Morgunblaðið - 08.02.1978, Page 2
2
MORGUNBlvAÐlÐ, MIÐVIKUDAGUR 8.-FEBRÚAR 1978.
Vængir leigja eða
kaupa nýjaflugvél
Fimm ftugmenn ráðnir í vor
FLUGFÉLAGIÐ Vængir
hefur nú auglýst eftir flug-
möhnum og fleira starfs-
fólki og ennfremur er í bí-
gerö að félagið kaupi eða
leigi eina flugvél til við-
bótar þeim sem fyrir eru,
sökum mikilla anna sem
framundan eru hjá félag-
inu í sumar. .
Jónas Sigurðsson skrif-
stofustjóri Vængja tjáði
Morgunblaðinu í gær, að
sem kunnugt væri hefðu
Vængir nú um skeið verið
að endurnýja flugvélar sín-
Varðskip dró
Hörpu í var
ÞEGAR loðnuskipið Harpa RE
var að loðnuveiðum um 65 mílur
NNV af Langanesi í fyrrakvöld
fékk skipið nótina I skrúfuna og
varð að fá aðstoð varðskips. Varð-
skipið dró Hörpu f var vestan við
Melrakkasléttu, en þar fór kafari.
sem er á Hörpu, niður og skar úr
skrúfu skipsins og tók verkið
milli 2 og 3 klukkustundir.
Þegar búið var að skera garnið
úr skrúfunni, hélt Harpa að Nor-
global, sem liggur undir Snartar-
staðanúp í Öxarfirði og landaði
350 lestum, sem skipið var búið að
fá áður en nótin för í skrúfuna.
Q
INNLtrdT
ar, og væri félagið nú með
tvær Twin Otter og tvær
Islander vélar í förum til
hinna ýmsu staða innan-
lands.
„Það liggur fyrir að í
sumar veróur mjög mikið
um verkefni fyrir flugvél-
arnar. Það hefur mikið ver-
ið um pantanir erlendis frá
með ferðamenn eins og t.d.
f sólarlagsferðir og er þetta
árangur tveggja ára kynn-
ingarstarfsemi Vængja er-
lendis, sem nú er að skila
sér.“
Þá sagði Jónas, að félagið
þyrfti nú að ráða 5 flug-
menn og flugstjóra, sem
þyrftu að geta hafið störf í
marz, og eins yrði ráðið
fólk í flugumsjón, til skrif-
stofustarfa og í fleiri störf.
„Við erum ennfremur að
athuga með kaup á nýrri
flugvél eða leigu á vél í
sumar. Það er mikið fram-
boð af vélum víðsvegar í
heiminum, en okkar vanda-
mál er fyrst og fremst nýt-
ingin á vélunum yfir vetr-
artímann. Að sumri til eru
Vængir með áætlunarferð-
ir til 15 staða á landinu, en
þetta breytist allt yfir vet-
urinn og það sem verra er,
aðeins einn flugvöllur, sem
við notum hvað mest, er
upplýstur, þ.e. á Blönduósi.
Því verður flugtími okkar í
skammdeginu yfirleitt
mjög stuttur á degi hverj-
um.
Frá skákmótinu í gærkvöldi. Það virðist sem Ögaard sé ekki með hugann við taflið,
enda notar Friðrik tækifærið og „dyttar að“ stöðunni.
Framleiðsluráð og sexmanna-
nefnd sýknuð af ákæru ASI
Málflutningur vegna verðhækk-
ana á landbúnaðarvörum 1976
FRAMLEIÐSLURAÐ land-
búnaðarins og sexmannanefndin
hafa verið sýknuð fyrir bæjar-
þingi Reykjavfkur af ákæru
Alþýðusambands tslands í máli
sem ASt kærði 2. nóv. 1976 vegna
verðhækkana á landbúnaðarvör-
um, en ASt taldi þá verðhækkun
ólöglega.
Stefnukröfur í málinu voru
þessar:
1. Að dæmt verði, að meðferð
Karpov fékk „skák-
Oskarinn” í 5. sinn
ANATOLY Karpov, heims-
meistari í skák, var í gær
kosinn bezti skákmaður
ársins 1977 og er það í
fimmta skipti óslitið, sem
hann hlýtur „Óskarsveró-
laun“ alþjóðasambands
skákblaðamanna.
55 blaðamenn greiddu at-
kvæði og hlaut Karpov 623
stig. Næstur kom Korchnoj
með 619 stig og Oleg Rom-
anichin var kjörinn þriðji
bezti skákmaður síðasta árs
með 433 stigum.
í fjórða sæti varð Mikael
Tal, Sovétríkjunum, meö
383 stig, Tony Miles, Eng-
landi, fékk 348 stig, Bent
Larsen, Danmörku, fékk
340 stig, Boris Spassky,
Sovétríkjunum 292 stig.
Vlastimil Hort, Tékkósló-
vakíu, 241 stig, Lajos
Portisch, Ungverjalandi,
220 stig, og Tigran Petro-
sjan, Sovétríkjunum, 96
stig.
Þeir, sem greiddu atkvæði, voru
frá 20 löndum; V-Þýzkalandi, Hol-
landi, Spáni, Belgíu, Austurríki,
Danmörku, Englandi, Svíþjóð,
Frakklandi, Noregi, Singapore,
Sviss, Kanada, Bandaríkjunum,
Astraliu, Ungverjalandi, Indó-
nesíu, Finnlandi, S-Afríku og
Grikklandi.
Fyrri „Óskarshafar" eru: Bent
Larsen 1965, Spassky 1968 og
1969, Fischer 1970, 1971 og 1972
og Karpov 1973 og síðan.
framleiðsluráðs landbúnaðarins
og Sex-mannanefndar á verð-
ákvörðunum, sem gerðar voru
hinn 8. mars, 16. mars, 19. mars og
20. mars 1976 og ákvörðunin um
hækkunina sé ógild og andstæð
ákvæðum 6. gr. 7. gr og 9. greinar
laga nr. 101/1966.
2. Að dæmt verði, að hækkunin
frá grundvelli 1.12. 1975 til 22.3.
1976 kr. 170.540.00 verði dæmd
ógild og andstæð 1. mgr. 9. grein-
ar laga nr. 101/1966.
3. Að Stefndu verði dæmdir til
greiðslu málskostnaðar að mati
réttarins.
Við munnlegan málflutning
breytti stefnandi kröfum sínum
með samþykki lögmanns stefndu
og voru dómkröfur stefnanda eft-
ir breytingu þessar:
1. Að dæmt verði, að ákvörðun
sexmannanefndar um hækkun á
verði landbúnaðarvar um kr.
170.540.00, birt og með aug-
lýsingu Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, dags. 23. mars 1976, í
Lögbirtingablaði nr. 29, hinn 14.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Tveir listar í
stiómarkjöri
Fannfergi í New York:
200 útlendingar
tepptir í Rvík
LIÐLEGA 200 farþegar
Flugleiða á leið til New
York hafa verið tepptir í
Reykjavík sfðustu tvo daga
vegna mikils fannfergis í
New York sfðan á mánu-
dag, en áætlað er að reyna
flug vestur um haf í dag.
Snjóskaflar allt að tveggja
metra hæð mynduðust víða
í New York, en í gær datt
skafrenningurinn niður og
leit því betur út með flug.
UM NÆSTU helgi á að
fara fram kosning til
stjórnar Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Að þessu sinni verða tveir
listar í kjöri, að því er
Morgunblaðinu var tjáð í
gær. Annars vegar er listi
borinn fram af uppstilling-
arnefnd félagsins, og hins
vegar listi, borinn fram af
Gunngeiri Péturssyni og
fleirum. '
Almennur félagsfundur í
Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar hefur verið
auglýstur á vinnustöðum
borgarinnar. Verður fund-
urinn haldinn í kvöld á
Hótel Sögu. Framsögu-
menn á fundinum verða
formannsefni beggja list-
anna: Þórhallur Halldórs-
son, núverandi formaður
félagsins, og Gunngeir
Pétursson.
apríl 1976, verði dæmd andstæð 1.
mgr. 9. gr. laga nr. 101/1966 og
óheimilt að láta hana koma til
framkvæmdar 24. mars 1976.
2. Að stefndi verði dæmdur til
að greiða stefnendum málskostn-
að eftir mati réttarins.
Stefndu gerðu þær dómkröfur
að kröfum stefnanda verði hrund-
ið, en í því felist sýkna til handa
stefndu, sem auk þess krefjast
málskostnaðar úr hendi stefn-
anda að mati bæjarþingsins.
Framhald á bls. 20.
Sérfræðing-
ar Orkustofn-
unar fá laun
sín greidd
LAUNAMÁL þeirra sér-
fræðinga Orkustofnunar,
sem ekki fengu laun sín
greidd um síðustu mánaða-
mót hafa nú verið lagfærð
og er unnið aö leiðréttingu
í launadeild fjármálaráðu-
neytisins, sagði Þóroddur
Th. Sigurðsson settur
orkumálastjóri þegar
Morgunblaðið spurðist
fyrir um hvort nokkrir sér-
fræðingar stofnunarinnar
hefðu fengið laun sín
greidd.
Ástæðuna fyrir þvi að
sérfræðingarnir fengu
ekki laun sín kvað Þoródd-
ur hafa verið misskilning
milli Orkustofnunar og
launadeildar f jármálaráðu-
neytis og annað væri ekki
um málið að segja.
Bjarni Guðnason:
„Alls ókunnugt um fram
boðsmál á Austfjörðum”
MORGUNBLAÐIÐ hafði
samband við Bjarna
Guðnason prófessor í
gær þar sem hann var
staddur í Lundi og spurði
hvort hann ætlaði að gefa
kost á sér til framboðs
fyrir Alþýðuflokkinn á
Austurlandi í næstu Al-
þingiskosningum. „Mér
er alls ókunnugt um
framboðsmál Alþýðu-
flokksins á Austfjörð-
um,“ svaraði Bjarni.