Pétur Þórar- insson flytur ávarp og Helgi R. Einarsson skemmtir. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar kemur fram með uríði Sigurðardóttur, Bessa Bjarnasyni og Ömari Ragnars- syni. Kvikmynd verður sýnd, unglingadansleikur haldinn og loks almennur dansleikur. Hljómsveitin Pónik með söngv- arana Ara Jónsson og Einar Júliusson leikur fyrir dansi á há- tiðinni og verða sætaferðir farnar að Laugum frá Húsavík. Slýinu dælt upp úr Tjörninni Laugahátíð um versl- unarmannahelgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.