Morgunblaðið - 13.12.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
39
Margrét
Jónsdóttir
frá Akri
- Minning
Fædd 4. desember 1921
Dáin 5. desember 1977
Með nokkrum orðum vil ég
minnast minnar kæru vinkonu
Margrétar Jónsdóttur, en hún
andaðist á Landspítalanum hinn
5. desember. Kom það engum
kunnugum á óvart, því langt var
hið erfiða dauðastrið hennar orð-
ið.
Margrét var dóttir hinna merku
hjóna Jóns Pálmasonar alþingis-
manns og bónda frá Akri i Aust-
ur-Húnavatnssýslu og konu hans
Jónínu Valgerðar Ölafsdóttur.
Má því segja að Margrét hafi
ekki átt langt að sækja mannkosti
sem einkenndu hana og prýddu
allt hennar líf. Hjá þeim ölst hún
upp við mikið ástríki, sem hún
launaði ríkulega með því að ann-
ast þau í mörg ár meðan þeim
entist heilsa og aldur, fyrst á
Vesturgötu 12 og síðan á Vestur-
götu 19. Á heimili þeirra var oft
mjög gestkvæmt og annaðist Mar-
grét það með sinum myndarskap
og gestrisni, en hún var með af-
brigöum myndarleg til allra
verka.
A Vesturgötunni var ég tíður
gestur, þangað var ætið gott að
koma og þaðan á ég margar ijúfar
minningar. Margrét var mjög vel
gefin og glæsileg kona, framúr-
skarandi trygglynd og hlý í við-
móti. Langt er nú um liðið siðan
við kynntumst fyrst og hefur
aldrei borið skugga á vináttu okk-
Síðustu ár ævi sinnar bjó Mar-
grét með dóttur sinni, Nínu, og
tengdasyni serft reyndust henni
frábærlega vel í hennar löngu og
erfiðu veikindum. En þar sýndi
hún aðdáunarvert þrek og dugn-
að, hún var mjög sterk og kjark-
mikil er. á reyndi og er óhætt að
segja það um Margréti að hún
hafi aldrei látið erfiðleikaana
beygja sig á lifsleiðinni.
Ég vil þakka Margréti innilega
alla hennar miklu tryggð og vin-
áttu við mig og mína fjölskyldu.
Við söknuðum hennar öll mikið
er hún hætti að geta heimsótt
okkur sökum veikinda sinna. Ég
þakka henni öll liðnu árin. Minn-
ingin um góða og glæsilega konu
lifir i hugum okkar allra sem átt-
um þess kost að kynnast henni.
Innilega samúð votta ég öllum
ástvinum hennar og ættingjum,
og bið henni blessunar Guðs.
Þóra Pétursdóttir
Eföryggi
og étksturseiginleikar Yblvo eru
framúrskarcindi,
f dag auglýsa flest bifreiðaumboð
öryggi, þægindi og aksturseiginleika
bifreiða sinna. Þannig hefur Volvo
auglýst undanfarin tíu ár, enda verið í
fararbroddi hvað snertir öryggi
ökumanns og farþega.
Nú aftur á móti, auglýsir Volvo mun
betra verð en áður.
Sé gerður samanburður á Volvo og
keppinautunum, kemur í Ijós að Volvo
býður hagstætt verð, góða varahluta-
og viðhaldsþjónustu um allt land,
mjög hátt endursöluverð, og Volvo
öryggi í kaupbæti.
•miðað við gengi Skr. 1/12 '77
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200