Morgunblaðið - 28.02.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.02.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNbLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 197$ N okkrir þættir efnahagsmála ársins 1977 Frá aðalfundi Vcrzlunarráðs tslands s.l. fimmtudag. Aóalfundur Verzlunarráðs íslands: „Frjálst markaðs- kerfi hluti af almenn- um mannréttindum” Aðalfundur Verzlunarráðs ts- lands var haldinn s.l. fimmtudag á Hótel Loftleiðum. Miklar um- ræður urðu á fundinum um stefnuna I efnahags- og atvinnu- málum og var f þvl samhandi samþykkt eftirfarandi stefna Verzlunarráðsins f efnahags- og atvinnumálum: Verzlunarráð tslands eru sam- tök fyrirtækja viðskiptalifsins. Stefna þess mótast því ekki af sérhagsmunum einstakra at- vinnugreina, heldur af hagsmun- um atvinnulífsins í heild og þá jafnframt hagsmunum þjóðarinn- ar allrar. Stefna Verzlunarráðsins er sú, að efla skilyrði fyrir frjálst fram- tak einstaklinga og saiptaka þeirra í atvinnulífinu og stuðla að frjálsum viðskiptaháttum og markaðshagkerfi, sem grundvall- arskipulagi efnahagslífsins. Frjálst. markaðshagkerfi, er hluti af almennum mannréttind- um. Það hagnýtir frumkvæði, hugkvæmni og atorku einstakl- ingsins, lætur hann njóta eigin verka og bera jafnframt ábyrgð gerða sinna. Það beinir atorku manna til þeirra verka, sem þeir vinna bezt, fjármagni lands- manna til þeirra framkvæmda, sem gefa mestan arð og færir neytendum þá vöru og þjónustu sem þeir vilja helzt. Markaðshag- kerfið samrýmir bezt atvinnu- starfsemi einstaklinga óskum þjóðarheildarinnar, án þess að skerða rétt þeirra til að ráða eigin málum. I markaðshagkerfinu nást efna- hagsleg markmið betur en í öðr- um hagkerfum. Það hámarkar efnalega velferð þjóðfélagsins, heldur framboði í hámarki og verði i lágmarki, skapar ákjósan- legustu skilyrðin fyrir öran hag- vöxt og nýtir bezt takmarkaða framleiðslugetu þjóðfélagsins. Markaðshagkerfið er bezt fallið til að uppfylla óskir landsmanna um betri lífskjör. Til þess að svo megi verða þarf að framkvæmda gagngerar breytingar i íslenzkum efnahagsmálum: I. Verðmyndunarhöft á að af- neraa, en láta frjálsa verðmyndun og virka samkeppni stýra neyzlu og framleiðslu í samræmi við ósk- ir neytenda. II. Fjármagnsmarkaðinn þarf að los a úr viðjum skömmtunar- kerfa og gera hann frjálsan, þann- ig að jafnvægi skapist og arðsemi verði helzta leiðarljós í fjárfest- ingarmálum. III. Utanrikisviðskipti eiga að vera frjáls, en einnig þarf að koma á frjálsum gjaldeyrisvið- skiptum likt og í öllum okkar ná- grannalöndum. IV. Skattheimtu hins opinbera þarf að minnka og samræma grundvallarsjónarmiðum skatt- lagningar um leið og sköttum er fækkað. V. Lögum um verkalýðsfélög og vinnudeilur þarf að breyta, svo að aðild að verkalýðsfélögum verði frjálsari, en ábyrgð verka- lýðsfélaga þarf að samræma valdi þeirra. VI. Opinber umsvif í atvinnu- lífinu og beina íhlutun í starfsemi þess þarf að minnka og koma á virkri stjórn efnahagsmála sem samrýmist frjálsum markaðs- búskap. VII. Hlutverk hins opinbera í atvinnulífinu þarf að endurskoða og jafnrétti í starfsskilyrðum at- vinnuveganna þarf að endurreisa. Nokkrir þættir efnahags- mála ársins 1977 eru tekn- ir til umfjöllunar í febrú- arhefti Hagtalna mánaðar- ins og segir þar m.a. um almenna þróun ársins: Ytri skilyrði þjóðarbúsins héldu áfram að batna fram eftir árinu 1977 og raunar voru aðstæður allar mjög hagstæðar á fyrri hluta ársins, aflabrögð voru góð og útflutningsverð hækk- aði mun örar en innflutn- ingsverð. Á árinu í heild er áætlað, að viðskiptakjörin hafi batnað um 9—10% frá árinu 1976. Áætluð aukn- ing vergrar þjóðarfram- leiðslu er um 4% að raun- gildi borið saman við 2,4% árið 1976 og +2,1% árið 1975. Áukning þjóðartekna varð nokkru meiri vegna bættra viðskiptakjara eða um 8% samanborið við 5,9% árið 1976 og 6,0% árið 1975. Þjóðarútgjöld án birgðabreyt- inga, sem minnkað höfðu um 8,6% árið 1975 og nánast staðið í stað 1976 eru talin hafa aukist um 6,0% á síðasta ári, einkum vegna óvenju mikillar aukningar einka- neyzlu. Aukning samneyzlu og fjármunamyndunar virðist hafa verið lítil og raunar stafar vöxtur fjármunamyndunarinnar ein- göngu af mikilli aukningu skipa- innflutnings. Víðtækir kjarasamningar fóru fram á árinu og leiddu til meiri launahækkana yfir árið en dæmi eru til um síðan á stríðsárunum. Aðildarfélög ASl sömdu við vinnuveitendur í júnimánuði og opinberir starfsmenn, banka- menn o.fl. sömdu síðar á árinu. í lok ársins var talið, að kauptaxtar allra launþega væru um 60% hærri en við upphaf ársins. Ætlað er, að atvinnutekjur hafi verið um 40% hærri að meðaltali 1977 heldur en 1976 og ráðstöfunar- tekjur heimilanna 40 til 41% hærri. Lítill árangur náðist í bar- áttunni við verðbólguna yfir árið í heild og mun framfærslukostnað- ur hafa hækkað um 31% að meðaltali frá 1976 og bygginga- kostnaður um 30%. Því má ætla, að kaupmáttur ráðstöfunartekna almennings hafi aukist um 7 til 8% á mann á árinu 1977. Verð- bólgan hjaðnaði að vísu nokkuð framan af árinu og um mitt sumar var hún komin niður í um 26% á ári. Siðari hluta ársins jókst hún hins vegar á ný og mun að líkind- um verða töluvert meiri en hækk- unin milli ársmeðaltala fram á mitt árið í ár. Greiðslujöfnuður og gjaldeyrismál Fyrstu tölur benda til þess, að halli á viðskiptajöfnuði hafi orðið á bilinu 9 til 10 milljarðar króna á árinu 1977 miðað við 4,9 milljarða árið áður reiknað á sambærilegu gengi. I hlutfalli af þjóðarfram- leiðslu var viðskiptahallinn 2,5 til 3.0%, en árið áður reyndist hann 1,7% af þjóðarframleiðslu og hafði þá lækkað úr 11,5% á árinu 1976. Á árinu varð mikil verðmætis- aukning bæði á útflutningi og innflutningi, en aukningin varð þó allmiklu örari á innflutningi. Þannig jókst heildarverðmæti vöruinnflutnings samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um tæp 28% og að frátöldum inn- flutningi á sérstökum fjárfest- ingarvörum og rekstrarvörum til álbræðslu nam aukning annars innflutnings 30%. Heildarverð- mæti útflutnings jókst um 25,4%, en að frátöldum álútflutningi nam aukningin tæpum 29%. Langar erlendar lántökur námu alls um 29 milljörðum króna á árinu en afborganir námu um 11 milljörðum króna, þannig að nettóaukning varð 18 milljarðar króna. Gjaldeyrisstaða bankanna, nettó, þ.e. gjaldeyriseign að frá- dregnum yfirdráttarskuldum og öðrum gjaldeyrisskuldum til skamms tima, batnaði um 6,3 milljarða króna á árinu 1977, en reiknuð á sama gengi, þ.e. í árslok 1977, batnaði staðan um 4 millj- arða á árinu 1976. Reiknaður á meðalviðskiptagengi ársins 1977 varð bati gjaldeyrisstöðunnar ná- lægt 5,9 milljörðum króna, sem er heldur lægra en breytingin reikn- uð á gengi í árslokin. I árslok 1977 nam gjaldeyriseign bankanna 6 milljörðum króna nettó. Eftirfarandi tafla sýnir frum- áætlun um greiðslujöfnuð ársins 1977 og til samanburðar tölur árs- ins 1976 umreiknaðar til sam- bærilegs gengis. Hagsveifluvog iðnaðarins: Lítil framleiðsluaukning í iðnaði á þriðja ársfjórðungi síðasta árs Félag íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðar- manna framkvæmdu úrtaksathugun á stöðu 23 iðnfyrir- tækja á þriðja ársfjórðungi s.l. árs og birtust niðurstöð- urnar í Hagsveifluvog iðnaðarins. Athugun þessi byggð- ist á öflun „kvalitatívra" upplýsinga frá fyrirtækjum, þ.e. spurt er um breytingar í orðum en ekki í tölum. Nákvæmar tölulegar upplýsingar eru ekki í ölium til- fellum fyrir hendi um öll þau atriði sem svörin gefa. Þetta veldur því að ekki er hægt að mæla breytingar í tölum. Svörin eru síðan vegin saman með vinnuviknafjölda viðkom- andi fyrirtækja og umreiknuð í hundraðstölur, sem látnar eru gilda fyrir viðkomandi iðngrein. Enda þótt vinnuviknafjöldinn sé ekki nákvæmur mælikvarði á framleiðslumagn fyrirtækja; sér- staklega þegar um samanburð er að ræða milli ólikra iðngreina, gefur hagsveifsluvogin þó hald- góða mynd af þróuninni. Sem dæmi um hvernig lesa á töflur þær, sem hér fylgja á eftir, skal tekið yfirlit yfir töflu 1, sem nær yfir allar þær greinar, sem í úrtakinu eru. Ef borið er saman framleiðslumagnið á 3. ársfj. 1977 við framleiðslumagnið á 3. ársfj. ’76 þá segja fyrirtæki með 54.0 af heildarvinnuafli úrtaksins, að það hafi verið meira, en 9.7% að það hafi verið minna. Mismunurinn, þ.e. fyrirtæki með 44.3% mannaflans nettó, gefa upp aukið framleiðslumagn. Þeir sem gefa upp óbreytt fram- leiðslumagn eru með 36.3% mannaflans, en þeir hafa ekki áhrif á niðurstöðuna í heild. Hlutdeild úrtaks fyrirtækjanna í vinnuviknafjölda í viðkomandi iðngrein er mismunandi, eða frá 5.7% upp í 100%. Ber því að taka með varúð niðurstöður frá iðn- greinum, þar sem hlutdeild er lit- il. Hér fer á eftir upptalning þeirra iðngreina sem svör bárust frá og einnig er gefin upp stærð þess úrtaks í % miðað við heildar- fjölda vinnuvikna í viðkomandi iðngrein. Númer alvinnuj'reinar Atvinnugreinarheili 206 Brauð og kökugerd 17.7% 208 Sælgætisgerð 55.6% 209 Matvælaidnaður 8.5% 213 Drv kkjarvöruiðnaður 76.6% 231 Ullariðnaður 90.7% 232 Frjónavöruframl. 45.8% 233 Veiðarfæraiðnaður 50.1% 241 Skógerð 90.7% 243 Fataiðnaður 17.3% 261 Húsgagnagerð og innr.smíði 18.6% 272 Pappírsvöruiðnaður 82.0% 281 Prentun 10.3% 291 Sútun 93.5% 311 Kemískur undirstöðuiðnaður 63.0% 315 Málninga- og lakkgerð 67.2% 319 Önnur kemísk framl. 54.7% 334 Sementsgerð 100.0% 339 Annar steinefnaiðnaður 19.9% 350 Málmsmfði 15.6% 370 Smfði rafmagnstækja 57% 381 Skipasmfði og viðgerðir 21.5% 383 Bifreiðaviðgerðir 74% 398 Plastiðnaður 24.2% Meðaltal 26.7% Allar greinar úrtaksins Niðurstöður könnunarinnar benda til þess, að lítil framleiðslu- aukning hafi átt sér stað í iðnaðin- um á 3. ársfj. 1977 miðað við 3. ársfj. 1976. Ætla má, samkvæmt þeim upplýsingum sem bárust um hlutfallslega breytingu fram- leiðslumagnsins, að aukningin hafi orðið í kring um 9.0% en það er svipuð niðurstaða-og árið áður. Kemur það einnig heim við þá niðurstöðu könnunarinnar, að um framleiðsluaukningu var að ræða hjá fyrirtækjum með um 44% mannaflans á 3. ársfj. 1977, en á síðasta ári var um aukningu að ræða hjá fyrirtækjum með um 49% mannafians sem er svipað. Framleiðslumapnið virðist hafa orðið heldur minna á 3. ársfj. 1977 en á 2. ársfj. 1977, eða um 4.5%. Er það breyting frá því, sem verið hefur, því aukningin milli þessara tveggja ársfj. hefur verið á síðustu tveim árum, yfir heildina litið, um 3—4% hvort ár. Sé miðað við mannafla, þá gefa fyrirtæki með 7.1% mannaflans til kynn a samdrátt á framleiðslu milli 2. og 3. írsfjórðungs 1977, sem er í samræmi við hlutfalls- lega breytingu framleiðslumagns- ins. Búist er við nokkurri aukn- ingu framleiðslunnar á 4. ársfj. 1977 miðað við3. ársfj. 1977. Sölumagn á3. ársfj. 1977 virðist hafa aukist nokkuð, bæði miðað við 3. ársfj. 1976 og lítillega miðað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.