Morgunblaðið - 13.12.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977
13
Rannsaka samband visnuveira í kind-
um og sjúkdóma í miðtaugakerfi manna
Samvinna milli íslenzkra og
bandarískra vísindamanna
Á Tilraunastöð Háskól-
ans að Keldum er nú
unnið að rannsóknum í
samvinnu við bandaríska
sérfræðinga og beinast
þær rannsóknir aðallega
að visnu, sem er hæg-
gengur veirusjúkdómur í
taugakerfi sauðfjár.
Rannsóknir þessar ann-
ast sérfræðingar Til-
raunastöðvarinnar ásamt
sérfræðingum frá Johns
Hopkins-háskólanum í
Baltimore í Bandaríkjun-
um og hafa þær staðið
yfir síðustu 4 ár.
Heilbrigðisstofnun Banda-
ríkjanna hefur styrkt þessar
rannsóknir og nemur styrkfjár-
hæðin 476 þúsund bandaríkja-
dölum, sem jafngildir um 100
mklljónum islenzkra króna á
núverandi gengi. Af hálfu til-
raunastöðvarinnar hafa unnið
að rannsóknunum og stjórnað
þeim þeir dr. Páll A. Pálsson
yfirdýralæknir, dr. Guðmundur
Georgsson læknir, og dr. Guð-
mundur Pétursson forstöðu-'
maður tilraunastöðvarinnar, og
sá sérfræðingur frá Bandarikj-
unum, er mest hefur komið við
sögu er próf. Neal Nathanson.
Hefur hann komið hingað til
lands 4—5 sinnum á ári ásamt
aðstoóarmönnum, en mjög mik-
il og náin samvinna er um
hvern einstakan lið rannsókn-
arinnar.
Á fundi með fréttamönnum
greindu sérfræðingarnir nokk-
uð frá þessum rannsóknum og
þeim árangri sem þær hafa þeg-
ar borið. Visna er einn þeirra
hæggengu veirusjúkdóma, er
dr. Björn heitinn Sigurðsson,
fyrsti forstöðumaður á Keldum,
rannsakaði á fyrstu árum til-
raunastöðvarinnar, sagði Guð-
mundur Pétursson, og á þeim
rannsóknum byggði dr. Björn
kenningar sinar um sérstakan
flokk smitsjúkdóma, hæggenga
veirusjúkdóma. Kenningar
þessar hafa vakið vaxandi at-
hygli og viðurkenningu erlend-
is, ekki sízt eftir að dr. Carleton
Gajdusek hlaut Nóbelsverðlaun
í læknisfræðu árið 1976 fyrir
rannsóknir sínar á ýmsum sjúk-
dómum í mönnum og dýrum,
sem teljast til þessa flokks.
Það kom fram að þessar at-
huganir á hæggengum veiru-
sjúkdómum hafa staðið yfir
óslitið á Keldum frá upphafi og
auk dr. Björns Sigurðssonar
hefðu unnið að þeim Guðmund-
ur heitinn Gíslason læknir, dr.
Halldór Þormar lífeðlisfræð-
ingur, Margrét Guðnadóttir
prófessor og dr. Páll A. Pálsson
yfirdýralæknir.
Markmið rannsóknanna er
einkum að finna á hvern hátt
visnuveira veldur vefja-
skemmdum í heila og mænu
kinda og bera þær niðurstöður
saman við það sem vitað er um
ýmsa sjúkdóma, sem hliðstæðir
eru eða kunna að vera, t.d. sjúk-
dóma í miðtaugakerfi manna.
Töldu sérfræðingarnir að rann-
sóknirnar hefðu gefið vísbend-
ingu um viss líkindi milli þessa
sjúkdóms í kindum og heila- og
mænusiggs eða taugalömunar
hjá mönnum og með þessum
rannsóknum væri e.t.v unnt að
öðlast frekari vitneskju um
þann sjúkdóm. Töldu þeir að
þótt rannsóknirnar hefðu ekki
endilega beina hagnýta þýð-
ingu fyrir landbúnaðinn væri
það ljóst að af þeim mætti
Dr. Páll A. Pálsson yfirdýralæknir, dr. Guðmundur Georgsson læknir, dr. Guðmundur Pétursson
læknir og prðf. Neal Nathanson frá Bandaríkjunum. Ljðsm. RAX.
draga vissar ályktanir. Þannig
hefur t.d. tekizt með beinum
tilraunum að leiða sterkar líkur
að þvi að vefjarskemmdir i
visnu stafi f.vrst og fremst af
ónæmissvörunum likamans við
veirusýktum frumum. Sé
ónæmissvörun kinda lömuð
koma vefjaskemmdir síður
fram. Þá hefur rafeindasmá-
sjárrannsókn verið beitt í
fyrsta sinn til þess að kanna,
nánar en áður var kleift, eðli
sjúklegra breytinga í miðtauga-
kerfi visnusjúklinga. Einnig
hafa áhrif aldurs á visnusýk-
ingu verið könnuð með því að
sýkja kindur á ýmsum aldri allt
frá lambsfóstrum í móðurkviði
til fullorðins fjár, og hafa við
sýkingatilraunirnar verið not-
uð um tvö hundruð fjár.
Það kom einnig fram á fund-
inum að hériendis er að finna
mun meiri og betri upplýsingar
en víða annars staðar og sagði
próf. Nathanson að tilrauna-
stöðin væri vel þekkt í heimin-
um fyrir þessar tilraunir og
aðrar, en það hefur verið nokk-
uð um það að hún hafi verið í
samstarfi við tilrauna- og rann-
sóknastofur erlendis, t.d. i
Skotlandi og á Norðurlöndum.
Um það bil 34—40 milljónum
króna af styrknum sem fyrr var
nefndur er varið tii rannsökn-
anna að Keldum, en það fé er
m.a. notað til að greiða laun
þriggja aðstoðarmanna, en svo
til allir starfsmenn tilrauna-
stöðvarinnar hafa komið eitt-
hvað við sögu í þessum rann-
sóknum. Aðspurður um hvað
tæki við er rannsóknum þess-
um lyki á næsta ári sagði Guð-
mundur Pétursson það ekki
vera fullljóst, en verkefni í
samvinnu við Norðurlönd stæði
nú yfir sem lyki á árinu 1979,
og færi það eftir því hvað bæri
að leggja aðaláherzlu á iivað
tekið yrði til við. Tilraunastöð-
in aflar sjálf nokkurra tekna
með framleiðslu sölu og bólu-
efna og lyfja og nema þær tekj-
ur um 84 milijónum á næsta ári
að þvi er áætlað en heildar-
rekstrarkostnaður er áætlaður
48 milljónir.
Alistair MacLean
FORSETARÁNIÐ
Forseta Bandaríkjanna og tveimur
arabískum olíufurstum er rænt og
krafist svimandi hárrar fjárhæðar í
lausnargjald. Foringi mann-
ræningjanna er óvenjulega gáfaður
og búinn ótrúlegri skipulagsgáfu,
enda virðist hann hafa öll trompin á
hendi, en í fylgdarliði forsetans er
einn maður á annarri skoðun . . .
„Uggvænlega spennandi, ótrúlega
hugvitssöm .. . Besta bók eftir
MacLean um langt skeið“. sunday
EXPRESS.
„ . .. bók sem er erfitt að leggja frá
sér.“ THE TIMES LITERARY
SUPPLEMENT.
„Æsandi, sannfærandi, ótrúleg
spenna.“ bristol evening post.
Hammond Innes
LOFTBRÚIN
Inni í flugvélaskýlinu heyrði ég
raddir — karlmannsrödd og kven-
mannsrödd. Lögreglan var á
hælum mér og ég yrði spurður
ákveðinna spurninga, sem mér var
óljúft að svara . . . En hvað var á
seyði á þessum eyðilega og af-
skekkta staó? Hvers vegna hvíldi
slík launung yfir því verki, sem þessi
dularfulli maður hafði þarna með
höndum? Nauðugur viljugur varð
ég þátttakandi í örlagaríku samsæri
og innvígður í leyndarmál, sem
ógnaöi lífi margra manna . . .
Hinn víðkunni metsöluhöfundur
Hammond Innes fer á kostum í
þessari snjöllu, þrauthugsuðu og
æsispennandi bók — ein af hans
albestu bókum.
David Morrell
ANGIST
Frægur blaðamaður verður til þess
með skrifum sínum að fletta ofan af
myrkraverkum harðsvíraðra
glæpamanna. Þeir hefja gegn
honum ógnvekjandi hefndarað-
geróir og þar með hefst atburðarás,
sem er gífurlega áhrifamikil og svo
spennandi aö lesandinn heldur
nánast niðri í sér andanum meðan
á lestrinum stendur.
Höfundinn þarf ekki að kynna fyrir
þeim sem lesió hafa bókina í
greipum dauðans. Hún kom út fyrir
ári og seldist upp þegar í stað.
Bókmenntatírharitið National Re-
view segir um þessa bók: „Afburða
góð .. . leiftrandi frásögn, gífurleg
spenna . . . Morrell ber höfuð og
herðar yfir flesta bandaríska sam-
tímahöfunda.“
Mary Stewart
ÖRLAGARÍKT SUMAR
Ung leikkona dregst inn í dularfulla
og ógnvekjandi atburðarás á
grísku eyjunni Corfu, sem virðist
ætla að verða í meira lagi afdrifarík
fyrir hana. En sumardvölin á Corfu
veröur henni örlagarík á annan veg
en útlit var fyrir í fyrstu, því að
hamingjan bíður hennar að lökum.
„Afar spennandi saga, sem óum-
flýjanlega hlýtur að kosta and-
vökunótt." THE GUARDIAN.
„Mjög vel gerð saga, þar sem
spennu og ást er haglega blandað
saman.“ the observer.
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156