Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977 Stefán íslandi fœddist í Krossanesi í Vallhólmi, Skagafirði, 6. oktoher 1907 og er því 70 ára í dag. Ferill Stefáns Islandi er með blæ þjóðsögunnar, enda ferill hans sérstœður og með ólíkindum. Skyndilega hvarf hann frá störfum sveitapilts í Skagafirði og næst fréttist af honum á leiksviðum frœgra óperuhúsa á Italíu. Hann har aldrei lognhatt á ferli sínum sem söngvari, söngur hans hreiffólk hvar sem hann fór. Framtak Richard Thors, að kosta hinn unga söngvara til náms, har ríkulegan ávöxt og hin silfurtœra rödd Stefáns stœkkaði menningu Islands. VERDIt ALDREI AFTUR TEKIll * * til Halldórs Bjarnasonar frá Stein- nesi, var það, að þessi ágæti um- boðsmaður Kveldúlfs bauð mér á Theater Carlo Felice i Genúa þar sem ég heyrði Aidu eftir Verdi með hinum fræga söngvara Pert- ille. Hann var þá einn af þessum stóru bombum þarna á ítaliu og ég varð alveg dolfallinn þegar ég hlustaði á hann. Guð almáttugur hjálpi mér, sagði ég við sjálfan mig, hvað ert þú eiginlega að gera hingað. Ég féll allur saman, en minna mátti nú gagn gera.“ „Og svo gerðisl þetta allt?“ „Nei, þvi miður ekki allt, langt frá þvi, en það gerðist eins mikið og ég gat.“ „En Guðmundur beit ekki á krókinn". Við vikum talinu að óperuflutn- ingi og m.a: kom til tals fyrsta verk hertogans i Rigoletto. Það var skemmtilegt. Þar sungu islenzkir söngvarar nema Else Miihl frá Austurriki. Guðmundur Jónsson söng þar sinn fyrsta Rigoletto. Þegar ég mætti til fyrstu æfingar- innar kunni ég nokkurn veginn af fingrum fram öll hlutverkin og tónlistina, þvi ég hef ávallt lagt mikið upp úr þvi að kunna vel það sem ég hef tekið þátt i. Ég man hvað ég var undrandi að heyra Guðmund syngja. Ég stóð og horfði gáttaður á manninn, þvi það var eins og hann hefði aldrei gert annað en syngja Rigoletto, en þetta var á ifyrsta sinn sem hann gerði það. Siðar söng hann Rigoletto i Konunglega í Kaup- mannahöfn og þá sögðu þeir að þama væri sá sem koma skyldi. En Guðmundur beit ekki á krókinn. Ég vil nefriilega, sagði Gð- mundur, heldur vera á fslandi og ekki bara i Reykjavik, heldur i Vesturbænum. Og þar hefur hann verið siðan. Það sungu ekki aðrir betur Rigo- letto þá en Guðmundur Jónsson. Ég var afskaplega hrifinn af flutn- ingi Guðmundar i þessu verki. Rigoletto er með stærri hlutverk- um i óperum og það eru engir aukvisar sem skila þvi vel af sér. Rigoletto Þjóðleikhússins sungu einnig Kristinn Hallsson og Guð- munda Elíasdóttir." „Hvernig kom verkið út t hei!d?“ „Þegar maður er sjálfur á fjöl- unum fær maður ekki mikið tæki- færi til þess að skynja heildar- flutninginn, maður er sjálfur eitt peð á taflborðinu. en ég held að það hafi gengið vel, það gekk ótrúlega lengi. „Að bíta í eplið, _______súrt eða sætt."____________ Heimþráin? Þú varst að tala áðan um heimþrá og hina römmu taug sem rekka dregur . . . Þegar ég fór að koma heim á sumrin lét ég aldrei undir höfuð leggjast að heimsækja bemskuheimiii mitt á Syrða-Vallholti. Þar hitti ég mitt gamla fólk. Á milli þessara heim- sókna var maður i rauninni gestur og ekki gestur erlendis. Dvölin ytra varð löng, um 40 ár og þar af 25 ár við Konunglegu óperuna i Kaupmannahöfn. Þar gekk á ýmsu, stríðsárin spiluðu inn i með ógurlegu ástandi, skömmtuðum mat úr hnefa, myrkvun og margs Ljósmynd Mbl Friðþjófur Helgason konar erfiðleikar. Auðvitað hljóm- aði bergmál íslands i gegn um þetta allt, kallaði og kallaði, en þú verður að bita i það epli sem þér er boðið, súrt eða sætt eftir þvi hvar verkefnin eru. Ég ferðaðist mikið um Danmörku og ég held að það sé ekki til sá bær þar sem ég hef ekki stuðlað að þvi að eyðileggja söngsmekk fólks, mað- ur var alltaf að syngja og vesenast i öllum áttum. Það er hins vegar annað mál að syngja fjölbreytt lagaval kvöld eftir kvöld eða syngja þrjú kvöld i röð i hverri viku mismunandi óperuhlutverk i húsi eins og Konunglega. Til þess þarf þrek og góða heilsu og styrka undirstöðukunnáttu.“ Stefán í Tosca í Þjóðteikhúsinu. „Að bjástra við að vera til." „Hvað er söngtæknin snar þátt- ur?“ „Tæknin er dálitið margslungin og enginn einstakur getur mótað sér 100% tækni, og annnar, það þarf að sniða hana eftir upplaginu. Maður er alltaf að læra, við eigum það sameiginlegt, þú og ég og flestir aðrir að reyna að betrum- bæta hlutina eins lengi og maður er að bjástra við að vera til. „Ekkert eins vont og, að vera mis- skilinn söngmaður." Ég er alveg viss um að það er ekkert eins vont, ég segi vont tii þess að nota ekki orðið, verra, eins og að vera misskilinn söngmaður. Þetta er svo persónulegt, svo stór hluti sem maður er að gefa af sjálfum sér, svo viðkvæmt að það er i beinu sambandi við innstu hjartarætur. Þvi miður skeður það svo oft að maður sem hefur lagt sig fram i margra ára námi nær ekki sambandi við fólk. Hann er búinn að eyða beztu árum ævinn- ar og það er engin leið til baka, hann kann í rauninni ekkert ann- að. Ég hef kynnzt svo bitru og vonsviknu söngfólki. sem finnst það hafa verið slegið út og það er það ef til vill, þvi miður. Ég er ekki að segja þetta vegna þess að ég sé að vanþakka mina reynslu og ævi. þvi það væri ekki sanngjarnt. En sú rcynsla og það erfiði sem fylgir þvi að vera nokkurn veginn gjaldgengur á vettvangi sönglistar- innar, er svo dýr að það borgar sig ekki. Þvi myndi ég með góðri samvizku ekki ráðleggja neipum að fara út á þessa braut. Það er svo allt annað sem gildir um sönglist- ina heldur en ritlist og myndlist til dæmis. Það er hægt að rita setn- ingu upp á nýtt, breyta henni að vild. gefa hana út gjörbreytta. það er hægt að breyta myndinni óendanlega, mála yfir, gera nýja mynd, en sá tónn sem búið er að sleppa, verður aldrei aftur tekinn, það verður ekki sleikt yfir hann.„ „Sjálfsafneitun til að hanga á Flaggstönginni." „Það er hörð umsögn að starf söngvarans sé ekki þess virði að leggja það á sig.“ „Til þess að það borgi sig þarf hreint og beint það sem ómögulegt er að útskýra fyrir neinum. Það þarf fyrsta flokks rödd. sæmilegan skerf af sjálfsgagnrýni og gáfur vel i meðallági. ákaflega hörku við æfingar og það þarf að halda fast i spottann ef maður nær taki á góð- um hluta hans. Það kemur ef til vill úr hörðustu átt að segja að það þurfi ákaflega mikla sjálfsafneitun til þess að halda sér eins hátt i flaggstönginni og mögulegt er. en það er svo margt sem tekur i taumana og til dæmis fer aldrei saman söngur. reykingar og áfengi. Það á enga samleið. Það eru margar gryfjur og gjótur á leið söngvarans og persónan og röddin þurfa náinn samleik til þess að klára sig i gegn um þann skerja- flóa.“ „Hef aldrei augum litið þann mann." „íslendingar eiga sin traustu náttúrufyrirbæri eins og Heklu Vatnajökul og heiðablómin. Hvernig finnst þér að vera eitt af náttúrufyrirbærum landsins i aug- um landa þinna vegna söngs þins?“ „Ég hef aldrei augum litið þann mann i þvi Ijósi. f alvöru talað held ég að sjálfsmat sé mjög erfitt spursmál, en ég held að litið yrði eftir ef ég ætti að meta sjálfan mig. fara innan i og hreinsa til. Það er varla vafi á þvi að manni finnst margt sæmilegt hjá sér, en það mat er hins vegar ekki alltaf satt og rétt. Aðrir verða að segja sitt álit á gripnum. ég treysti mér ekki til að svara þvi.“ grein: ÁRNI JOHNSEN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.