Morgunblaðið - 28.02.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1978
25
n var sterkur í vörninni. (Ljósm.
ia og
sér
Hörður Kristinsson skoraði ekki
mikið í leiknum var hann FH-
vörninni mjög erfiður á línunni
og lokaði miðju varnar Ármanns-
liðsins.
I FH-liðinu er meðalmennskan í
algleymingi þessa dagana og eng-
inn nær að rifa sig upp þegar
Geirs nýtur ekki við. Tómas Hans-
son er sterkastur þeirra leik-
manna, sem FH hefur komið með
fram á sjónarsviðið. Janus reynir
ýmsa hluti og heldur spilinu
gangandi, en hann er enginn Geir
og hjá FH vantar greinilega mann
við hlið hans þegar Geir er eltur.
a
Það er íhugunar vert — og hefur
sjálfsagt þegar valdið miklum
heilabrotum — að FH-liðið hefur
misnotað 11 vítaköst í þremur
síðustu leikjum.
Dómarar þessa leiks voru þeir
Karl Jóhannsson og Hannes Þ.
Sigurðsson og dæmdu vel, en þeir
voru ekki öfundsverðir af að
þurfa að taka ákvörðun í sam-
bandi við timatökuna.
— áij
laolðfln
Guðjónsson 2, Tómas Hansson 3,
s Guðlaugsson 3, Geir Hallstcins-
isson 2, Þórarinn Ragnarsson 2,
urðsson 1, Jónas Sigurðsson 1,
í 2, Björn Jóhannesson 4, Jón
undsson 2, Oskar Asmundsson 1,
stinsson 3, Valur Marteinsson 3,
sson 1, Heimir Gunnarsson 4.
Stefán Jónsson 2, Elías Jónasson
geir Haraldsson 3, Ingimar Har-
1 2, Svavar Geirsson I, Ólafur
laraldsson 1, Þórir Ólafsson 1,
Itesen 3, Sigurður Páll Óskarsson
idórsson 2, Ingi Steinn Björgvins-
, Jóhannes Stefánsson 2, Ólafur
dsson 1, Kristinn Ingason 2, Örn
ir Birgisson 1, Birgir Jóhannsson
son 1, Arni Sverrisson 2, Gústaf
einsson 2, Pétur Jóhannsson 2,
irteinsson 1, Ragnar Ililmarsson
r Gíslason 1, Asgeir Elíasson 2,
lavarsson 2, Guðmundur Þórðar-
æll Hafsteinsson 1, Vilhjálmur
;on 2, Brynjólfur Markússon 3,
Misnotað víti í lokin
og Haukar fengu stigin
KR-INGAR fengu vítakast á silfurbakka í lok leiksins
við Hauka á sunnudaginn og þar með möguleika á að
jafna er nokkrar sekúndur voru til leiksloka. Símon
Unndórsson framkvæmdi vítakastið, en kæruleysislegt
skot hans var auðveldlega varið af Gunnari Einarssvni.
Haukar höfðu því sigur í þessum leik, skoruðu 23 mörk
gegn 22.
Leikur þessi var frekar slakur
af hálfu beggja liðanna, en sigur
Haukanna var verðskuldaður.
Þeir voru þó undir í leiknum allt
þar til um 20 minútur voru eftir
af leiktímanum. Þá komust
Haukarnir loks yfir en munurinn
var aldrei mikill og jafnt á flest-
um tölum. Loks er sex mínútur
voru eftir hristu Haukarnir KR-
ingana af sér og komust í 22:19 og
síðan 23:20. Símon skoraði tvíveg-
is úr vítakasti, en brást siðan
bogalistin i lokin. Reyndar mis-
notuðu Haukarnir líka víti í lokin,
en það kom ekki að sök.
Haukur Ottesen er sá leikmað-
ur KR-liðsins sem allt mæðir á og
er það einn helzti galli Iiðsins hve
stirðar stórskytturnar eru í spil-
inu. Auk Hauks komst Sigurður
Páll bezt frá þessu, en KR-ingar
mega taka sig taki i varnarleikn-
um, þá verður lið þeirra mun
sterkara.
Ólafur Jóhannesson var bezti
leikmaður Haukaliðsins og þessu
sinni, sérlega skemmtilegur leik-
maður, hefur gott auga fyrir spili
og mö'guleikum á línunni, auk
þess sem hann getur einnig skotið
vel. Ólafur kom á óvart með
frammistöðu sinni i þessum leik,
en Þorgeir Haraldsson gerði það
sömuleiðis og skoraði sex
skemmtileg mörk í leiknum.
Andrés Kristjánsson er vaxandi
leikmaður og samvinna hans og
Ólafs mjög skemmtileg. Þorlákur
Kjartansson varði betur en lands-
liðsfélagi hans Gunnar Einarsson
í þessum leik.
Dómarar voru Ólafur Stein-
grímsson og G'unnar Kjartansson
og stóðu sig ágætlega.
áij
ÍR-ingar eflast
með hverjum leik
GREINILEGT er að tR-ingar munu blanda sér í baráttuna um toppinn í 1. deildarkcppninni í
handknattleik í vetur. Lið þeirra eflist með hverjum leik. Varnarleikur og markvarsla liðsins er með því
besta sem sést í deildinni um þessar mundir, þá er og mikil breidd I liðinu þar sem samleikur eldri og
yngri leikmanna liðsins skilar sér mjög vel. ÍR liðið verður ekki auðunnið ef það leikur jafnvel og á móti
Fram sl. laugardag. Segja má að sigur liðsins hafi aldrei verið í hættu, það náði strax undirtökunum og
hafði örugga forystu allan leikinn, minnst 3 mörk en mest 9 mörk. Staðan í leikhléi var 17 gegn 10 en
leiknum lyktaði með sigri ÍR, 29:24.
Fyrstu átta mínútur leiksins
voru jafnar, Brynjólfur skoraði
fyrstu tvö mörk ÍR, en Arni svar-
aði með laglegum mörkum fyrir
Fram og á 9. mínútu var staðan
4:3 IR i hag en þá kom besti
leikkafli ÍR-inga. Þeir skoruðu
hvert markið af öðru og ófá úr
hröðum upphlaupum. Breyttu
þeir stöðunni úr 4:3 í 14 gegn 5. A
sama tima var allur leikur Fram
ráðleysislegur og óyfirvegaður,
Ieikmenn voru seinir til varnar og
í sókninni voru reynd ótímabær
skot. Það var ekki fyrr en í lok
hálfleiksins að Farmarar réttu að-
eins úr kútnum og átti Gústaf
Björnsson, hinn snöggi og lipri
leikmaður, stærstan þátt í þvi. í
seinni hálfleik voru Framarar
ákveðnari og tókst þeim að
minnka muninn í þrjú mörk um
miðjan hálfleikinn. Gekk IR-
ingum illa að ráða við Jens Jens-
son sem skoraði 6 mörk í hálf-
leiknum. Ekki tókst Frömurum
að fylgja þessum spretti sinum
eftir • og töpuðu þeir leiknum
29:24.
Af leikjum IR sem af er Is-
landsmótinu hefur liðið komið
verulega á óvart og verður fróð-
legt að fylgjast með framhaldinu.
Bestu menn IR í þessum leik
voru Brynjólfur, sem var siógn-
andi og var uppskeran eftir þvi 8
mörk, og Jens markvörður sem
varði mjög vel, en hann hafði
mjög góða vörn fyrir framan sig
sem barðist vel. Þeir Sigurður
Svavarsson og Ólafur Tómasson
eru sem klettar í vörninni. Þá
kom Bjarni Bessason einnig vel
frá leiknum.
Framarar leika oft á tíðum
skemmtilegan handknattleik og
er ekki vafi á því að þeir geta
meir en þeir sýndu í þessum leik,
þá vantaði meiri yfirvegun í leik
sinn og meiri barátu.
Bestu mennþeirra voru Gústaf
Björnsson sem sýnt hefur miklar
framfarir í vetur og hefur gott
auga fyrir samleik og gegnum-
brotum, og Jens Jensson. Arnar
Guðlaugsson lék ekki með í þess-
um leik, en hann hefur ekki náð
sér eftir meiðslin sem hann hlaut
í leiknum við Víking, og var þar
skarð fyrir skildi.
Dómarar voru Óli Olsen og
Haukur Þorvaldsson og skiluðu
þeir hlutverkum sínum ágætlega.
Vissulega varð þeim á í messunni
í svo hröðum leik en aldrei stór-
vægilega.
— þr.
Valurog FH sam-
síða hjá konunum
FH VANN Val örugglega f 1. deild kvenna á sunnudagskvöldið og hafa liðin því tapað jafn mörgum
stigum í keppninni um Islandsmeistaratitilinn. Bæðu lið hafa tapað tveimur leiKjum, fjórum stigum, en
Fram sem er í þriðja sæti hefur tapað sex stigum. FH-stúlkurnar eiga eftir að leika þrjá leiki, en Valur
fimm og bæði liðin eiga eftir að mæta Fram.
FH komst í 4:0 í leiknum í Firð-
inum á sunnudaginn og hafði yfir-
burði allan fyrri hálfleikinn.
Lengstum munaði fjórum mörk-
um á liðunum og í leikhléi var
staðan 8:4. Sami munur var á lið-
unum mestan part seinni hálf-
leiksins, en Valsstúlkurnar réttu
aðeins úr kútnum undir lokin, en
munurinn varð þó þrjú mörk,
13:10 fyrirFH.
Kristjana var í miklum ham í
byrjun þessa leiks og gerði hvert
markið öðru fallegra þar til Valur
brá á það ráð að taka hana úr
umferð. Kristjana átti einnig
mjög góðan leik í vörn, sömuleiðis
Sólveig Birgisdóttir og Gyða
markvörður Úlfarsdóttir stóð fyr-
ir sínu að venju. Harpa hefur
verið aðalnúmerið í Valsliðinu í
vetur, en var eitthvað miður sin í
þessum leik. Þó hún gerði 5 mörk
þá gerði hún mörg mistök og var
of eigingjörn. Markvarzla Vals
var slök í þessum leik. en einna
bezt komst Hulda frá þessum þýð-
ingarmikia leik.
Mörk FH: Kristjana 7 (lv),
Anna 2, Katrin 2, Svanhvít 1, Sól-
veig 1.
Mörk Vals: Harpa 5, Hulda 3,
H:lldóra 1, Björg 1 (lv).
—áij
r ' >
KA sigraöi
í uppgjöri
norðanliða
KA og Þör mættust í 2. deild-
inni f handknattleik í Iþrötta-
skemmunni á Akurevri á laug-
ardaginn og lauk leiknum með
sigri KA 25:22. Akureyrarliðin
hafa oft barizt grimmilega i
deildinni en að þessu sinni
sveif andi friðar og vináttu
yfir vötnum.
Þessi leikur hafði enga þýð-
ingu fyrir KA, liðið hefur
misst af öllum möguleikum á
1. deildarsæti og er ekki í fall-
hættu en leikurinn var mikil-
vægur fyrir Þór i fallbarátt-
unni. Þrátt fyrir að meira væri
í húfi fyrir Þórsara náðu þeir
sér aldrei á strik og KA vann
sannfærandi sigur og var hann
aldrei i hættu. KA náði strax
yfirhöndinni i f.h. og E hálfleik
var staðan orðin 16:10.
Hjá KA var Magnús Gauti
markvörður beztur en Jón
Hauksson og Armann Sverris-
son áttu einnig góðan leik. Lið
Þórs var mjög jafnt og skaraði
enginn framúr nema hvað Da-
vfð Þorsteinsson markvörður
var mjög góður f s.h.
Mörk KA: Jón 6, Armann 4,
Þorlcifur Ananiasson 3, Jón
Arni Rúnarsson 3, Páll
Stefánsson 3, Friðjón Jónsson
2. Alfreð Gíslason 2, Hermann
Haraldsson 1 og Sigurður
Agústsson 1 mark.
Mörk Þórs: Sigtryggur Guð-
laugsson 6, Jón Sigurðsson 6,
Rögnvaldur Jónsson 4, Aðal-
steinn Sigurgcirsson 2. Valur
Knútsson 2, Gunnar Gunnars-
son 1 mark.
Valur Benediktsson og
Kristján örn Ingibergsson
dæmdu og höfðu góð tök á
leiknum.
—GG/SS.
Kristjana Aradóttir var bezti leikmaðurinn á vellinum í leik FH og Vals á sunnudaginn. Þessi mvnd sýnir
hana reyna skot framhjá varnarvegg Vals í fyrri leik liðanna, en þá vann Valur. (Ljósm. Friðþjófur).