Morgunblaðið - 08.02.1978, Síða 36

Morgunblaðið - 08.02.1978, Síða 36
AUilASlWiASIMIN'N EK: 22480 iH*rfliTOl)tníiií) Lækkar hitakostnaðinn MIÐVIKUDAGUR. 8. FEBRUAR Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra: Frumvarp um ráðstöfun gengismismunar verður lagt fram á Alþingi / 1 ASÍ og VSÍ ræða hugsanlega riftun samninga — ASÍ og stjórnvöld hafa rætt um efnahagsvandann Ríkisstjórnin leggur fram á Alþingi í dag frumvarp um ráðstöfun gengismismunar og mun Geir Hallgrímsson forsætisráðherra flytja framsögu fyrir frumvarpinu, að því er hann skýrði Mbl. frá í gærkvöldi. I samtali Morgunblaðsins í gærkvöldi var forsætisráðherra spurður að því hvernig ríkisstjórnin hefði kynnt Alþýðusambandi Islands væntanlegar efnahagsaðgerðir. Hann sagði: „Alþýðusamband Islands hefur haft aðgang að öllum gögnum og skjölum, sem um er að ræða. Það hefur verið rætt við þá og þeir hafa fengið að vita í höfuðatriðum í hvaða átt ráðstafanirnar hníga, en ýmsar endanlegar ákvarðanir um útfærslu ráðstafananna er verið að taka þessa daga.“ I samtali Mbl. vió Björn Jóns- son, forseta ASÍ, í gærkvöldi sagöi hann, að á miðstjórnarfundi ASÍ í gær hefði verið rætt um lokaafgreiðslu varðandi störf full- trúa ASÍ í Verðbólgunefndinni. Kvað Björn fundinn hafa sam-' þykkt einróma, hvernig full- trúarnir ættu að standa að Framhald á bls. 20. Geir Hailgrímsson forsætisráðherra Forskot Brownes féll niður í hálfan vinning Helgi og Hort gerdu jafntefli BANDARÍSKI stórmeistarinn Walter Browne hélt forystunni á Reykjavfkurskákmótinu eftir fjórðu umferðina f gær, en skák hans og Kuzmins lauk með jafn- tefli. Næstir Browne að vinning- um eru Friðrik Ólafsson og Anthony Miles með 3 vinninga hvor, Hort og Polugaevsky hafa 2'A vinning, Larsen er með 2 vinn- inga og biðskák, Guðmundur Sigurjónsson og Kuzmin hafa tvo vinninga, Lombardy er með l'A og biðskák, Helgi Ólafsson er með einn vinning, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason eru með 'A vinning og biðskák sfn f milli, og Ögaard og Smejkal eru með 'A vinning og óteflda innbyrðis skák úr fyrstu umferð. Úrslit fjórðu umferðar í gær; Miles vann Smejkal, Friðrik vann Ögaard og Polugaevsky vann Guð- mund Sigurjónsson. Skákum Helga Ólafssonar og Hort og Kuzmin og Browne lauk með jafn- tefli, en skákir Margeirs Péturs- Framhald á bls. 20. Banaslys á loðnumiðunum: Skipverji á Eld- borgu beið bana af völdum höfuðhöggs \ýtt og fullkomið mötuneyti var nýverið tekið í notkun hjá Fiskiðjuveri Bæjarút- gerðar Reykjavíkur við Grandagarð. Þar var þessi mynd tekin af þessum ungu blómarósum í kaffitímanum í gær. Ljósmynd Mbl. RAX sjá nánar Krein á bls. 12. BANASLYS varð á loðnumiðun- um í gærmorgun. 46 ára maður, Garðar Eymundsson, Hvanna- lundi 9, Garðabæ, skipverji á Eld- borgu GK 13, lézt þá af völdum Haukur Heióar reyndi aó fá skjöl frá Sindra-Stál til lagfæringa: Reiðubúinn að greiða Landsbanka 20 millj- ónir króna erlendis f rá HAUKUR Heiðar, fyrrum for- stöðumaður ábyrgðardeildar Landsbankans, reyndi í desember sl. að fá framkvæmdastjóra Sindra-Stáls til að afhenda sér skjöl, er vörðuðu brot hans og ber Haukur við yfirheyrslu, að um hafi verið talað, að annar fram- kvæmdastjóranna kæmi með skjöl til hans „og léti laga þau“. Þá hefur Haukur borið að hann teldi sig hafa „til ráðstöfunar erlendis frá“ rúmlega 20 milljón- ir króna, sem hann væri rciðubú- inn að greiða Landsbanka ts- lands. Þetta fé er geymt f Sviss, en við fyrri yfirheyrslur hafði Haukur skýrt frá þvf, að hann hefði eytt til eigin þarfa fé þvf, er hann kvaðst hafa dregið sér. Þetta kemur fram í dómi, sem kveðinn var upp f Hæstarétti í gær, þar sem framlenging gæzlu- varðhalds Hauks Heiðars er stað- fest, en jafnframt bendir Hæsti- réttur á, að nauðsynlegt sé, að héraðsdómari, sem ekki hefur fylgzt með rannsókn mála, fái nægan tíma, eftir því sem kostur er, til að kanna rannsóknargögn og meta málsástæður áður en hann úrskurðar um gæzluvarð- haldskröfu. Dómur Hæstaréttar er svohljóð- andi: „Mál þetta dæma hæstaréttar- dómararnir Björn Sveinbjörns- son, Benedikt Sigurjónsson og Þór Vilhjálmsson. Hinn kærða úrskurð hefur kveðið upp Birgir Þormar fulltrúi yfirsakadómarans í Reykjavík. Varnaraðili hefur samkvæmt heimild í 3. tl. 172. gr. laga nr. 74/1974 skotið máli þessu til Hæstaréttar með kæru 31. janúar 1978, sem Hæstarétti barst 3. febrúar s. á. Krefst hann þess, að hinn kærði úrskurður verði úr gildi felldur. Þá krefst hann þess, að „málsmeðferð verði vítt“. Af hálfu ákæruvalds er krafist staðfestingar hins kærða úrskurð- ar. Frá varnaraðilja hefur borist ítarleg greinargerð. Hinn 30. janúar s.l. skýrði varn- araðili svo frá hjá rannsóknarlög- reglu ríkisins, að hann teldi sig hafa „til ráðstöfunar erlendis frá“ rúmlega 20 milljónir króna, sem hann væri reiðubúinn að greiða Landsbanka íslands. I greinargerðum varnaraðilja til sakadóms Reykjavíkur og Hæsta- Framhald á bls. 20. höfuðhöggs, sem hann fékk, er skipið var að veiðum norður af Langanesi. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar hjá Slysavarnafélagi ís- lands í gær, að það hafi verið um kl. 6 í gærmorgun, sem rannsókn- arskipið Arni Friðriksson hafði samband við félagið gegnum Nes- radfó og beðið var um aðstoð, þar sem alvarlega slasaður sjómaður af Eldborgu hefði verið fluttur um borð í skipið. Ljóst væri að maðurinn væri mikið slasaður á Framhald á bls. 20. m Garðar Eymundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.