Morgunblaðið - 08.02.1978, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 1978
Aðeins tvö sæti eru
laus á OL í Moskvu
SEXTÁN lið komust I lokakeppni HM I Danmörku, sem lauk á sunnudag með sigri handknattleiksmann-
anna frá V-Þyzkalandi. Nú tckur við undirbúningur fyrir næsta stórverkefni fremstu handknattleiks-
þjóða í heimi — Ölympíuleikana f Moskvu. Ölfkt þvf sem var I Danmörku verða aðeins 12 lið með í
úrslitakeppninni þar og þegar hafa sjö þjóðir tryggt sér réttinn á að keppa f handknattleiknum f Moskvu,
,þær eru Sovétríkin, V-Þýzkaland, A-Þýzkaland, Danmörk, Júgóslavfa, Pólland og Rúmenfa. Þrjár þjóðir
koma frá Amerfku, Asíu og Afríku og þá eru aðeins tvö sæti eftir og margar mjög sterkar handknattleiks-
þjóðir berjast um þau sæti.
Islendingar eru ein þeirra
þjóða, sem verða að taka þátt í
undankeppni Ólympíuleikanna
og er reiknað með að undan-
keppnin hefjist eftir eitt ár. Um
þessi tvö sæti berjast auk Islend-
inga þjóðir eins og Svfar, Ung-
verjar, Spánverjar, Tékkar, Norð-
menn, Frakkar, Austurríkis-
menn, Svisslendingar, Hollend-
ingar, Búlgarir, Finnar og Italir
svo nokkrar þeirra séu nefndar.
Af þessari upptalningu má ljóst
vera að róðurinn verður erfiður
fyrir þau tvö lið, sem komast á
ÓL. Spurningin er jivort ísland á
að leggja mikið i sölurnar til að
komast á leikana i Moskvu, hvort
ekki sé réttara að stefna af alhug
að sem beztum undirbúningi fyrir
HM 1982. Þær þjóðir, sem urðu í 8
efstu sætunum i Danmörku telj-
ast a-þjóðir i handknattleik, þær 8
sem komust i lokakeppnina, en
urðu þar aftastar teljast b-þjóðir í
íþróttinni. Þá eru eftir þær þjóð-
ir, sem teljast til c-hópsins, en
keppni c-þjóðanna verður á Italíu
í haust.
Um það leyti, sem sú keppni fer
fram, eru Pólverjar væntanlegir
hingað tii lands til tveggja eða
þriggja landsleikja. Eru það einu
landsleikirnir, sem ákveðnir hafa
verið í handknattleiknum það
sem eftir er ársins.
— aij.
Björn Borg íþrótta-
maður Norðurlanda
BJÖRN BÖRG var í fyrrakvöld útnefndur fþróttamaður Norðurlanda árið 1977 á fundi formanna
Samtaka norrænna íþróttafréttamanna i Helsinki í Finnlandi. Var Björn ekki valinn fyrr en eftir mikil
fundarhöld og það sem m.a. vekur athygli í sambandi við val hans er að Björn Borg er skráður með búsetu
f Monakó og hann var ekki valinn íþróttamaður ársins f Svfþjóð á sfðasta ári.
Það var Ingemar Stenmark,
sem varð þess heiðurs aðnjótandi,
en hann var valinn íþróttamaður
ársins á Norðurlöndum f fyrra.
Þess vegna þótti hann ekki koma
til greina að þessu sinni og lengi
vel var mest fylgi við Lenu Köpp-
en frá Danmörku. Þá breyttu
Svfarnir afstöðu sinni og gerðu
kröfu til þess að Björn Borg yrði
valinn. Var það að lokum sam-
þykkt af þeim sem þátt tóku í
kjörinu.
Þessi útnefning færir Birni
Borg um 115 þúsund krónur og
félag hans, SALK í Stokkhólmi,
fær í sinn hlut tæplega hálfa
milljón króna, sem nota skal til
unglingastarfs í félaginu. Þess má
geta að tennissnillingurinn Björn
Borg hafði á síðasta ári um 50
milljónir króna i beinar tekjur af
tennisíþróttinni.
Hreinn Halldórsson var sem
kunnugt er valinn íþróttamaður
síðasta árs á Islandi, en hann varð
Evrópumeistari í kúluvarpi
innanhúss síðastliðið vor. Auk
hans, Stenmarks og Björns Borg
komu til álita við þessa
útnefningu Lena Köppen frá Dan-
mörku, sem tvívegis hefur orðið
heimsmeistari f badminton,
fínnski glímumaðurinn Pertti
Ukkola, sem er bæði heims- og
Evrópumeistarí í íþrótt sinni, og
loks hin frábæra norska hlaupa-
kona Gréta Waitz.
Halmia
fé fyrir
MATTA
KNATTSPYRNUSAMBANDl
Islands barst f sfðustu viku
bréf frá sænska félaginu
Halmia, þar sem þess er farið
á leit við KSt að það setji
Halmia f samband við það fé-
lag á Islandi, sem Matthfas
Hallgrímsson ætli að leika
með á næsta keppnistfmabili.
Að sögn Matthfasar vill
Halmia fá peninga fyrir hann
og Ifkar illa að hann skuli fara
frá félaginu til áhugamannafé-
lags, sem hefur það í för með
sér að Halmia fær enga pen-
inga fyrir leikmanninn. Mun
Halmia hafa fengið þrjú tilboð
í Matthfas frá sænskum félög-
um og voru þau tilbúin að
greiða ákveðnar upphæðir fyr-
ir Matthfas.
Matthfas fór á sfnum tfma til
Halmia frá Akranesi og engar
greiðslur fóru á milli félag-
anna þá. Þvf er ólfklegt að
Halmia hafi nokkurn rétt á að
krefjast bóta fyrir Matthfas,
en ef mál þetta fer í hart gæti
Halmia krafizt keppnisbanns á
Matthfas.
//
„Heigull ef ég gripi
ekki þetta tækifæri
Segir Halldór Björnsson, sem ætlar að þjálfa
og leika með liði í þriðju deildinni í Svíþjóð
— ÉG HEFÐI veriö heigull hefði ég ekki gripið þetta tækifæri, sagði Halldór
Björnsson í spjalli við Morgunblaðið í gær. Hann hefur gert tveggja ára samning við
félagið IFK Mora í Mið-Svíþjóð og verður hann bæði leikmaður og þjálfari með liði
félagsins.
— Eg stefni að því að fara utan ar af fullum krafti og meðan ég
25. febrúar, sagði Halldór. — var úti æfði liðið undir minni
Félagið hefur þegar byrjað æfing- stjórn í 17 stiga gaddi. Mér líst vel
Veðurguðirnir enn reiðir
ENN hefur gert hið versta veður á
Bretiandseyjum, þannig að fresta
hefur orði fjölda leikja þar um slóðir.
Sem fyrr skemmir slikt hárnákvæm
ar spár helstu opinberu tippara ís-
lands og Englands en við því er
ekkert að gera, þvi ekki er hægt að
setjast að samningaborðunum með
veðurguðunum. Frestanirnar hafa þó
einn kost i för með sér og hann er sá
að okkur gefst ráðrúm til þess að
finna upp nýjar afsakanir fyrir lélegri
frammistöðu. Verður það að segjast
eins og er, að við hjá Mbl. höfum
verið ráðþrota með það, hvernig út-
skýra beri frammistöðu hinna fjöl-
miðlanna. Tölurnar, sem hér eftir
fylgja nöfnum liðanna, eru heima-
árangur og útiárangur hvors liðs.
Aston Villa (5-2-4) — Notthingham
Forest (8-2-3) x.
Hér er meðalvegurinn eina leiðin
sem ekki getur talist háskaleg Forest
er með geysisterkt lið. en Villa er erfitt
heim að sækja oftast nær Hér er auk
þess rammur jafnteflisfnykur
Chelsea (5-6-3) — Manchester Utd.
(^2-7) x.
Ef lið geta verið óútskýranlega óút-
reiknanleg. þá eru lið þessi efst í þeim
hópi Bæði liðin geta leikið frábærlega
ef þau eru í skapi til þess. en slíkt
hendir aðems endrum og eins Jafn-
tefli
Leeds (7-4-2) — Derby (4-3-6) x.
Leeds er sigurstranglegra liðið að
þessu sinm. en við hófum ástæðu til að
ætla, að orrustunni lykti með jafntefli
Leicester (2-5-6) — Arsenal (6-1-6)
2
V.ð spáum útisigri af þeirri einföldu
ástæðu, að lið Leicester er lélegt. en lið
Arsenal gott Meira þurfum við ekki að
vita
Liverpool (9-2-2) — Ipswich (0-5-8)
1.
Svo sem sjá má af tölunum hér að
ofan. er Liverpool heldur betra lið á
heimavelli heldur en Ipswich er á úti-
velli Eðlilega tippum við á heimasigur
Manchester City (10-1-2) — QPR
(0-6 7)1
Þessi leikur á að heita öruggur og
tippum við eftir því Þetta er hvorki
staður né stund til þess að gefa hug-
myndafluginu lausan tauminn Þó læð-
ist að manni sá grunur jæja.
sleppum þvi Heimasigur
Middlesbrough (5-5-3) — Coventry
(4-3-6) 1.
Framfarir Boro hafa verið athyglis-
verðar undanfarnar vikur og þykir okk-
ur meira en liklegt. að liðið vinni hið
sterka lið Coventry
HQÍmasigur
á laugardaginn
Newcastle (4-1-8) — Birmingham
(4-1-8) 1.
Newcastle hlýtur ekki mörg stig
þessa dagana, en þau fáu, sem í safnið
koma, eru fengin á heimavelli Birm-
ingham eru lélegir þessa dagana og
finnst okkur líkur vera á heimasigri að
þessu sinni
Framhald á hls. 23
Getrauna- spá Mbl. Morgunblaðið *© '<5 3 -D 3 *© A < 2 o 3 -C ÖJC 3 Q 2 a tm 3 > s *© •"t C/3 Tfminn o a, u 3 > •5 Vfsir c c > *© 'S '' Sunday Mirror .1• . - . Hundav People Sunday Express New* of the world — Sunday Telegraph SAMTALS
Aston Villa — Nott. Forest X 2 X X X 2 X 2 2 X X 0 7 4
Chelsea — Man. Utd. X 1 i 1 X 2 2 1 X X X 4 5 2
Leeds — Derby X 1 i 1 1 1 1 X X 1 1 8 3 0
Leicester — Arsenal 2 2 2 2 2 1 2 2 2 X 2 1 1 9
Liverpool — Ipswich 1 1 1 1 1 1 1 1 I 1 1 11 0 0
Man.city — QPR 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Middlesbrough — Coventry 1 X X 1 1 X 1 1 1 1 1 8 3 0
Newcastle — Birmingham 1 2 1 1 1 1 X 2 2 2 X 5 2 4
Norwich — Everton 1 X 1 X X X X 2 X X 2 2 7 2
West Ham — Bristol X 1 1 1 I 1 1 X 1 1 2 8 2 1
Wolves — WBA 1 X X 1 X 1 X X 1 X 1 5 6 0
Blackburn — Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
á leikmenn liðsins, þetta eru
frískir strákar, sem ætla sér stóra
hluti, og aðstaóan er öll mjög góð
hjá Mora, sem er frá samnefndum
bæ í Dölunum. Æfingaleikir hafa
verið skipulagðir mjög stíft þar til
sjálf keppnin byrjar, en Mora á
fyrsta leik 24. apríl.
— í fyrra varð liðið um miðja
þriðju deildina, en ætlar sér betri
árangur f sumar. Félagið leikur í
riðli í Mið-Svíþjóó, en hinir Is-
lendingarnir, sem leika með lið-
um í 3ju deild í Svíþjóð eru í
suðurhlutanum, t.d. Eiríkur Þor-
steinsson og Þorsteinn Ölafsson,
segir Halldór Björnsson, sem
skortir þrjá daga í þrítugt.
Halldör byrjaði þjálfun með
Völsung á Húsavík 1971 og gekk
liðinu mjög vel undir hans stjórn.
Halldór hefur síðan þjálfað hjá
Armanni og Völsungi en einnig
leikið með þessum liðum og svo
að sjálfsögóu með KR-ingum.
Halldór á 9 landsleiki að baki.
Þess má geta aó fyrir nokkrum
árum var Joe Hooley þjálfari hjá
Mora, en hann þjálfar nú sem
kunnugt er norsku meistarana
Lilleström. _^jj
720þús.í vasa
Seltirnings
í 23. leikviku féllu niður 4
leikir á getraunaseðlinum og var
varpað hlutkesti um úrslitin.
Aðeins einn seðill reyndist með
1 1 réttum og var vinningur hans
kr. 686.500.— en fyrir 10 rétta
koma kr. 11.300,— á röðina, en
alls fengu 26 raðir 2. vinning.
Með 11 rétta var Seltirningur,
sem einnig var með 3 raðir með
10 réttum. svo að vinningurinn
verður alls fyrir þennan seðil kr.
720 000 -