Morgunblaðið - 13.12.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
5
Gjafavörurnar hjá Kristjáni Siggeirssyni hf. eru valdar úr
framleiðslu heimsþekktra listiðnaðarfyrirtækja. Við mælum
með finnskum glervörum frá Iittala, þýzkum kertastjökum frá
Rondo, sænskum lömpum frá Lyktan, finnskum stálvörum
m.a. pottum frá OPA, dönskum könnum frá Stelton, að
ógleymdum vörunum frá Dansk Design. Finnsku kertin frá
Juhava eru til í úrvali. Góð gjöf sameinar nytsemi og fegurð.
Látið okkur aðstoða við valið.
„Nú dvínar
dagsins kliður,,
- síðasta bindi sjálfsævisögu Sigurbjöms i Vísi
málabaráttu, bæði þeirri, sem
fram fór bak við tjöldin, og hinni,
sem fram fór fyrir opnum tjöld-
um.
Sagt er frá verzlunarmálum,
einkanlega Verzlunarráði Islands
og Félagi matvörukaupmanna.
Sagt er frá störfum höfundar í
Niðurjöfnunarnefnd.
Fróðlegir kaflar og skemmtileg-
ir eru um hernámsárin og skipt-
um höfundar við hernámsliðið.
Þá er sagt frá Sunnudagaskóla
K.F.U.M og Kvöldskóla K.F.U.M.
og barnavinafélaginu Sumargjöf.
Þættir eru um merka menn,
eins og t.d. Bjarna Benediktsson,
Jóhannes Kjarval og séra Friðrik
Friðriksson, svo og fjöimarga
aðra, m.a. ýmsa leikara.
Þá eru birtar greinar og viðtöl
varðandi höfundinn og siðast er
niðjatal hans."
Bókin er yfir 500 bls. að stærð.
Útgefandi er Prentsmiðjan Leift-
ur h.f.
KOMIÐ er út 5. og síðasta bindið í
sjálfsævisögu Sigurbjörns Þor-
kelssonar í Vfsi, „Himneskt er að
lifa“. Titill þessa bindis er „Nú
dvfnar dagsins kliður“
A kápusíðu segir m.a.:
„Gagnrýnendum ber saman um,
að bækurnar séu fjörlega ritaðar
og fullar af lifi, enda segja þær
frá merkum mönnum og atburð-
um á miklum umbrotatimum í lífi
íslenzku þjóðarinnar.
Höfundurinn hefur fengizt við
ótalmargt um langa ævi, og er 92
ára að aldri á því ári, sem þessi
bók kemur út.
í þessu fimmta bindi kennir
margra grasa. Sagt er frá stjórn-
Frá því á laugardag hafa 13
skip tilkynnt um afla til Loðnu-
nefndar, samtals 2780 lestir, og
eru þau þessi: Sigurður RE 150
lestir, Skarðsvik SH 240, Arsæll
Sigurðsson GK 50, Húnaröst ÁR.
70, Óskar Halldórsson RE 200, Al-
bert GK 300, Fífill GK 290, Vörð-
ur ÞH 20 og Hilmir SU 280 lestir.
Einstaka loðnuskip er nú hætt
veiðum fram yfir jól, og ef veður
batnar ekki á næstu ögum, þannig
að næði fáist til veiðanna, má
búast við að flest loðnuskipin
hætti veiðunum fram yfir jól.
HÚSGflGnflVERSLUfl
KRiSTJflnS
SIGGEIRSSOnflR HF.
LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870
Sigurbjörn Þorkelsson
GODGJÖF
SAMEINAR NYTSEMI
. OG FEGURD .
Hannes Pétursson
KVÆÐASAFN
1951-1976
Ileildarútgáfa á kvœðum 11annesar frá 25 ára
skáldferlv þar sem birtast kvœði úr öllum
/jóðabókutn skáldsins, kvœði úr bókinni Ur
hugskoti, kvœði sem birst hafa í tímaritum en ekki
verið prentuð í bókum og loks nokkur áiður óbirt
kvreði. I bókinni er skrá ttm kvœðin í áiraröð og
skrá um kvœðaheili og upphafsorð í stafrófsriið.
Jóhannes Geir listmálari myndskreytti
bókina og gerði kápumynd.
Fögur og vegleg heildarútgáfa á ljóðum
eins okkar albesta skálds.
Kjörgripur á sérhverju menningarheimili.
tfií|» ■■■
ijl ; im iiiiin
W**
Bræðraborgarstig 16 Slmi 12923-19156
LOÐNUVEIÐI var frekar lítil um
helgina, en í fyrrinótt varð vart
við töluvert magn af loðnu djúpt
undan Norðurlandi, þá fengu
nokkur skip sæmilegan afla, en
mörg skipanna, sem voru að veið-
um á þessum slóðum, áttu í erfið-
leikum með að athafna sig vegna
veðurs. Urðu mörg fyrir þvf, að
næturnar rifnuðu illa, og einnig
er Morgunblaðinu kunnugt um
tvö skip, sem urðu fyrir því að
snurpugálgarnir gáfu sig, vegna
mikils álags á þá í veðrinu.
Nýr bátur til
Eskifjardar
Eskifirði 12. desembor
t GÆR kom í fyrsta sinn hing-
að til Fskifjarðar Vöttur SU
54, sem Þór s.f. hefur keypt frá
Þorlákshöfn og hét áður Jón
Sturlaugsson. Vöttur er 91
rúmlest að stærð, stálskip
smfðað í A-Þýzkalandi, skip-
stjóri er Þórir Björnsson, en
hann er jafnframt einn af eig-
endum skipsins.
Nýlega var opnuð hér
hraðhreinsun, sem ber nafnið
Bylgjan, og er hún til húsa að
Strandgötu 9b. Eigendur eru
Guðjón Jóhannsson og kona
hans. Þá hefur Trausti Reyk-
dal rakari opnað nýja rakara-
stofu og snyrtivöruverzlun í
húsnæði að Strandgötu 29.
Eindæma gott veður hefur
verið undanfarið, nánast sem á
vordegi, hægviðri og hlýindi
og jörð er alauð. Aflabrögð
hafa verið rýr, en þó hafa
togararnir aflað þolanlega, og
er Hólmanes inni með 70 tonn
í dag.
Framkvæmdum við loðnu-
verksmiðjuna miðar vel áfram
og er lokið við að steypa upp
hráefnisþró, sem áætlað er að
taki 15 þús. tonn af loðnu. Af-
köst verksmiðjunnar munu
aukast úr 450 tonnum í
1000—1100 á sólarhring
— Ævar
2800 lestir af loðnu
fengust um helgina