Morgunblaðið - 13.12.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
3
Albert Nuringen, forseti borg-
arstjórnar Óslóar, afhendir
tréð.
Við afhöfnina á sunnudag.
Óslóartréð afhent að við-
stöddu mik/u fjölmenni
ÓSLÓARTRÉÐ var afhent
Reykvikingum að viðstöddu
miklu fjölmenni á Austurvelii
á sunnudag. Albert Nuringen,
forseti borgarstjórnar Öslóar,
kom hingað gagngert til þess að
afhenda tréð. 1 ræðu sinni sagði
Albert Nuringen m.a., að tréð
væri tákn vináttu þjóðanna
tveggja sem alltaf hefðu verið
vinir og nágrannar. Þá sagði
Albert einnig, að það væri sér
geysimikil ánægja að fá tæki-
færi til þess sjálfur að afhenda
Reykvíkingum þessa vináttu-
gjöf, sem hann vonaði að
treysti vináttu þjóðanna.
Fyrir hönd Reykvíkinga tók
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri vió trénu, eftir að
ungur piltur, Böðvar Péturs-
son, hafði tendrað á þvi ljósin.
Borgarstjóri þakkaði Öslóarbú-
um fyrir þennan hlýhug sem
þeir sýndu Reykvíkingum ár-
lega með slíkri gjöf.
Eftir ræður þær er fluttar
voru, söng fólk jólasálma undir
stjórn Ragnars Björnssonar
dómorganista.
Þá kom rúsínan í pylsuendan-
um fyrir yngri kynslóðina,
fríður flokkur jólasveina kom á
Austurvöll og fóru þeir upp á
þak Nýja kökuhússins við
Austurvöll og sungu jólalög við
miklar undirtektir unga fólks-
ins.
Birgir tsleifur Gunnarsson
borgarstjóri tekur við Oslóar-
trénu.
Jólasveinarnir skemmta við mikla lukku áheyrenda.
Arnarflug
í Möltuflugi
ARNARFLUG hefur tekið að sér
flug frá Valetta, höfuðborgar
Möltu, til London, Parísar, Frank-
furt, Munchen, Glasgow Trípolí,
vinar og Túnis. Samkvæmt leigu-
flugssamningi Arnarflugs og Air
Möltu hefst ieiguflugið 1. april á
næsta ári og stendur til 1. nóvem-
ber.
önnur flugvel Arnarflugs verð-
ur höfð á Möltu þennan tima og
verða flugstjórar, flugmenn og
flugvélstjórar frá Arnarflugi, lík-
legast níu talsins, en ekki er vist
um aðra áhafnarmeðlimi.
••
Okumenn
skárust
illa í
framan
TVEIR ökumenn hlutu
slæma skurði I andliti, er
bílar þeirra, jeppi og fólks-
bfll, rákust saman á Vestur-
landsvegi á móts við Blika-
staði á sjöunda tfmanum á
laugardag. Mikii hálka var
og svo virðist sem jeppinn
hafi snúizt á veginum, þvf
fólksbfllinn, sem var réttu
megin vegarins eftir árekst-
urinn, rakst f vinstri hlið
jeppans, sem valt. Fólksbíll-
inn er talinn ónýtur. Stúlka,
sem var farþegi í jeppanum,
slapp ómeidd.
Á laugardag valt jeppi við
Sandskeið, en mikil hálka
var einnig á Suðurlandsvegi.
Fjórir voru í jeppanum, en
enginn meiddist alvarlega.
Jeppinn er talsvert skemmd-
ur eftir veltuna.
Þessi
bdler
ryðvarinn
með
Bryngljáa
Nokkuð á 2 þúsund bílar á íslandi eru búnir fullkominni ryðvörn, þ e hinni hefðbundnu kvoðuryðvörn og BRYN-
GLJÁA-ryðvörn. Þessir bílar bera af öðrum, sem aka göturlands frosts og funa og þeir eru betri i endursölu
vegna þess að þeir hafa staðist betur álag veðurs og eru glaesilegri útlits en bilar sem ekki hafa verið varðir með
BRYNGLJÁA
Þegar kvoðuryðvörnin var kynnt á íslandi voru ýmsir vantrúaðir á réttmæli þess að verja í hana fé. í daq tekur
enginn við nýrri bifreið án ryðvarnar. Ýmsir hafa einnig verið vantrúaðir á BRYNGUÁA, en það hefur nú breytzt
eins og með aðrar gagnlegar nýjungar á tæknitíma 20. aldarinnar. Flest bifreiðaumboð mæla nú með þvi við
viðskiptavini sína að þeir láti verja lakk nýja bilsins með BRYNGLJÁA og pöntunarbók okkar ber þess glöggt
vitni að fólk fer að þeim ráðum.
BRYNGLJÁA-efnameðferðin er japönsk uppfinning, sem hefur á 5 árum haslað sér öruggan völl i Asiu og
vesturlöndum. BRYNGLJÁI ersamsettur úr 7 mismunandi efnum, sem ganga i samband við lakkið á bílunum
við sérstaka hitameðferð og mynda geysisterkan lofttæmdan hjúp eða filmu sem varnar tæringu þess af
völdum veðra og vinda og gefur bilnum langvarandi sigljáa án þess að bónklútur komi nokkru sinni nærri.
Eigir þú nýlega bifreið
eða bifreið í pöntun ráð-
leggjum við þér að líta við
og kynna þér Bryngljáa
GLJAINNhf
Ármúla 26 sími 86370