Morgunblaðið - 04.08.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. AGUST 1977
Fyrstu
frost-
næturnar
FROST mældist á þrem stöð-
um á landinu í fyrrinótt, f
Sandbúöum, á Hveravöllum og
Þingvöllum, en á þessum stöð-
um varð frostið mest eitt stig.
Páll Bergþórsson veðurfræð-
ingur sagði, þegar Mbl. ræddi
við hann i gær, að lofthitamæl-
ingarnar færu fram í meðal-
mannshæð, þannig að frost
hafi þvi verið örugglega
nokkru meira við jörðu. Þá
sagði Páll, að um tíma í fyrra-
dag hefði snjóað lítillega í
Sandbúðum.
Kl. 15 í gær var aðeins 2
stiga hiti á Grímsstöðum á
Fjöllum og kalsarigning, hins
vegar var veður orðið skárra í
Sandbúðum og þar 5 stiga hiti.
Sunnar á landinu var heitt yfir
miðjan daginn eins og á Hellu
þar sem hitinn var 16 stig, en í
fyrrinótt var hitinn þar aðeins
2 stig, þannig að þar hefur
verið frost niðri við jörðu.
„Við getum allt eins átt von
á einhverju frosti í nótt,“ sagði
Páll, “ þó vart það miklu að
það eyðileggi kartöflugrös, né
komi í veg fyrir góða berja-
sprettu."
— Lugmeier
Framhald af bls. 32
meiers hefðu einungis verið við-
skiptalegs eðlis.
Eins og áður sagði kom Lugmei-
er hingað til lands 2. marz síðast-
liðinn og er ekki vitað hvort hann
fór utan aftur eftir þann tíma. I
Vegabréfseftirlitinu á Kefla-
víkurflugvelli var ekki gerð at-
hugasemd nema í þetta eina
skipti sem áður er nefnt. Bar Lug-
meier við komuna til landsins að
hann væri hingað kominn á veg-
um írskra hrossakaupenda og
hygðist dvelja hér í nokkra mán-
uði og þá jafnvel að komast á
búnaðarskóla og kynna sér tamn-
ingu og meðferð hrossa.
Fljótlega eftir komuna hingað
2. marz hóf Lugmeier ökunám og
lauk hann bílprófi hér 18. marz en
þann 10 marz hafði hann keypt
Volkswagenbifreið þá sem hann
var á er hann var handtekinn.
Sagði Lugmeier ökukennaranum,
Sigurði Þormar, að hann væri
írskur barnabókahöfundur og
hefði hug á að komast á einhvern
rólegan stað uppi í sveit hér á
landi, en einnig að komast i við-
skipti og þá helzt í sambandi við
rekstur lítillar veitingastofu.
Fyrst eftir komuna hingað til
lands bjó hann á Hótel Esju, en
síðan leigði hann sér íbúð í Breið-
holti og hafði keypt sér húsgögn í
hana. Þá var Lugmeier tíður gest-
ur á heimili hins 55 ára gamla
Bandarikjamanns, sem var tekinn
með honum á föstudaginn, og býr
við Hringbraut í Reykjavík.
Stúlkan sem var þriðji maðurinn í
bílnum var þar fyrir tilviljun,
mun hafa ætlað að benda
Lugmeier á hvar Glæsibær væri
og vera Bandaríkjamanninum tii
hjálpar ef þörf krefði. Mun hún
hafa verið í heimsókn á Hring-
brautinni hjá konu Bandaríkja-
mannsins er Lugmeier kom þar á
föstudaginn til að leita að honum.
Kristján Pétursson, deildar-
stjóri, var á vakt í vegabréfaskoð-
uninni á Keflavíkurflugvelli um-
ræddan 2. marz og sagðist honum
svo frá í samtali við Morgunblaðið
í gær: — Þegar þessi maður kom í
vegabréfsskoðunina vakti hann
strax grunsemdir mínar ein-
hverra hluta vegna. Hann talaði
ensku eins og Þjóðverji gerir, en í
vegabréfi hans stóð að hann væri
Irinn John Michael Waller. Eg
ákvað að athuga manninn nánar
og þegar það kom í ljós að hann
var aðeins með íarseðil aðra leið-
ina. spurðist ég fyrir um fjárráð
háns. Sagðist hann vera með pen-
inga í bakpoka í farangri sínum
og þegar við komum að færiband-
inu þar sem farangurinn kemur
inn úr flugvélunum tók hann upp
seðlaknippi. Otaði því að mér og
spurði — með þjósti hvort þetta
væri nóg. Eg sagðist sjálfur vilja
rannsaka bakpokann og er ég
gerði það kom í ljós að hann var
nær úttroðinn með erlendum
gjaldmiðli. Taldi ég upp úr hon-
um jafnvirði 50 þúsund dollara,
en myntin var í dollurum, pund-
um og mest i mörkum. Allt var
féð vélpakkað og það sem ég taldi
upp úr pokanum var aðeins hluti
fjárins sem þar var.
— Spurði ég hann hverra er-
inda hann væri hér á landi og
hvað hann ætlaði að gera með alit
þetta fé. Svaraði hann því til að
hann væri hér á vegum irskra
hrossakaupenda og ætlaði að
kaupa hross fyrir peningana.
Sjálfur sagðist hann ætla að
dvelja hér í nokkra mánuði og
ætla á búnaðarskóla hér á landi
til að læra meðferð hrossa og
tamningu.
— Ég athugaði gaumgæfilega
allar fyrirspurnir sem við höfðum
frá Interpol og lögreglu í öðrum
löndum um eftirlýsta glæpamenn
og fann ég ekkert sem gæti átt við
þennan mann. Þegar hér var kom-
ið sögu gat ég ekki annað en
sleppt manninum, þó mér væri
það allt annað en ljúft, mér þótti
maðurinn í meira lagi grunsam-
legur.
— Hafði ég strax samband við
Utlendingaeftirlitið og sendi
þeim síðan skýrslu daginn eftir.
Eftir þvi sem mér er kunnugt
gerðu þeir ekkert í málinu. Sjálf-
ur frétti ég ekkert af honum fyrr
en hann var handtekinn. Myndir
og plögg af eftirlýstum glæpa-
mönnum eru sendar Dómsmála-
ráðuneytinu frá Interpol og síðan
falin Utlendingaeftirlitinu. Þar
var mynd af þessum manni og
fyrirspurn frá Interpol, lá i búnka
með hundruðum annarra mynda.
Þori ég að fullyrða það að ef við
hefðum haft þessa mynd hjá okk-
ur hefði maðurinn verið handtek-
inn á staðnum með peningana.
Hjá okkur eru fyrst og fremst
myndir og fyrirspurnir um menn,
sem hafa framið flugrán eða unn-
ið skemmdarverk á flugvöllum.
Við höfum yfirleitt átt gott sam-
starf við Utlendingaeftirlitið og
samstarf okkar leitt til margra
góðra hluta, þarna urðu þó mistök
og tel ég tvímælalaust að hjá okk-
ur á Keflavikurflugvelii eigi að
vera fyrirspurnir um eftirlýsta
glæpamenn, sagði Kristján að lok-
um.
Morgunblaðið fékk upplýsingar
um það í gær að útlendingum er
frjáist að fara með inn í landið
eins mikið fé og þeir viija svo
fremi þeir geti gefið viðhlítandi
skýringar á fénu.
Karl Jóhannsson hjá Utlénd-
ingaeftirlitinu sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að væri út-
lendingur færður 'i fanga-
geymslur lögreglunnar væri haft
samband við Utlendingaeftirlitið
og hefði það verið gert síðastliðið
föstudagskvöld eftir að Lugmeier
var handtekinn við Glæsibæ. Að
öðru leyti vildi Karl ekki tjá sig
um þetta mál, sagði það vera al-
farið í höndum Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Menn með norður-írskt vega-
bréf þurfa ekki vegabréfsáritun
er þeir koma hingað til lands og
þarf því ekki að fylla út þar til
gerð spjöld víð komu þeirra.
Ludwig Lugmeier var með írskt
vegabréf og hefði því ekki verið
fyllt út sérstakt spjald með nafni
hans og persónulegum upplýsing-
um, nema þar sem Kristjáni
Péturssyni fannst maðurinn
grunsamlegur. Gildir það sama
fyrir flest lönd Vestur-Evrópu að
fólk frá þeim löndum þarf ekki
vegabréfsárítun við komuna hing-
að til lands.
— Sagðist vera
Framhald af bls. 17
kaupa Volkswagen eða sambæri-
legan bil og það gerði hann víst,
hvort sem það var eftir mínum
ráðleggingum eða annarra.
Þarna var greinilega á ferð-
inni maður sem hafði úr ein-
hverju að spila. Þegar hann talaði
um íbúðina i Hólunum í Breið-
holti sagðist hann vera fagurkeri
á húsgögn og vildi því ekki kaupa
notuð gömul húsgögn, en heldur
kaupa ný.
— Aldrei sá ég hann með stórfé
á sér og þegar hann greiddi fyrir
ökutimana, um 30 þúsund krónur,
borgaði hann i íslenzkum krón-
um. Hann talaði aldrei um að
hann væri maður í góðum álnum.
Hann kom í alla staði vel fram.
Eina sem hann sagði um framtíð-
aráætlanir sínar var að hann ætl-
aði að vera áfram hér á landi og
líkaði vel hér. Hann sagði að sig
langaði að komast í einhver við-
skipti og ræddi í því sambandi um
að kaupa litla veitingastofu. Þá
sagðist hann hafa mikinn áhuga á
að komast upp í sveit á einhvern
rólegan stað.
— Hann ræddi, man ég einu
sinni, um að hann ætti von á
unnustu sinni um páskana. Ekki
veit ég hvort hún kom nokkurn
tímann, en þá var hann búinn
með sitt próf og okkar samskipt-
um þar með lokið. Þegar ég frétti
að þarna hefði verið stórglæpa-
maður varð ég eðlilega mjög
undrandi, ætli nokkur hafi verið
eins hissa og ég, sagði Sigurður
Þormar ökukennari að lokum.
— Ofgasamtök
Framhald af bls. 1
ust af fólki i dag, og almenn-
ingi var bannaður aðgangur að
húsi Sameinuðu þjóðanna. 1
tveimur skýjakljúfum World
Trade Center starfa um 30 þús-
und manns og urðu allir að
yfirgefa þær byggingar.
Alvarlegasta sprengjutil-
ræði af völdum F.A.L.N. átti
sér stað í janúar 1975, en þá
létu fimm manns lífið og fimm-
tíu særðust.
— Borgarstjóri
Framhald af bls. 32
staðar á landinu. „Það er enginn
vafi á því að þessarar þróunar er
farið að gæta til hins verra fyrir
Reykjavik", sagði borgarstjóri.
t skýrslunni eru settar fram
þær tillögur, að borgarstjóri hafi
forgöngu um mótun samræmdrar
stefnu sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu í atvinnumálum, er
hafi að meginmarkmiði aukið at-
vinnuöryggi allra svæðisbúa. Höf-
uðáherzla verði lögð á leiðir til
þess að örva arðvænlega fram-
leiðslustarfsemi og igildi hennar
og að hafnar verði hið fyrsta við-
ræður við fulltrúa atvinnulifs um
árangursrikustu leiðir til örvun-
ar, en einnig verði leitað stuðn-
ings rikisvalds til að ná settum
markmiðum án þess að rýra kjör
annarra landsmanna. Loks er lagt
til að stofnuð verði sérstök at-
vinnumáladeild Reykjavíkur-
borgar með ráðgjafanefnd og
starfsliði til þess að greiða fyrir
framkvæmdinni.
Borgarstjóri gat þess á fundin-
um i gær, að eins og ástandið væri
með fiskistofna nú þýddi ekki að
treysta á fiskveiðar sem grund-
völl til endurnýjunar atvinnulífs
Reykvíkinga. „Enda þótt ég telji,
að við Reykvikingar verðum að
gæta þess að halda okkar hlut i
fiskveiðunum, þá verðum við nú
að beina athyglinni að öðrum
greinum til að leysa þann vanda
sem við blasir“.
— Lóðaúthlutun
Framhald af bls. 2
holtshverfi, en alls fengu 26 aðil-
ar úthlutað þar byggingarleyfum
í 15 húsum, sem þarna eiga að rísa
í framtíðinni, fyrirtækin og stofn-
anir sem þarna ætla að byggja
eru:
Hús A: Snyrtivöruverzlunin
Clara, Bankastræti 8, Verkfræði-
stofa Edgars Guðmundssonar,
Vesturbergi 49, Arkitektastofa
Óla Ásmundssonar, Depluhólum
6.
Hús B. Fálkinn h.f., Suðurlands-
braut 8, Teiknistofa Friðgeirs
Indriðasonar og Guðmundar P.
Kristmundssonar, Vesturbergi 17,
Verkfræðistofa Benedikts Boga-
sonar, Háaleitisbraut 58—60.
Hús C: Einar Farestveit & Co.
h.f., Bergstaðarstræti 10 A
Hús D: Eggert Kristjánsson & Co
h.f., Sundagörðum 4 og 8, I.
Brynjólfsson & Kvaran, Hafnar-
stræti 9, O. Johnson & Kaaber
h.f., Sætúni 8, Nathan & Olsen
h.f.. Armúla 8.
Hús E: Ingibjörg Böðvarsdóttir,
apótekari, Arnarbakka 2.
Hús F: Póstur og sími, Pósthús-
stræti 5.
Hús G: Afengis- og tóbaksverzlun
rikisins, Borgartúni 7.
Hús H: Landsbanki Islands,
Austurstræti 11.
Hús I: Raftæki, Eyjabakka 13,
Búsport s.f., Arnarbakka 2.
Hús J: Penninn s.f., Hallarmúla 2
Hús K: Brauðbær, Þórsgötu 1.
Hús L: Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti 18
,Undraland, leikfangaverzlun,
Veltusundi 1, Gissur Þorvaldsson,
Akraseli 7.
Hús M: Árvakur h.f., Aðalstræti
6.
Hús N: Edda-Film, Heiðargerði 1
A.
Hús P: Dómsmálaráðuneytið
v/lögreglustöðvar.
— Andlát
Makaríosar
Framhald af bls. 1
þjóðarvörðurinn og lögreglan á
eynni væru við öllu búin. Tyrk-
neska stjórnin vildi ekkert láta
hafa eftir sér vegna andláts
Makaríosar. Meðal almennings
varð vart við fögnuð, en í Grikk-
landi hefur verið lýst yfir þjóðar-
sorg.
Viðbrögð vegna andláts Maka-
riosar víða um heim bera vott um
varúð. I Washington var lýst yfir
harmi vegna andláts hans og sagt
að hann hefði á síðari árum helg-
að sig hugsjóninni um samein-
ingu Kýpur. Bulent Ecevit, sem
var forsætisráðherra er Tyrkir
gerðu innrás á Kýpur árið 1974,
lýsti yfir samúð sinni við griska
íbúa eyjarinnar. I Lundúnum
blöktu fánar á stjórnarbygging-
um í hálfa stöng, og Caradon lá-
varður, sem var ríkisstjóri Breta á
eynni meðan á sjálfstæðisbarátt-
unni stóð, sagði, að Makarios
hefði verið sjálfstæðishugsjón
sinni trúr, auk þess sem hann
hefði verið maður orðheldinn.
í bækistöðvum Sameinuðu
þjóðanna blakti fáni samtakanna
í hálfa stöng í virðingarskyni við
hinn látna forseta Kýpur, og
franska blaðið Le Monde birti um
hann eftirmæli þar sem sagði m.a.
að hann hefði verið boðberi hlut-
leysis og vináttu allra manna.
— Belgrad
Framhald af bls. 1
verið ákveðið, hefst Belgrad-
ráðstefnan 4. október n.k. og er
gert ráð fyrir að henni ljúki 22.
desember. Hafi samkomulag þá
ekki tekizt verður ráðstefnunni
fram haldið þar til um miðjan
janúar.
Fjallað verður um mannrétt-
indamál í einni af fimm nefndum
ráðstefnunnar, en þessar nefndir
fá jafnframt það verkefni að end-
urskoða þróun slökunarstefnunn-
ar á sviði efnahagsmála, hernaðar
og stjórnmála.
Albert Sherer, formaður banda-
risku sendinefndarinnar á fund-
inum í Belgrad, kvaðst i dag
ánægður með niðurstöðuna, og er
Vorontsov, fyrirliði Sovétmanna,
var að því spurður hvort mála-
miðlunartillagan hefði orðið til
þegar þeir Sherer snæddu saman
kvöldverð í gærkvöldi, svaraði
hann: „Það var mjög góður kvöld-
verður, — við fengum ekki aðeins
magafylli heldur einnig andlega
næringu".
— Bridge
Framhald af bls. 2
104, Bretland 102, Danmörk 91,
Italía 88, Belgía 80, Noregur 77,
Ungverjaland 74, tsland 69, Pól-
land 69, Holland 66, Júgóslavía
65, írland 60, Þýzkaland 60.
I gærkvöldi spilaði íslenzka
landsliðið við Júgóslava en á
morgun verður frí. Föstudagur-
inn verður væntanlega erfiður
dagur fyrir landann. Fyrri leikur-
inn er gegn Israelum en síðari
leikurinn gegn Svisslendingum
en þessar þjóðir eru nú í öðru og
þriðja sæti.
— Litlar líkur
Framhald af bls. 1
gerðu sér of miklar vonir um ár-
angur af væntanlegum fundar-
höldum utanríkisráðherra rikj-
anna i Miðausturlöndum til
undirbúnings friðarviðræðum.
— Pólitík setti
mark sitt
Framhald af bls. 14
Þá fer fram 10.—16. september
sex-landa keppni i Þýzkalandi
og munum við stefna að því að
senda okkar sterkasta lið, Frið-
rik Ólafsson, Guðmund Sigur-
jónsson, Inga R. Helgason,
Helga Ólafsson, Margeir
Pétursson og Ólöfu Þráinsdótt-
ur eða Guðlaugu Þorsteinsdótt-
ur, en Jón L. verður á sama
tima upptekinn á mótinu i
Frakklandi.
Að lokum má geta þess að
Skáksamband Luxemborgar
hefur lýst yfir áhuga sínum að
fá að koma hingað með 15—20
manna sveit og þreyta keppni
við Islendinga og höfum við
gefið þeim undir fótinn með að
taka á móti þeim i október.
— Stefni
Framhald af bls. 5
son að hið slæma gengi í loka-
umferðunum yrði aðeins til að
stappa í hann stálinu að reyna
að gera betur næst. Sagði hann
mótið ekki hafa orðið sér sér-
lega erfitt en vissulega hefði
það verið lærdómsríkt. Fram-
undan hjá honum er þátttaka í
Heimsmeistaramóti sveina í
skák, en í þvi móti eru kepp-
endur 17 ára og yngri. Þegar
Jón var spurður að þvi hve mik-
ill hluti skákin væri i lífi hans
sagðist hann velta henni fyrir
sér daglega, með lestri bóka og
skoðun ýmissa skáka.
— FH og Valur
Framhald af bls. 30
eftirtaldir: Á laugardag leika
Þróttur—HK og Ármann—Hauk-
ar, á sunnudag leika Fram—KR,
Víkingur—Þróttur og ÍR—Valur
og á mánudag leika FH—Ar-
mann, Haukar—IR og
HK—Fram. Keppninni verður
siðan fram haldið á hverjum degi
næstu viku og lýkur henni sunnu-
daginn 14. ágúst. Fara leikirnir
fram við Austurbæjarbarnaskól-
ann í Reykjavík og er það hand-
knattleiksdeild Vikings sem hef-
ur umsjón með mótinu.
— Minning
Kjartan
Framhald af bls. 21
tengdur bandinu sem fór á und-
an. Fyrr en varði var hann kom-
inn upp i mitt bjarg langt á undan
hinum, því hann var klár í því
sem hann var að gera og þá var
honum ekkert að vanbúnaði, upp
var haldið, það var þá ekki eftir.
Um það leiti sem Kjartan hrap-
aði var hann að ganga í gegnum
sveinspróf í bólstrun. Hann var
mikill Eyjamaður og leið hvergi
vel nema í Eyjum. Eftir að for-
eldrar hans fluttust til fastalands-
ins eftir eldgosið, bjó hann hjá
afa sinum og ömmu í Eyjum og
undí vel á sinni heimaslóð.
Við sendum vandamönnum
Kjartans dýpstu samúðarkveðjur
okkar. Með hvarfi hans vantar
sterkan og mikilvægan hlekk í
festi okkar. Vilji Kjartans var
ætíð sá að óhikað skildi haldið
upp þá leið sem fyrir lá. Sú vissa
fylgir starfi okkar og leik með
minningu hans og i minningunni
um tryggan og traustan félaga
munum við áfram leita að sólspor-
um þessa lífs. Þá verður ef til vill
auðveldara að spyrja almættið.
Kveðja frá félögum
í Hjálparsveit skáta,
Vestmannaeyjum.