Morgunblaðið - 08.02.1978, Side 35
MORGtFNBtA©!©, MIÐVIKUDAGUR 8 FEBRUAR 1978
35
//
//
Þvílík snilli
þú ert mestur
SKlÐAFÓLKINU eru engin grið gefin um þessar mundir. A sunnudag
lauk heimsmeistarakeppninni og í dag byrjar heimsbikarkeppnin að
nýju. Keppt verður f hlfðum Mont Blanc I Frakklandi I svigi f dag og
stórsvigi á morgun. Brun karla verður sfðan á föstudag og mótinu
lýkur á laugardag.
Ingemar Stenmark með HM gullin sín tvö eftir sigur í svigi og stórsvigi. í dag byrjar
bezta skíðafólkið keppnina um heimsbikarinn að nýju.
Kennedy skoraði gegn
sínum gömlu félögum
RAY RENNEDY skoraði sigurmark Liverpool á móti sfnum gömlu félögum f Arsenal f fyrri leik þessara
sterku félaga í undanúrslitum deildarbikarkeppninnar ensku f gærkvöldi.. Markið kom ekki fyrr en 10
mftútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Fairclough. Malcolm MacDonald tók forystuna fyrir Arselal á
12. mfnútu leiksins, en Kenny Dalglish jafnaði 15 mfnútum seinna, en Fairclough átti Ifka heiðurinn af
þvf marki.
Manchester United og vill það fé-
lag greiða Leeds 400 þúsund pund
fyrir leikmanninn. Það finnst
McQueen hins vegar ekki nóg og
þannig standa málin.
Seinni leikur liðanna í undan-
úrslitunum verður á þriðjudaginn
kemur og verður þá leikið á
heimavelli Arsenal. Sigurvegar-
inn í þessum leikjum mætir siðan
annað hvort Nottingham Forest
eða Leeds i úrslitum keppninnar.
LEIKMENN enska félagsins
Blackpool, sem leikur f 2. deild og
er í 7. sæti, ásökuðu stjórnarmenn
félagsins í gær um einræðisleg
vinnubrögð. Framkvæmdastjóra
félagsins, Allan Brown, var sagt
upp störfum í fyrrakvöld og hann
sakaður um afglöp í starfi. Þetta
likaði leikmönnum félagsins illa
og vildu að samráð væri haft við
þá áður en slíkar ákvarðanir væru
teknar.
Þá bárust þær fréttir frá Eng-
landi ígær að enski landsliðs-
maðurinn Trevor Francis hefði
óskað eftir að vera seldur frá
Birmingham. Hefur Francis tjáð
Alf Ramsey, sem nú er fram-
kv'æmdastjóri Birmingham, að
hann vilji fara frá félaginu og líki
ekki dvölin þar. Francis hefur þó
ekki lagt fram skriflega beiðni
um að vera settur á sölulista.
Talið er að nokkur félög í Eng-
landi séu tilbúin að greiða metfé
fyrir Francis, þó svo að talsmenn
Birmingham segi að þeir muni
aldrei selja hann.
Enn stendur í þrasi um Gordon
McQueen og samningar nást ekki
milli hans og Leeds United. í
fyrrakvöld tókust samningar á
milli Leeds og Tottenham og var
stjórn Tottenham tilbúin til að
greiða 450 þúsund pund fyrir
McQueen. Yrði það metsala í Eng-
landi, en síðastliðið sumar greiddi
Liverpool 440 þúsund pund fyrir
Kenny Dalglish.
McQueen hafnaði tilboði
Tottenham og sagði að konu sína
langaði ekki til London og hann
hefði sjálfur engan áhuga á .að
leika í 2. deildinni. Eina félagið,
sem McQueen hefur áhuga á að
gerast leikmaður með virðist vera
Utandeildarliðið Blyth
Spartans kom öllum á óvart í
fyrrakvöld er liðið vann Stoke
City, sem leikur í 1. deildinni.
Leikurinn var í fjórðu umferð
ensku bikarkeppninnar og urðu
úrslitin 3:2. Leikið var á heima-
velli Stoke, en gestirnir komust i
1:0 með marki Terry Johnson á
10. mínútu. Viv Busby og Garth
Crooks komu Stoke yfir með
tveimur mörkum á einni mfnútu
og allt virtist ætla að fara eftir
bókinni. Leikmenn Blyth
Spartans voru þó ekki á þvf að
gefa sig og þeir Steve Carney og
Johnson tryggðu liðinu sigur f
lokin.
— Þetta var eins og ævintýri,
sagði Brian Slane, framkvæmda-
stjóri Blyth Spartans, hálfat-
vinnumannaliðsins frá borginni
Blyth í Norður-Engiandi. Blyth
Spartan er þriðja utandeildarliðið
sem kemst í 5. umferð bikar-
keppninnar á 50 árum. Colchester
vann það afrek árið 1948 og
Yeovil 1949.
í næstu umferð leikur utan-
deildarliðið á útivelli á móti
Wrexham, sem vann botnlið 1.
deildar, Newcastle, 4:1 á mánu-
daginn. Þá sigraði Bolton lið
Mansfield 1:0. Næstu leikir f FA-
bikarnum verða laugardaginn 18.
febrúar og leika þá eftirtalin lið
saman:
Arsenal — Walsall, Bristol —
Ipswich, Derby — WBA, QPR —
Nottingham, Middlesbrough,
Bolton, Milwall — Notts County,
Orient — Chelsea, Wrexham —
Blyth Spartan,.
I Skotlandi sigraði Celtic lið
Dundee 7:1 á mánudaginn, en
leikurinn var í þriðju umferð FA-
bikarkeppninnar skozku. Þá vann
Aberdeen lið Ayr Utd. 2:0, Air-
drie tapaði heima fyrir Hearts 2:3
og St. Mirren tapaði heima fyrir
Kilmarnock 1:2. í gærkvöldi vann
St. Johnstone síðan Brechin 1:0
og Stirling vann Clydebank 3:0.
Margt óvænt gerðist í HM í
Garmisch Partenkirchen, en fæst-
um kom þó á óvart að Ingemar
Stenmark skyldi sigra f bæði svigi
og stórsvigi.' Sænsku blöðin eru
full af fréttum um þennan gull-
dreng Svía og honum hafa borizt
heillaskeyti úr öllum áttum.
Þannig hefur hann fengið skeyti
frá konungi Svía og forsætisráð-
herra. Í skeyti Falldins forsætis-
ráðherra sagði m.a. „Þvílík snilli,
þú ert mestur.“
— Ég neita því ekki að mig
langar oft á milli til að lifa eðli-
legu lífi, sagði Stenmark m.a. i
viðtali við Dagens Nyheter eftir
sigurinn í sviginu á sunnudag. —
En skíðamennskan er líf mitt og
ég held áfram fram yfir Ólympíu-
leikana 1980. Ég ætla þó ekki að
hafa þetta eins og Gustavo Thöni,
sem var konungur skíðaíþróttar-
innar fyrir nokkrum árum, en
heldur enn áfram að keppa þótt
honum gangi orðið illa. Ég ætla að
hætta á toppinum, sagði Sten-
mark.
I Morgunblaðinu í gær var sagt
að ísfirðingurinn Sigurður Jóns-
son hefði orðið i 13. sæti í stór-
svigi. Hið rétta er að hann bland-
aði sér alvarlega f baráttu þeirra
beztu f sviginu og varð þar í 13.
sæti. Aðeins þeir beztu kepptu á
HM í skíðaíþróttinni, og það er
WASSBERG
VERÐJJREKKI
M EÐI LAHTI
FREMSTI skiðagöngumaður Svía. Thomas Wassberg, verður ekki með I
heimsmeistarakeppninni i norrænum greinum. sem fram fer i Lahti i
Finnlandi í lok þessa mánaðar Wassberg á við slæm meiðsli í hné að
striða, en hann meiddist i bilslysi I Svíþjóð á miðvikudaginn. Wassberg
stóð sig mjög vel i fyrravetur og er nú efstur i heimsbikarkeppni
skiðagöngumanna. í siðasta mánuði vann hann hvað eftir annað á
stórmótum í Svíss og V-Þýzkalandi.
Frost
vann
Delfs
HINN kornungi Morten Frost vann
i gærkvöldi úrslitaleikinn Í einliða-
leik i danska meistaramótinu i
badminton. Lék hann þó ekki við
ófrægari kappa en Flemming
Delfs. Úrslit leikjanna urðu 9:15,
15:5 og 15:4, en Delfs átti við
meiðsli að striða i lok keppninnar.
Frost er 19 ára gamall og þykir
sérlega efnilegur i iþróttinni. Lena
Köppen var hin sterka í keppni
kvenfólksins og vann hún Ingu
Borgström 10:0 og 11:6 i úrslita-
leiknum i einliðaleik.
Sænska meistaramótið i
badminton fór fram um siðustu
helgi og sigraði Thomas Kihlström
I úrslitum einliðaleiksins þar.
Keppti hann á móti Sture Johan-
son i úrslitum og vann 15:9 og
1 7:14. Var þetta fimmtánda árið I
röð. sem Sture komst i úrslitin i
einliðaleiknum. i tviliðaleiknum
vann Kihlström ásamt Frömann. Í
einliðaleik kvenna sigraði Cecille
Jeppsson.
SYSTKININ Beth og Eric Heiden frá Bandarikjunum höfðu mikla
yfirburði á heímsmeistaramóti unglinga i spretthlaupi á skautum, sem
lauk i Montreal i gær. Unnu þau bæði i keppninni samanlagt og voru
yfirburðir þeirra umtalsverðir. Kom sigur þeirra systkinanna ekki á
óvart, en munurinn var meiri en búist hafði verið við.
Hjá kvenfólkinu kom Eva Björg Jensen frá Noregi i öðru sæti, en Ines
Bautzmann. A-Þýzkalandi. varð þriðja. Hjá piltunum var það Sovétmað-
urinn Vitali Zazerski. sem fékk silfurverðlaunin, en á hæla honum kom
Tom Oxholm frá Noregi.
:í vlle.5LÍrUK muuU
1 fTTAÚfc. LEifcA aeóW
j TélC)C<Í!SUQVAIí/lO,
I 00(00
t=oé>e>ueie:OA 'i oucakJ-Í
I Ote.íaL'iTUOI 'i 'KctiM,
p-VK.'ie
Sj AHPg'FgNjsA-ST LiCUM ■■
..oíf H'OÍe. fKo ÁHoerBJrsue-
CíUHtÞ HOLtAK* awnaes-
STAÉXAB. Í3 -
t=ia.e.vaui=ijLLifc' &f=>riR; >3fc-
5>CrrOM ÓI2. usúc ÁTAuÍU
AOSToigeÍK'l ■
ML>55oCioi OOr UVUA H4WN1
kiíklum fal>ma«=/ab—
IAtum. ÞU uAte-p
EF-T'E: teVÍ TCK'ig)
vÍNKATTetevAfc 5-=)..
frábær árangur hjá Siguröi aö ná
þessu sæti. Hann vill ekki frekar
en Stenmark gera mikið úr afreki
sínu, en nöfn þeirra beggja eiga
örugglega oft eftir að heyrast í
skíðaheiminum á næstu árum.
— áij.
„Essin" sterk-
ust í Noregi
KAY Stenshjemmet tryggði sér
Noregsmeistaratitilinn I skauta-
hlaupi þriðja árið f röð, en keppn-
in fór fram í Larvik f gær. Sömu
skautakapparnir börðust um titil-
inn undanfarin ár: Á eftir Stens-
hjemmt komu Sten Stensen, Jan
Egil Storholt og Amund Sjö-
brend, en þessa skautakappa
kalla Norðmenn S-in f jögur.
Kambaboðhlaup
KAMBABOÐHLAUP ÍR og HSK, sem
nú er háð sjötta árið i röð, fer fram
nk. laugardag. Hefst hlaupið, sem er
4x10 km boðhlaup, við Kambabrún
kl. 14 og lýkur við ÍR-húsið við
Túngötu. Reynist eigi unnt að
hlaupa á laugardag vegna veðurs,
verður þess freistað að hlaupið fari
fram á sunnudaginn. Væntanlegir
þátttakendur geta haft samband við
Guðmund Þórarinsson i s. 1 2473.
Tvíliöaleikur
í badminton
Badminton deild KR hefur ákveðið
að halda sitt árlega ,,opna tvíliðaleiks-
mót” laugardaginn 1 1 febrúar n k
Mótið fer fram i KR-húsinu og hefst kl
1300
Keppt verður i tviliðaleik karla og
kvenna i m fl og A-fl
Þátttökutilkynningum skal skila til
undirritaðs, pósthólfi 7148, eða i síma
16471 í siðasta lagi þriðjudaginn 7
febr Þátttökugjald er kr 2000 fyrir
hvert lið
Ármann
AÐALFUNDUR Frjálsíþróttadeildar
Armanns verður haldinn annað
kvöld, fimmtudaginn 9. febrúar, og
hefst klukkan 21 að Frikirkjuvegi
1 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Borötennismót
Reykjavíkur
REYKJAVÍKURMÓTIÐ i borðtenms
verður haldið i Laugardagshöllinni
anr\an sunnudag, þ e 12 febrúar nk
Keppt verður i öllum aldursflokkum i
einliða-. tviliða- og tvenndarleik Þátt-
taka tilkynnist formönnum borðtennis-
deilda félaganna i Reykiavik eða á
skrifstofu ÍBR i síðasta lagi föstdaginn
10 febrúar
1=-e«.'i£í-oe- ÍTaCÍl>
UTjfcLS 5KÍÓA
a ý\x-r AcS=........
Meistaramót TBR
MEISTARAMÓT T.B.R. i tviliðaleik
og tvenndarleik verður haldið i
T.B.R húsinu sunnudaginn 19.
febrúar n.k. og hefst mótið kl. 14.00
siðdegis.
Keppt verður i tviliða og tvennd-
arleik i eftirtöldum flokkum karla og
kvenna:
Meistaraflokki
A-flokki
B-flokki
Þátttökurétt hafa allir, fæddir
1 962 eða fyrr.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist til félagsins fyrir 15.
febrúar n.k.