Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1978
7
r
„Spegill,spegill,
herm þú mér...”
Magnús Kjartansson,
alþingismaður, bregzt illa
við skrifum Þjóðviljans
um dagskrá útvarps, þar
sem blaðið segir hvert
gamalmennið á fætur
öðru hafa mætt með eigin
sögu til flutnings og lesið
„mæddri röddu". „Ég
hefi sjaldan orðið eins
snöggreiður," segir
Magnús Kjartansson, „og
í gærkveldi þegar ég fletti
Þjóðviljanum ..." „Ég
minntist þess að komið
hafa upp kenningar um
úrvalskynstofn, einnig á
okkar öld. í þeim kenning-
um var ekkert rúm fyrir
gamalmenni, ekki heldur
fyrir likamlega eða and-
lega fatlað fólk. Ritstjórn-
argreinarhöfundur Þjóð-
viljans ætti að kynna sér
nema hann hafi þegar
gert það og látið sannfær-
ast."
Reiði Magnúsar spegl-
ast bezt í lokaorðum til
eftirmanns hans í rit-
stjórasæti á Þjóðviljanum:
„Það eru til frfl og siðleys-
ingjar á öllum aldursstig-
um. Höfundur ritstjórnar-
greinar Þjóðviljans getur
áttað sig á því hvemig eitt
eintak þeirrar mannteg-
undar litur út með þvi að
horfa i spegil."
Þess má að lokum geta,
að grein Magnúsar heitir:
„Viðurstyggileg arás á
gamalt fólk".
Skammt
að baki
Alþýðublaðið segir i
leiðara sl. laugardag:
„Undanfarið hefur Ak
þýðublaðið rifjað nokkuð
upp feril hins islenzka
kameljóns Í stjórnmálun-
um — Alþýðubandalags-
ins. Þetta, og sérstaklega
þegar minnzt er á uppmna
þess, hefur farið rækilega
i finu taugarnar á ritstjór-
um Þjóðviljans.
Þannig hamast ritstjóri
Þjóðviljans eins og þekkt
húsdýr i flagi, vegna þess
að minnt er á fortiðina!
Hvers vegna? hljóta menn
að spyrja. Öllum má vera
vitanlegt að litbreytingar
hins nafnkunna kame-
Ijóns breyta afar litlu um
eðli þess og artir, og þeg-
ar alls er gætt i ferli og
stjórn flokksins kemur
strax i Ijós, að enn eru þar
við stjórnvölinn og innstu
koppar í búri hinir sömu,
sem stóðu að Kommún-
istaflokknum, margir
hverjir.
Það skal játað, að auð-
vitað er i þvi nokkur bót
hugarfarsins, að skamm-
ast sin fyrir upprunann!
En það þurrkar á engan
hátt út, hver hann var, né
heldur á hvers vegum út-
haldið var rekið.
Sameiningartilraunirnar
1938 leiddu svo greini-
lega Í Ijós, að ekki varð
um villzt. hvar hjörtu liðs-
odda kommúnista slógu.
Það er skjalfest stað-
reynd, að þeir kröfðust
þess, að hinn sameinaði
flokkur tæki skilyrðis-
lausa afstöðu með Sovét
Rússlandi og leyfði engan
fjandskap gegn því i mál-
gögnum sinum!
Þetta var þá hið SJÁLF-
STÆÐA LÍF, sem flokkur-
inn lifði!"
Gamla skyrtan
En segir AlþýSubiaðið:
„ Þó þaS þyki henta nú.
aS halda þvi fram, aS
sósíalistaflokkurinn hafi
klætt sig úr hinni rúss-
nesku skyrtu þegar hann
var stofnaSur, mætti trú-
lega minna á túlkanir
ÞjóSviljans i siSari heims-
styrjöldinni, bæSi á eSli
og gangi þeirra hamfara.
Hvar var hiS sjálfstæSa
lif. þegar fréttist um
griSasáttmála Rússa viS
Hitlers-Þýzkaland? LagSi
blaS þeirra ekki nótt viS
dag viS aS útlista hina
dásamlegu stjórnkænsku
Rússa, aS gera Hitler fært
aS hleypa styrjöldinni af
stokkunum? Muna menn
ekki ennþá „viSsjár"
Kiljans frá þessum tima?
Og hvernig var meS
Brynjólf, sem taldi aS hér
á íslandi mætti „skjóta án
miskunnar" ef þaS kæmi
Rússum aS haldi?
Og hvilikur heimsbrest-
ur var þaS ekki talinn,
þegar „félagi Stalin"
geispaSi golunni? ÞaS
gerSist þó ekki fyrr en
1953!
Þetta sýnir aSeins. aS
„gamla skyrtan" var enn
viS lýSi á þvi herrans ári,
þótt hún væri ekki lengur
opinber hátiSaklæSnaS-
ur!"
--------------------------j
Hvert hefur
verið þeirra
starf?
Loks segir Alþýðublað-
ið:
„Og svo vikið sé að
öðru. Var það ekki ráð-
herra Alþýðubandalags-
ins, Magnús Kjartansson,
sem var upphafsmaður að
samningum við erlendan
auðhring um aðstöðu hér
á landi? Ekki furða þó
talað sé um skelegga bar-
áttu flokksins gegn slíku!
Og hvað svo um „bar-
áttu" Alþýðubandalagsins
gegn auðstéttinni og fyrir
alþýðuna? Hvað liggur
eftir þessa menn i laga-
setningum alþýðunni til
hagsbóta allan tímann
sem þeir hafa átt fulltrúa
á Alþingi? Vilja þeir svara
því?
Það er gersamlega til-
gangslaust að reyna að
feta þar i fótspor Gunnars
Lambasonar, sem
frægastur hefur orðið i
sögum fyrir, að „halla öll-
um frásögnum og Ijúga
viða frá", svo sem hann
gerði í frásögninni af
Njálsbrennu!
Ýmsir hafa furðað sig á,
hve það sundrungarstarf,
sem íslenzka kameljónið
hefur staðið fyrir, hefur
getað orðið langlrf t og hve
þvi virðist það eðlislægt.
Hér höfðar vitanlega
enn til upprunans. Þeir,
sem sá illgresi, geta auð-
vitað fengið rikulega upp-
skeru. Sá „gróður" er oft-
ast viljugur að vaxa, eink-
um ef að honum er hlúð
og á það hefur ekki skort
á Þjóðviljaheimilinu. Um
gagnsemina gegnir öðru
máli. Vitanlega er hægt
að hlaða arfanum upp i
sátur. En að halda að
menn fái úr þeim gagnlegt
fóður, er álíka bjartsýni
og að trúa þvi, að unnt sé
að gera silkipoka úr svins-
eyrum!"
AlKihVsiNfíASÍMINN ER:
22480
Bilsby Skurvogne A-S
Industribakken 1. Sengelöse, 2630 Taastrup.
Danmark. Talsimi 09-02-99 47 08
Starfsfólksvagnar. skrifstofuvagnar.
íbúðarvagnar. geymsluvagnar. hreinlætisvagnar.
Gódfúslega biöjið um upplýsingapésa.
SKÁKSTYRKIR ERU SKATTFRJÁLSIR
SKÁKSAM BAIMD
GIRO 625000 ÍSLAN DS
INTERNATIONAL
TRAKTORSGRÖFUR
Skipting: „Hydrostatic"
Gröfuarmur: 16"
Framskófla: 960 I.
Lyftigeta fr.: 3636 kg.
Lyftigeta aft.: 1570 kg.
Leitið upplýsinga
Véladeild
Sambandsins
BÍLSKÚRSHURÐIR
Þær renna hljóðlaust upp undir loft, engin
hætta á að vindhviður skelli hurðinni á bílinn
eða snjór hindri þær. Þær eru svo léttar, að
barn getur stjórnað þeim.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SIMI 85244
Endurtekið:
Er bókhaldið í lagi?
Bókfærsla I
Vegna fjölda áskorana verður námskeið í bókfærslu á vegum Stjórnun-
arfélags fslands endurtekið 13.—16. febr. að Hótel Esju. Kennt
verður alla daga kl. 13.30—19.00. Námskeiðið á að gera fólki kleift
að sjá um bókhald smærri fyrirtækja
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Sjóðbókarfærslur, dagbókarfærslur. viðskiptamannabækur. vixlabæk
ur. uppgjör og ákvæði bókhaldslaga
Námskeiðið er ætlað stjórnendum smáfyrirtækja og ennfremur er
tilvalið fyrir konur sem vilja aðstoða menn sina við rekstur fyrirtækis og
menn sem vilja aðstoða konur sinar við rekstur
Leiðbeinandi er Kristján Aðalsteinson viðskiptafræðingur Þáfttökugjald
er kr 25 300 (20% afsl til félagsmanna)
Námsgögn og kaffiveitingar er innifalið í verði
Skráning í sima 82930.
Stjórnunartélag íslands
Frá Vélstjóraf élagi Islands
Skrifstofa félagsins verður lokuð í dag og
næstu daga vegna flutninga.
Vélstjórafélag íslands.
Almennur félagsfundur
verður haldinn að Hótel Esju í kvöld klukkan
20.30.
Meðal annars efnis, mun Þór Magnússon þjóð-
minjavörður flytja erindi um tækni 7 fornbíla-
söfn
Allir áhugamenn velkomnir.
Stjórn F.B.I.