Morgunblaðið - 31.01.1978, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANUAR 1978
Stirlitz: var hann Abel?
Miiller yfirmaður Gestapo.
Sovézki njósnamyndaflokk
urinn „Sautján svipmyndir"
tirlitz og
SOVÉZKI njósnamyndaflokkur-
inn „Sautján svipmyndir að vori“
er nú liðlega hálfnaður og hefur
hann vakið töluverða athygli þótt
ýmsum finnist hann nokkuð frá-
brugðinn vestrænum þáttum
slfkrar gerðar. Myndaflokkurinn
þykir gefa sannferðuga lýsingu á
því sem honum er ætlað að tjá og
það vekur og eftirtekt að Rússar
gera ekki skrfmsl úr ýmsum
þeirra nasista sem við sögu koma,
heldur draga oft fram mannekju-
legar hliðar þeirra.
Aðalpersónan er Stirlitz, höfuð-
maður í SS. Það mun vera út-
breidd skoðun i Sovétríkjunum
að Stirlitz sé í raun og veru
meistaranjósnarinn Rudolf Abel
sem Bandaríkjamenn skiptu á
fyrir Powers njósnaflugmann
sinn hinn 10. febrúar 1962.
Sé þarna rétt til getið verður
það að teljast markvert og
væntanlega hafa Sovétar eitthvað
fyrir sér i lýsingu á ferli Abels i
heimsstyrjöldinni siðari. Það má
teljast markvert líka fyrir þá sök
að mjög erfitt hefur reynzt að afla
sannferðugrar vitneskju um hvar
Abel hélt sig á stríðsárunum.
Ævisagnaritarar sem hafa skrifað
um hann bækur hafa haft á litlu
að byggja og rekið sig á hindranir
er þeir hafa reynt að komast að
þvi hvar hann hélt sig m.a. í stríð-
inu. Að vísu er nokkurn veginn
öruggt að Abel kom til Kanada
frá Þýzkalandi 1948 og sté á land í
Quebec, en vestrænar heimildir
hafa ekki sannanir fyrir veru Ab-
meistaranjósnarinn
Abel einn og
sami maðurinn^
Powers látinn iaus
U-2 flugmanninum sleppt i skiptum
fyrir rússneskan njósnara
Moskvu og Berlín, 10. febr.
(AP)
FRANCIS Gary Powers,
flugmaðUr U-2 þotunnar, sem
skotin var niður yfir Sovét-
ríkjnum 1. mai 1960, var í
dag afhentur bandarískum
hernaðaryfirvöldum í Berlín.
Var hann látinn laus úr
fangelsi Rússa í skiptum fyr-
ir Rudólf Abel ofursta, sem
dæmdur var til 30 ara fang-
elsisvistar í Bandaríkjunum
árið 1957 fyrir njósnir í þágu
Sovétríkjanna. Powers er nú
á leið til Bandaríkjanna. —
Fangaskiptin fóru fram á
Glienicke-brúnni í Berlín kl.
7.15 í morgun (ísL tími).
Powers dvaldist aðeins
skamma stund í Berhn, en
hélt þaðan flugleiðis til Wies
baden. Flugvöllurinn þar var
afgirtur meðan Powers var
þar. Var hann fluttur um
borð í eina af flugvélum
bandaríska hersins, sem hélt
þegar af stað til Bandarikj-
anna. Þegar þangað kemur
mun Powers fara til for-
eldra sinna áður en rann-
sókn hefst í máli hans í
Bandaríkjunum.
Flug Powers vakti alheimsat-
hygli á sínum tíma. Skómmu eft-
ir að U-2 þota hans var skótin
niður yfir Sovétríkjunum 1. mal
1960 átU að hefjast í Paris ráð-
stefna þeirra Eisenhowers Banda
ríkjafórseta, Macmillans forsset-
isráðherra Breta Og KrúsjeffS
forsætisráðherra Sovét -ikjanna.
En 1. maí, þegar ráðstefnan átti
að hefjast, hélt Krúsjeff fund
með fréttamönnum og réðist harð
lega á Bandarík j amenn fyrir
njósnir. Noitaði hann að ræða við
Frásögn Mbl. af því þegar skipt var á þeim Powers njósnaflugmanni á U-2vélinni og Abel í febrúar 1962.
Adolf
Hitler