Morgunblaðið - 26.07.1977, Side 32
(iLYSINCíASIMINN KK:
22480
Loftskeytamaður
á stærsta far-
skipi Islendinga
H(JN HEITIR Hrafnhildur
Björnsdóttir loftskeytamaður á
stærsta farskipi Islendinga, eft-
ir því sem við vitum best.
„Ég hef alltaf haft áhuga á að
komast á sjóinn, og það var
varla tækifæri til þess nema
gerast loftskeytamaður eða þá
kokkur, en ég hef aldrei treyst
mér til þess,“ sagði Hrafnhild-
ur f samtali við Morgunblaðið.
Aðspurð kvaðst hún aldrei
hafa verið á sjó áður, nema
smávegis á gamla Hofsjökli, en
hún hefði unnið í landi sem
loftskeytamaður.
,,Ég útskrifaðist sem loft-
skeytamaður fyrir- 8 árum, og
ég ætla að vinna á Hofsjökli
minnsta kosti út árið, en ég
hugsa ekki lengra fram i tim-
ann."
Mbl. spurði Hrafnhildi að lok-
um hvernig henni líkaði á sjón-
um, og svaraði hún að bragði:
„Ég er afskaplega ánægð með
vinnuna og likar mjög vel.“
Hrafnhildur Björnsdóttir loftskeytamaður.
Samband málm- og skipasmiðja:
Vítalaust að hafa samþykkt
verðlagsnefndar að engu
„Getum ekki samþykkt útreikninga þeirra,” segir verðlagsstjóri
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Samhands málm- og skipa-
smiðja „telur það aðildar-
fyrirtækjum sínum víta-
laust að hafa samþykkt
verðlagsnefndar frá 8. júlí
1977 að engu, þar sem hún
Reikna med
að beiðnir rík-
isverksmiðj-
anna fái sömu
afgreiðslu
og aðrar
- segir Georg Ólafis-
son, verðlagsstjóri
□------------------□
Sjá fréll bls. 38.
n -----------------□
„ÉG reikna með að hugsanleg-
ar hækkunarbeiðnir frá ríkis-
verksmiðjunum fái sömu af-
greiðslu og aðrar beiðnir,"
sagði Georg Ólafsson verðlags-
stjóri, er Mbl. hafði samband
við hann í tilefni samninga
rfkisins við starfsmenn rfkis-
verksmiðjanna, en þar var
samið um 19,62% hækkun á
alla kauptaxta, en ekki beina
krónutöluhækkun. „Það hefur
verið stefnan, að eðlilegast sé
að fyrritæki beri að minnsta
kosti fyrst um sinn hluta
kostnaðar af kjarasamningun-
um og ég sé ekki annað en að
það eigi við ríkisfyrirtæki sem
önnur."
er hein valdnfðsla, sem
hvorki á stoð í lögum né
almennum siðvenjum“,
segir í greinargerð frá
framkvæmdastjórninni,
sem Mbl. barst í gær.
„Samþykkt verðlagsnefnd-
ar er klár,“ sagði Georg
Ólafsson verðlagsstjóri, er
Mbl. ræddi við hann í gær.
„Við höfum samþykkt þá
taxta útseldrar vinnu, sem
reiknaðir voru eftir þeirri
reglu, að 2,5% og 18.000
krónur kæmu á þá taxta,
sem fyrir voru, en við get-
um ekki samþykkt útreikn-
inga málmiðnaðarins og
rafverktaka, þar sem við
teljum að í skjóli leyndar
sé verið að velta yfir á ney-
endur kauphækkun, sem
virðist í revnd vera allt að
10% og 18.000 krónur.“
Georg Ólafsson sagði, að i bók-
un sáttanefndar, sem báðir aðilar
skrifuðu undir hefði staðið 2,5%
og 18.000 krónur ofan á þá taxta,
sem fyrir voru. „Hefði þarna stað-
ið 10% og 18.000 krónur, þá væri
málið allt annað og eins og málm-
iðnaðurinn og rafverktakar vilja
láta það líta út. En því er bara
ekki að heilsa og þess vegna eru
útreikníngar þeirra rangir og við
getum ekki samþykkt þá.
Það er alrangt að við séum með
þessu að skipta okkur af kjara-
samningum aðila og koma í veg
fyrir að atvinnurekendur standi
við gerða samninga. Það er álit
meirihluta verðlagsnefndar, að
fyrst þeir gátu samið svona við
sína menn, þá hljóti þeir að hafa
ætlað að standa sjálfir undir þeim
hækkunum, sem af því leiða, að
minnsta kosti fyrst í stað.“
Georg Ölafsson sagði, að af
þeim töxtum, sem verðlagsnefnd
hefðu borizt, hefðu byggingar-
menn, — trésmiðir, málarar, múr-
arar og pipulagningamenn, —
reiknað út nýja taxta eftir þeirri
samþykkt verðlagsnefndar, að
2,5% og 18.000 krónur kæmu á þá
taxta, sem fyrir voru, en málmiðn-
aðurinn og rafverktakar reiknuðu
sina taxta út eftir t>ví, hvernig
2,5% var svo dreift á einstaka
taxta í samningunum, sem var allt
frá þvi að vera ekki neitt á suma
taxta og svo mun meira á aðra,
eða allt að 10%. „Slíka útreikn-
inga getum við ekki samþykkl að
minnsta kosti ekki fyrst um sinn,“
sagði Georg Ólafsson verðlags-
stjóri. ,,Ég geri ráð fyrir því, að
við munum sjálfir gefa út taxta
fyrir útseldu vinnuna og birta
þá.“
Manns leitað
við Purkey
Annar bjargaðist naumlega 1 land
MANNS var leitað í nótt eftir að gúmbát hlekktist á f
mynni Hvammsf jarðar síðdegis f gær. Feðgar úr Reykja-
vfk voru á bátnum, bjargaðist sonurinn í land á Purkey.
Fregnir af atburðinum voru frekar óljósar f gærkvöldi
vegna slæms fjarskiptasambands, en þó mun vélarbilun
hafa verið orsökin.
Það var um klukkan 17 í
gærkvöldi að beiðni barst
til Stykkishólms um að
læknir og lögregla kæmu
út í Purkey vegna atburð-
ar, sem þar hefði orðið. Síð-
ar var beðið um froskmenn
til aðstoðar, og fóru félagar
úr björgunarsveitinni i
Stykkishólmi út í Purkey.
Mannsiátið í „Hverfissteini”:
Játa að hafa brugðið
leðurbelti að hálsi
bins látna oghert að
RANNSÓKN á mannslátinu í
fangageymslum lögreglunnar við
Hverfisgötu að kvöldi þriðjudags-
ins í sfðustu viku hefur verið
haldið áfram af fullum krafti sfð-
an og f gær sendi Rannsóknarlög-
regla rfkisins frá sér fréttatil-
kynningu um málið. Þar kemur
fram, að Grétar Vilhjálmsson, 45
ára, og Guðmundur Antonsson, 46
ára, hafa viðurkennt við yfir-
heyrslur að hafa veitzt á Hrafni
heitnum Jónssyni í fangaklefan-
um umrætt kvöld, brugðið leður-
belti um háls honum, hert að og
rykt í. Kemur þessi framburður
saman við ummerki á beltinu,
sem var f eigu Guðmundar og
ennfremur kemur hann heim og
saman við niðurstöðu réttar-
krufningar, sem lá fyrir f gær, en
hún Ieiddi í Ijós að áverki á hálsi
Ilrafns heitins átti þátt f dauða
hans. Eins og áður hefur komið
fram í fréttum Mbl. hafa menn-
Banaslys
í Biskups-
tungum
SEXTAN ára drengur beið
bana f dráttarvélaslysi í
Biskupstungunum síðdeg-
is í gær. Ekki er unnt að
skýra nánar frá slysinu né
nafni piltsins, þar sem
ekki hafði náðst til allra
aðstandenda seint í gær-
kvöldi.
irnir tveir ekki getað gefið neina
skýringu á verknaðinum. Þeir
sitja nú f 60 daga gæzluvarðhaldi
og hefur þeim verið gert að sæta
geðrannsókn á meðan.
Fréttatilkynning Rannsóknar-
lögreglu ríkisins fer hér á eftir í
heild:
Svo sem fram hefir komið í
fréttum lézt Hrafn Jónsson,
Bjargarstig 6, Reykjavik, siðla
kvölds 19. þ.m. eftir átök í fanga-
geymslu lögreglunnar að Hverfis-
götu 113, Reykjavík.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hóf þegar rannsókn máls þessa
aðfararnótt 20. þ.m. og hefir hún
staðið yfir siðan.
Málsatvik voru þau, að um kl.
21.00 umrætt kvöld voru 2 menn
færðir i svokallaðan almennings-
klefa lögreglunnar vegna ölvun-
ar. Var Hrafn annar þeirra. Laust
fyrir kl. 22.00 voru þeir Grétar
Vilhjálmsson, f. 1932, og Guð-
mundur Antonsson, f. 1931, báðir
heimilislausir, færðir i þennan
sama klefa. Virðast þá þeir sem
fyrir voru í klefanum hafa verið
sofandi. Kl. rúmlega 23.00 heyrði
fangavörður dynk úr klefanum og
fór þegar að aðgæta hvað um væri
að vera. Lá Hrafn þá blóðugur i
andliti á bekk, en þeir Grétar og
Framhald á bls. 27
Harpa f ékk síld
með loðnunni
ÞEGAR loðnuskipið Harpa var að
loðnuveiðum djúpt norður af
Straumnesi í fyrrinótt fékk hún
nokkuð af síld í fyrsta kastinu um
nóttina, en slfkt mun ekki hafa
gerzt á þessum slóðum f fjölda
ára.
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson að þvi væri ekki að
neita að það kæmi svolitið ein-
kennilega fyrir sjónir að Harpa
skyldi nú hafa fengið nokkrar
síldar á þessum slóðum, þar sem
Harpa hefði að líkindum verið i
köldum sjó. Sagði Hjálmar að
Hafrannsóknastofnunin stefndi
að því að fá sýni af sildinni þegar
Harpa kæmi í höfn til að landa.
Þegar búið væri að rannsaka sild-
ina, yrði að líkindum hægt að
segja frá af hvaða stofni síldin
væri.
Keflavík:
Stal 30—40
bensínlok-
um af bílum
HARLA óvenjulegir þjófnaðir
voru framdir I Keflavfk nú um
helgina. 15 ára Keflvfkingur
gerði sér Iftið fyrir og hirti
bensfnlok af milli 30 og 40
bflum f suðurbænum og hafði
með heim til sfn. Lögreglan
var snör f snúningum og hafði
upp á þjófnum og fundust lok-
in heima hjá honum. Allmörg
lok eru ennþá f óskilum á lög-
reglustöðinni og eru bíleig-
endur beðnir að snúa sér þang-
að ef þeir sakna bensfnloka af
bifreiðum sfnum. Drengurinn
mun hafa verið öivaður þegar
hann hirti lokin.