Morgunblaðið - 13.12.1977, Side 47

Morgunblaðið - 13.12.1977, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1977 47 Stjórn Frasers vann stórsigur Malcolm Fraser og kona hans eftir kosningasigurinn. Lakerf erdir til Los Angeles London, 12. des. AP. Sydnev — Canberra, 11. des. AP. ÞEGAR um þriðjungur at- kvæða hafði verið talinn í Ástralíu á mánudagsmorg- un var Ijóst orðið að stjórn fhaldsmanna og frjáls- lyndra mundi vinna stór- sigur. Leiddu tölvuút- reikningar í Ijós að stjórn Frasers kæmi til með að vinna að minnsta kosti 42 sæta meirihluta í neðri deild þingsins, þar sem sitja 124 þingmenn. Sama stjórn naut 55 sæta meiri- hluta á liðnu þingi en þá skipuðu 127 þingmenn deildina. Sigur Frasers staðfestir þá hægrisveiflu sem varð í áströlsk- um stjórnmálum 1975 en þá hafði stjórn Verkamannaflokksins ver- ið við völd í þrjú ár og getið sér misjafnt orð. Ef spár tölvunnar reynast sannar mun hér vera um að ræða ann'an mesta meirihluta er nokkur stjórn hefur notið í sögu Ástralíu. Eftir að hafa viðurkennt ósigur- inn tilkynnti formaður Verka- mannaflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, Gough Witlam, að hann ætlaði að segja af sér formennsku i flokknum. A blaða- mannafundi i Melbourne skýrði Fraser kampakátur frá því að sig- urinn mætti vafalitið þakka ágæti CARL Gustav Svfakonungur sæmdi á sunnudagskvöld Nóbels- verðlaunahafa í bókmenntum, eðlisfræði, efnafræði, læknis- fræði og hagfræði gullorðum og heiðursskjölum. Voru meira en 1700 gestir viðstaddir athöfnina, þar á meðai sænska konungsfjöl- skyldan og ríkisstjórnin, í tón- listarhöllinni í Stokkhólmi. Að at- höfn lokinni voru verðlauna- hafarnir heiðursgestir í veizlu i ráðhúsinu þar sem fluttar voru þakkarræður. Voru allir verð- launahafarnir viðstaddir að undanskildu spænska skáldinu VEÐUR víða um heim New York 11. des. AP Staður hiti Amsterdam 8 súld Aþena 8 skýjað Beirut 20 skýjað Belgrad + 1 heiðskírt Berlin 3 rigning Briissel 10 skýjað Buenos Aires 32 heiðskirt Kairo 23 skýjað Chicago + 10 skýjað Kaupmannah. 3 rígning Frankfurt 6 skýjað Genf 4 skýjað Helsinki + 1 skýjað Lissabon 16 rigning London 11 sólskin Los Angeles 17 skýjað Madrid 11 skýjað Montreal + 20 heiðskfrt Moskva + 11 heiðskfrt New York + 4 skýjað Ósló O snjókoma Parfs 12 skýjað stjórnarstefnu sinnar þótt þurft hefði að taka erfiðar ákvarðanir. Þegar þriðjungur 8.5 milljóna atkvæða hafði verið talinn hafði stjórn Frasers unnið 72 þingsæti og Verkamannaflokkur 32.1 kosn- ingur til öldungadeildar þingsins, þar sem um 64 sæti er að ræða, hafði stjórn Frasers, þegar hér var komið f talningu, aðeins nauman meirihluta yfir stjórnar- andstöðu, en ekki er unnt að spá um úrslit að svo stöddu þar eð kosningafyrirkomulag er annað við' kosningar til öldungadeildar. öldungadeildin er valdaminni en neðri deildin, en getur þó neitað að samþykkja frumvarp stjórnar- innar. Því var spáð á mánudags- morgun að flokkur demókrata, oft kallaður flokkur chippokrata eft- ir leiðtoga sinum, Don Chipp, hafði unnið 10 af hundraði í öld- ungadeildinni, og geta þau úrslit haft mikilvæg áhrif á valdastöð- una þar. Á síðasta þingi hafði samsteypustjórn Frasers 36 sæti í öldungadeild, Verkamannaflokk- ur 27 og einn utanflokka. Haft var eftir fyrrverandi forsætisráð- herra, John Gorton, er laut i lægra haldi fyrir Fraser i valda- átökum milli stjórnarflokkanna, að ef demókratar næðu umrædd- um sætum í öldungadeildinni gæti það orðið til að halda Fraser og „sveinum hans“ í skefjum. „Ef Fraser og lýður hans hefði undir- tökin í neðri deildinni og gæti ráðskazt með öldungadeildina líka yrði honum ekkert að fyrir- Vieente Aleixandre, er var heima við samkvæmt læknisráði. Elzti Nóbelshafinn I ár, við- staddur á sunnudagskvöld, var Harvardprófessorinn John van Vleck, sem er 78 ára gamall og hlaut verðlaunin i eðlifræði ásamt fyrrverani nemanda sínum, dr. Philip Anderson, og Sir Nevill Mott, prófessor í Cambridge. Voru' þeir verðlaunaðir fyrir framlög er greitt hafa fyrir þróun tölvuminna, vasareiknivéla og tækja er hagnýta sólarorku m.a. Verðlaunin í efnafræði hreppti stöðu og hann gæti vissulega orð- ið hættulegur," sagði hann. Líklegur arftaki Witlams sem formaður Verkamannaflokksins er talinn vera Bill Hayden, en hann beið nauman ósigur fyrir hinutn fyrrnefnda í kosningum til formennsku í flokknum í maí sl. Hayden er 44 ára gamall og hefur getið sér orð sem glúrinn fram- kvæmdastjóri og fjármálamaður. Hann fór með embætti öryggis- málaráðherra í stjórn Witlams, er kom til valda 1972, en tók siðar við embætti hagsýsluráðherra. I stjórnarandstöðu hefur Hayden verið talsmaður flokksins i hag- þróunar- og varnarmálum. Keppi- nautur Haydens er Lionel Bowen, 55 ára og fyrrum yfirmaður pósts- ogsímamála. Sú ákvörðun Frasers að efna til almennra kosninga siðastliðinn laugardag stangaðist á við skoðan- ir flokksbræðra hans og úrslit skoðanakannana. Hann hefur greint frá að ástæða hans hafi verið það hugboð að stjórn hans tapi vinsældum ef svo fer fram sem horfir i efnahagsmálum á næsta ári, en verðbóiga nemur nó 13.1 af hundraði á ári og eru nærri sex af hundraði atvinnu- lausir. Hefur Fraser nú lofað þvi að sýna verkalýðsfélögunum hörku, takmarka sóun rikisfjár- muna, verja ástralskan iðnað og hvetja til útflutnings á úranium, en það er mikið þrætuepli í Ástraliu nú. prófessor Ilya Prigogine, sem starfar í háskólanum í Briissel, fyrir rannsóknir í varmaorku- fræði. Prigogine er fæddur i Moskvu en hefur búið i Belgiu síðan hann var þriggja ára. Nóbelsverðlaun i læknisfræði féllu i skaut prófessor Rosalyn Yalow í New York fyrir rannsókn- ir er hafa gért kleift að finna hormóna í litlu magni í vefjum likamans, en verðlaununum með Yalow deila Orger Gulliemin, San Diego, Kaliforníu, og Andrew Sheally, New Orleans, en hvor um FREDDIE Laker framkvæmda- stjóri „fluglestarinnar" milli London og New York, tilkynnti f vikunni að flugfélag hans hygðist efna til nýrra fluglestar á milli London og Los Angeles. Fargjöld á þessari flugleið verða svo til helmingi ódýrari en áætluð vetrarfargjöld á milli þess- ara borga hjá öðrum flugfélögum. Laker sagði að fyrirtæki sitt Lakerflugfélagið, hefði sótt um sig hefur uppgötvað hormónalyf, sem nauðsynleg eru vexti líkam- ans, endurnýjun og efnabreyting- um i honum. Tveir prófessorar, sem komnir eru á eftirlaun, fengu verðlaunin í hagfræði. Eru það þeir James Meade, Cambridge, og Bertil Ohlin, Stokkhólmi, en þeir hafa sett fram sígildar kenningar um alþjóðaviðskipti. Þá fóru einnig fram verðlauna- afhending friðarverðlauna Nób- els á sunnudag, en eins og kunn- Framhald á bls. 28. leyfi til brezku flugmálayfirvald- anna um að stofna til nýrrar flug- lestar milli Los Angeles og Lond- on og yrði hér um daglegt flug að ræða. Sagði Laker að fluglest sem þessi væri happafyrirtæki og það sem koma skyldi. Sagðist hann ennfremur vona að leyfi frá brezkum flugyfirvöldum fengist innan sex mánaða. Sagði Laker að fargjald aðra leiðina milli Los Angeles og Lond- on mundi kosta 250 dali. En á leiðunum milli London og New York, sem hófust 26. september s.l., væri matur, drykkur og kvik- myndasýningar ekki innifalin i fargjaldinu. Fluglest Lakers milli London og New York olli þvi að flugfélög sem fljúga sömu leið neyddust til að lækka fargjöld sín ijæstum til jafns við Lakerfargjöldin. Laker sagði að á þeim ellefu vikum, sem fluglestin hefði verið starfrækt, hefðu 42.685 manns flogið með henni yfir Atlantshaf- ið og að nettógröðinn næmi um eða yfir 500 milljónum dala. Lakerflugfélagið hefur enn ekki sótt um leyfi til bandarískra flugyfirvalda um leyfi til fluglest- ar milli London og Los Angeles. „Þetta er siúkt fólk 99 sagði lögreglumaður um andófsmenn á Pushkin-torgi Moskvu — New York, 11. des. AR Reuter. MIKIÐ bar á hátfðlegum yfir- lýsingum og athugasemdum af hálfu opinberra aðila, fjöl- miðla og annarra beggja vegna Atlantshafsins sl. laugardag, en þá voru 29 ár liðin frá þvf að Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér mannréttindayf irlýsingu sfna. 1 sovézkum blöðum er farið fögrum orðum um mannrétt- indadaginn og kemur þar m.a. fram, að sovézkir borgarar njóti ótakmarkaðs frelsis. t verkalýðsbiaðinu „Trud“ segir, að Bandarfkin, „sem þykist vera leiðandi afl f hinum al- ræmda „frjálsa heimi" hafi brotið lýðræðislegan rétt borg- ara á kerfisbundinn hátt og skert frelsi þeirra. Hafi Banda- rfkin einnig neitað að skrifa undir alþjóðlegan sáttmála um mannréttindi. Er f mörgum blöðum rætt um áróður heims- valdasinna, er brigzli Sovét- mönnum um að troða á mann- réttindum. „Hin nýja stjórnar- skrá Sovétrfkjanna sýnir og sannar að hugmyndir um frelsi, mannréttindi, lýðræði og félagslegt réttlæti hafa aðeins raunverulega merkingu innan ramma sósfalismans,“ segir í Pravda, málgagni kommúnista- flokksins. Það kom fram hjá Nóbelshaf- anum Andrei Sakharóv í dag, að á sama tíma og þessar hástemmdu yfirlýsingar voru birtar hafði sovézka öryggislög- reglan KGB meinað meira en 20 andófsmönnum að taka þátt í friðsamlegri mótmælasam- komu á Pushkintorgi í tilefni dagsins. Ekki varð þó komið í veg fyrir að af samkomunni yrði, en það hefur verið venja baráttumanna fyrir mannrétt- indum í Moskvu um 11 ára skeið að safnast saman til að minnast yfirlýsingar SÞ á torgi þessu, þar sem skáldið fræga, sem torgið er kennt við, mót- mælti harðstjórn keisarans á síðustu öld. Munu um 25 manns hafa safnazt saman þegar lög- regla skarst i leikinn fimm min- útum síðar. „Þetta er sjúkt fólk," sagði lögreglumaður við vitni að samkomunni. Að sögn Sakharovs sótti hann sjálfur ekki samkomuna né var honum varnáð að yfirgefa heimili sitt. Hann nefndi Georgy Vladimov, formann Moskvudeildar Amnesty Inter- national, og eiginkonur andófs- mannanna Yuri Orlov og Alex- ander Ginzburg, sem nú eru í fangelsi, i hópi þeirra er lög- regla setti í heimilisvarðhald á laugardag. „Það er þannig sem sovézk yfirvöld láta í ljós skoð- un sína á afmælisdegi mann- réttindayfirlýsingar Samein- uðu þjóðanna," sagði Sakharov. Samkvæmt upplýsingum brezka blaðsins Sunday Times hafa stjórnvöld i Bandarikjun- um, Bretlandi og öðrum vest- rænum löndum varað Sovét- menn við að leiða sovézka and- ófsmenn fyrir rétt. Segir blaðið að öll löndin hafi látið f veðri vaka að láti þeir ekki af of- sóknunum, kunni Helsinki- sáttmálinn að verða „endur- skoðaður". Þeir andófsmenn sem fyrst og fremst er átt við eru Anatoly Sharansky, Yuri Orlov og Alexander Ginzburg, en þeir eru allir félagar í Helsinkihópnum svonefnda, er settur var á laggirnar til að fylgjast grannt með mannrétt- indamálum í Sovétrikjunum. Segir í blaðinu að Carter Bandarfkjaforseti hafi varað Sovétmenn við „alvarlegum afleiðingum" málsóknar á hendur Sharanskys. Fjögur norsk kvennasamtök, er að stendur hálf milljón kvenna, fóru þess á leit við Brezhnev, forseta Sovétrikj- anna, á laugardag að látnar yrðu lausar fimm sovézkar kon- ur, er voru fangelsaðar fyrir afskipti af stjórnmálum. Starfs- menn sendiráðs Sovétrfkjanna í Ósló neituðu hins vegar að veita viðtöku bréfi með undir- skriftum kvennanna. A laugardagskvöld voru haldnir tónleikar f samkomusal SÞ i New York, þar sem léku tónlistarmenn frá Indónesiu og Júgóslavíu. Við það tækifæri hélt Júgóslavinn Lazar Mojsov, forseti yfirstandandi þings, ræðu, þar sem hann hvatti til þess að i mannlegu samfélagi væri nú kominn tími til að endi væri bundinn á brot á mann- réttíndum i sumum aðildar- landanna fyrir fullt og allt. Nóbelsverðlaun afhent Ósló —Stokkhólmi. 10. des. AP — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.