Morgunblaðið - 13.12.1977, Page 33

Morgunblaðið - 13.12.1977, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977 33 Vilma Magnúsdóttir Hveragerði - Minning Hinn 18. növember s.l. íést í Landspítalanum frú Vilma Magnúsdóttir frá Lindarbrekku i Hveragerði, eftir erfið veikindi, er hún kenndi senmma á árinu. Síðan i júlímánuði dvaldi hún lengst af á sjúkrahúsi, þó nokkrar vikur væru hún heima á milli. Hún sýndi einstakt þolgæði i þess- ari baráttu, alltaf var svarið hið sama: „Mér líður ágætlega." Þetta svar heyrði ég síðast þrem dögum fyrir andlát hennar, en þá var hún mjög þungt haldin. Eg fór þá að kveðja hana, við vissum þáöll að hverju fór. Það er venja mín, ef ég heim- sæki sjúkra, að reyna að hafa meðferðis eitthvað er gleður, blóm, sælgæti, ávexti, kók eða annað til gamans, eftir því sem við á. Aldrei hefur mig langað meira til að hafa tiltæka gjöf, en þá er ég fór að kveðja Vilmu, en aldrei fyrr fundið hve maður er ráðþrota frammi fyrir þeim mikla mætti sem ræður komu okkar í þennan heim og einnig brottför- inni. Nú þýddi ekki að leggja pen- ingana á borðið, ekkert fékkst, sem hún gæti tekið með sér úr þessari tilveru, — ekkert nema kærleika og góðar fyrirbænir gat hún haft í veganesti i þessa ferð. Hlýleg, einlæg orð og koss á föla kinn var mín eina skilnaðargjöf til hennar. Mér fannst ég ósköp fátæk. er ég hélt heim. að geta ekkert frekar gert fyrir hana. Ég vissi vel að þetta var okkar síðasti fundur hér á jörð. Mér er rnikil eftirsjá að Vilmu, hún var minn næsti nágranni þau 7 ár er fjöl- skvlda mín hefur búið hér i Hveragerði. Haúkur eiginmaður hennar var fyrsti granninn sem ég kynntist, þau kynni spruttu af sameiginlegu áhugamáli hans og okkar hjóna. Það var æðilöngu seinna, sem ég kynntist Vilmu, þá fékk ég eitthvað lánað hjá henni, hún var með afbrigðum hjálpsöm og greióvikin kona og sVo trygg og trú þeim, er hún batt vináttu við, að ég held að slíkt sé fátítt orðió. Það var eitur í hennar beinum allt illt umtal um fólk og þeir voru ekki öfundsverðir sem fóru óvöldum orðum um vini hennar, þá varð hún ekkert mjúk á mann- inn og svörin jaínvel harðskeytt. Aldrei varð okkur sundurorða. þó báðar hefðu ákveðnar meiningar, við virtum sjónarmið hvor ann- arar og umbárum skoðunarmun- inn ef einhver var. Siðustu árin hittumst við mjög oft, jafnvel dag- lega. það fór þvi ekki hjá því að við ræddum allt milli himins og jarðar. Vilma . var mjög heimakær, heimilið, eiginmann, börn sín, tengdabörn og barnabörn bar hún öllu fremur fyrir brjósti. Hún var sérlega þrifin og húsleg og í litla húsið þeirra er alltaf gott aó koma. Löngum stundum, nú síð- ustu árin sat hún við útsaum eða prjónaði falieg föt á barnabörn, hlustaði hún þá gjarnan á fallega tónlist, sem hún hafði mikið yndi af. Fyrr á árum tók hún virkan þátt í leikstarfsemi og tókst það með ágætum, er mér sagt. Minnt- ist hún þeirra ára með gleði og kunni frá broslegum atvikum að segja frá þeim störfum. Vilma stundaði vinnu á Dvalar- heimilinu Asi í mörg ár, nær tvo áratugi og veit ég, að störf hennar þar voru vel metin, því samvizku- semi hennar og trúmennsku var viðbrugðið. Hún bar mjög hlýjan hug til stofnunarinnar og for- stöðufólksins þar og vinnufélag- anna. Oft undraði mig hve dugleg þessi litla granna kona var að sækja vinnu sína, ekkert aftraði henni, veður né vindar svo fremi að heilsan leyfði, hef ég þó grun urn að síðustu árin hafi þróttur- inn verið þverrandi og ærna hörku hafi þurft til'að láta ekki deigan síga. en uppgjöf var ekki að hennar skapi, hún ólst upp við þann tiðaranda að ekki dugði ann- að en skila vinnunni fljótt og vel af hendi. Vilma var fædd á" Isafirði 26. marz 1910. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Gestsdóttir og Magnús Hannebalsson. Vilma átti stóran hóp systkina, se-m hér verða ekki upp talin. Hún var sin æskuár á ísafirði og unni þeim stað mikið alla tið. Ung að árum kynniist hún eiginmanni sínum Hauki Baldvinssyni frá Akureyri og gengu þau í hjónaband 2. april 1939. Hófu þau búskap í Hyera- gerði, þar sem hann stundaði þá atvinnu er hann hafói numið til í Danmörku, garðyrkju, en hann var einn hinn fyrsti hérlendis, sem lærði ylrækt og vann hér ásamt fleirum brautriðjendastarf á því sviði. Þau eignuðust snemma eigið fyrirtæki, gróðrar- stöóina Lindarbrekku og bjuggu þar alla tíð. Þeim var fimm barna auðið og eru öll á lífi, þau eru Svavar kvæntur Erlu Guðmunds- dóttur, búa í Hveragerði, Örn kvæntur Sigríði Þorsteinsdóttur, búa á Hvolsvelli, Edda gift Scott bæjar 17. növeinber s.l. lagði for- seti hæjarstjörnar fram eftirfar- andi ályktun um þjóðveigi í Garðabæ: „Á þessu ári hafa nokkrar minniháttar lagfæringar verið gerðar á Hafnarf jarðarvegi. Eru þær mjög til bóta og staðfesta þá skoðun bæjarstjórnarinnar, að unnt sé að auka verulega flutningsgetu Hafnarfjarðarveg- ar og umferðaröryggi þar. án þess að efnt sé til gerðar stórbrotinna tengimannvirkja." í framhaldi af því ályktaði bæjarstjórn Garðabæjar eftirfar- andi: 1) Lokið verði lagningu Reykjanesbrautar á milli Blesu- grófar og Keflavíkurvegar við Þórsberg og verkinu hraðaó eins og frekast er kostur. Þessi kafli Cunningham býr í Ameríku, Hrafn kvæntur Guðrúnu Georgs- dóttur, býr í Hveragerði go Svava Guðrún yngst býr ásamt litlu dótt- ur sinni Vilmu Kristinu í foreldrahúsi. Allt er þetta ágætis- fólk og bar Vilma þeirra hag mjög fyrir brjósti og barnabörnin tiu talsins voru öll í miklu dálæti hjá ömmu sinni. Enga fórn taldi hún of stóra þeim til handa. Ég held ég sé ekki að bregðast trausti hennar þó ég segi hér eitt dæmi af hennar stórbrotna hugarfari. Eitt sinn er hún var stödd heinta, eftir að sjúkrahúsvist hennar hófst í sumar hafði ég orð á því, hve veikindi hennar væru búin að vera erfið, hún virtist þá á batavegi, þá svaraði hún: „Ekki skaltu vorkenna mér, ég mun ekki kvarta, því kannski er Guð nú einmitt að bænheyra mig". Ég varð undrandi á svarinu, en þá bætti hún við: „Eg bað til Guðs þegar tengdadóttir mín var svo veik í vor, að gefa henni böt, en leggja heldur eitthvað á mig í staðinn." Þarna var henni rétt lýst. Jú. tengdadóttirin fékk heilsu- bót, sú bæn var heyrð. En ég held nú að Vilma mín blessuð hafi þá löngu áður verið orðin sjúk af sinu banameini, en bænin var jafn falleg fyrir því. Þaó ber vott myndi létta ntjög umferð af Hafnarfjarðarvegi, sérstaklega þeirri þungaumferð, sem mestum erfiðleikum veldur. Jafnframt styttist þá verulega leið þeirrar untferðar, sem á erindi á milii svæða, annars vegar sunnan Kópavogs og hins vegar Suður- lands- og Vesturlandsvegar og eystri hverfa Kópavogs og Reykjavíkur. 2) Hafnarfjarðarvegur verði jafnframt lagfærður á milh Arnarness og Engidals, enda gæti vegurinn orðið tvær :kreinar í hvora átt. án þess að löðir við veginn verði rýróar. Samstillt um- ferðarljós verði sett upp við Vífilsstaðaveg og Lyngás/ Lækjarfit. Lokað verði öðrum meiriháttar tengingum við veginn hennar miklu vjljafestu að eftir að hún vár orðin veík i mai í vor, tók hún sér ferð á hendur og fór i fylgd Svövu dóttur sinnar til Ameriku að heimsækja Eddu dóttur sina og fjölskyldu, en tengdason sinn hafði hún ekki áður hitt. Dvöl hennar á hinu góða heimili þeirra hjóna varð henni til mikillar gleði, minntist hún ferðarinnar ljómandi af ánægju. Þegar Vilma kom heim í síðasta leyfið af spítalanum, sat ég hjá henni hverja stund er ég gat við komið, hún trúði enn á bata og ræddum við um framtíð- ina og vorið og hvað það bæri í skauti sér. Talið barst að því -að vera kynni að minir hagir breytt- ust og fjölskylda mín flytti jafn- vel frá Hveragerði. Þá stundi hún vió og sagði: „Onei, þá fer ég líka." Hún er nú farin á undan mér frá Hveragerði, enda verð eg kannski ellidauð hél-. „enginn ræður sinum næturstað". Ég trúi að Vilma sé nú komin i veriild vors og blónta. megi göður Guð blessa vegferð hennar þar. Einnig bið ég góða vætii að blessa og styrkja Hauk. ntinn kæra vin og börn þeirra öll. Fjölskylda mín þakkar ykkur vináttuna á liðnunt árum og vottar ykkur innilegustu samúð. á þessum kafla, nema við Goða- tún, þar sem umferðartenging yrði aðeins við austustu akrein vegarins. 3) Arnarnesvegur verði lagður. a.m.k. á milli Hafnarfjarðarvegar og væntánlegrar Bæ.jarbrautar I Garðabæ. Með þvi að tengja Bæjarbraut við Arnarnesveg myndi verulegur hluti þeirrar umferðar, sem nú fer á Hafnar- fjarðarveg um Vífilsslaðaveg fær- ast á þennan veg og létta umferð af' gatnamótum Hafnarfjarðar- vegar og Vífiisstaðavegar. 4) Garðabær haldi frá landi næstu árin fyrir hugsanlegan veg út á Alftanes, en nýs vegar gæti orðið þörf. vegna væntanlegrar byggðar á Álftanesi siðar. Framhald á bls. 31 Sigrún Sigfúsdöttir. Lokið verði við lagningu Reykjanesbrautar sem fyrst — segir í ályktun bæjarstjórnar Garðabæjar Á FUNDI hæjarstjórnar Garða- ilistaverk QJCfm) Ný plata meó vísum úrVísnabókinni Bræóraborgarstíg 16, Sími 12923-19156 Frábært framiag Gunnars Þórðarsonar, Björgvins Halldórssonar og Tómasar Tómassonar. Vísurnar, þulurnar og þjóðkvæðin, sem Vísnabókin geymir, eru löngu orðin alþjóðareign. Fyrri platan með visum úr Vísnabókinni, EINU SINNI VAR, naut meiri vinsælda en dæmi eru til um íslenska hljómplötu. Óhætt er að fullyrða, að nýja platan, ÚT UM GRÆNA GRUNDU, er ekki síður líkleg til vinsælda og langlífis en hin fyrri. VISNABÓKIN er nýkomin útí 6. útgáfu og hafa þá verið prentuð af henni yfir fjörutíu þúsund eintök, enda er þessi afar vinsæla bók löngu .orðin sjálfsögð eign á heimilum landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.