Morgunblaðið - 06.10.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÖBER 1977
Vesturströnd
Eyjafjarðar
t gær var hér f
stökum steinum staldr-
að við viðtal Islendings,
málgagns sjálfstæðis-
fólks á Norðurlandi
eystra, við Bjarna
Einarsson, fyrrverandi
bæjarstjóra á Akureyri
og núverandi fram-
kvæmdastjóra byggða-
deildar Framkvæmda-
stofnunar rfkisins. Þar
ræddi Bjarni m.a. um
hugsanleg iðntækifæri
atvinnulffs nyrðra,
þ.á.m. stóriðju. sem
bannorð er í margra
munni. En Bjarni var
einnig spurður um
Hjalteyri, sem var vin
auðs og allsnægta f sfld-
arævintýrinu fyrr á
árum, en skrapp saman
í nær ekki neitt er síld-
in var upp urin. Bjarni
segir:
„Það hefur verið
talað um Hjalteyri við
okkur — og okkur
finnst staðurinn áhuga-
verður, eins og reyndar
öll vesturströnd Eyja-
fjarðar, sem í rauninni
er eina hliðstæðan sem
við eigum við Reykja-
nesskagann. Við höfum
mikið verið að velta
þessu fyrir okkur,
hvernig aðgerða væri
bezt að grfpa til, til að
örva ákveðna þróun.
Það, sem okkur hefur
fyrst dottið f hug í
þessu sambandi, er,
hvort ekki væri vinn-
andi að malbika veginn
frá Akureyri til Dal-
víkur. Eg held að það
yrði til að draga þessa
staði saman, þannig að
þeir mynduðu eitt sam-
félag, stöðunum til
framdráttar og öllum til
hagsbóta, sem þarna
búa, sagði Bjarni að
lokum“
Vegirnir
æðakerfi
þjóðfélagsins
Þessi orð manns, sem
svo gjörla þekkir til
málefna sveitarfélaga
og landsbyggðar, eru
einkar athyglisverð.
Vegir með varanlegu
slitlagi koma til með að
gegna mikilvægu hlut-
verki f tengingu
byggða, er myndað geta
atvinnulega og félags-
lega heild. Raunar eru
góðár vegasamgöngur
æðakerfi landsbyggðar,
forsenda æskilegrar
þróunar f atvinnuupp-
byggingu og féiagslegra
samskipta landsmanna.
Varanlegir vegir eru og
arðhær . framkvæmd,
eins oft hefur verið að
vikið hér í stökum
steinum. Kostnaður við
varanlega vegagerð er
undrafljótur að skila
sér aftur til þjóðfélags-
ins. Það gerist m.a. með
minna vegaviðhaldi og
minni snjóruðningi
(uppbyggðir vegir). En
fyrst og fremst með
lengri endingu öku-
tækja, stórlækkuðum
viðhaldskostnaði og
minni bensfneyðslu.
Holu og þvottabrettis-
vegir okkar stuðla
heldur ekki beinlfnis að
umferðarmenningu —
og þeir heyra til horf-
inni tfð, eru tfma-
skekkja í íslenzkum
samgöngumálum.
Stórátak f vegagerð er
eitt brýnasta samtíma-
verkefni okkar. Varan-
legt slitlag þarf fyrst að
koma á þá kafla þjóð-
vegakerfisins, þar sem
mest umferð er um.
Þegar vissum umferðar-
þunga er náð á svokö^jl-
uðum malarvegum
verður nauðsvnlegt við-
hald nær óviðráðanlegt,
kostnaðarins vegna.
Þessu viðhaldsfé, sem
að hluta fýkur f mynd
ofanfburðar vfir ná-
grenni, væri e.t.v. betur
varið í varanlega vega-
gerð, þó að erfitt sé að
draga úr takmörkuðu
vegaviðhaldi dagsins í
dag.
Varanleg vegagerð
myndi og tengja saman
sveitarfélög — vfðar en
á vesturströnd Eyja-
fjarðar, þeirri fögru og
byggilegu strandlengju.
Sama máli gegnir um
suðvesturhornið, sem
svo margir reka sig á f
„aðskilnaðar" — skrif-
um um fslenzk þjóðmál.
Ekki síður Norðurland
vestra, þar sem Skag-
firðingar og Húnvetn-
ingar gera garða fræga.
Að ekki sé talað um
Vestfirðinga, sem ekki
aðeins byggja lands-
fjórðung, heldur leggja
og til nær fjórðung
freðfiskframleiðslunn-
ar í landinu. Svipað
mætti segja um aðra
landshluta, sem allir
eru hlekkir f þeirri
verðmætakeðju og at-
vinnulffs, sem ber uppi
Iffskjör þjóðarinnar.
Eins og nú árar f
efnahagslffi og verð-
lagsmálum þarf þjóðin
að vfsu að flýta sér hægt
f öllum framkvæmdum,
ríkið að draga saman
segl — og spara. Engu
að sfður verður ekki hjá
því komizt, þegar hugað
er að því, hvert skal
beina takmarkaðri
framkvæmdagetu, að
huga að vegakerfi
þjóðarinnar, leiðrétt-
ingu leiðrar tíma-
skekkju.
F // A T
i.
t
125P
u
ARGERÐ
09
góður
blll
Urvals
ys . Ný "%
bíll sem hentar S6nding *
sériega veT jg’ er að koma
ísienzkum nokkrum bílum
aðstæðum veðrii S óráðstafað. ^
og vegum. 30L
OTRULEGA
HAGSTÆTT VERÐ
FIAT EINKAUMBOO A ISLANDI
Davíð Sigurðsson hí .
SÍÐUMÚLA 35, sfmi 85855.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu
Massey
Feiguson:
Eigum óráðstafað nokkrum dráttar-
vélum af hinni nýju glæsilegu 500
línu til afgreiðslu strax. Góðir
greiðsluskilmálar.
Leitið upplýsinga í
kaupfélögunum,
eða beint hjá okkur.
D/icbtta/ivéjla/i, hf
Massey Ferguson
SUÐURLANDSBRAUT 32- REYKJAViK- SlMI 86500
IFORMICA
lítrninítted plít«tic
Þegar um er að ræða nýsmíði eða endur-
nýjun í eldhúsi eða baði, er Formica það
besta sem völ er á!
Formica er faNegt og endist endalaust,
það vita þeir sem til þekkja.
Formica harðplast er þess vegna fjárfest-
ing sem borgar sig.
Mikið úrval lita og mynstra..
Lítið inn eða hringið.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1 — Simi 8 55 33