Morgunblaðið - 06.10.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977
15
Lif og land í
nýrri útgáfu
BÓKIN Líf og land, um vistfræði
tsiands eftir dr. Sturlu Friðriks-
son, hefur verið ófáanleg í bóka-
búðum um nokkurt skeið. Hún
kom fyrst út 1973 og er nú aftur
komin á markað.
Bókin fjaliar um náttúru Is-
lands, lífverurnar í landinu og
umhverfi þeirra.
Lif og land er sérstæð bók í
sinni grein. I þessari bók fjallar
dr. Sturla Friðriksson um samspil
hinna ýmsu lífvera, sem i landinu
búa og greinir frá misjöfnum lífs-
kjörum þeirra. Island er harðbýlt
land og náttúruöflin leika íbúa
þess oft grátt, þar sem eldur, is og
óblítt veður þjarmar harkalega að
hverjum einstaklingi. 1 góðæri fá
hins vegar ýmsir suðrænir slæð-
ingar fasta búsetu, dreifing
þeirra um landið örvast og jaðrar
hinna lífvænlegu svæða færast út
og ofar í landið.
Frá því er ísöld lauk hefur land-
ið smám saman byggzt fjölmörg-
um tegundum lífvera, sem hafa
háð harða baráttu fyrir tilveru
sinni. Saga þessarár framvindu
lifs og lands er rakin í bók dr.
Sturlu og getið breytinga á gróð-
urfari, dýralífi og umhverfi. Mikil
þáttaskil urðu í þessari sögu við
tilkomu mannsins. Búseta hans í
landinu, afnot- af húsdýrum og
ýmis nýting af öðrum dýrum og
gróðri eru brotin til mergjar og
metin sem afköst í nýtingu þeirr-
ar sólarorku, sem fellur yfir þurr-
lendi íslands.
Bókin er mjög vönduð að frá-
gangi og skreytt lituðum teikning-
um og myndum. Á bókarkápu er
litmynd, sem tekin er af landinu
úr ERTS-gervihnetti. Sérstæð
mynd, sem sýnir i litum það land
sem er gróið. Þannig er einnig i
þessari bók litið á lífverurnar og
umhverfi þeirra í nýju ljósi frá
vistfræðilegu sjónarmiði. Orðið
vistfræði var fyrst notað af Sturlu
i íslenzku ritmáli.
Nýr skuttogari
til Sauðárkróks
Sauðárkróki 4. okt.
UM HÁDEGISBILIÐ i dag,
þriðjudaginn 4. okt., bættist skut-
togari við skipastól Utgerðar-
félags Skagfirðinga Sauðárkróki.
Togarinn var keyptur frá Lorient
í Frakklandi i sumar. Hann var
smíðaður 1975 i Pöllandi fyrir
franskan kaupanda og er nú rétt
tveggja ára gamall. Togarinn hét
áður Roekall, en hefur nú fengið
nafnið Hegranes SK 2, sem er
sama nafn og togarinn bar sem
seldur var til Þorlákshafnar i
sumar. Hegranesið hefur verið í
Newcastle í Englandi til breyt-
inga og lagfæringa i rúman mán-
uð. Lest skipsins hefur verið und-
irbúin til notkunar fiskkassa og
einnig þurfti að breyta manna-
íbúðum i samræmi við íslenzkar
venjur ásamt nokkrum smærri
atriðum og á skipið að geta farið
til veiða mjög fljótlega. Heildar-
verð skipsins með breytingu er
um 360 millj. kr. Skipið er 46 m á
lengd og 10,5 m á breidd og mæl-
ist um 460 brúttósmálestir. í því
er Cretell aðalvél 1500 hp og
bouduin hjálparvél 125 hestöfl til
rafmagnsframleiðslu. Skipstjóri
er Sverrir Eðvaldsson, I. stýri-
maður er Júlíus Skúlason og I.
Vélstjóri er Hannes Arnason.
Sauðárkróksbúum var gefinn
kostur á að skoða skipið síðari
hluta dags i dag og hefur út-
gerðarfélagið boðið upp á kaffi-
veitingar í Félagsheimilinu af
þessu tilefni. Framkvæmdastjóri
Utgerðarfélags Skagfirðinga er
Stefán Guðmundsson. — i«n.
Verdandi yfirmaður landhelg
isgæzlu Nýja
UNDANFARNA daga hefur dval-
ið hér á landi Denis MeLean frá
Nýja-Sjálandi. McLean mun í
næsta mánuði taka við ráðherra-
embætti í heimalandi slnu og
mun landhelgisgæzla heyra undir
hans ráðuneyti.
Denis McLean kom gagngert til
íslands til að kynna sér hér ís-
lenzka landhelgisgæzlu, en hann
kvað hana þekkta um allan heim
fyrir störf sín.
Sjálands hér
Nýja-Sjáland, syðsta ríkið á
hnettinum, hefur enga sjálfstæða
landhelgisgæzlu og verður því
fyrst um sinn að treysta á her-
skipaflota sinn, meðan verið er að
byggja upp landhelgisgæzluna.
McLean ræddi við yfirmenn
Landhelgisgæzlunnar hér, þar á
meðal Ölaf Jóhannesson dóms-
málaráðherra, og skoðaði ýmis
tæki gæzlunnar þ.á m. varðskipin
og flugvélarnar.
Þing Kennarasambands Aust-
urlands haldið
DAGANA 17. og 18. september sl.
var þing Kennarasambands
Austurlands haldið f Valaskjálf á
Egilsstöðum. A þingið mættu
kennarar af svæðinu frá Bakka-
firði til Hornafjarðar. 1 upphafi
þings var Kristjáns Ingólfssonar
fræðslustjóra minnzt, en hann
lézt á árinu.
Á þingi Kennarasambands
Austurlands i Valaskjálf voru
launa- og kjaramál rædd, kenn-
araskortur og kennararéttindi,
svo og skipulagsmál sambandsins.
Um þessi mál voru og samþykktar
á Egilsstöðum
nokkrar ályktanir, þ.á m. ein þess
efnis að kennarar á grunnskóla-
stiginu sitji við sama borð hvað
snertir laun og vinnutilhögun
hvaða aldursflokkum sem þeir
kenna.
I þinglok var kosin ný stjórn
Kennarasambands Austurlands,
en þeir sem hana skipa eru Krist-
inn Kristjánsson, Alþýðuskólan-
um, Eiðum, formaður, Svavar
Björnsson, Jökulsárhlíð, ritari, og
Helgi Halldórsson, Egilsstöðúm
gjaldkeri. Til vara voru kjörnir
þeir Trausti Björnsson, Eskifirði
og Ólafur Stephensen, Eiðum.
SUMARHS 78
Nokkur sumarhús og hjólhýsi
verða se/d með eftirfarandi
kjorum.
V* greitt þegar kaup eru ákveoin
2/4 greitt í vetur, fram að afhendingu hússins Tvor
Va lánað fram á haust 1978.
Bæði sumarhúsin og hjólhýsin er hægt að sýna núna.
Vinsamlega athugið að sumarhús og hjólhýsi verða aðeins flutt inn næsta ár gegn
staðfestum fyrirframpöntunum.
GISU J0NSS0N & C0 HF
Sundaborg 41. Sími 86644.