Morgunblaðið - 18.03.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.03.1978, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 57. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. LEIGUBÍLAR með flóttamönnum urðu fyrir árás f átökunum f Líbanon í gær og að minnsta kosti 14 biðu bana. Símamynd AP Róm 17. marz. Reutcr. UPPREISNARMENN í Erítreu sögðu í dag. að þeir hefðu fellt 1500 eþíópíska hcrmenn í einni mestu orrustunni sem hefur verið háð í héraðinu síðan baráttan fyrir aðskilnaði þess frá Eþíópíu hófst. 22 farast í fellibyl Nýju-Delhi. 17. marz. AP. SNARPUR fellibyiur gekk yfir norðurúthverfi Nýju- Delhi í dag, reif tré upp með rótum í hundraðatali og velti bifreið um koll. 22 biðu bana og um það bil 700 slösuðust að sögn yfirvalda. Sjónarvottar segja að felli- bylurinn hafi aðeins staðið í ■ um tvær mínútur. Háskóla- svæðið varð harðast úti. Þar brotnuðu símastaurar eins og eldspýtur, rúður brotnuðu í húsum og tré fuku. Þök fuku af mörgum hús- um og margar rúður brotn- uðu. Sendistöð indverska út- varpsins hrundi og útsending- ar rofnuðu. Slasaður maður sagði að hann hefði verið í strætis- vagni sem hefði snúizt fimm sinnum í veðurofsanum. Bandarískur stúdent líkti fellibylnum við flutningalest sem hefði komið æðandi. Rúmlega 200 voru fluttir í sjúkrahús. ná Talsmaður Alþýðufylkingarinn- ar til frelsunar Erítreu (EPLF) sagði að enn fleiri Eþíópíumenn hefðu særzt í orrustunni og að Erítreumenn hefðu tekið herfangi mikið magn sovézkra og banda- ríska vopna og þrjá sovézka T-54 skriðdreka. Hann sagði að orrustan hefði hafizt á þriðjudag þegar um 1.000 eþíópískir og kúbanskir hermenn hefðu reynt með stuðningi stór- skotaliðs og flugvéla að rjúfa umsátrið um fylkishöfuðborgina Asmara. Árásin var gerð á breiðri víglínu frá Adi Hawsha suðaustur af Asmara til Adi Musa í vestri að sögn talsmannsins. Aðskilnaðar- sinnar hafa sagt að þeir hafi búizt Framhald á bls. 26. Rauða herdeildin hefur lýst sig ábyrga á ráni Moros og í dag var hringt í dagblað og varað við því að Moro yrði tekinn af lífi ef stjórnin sleppti ekki úr haldi 15 liðsmönnum herdeildarinnar sem eru fyrir rétti í Torino. En dómari þar sagði að hann gerði ráð fyrir því að réttarhöldin hæfust að nýju á mánudag samkvæmt áætlun. LÖGREGLUMENN leita f bifreið við vegatálma í Róm vegna ránsins á Aldo Moro. Simamynd AT ísraelskar víkingasveitir hafi laumazt í land og ráðizt á Framhald á bls. 26. Olíubrák mengar fjorur í Bretagne Brest, 17. marz. Reuter. SVÖRT olíubrák barst á land í dag úr olfuflutningaskipinu Amoco-Cadiz sem strandaði í nótt á skeri og brotnaði í tvennt rétt undan strönd Bretagne-skaga f Frakklandi. Nokkurra mílna svæði um- hverfis skipið er þakið olíu og olían hefur mengað fjörur á fimm kílómetra löngum kafla. Umhverfisspjöll geta verið Framhald á bls. 26. Sprenging í kjarnorku- veri á Spáni Bílbao, Spáni 17. marz. AP. SPRENGJA sprakk í dag f kjarnorkuveri, sem er í byggingu rétt við bæinn Lemoniz f Baska- héruðum og tveir biðu bana en 10 særðust. Sprengjunni hafði verið komið fyrir rétt við kjarnakljúf- inn sjálfan og kjarnorkuverið skemmdist mikið. Ekkert úra- nfum var f kjarnkljúfinum. Nokkrum mínútum áður en sprengjan sprakk var hringt til Framhald á bls. 26. Beirút, 17. marz. AP. Reuter. ÍSRAELSMENN beittu flugvél- um, skriðdrekum og fallhlífaher- mönnum á þriðja degj. aðgerða sinna f Suður-Lfbanon f dag og náðu á sitt vald að minnsta kosti fimm stöðvum palestínskra skæruliða, en að sögn hlutlausra aðila veita skæruliðar furðusnarpa mótspyrnu þótt þeir eiri við ofurefli liðs að etja. Jafnframt tóku ríkisstjórnir Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og Bretlands undir áskorun Líban- onsstjórnar í dag til ísraelsmanna um að hörfa með herlið sitt frá Suður-Líbanon. Líbanonsstjórn fór þess formlega á leit að 50.000 manna lið leitar Aldo Moros Róm, 17. marz. AP — Reuter. RÍIMLEGA 50.000 hermeni> og lögreglumenn héldu áfram að leita að Aldo Moro fyrrverandi forsætisráðherra og ræningjum hans á landi, sjó og úr lofti í dag og stjórnin ræddi strangar ráðstafanir tii þess að stemma stigu við borgarhryðjuverkum. Engar óyggjandi vísbendingar hafa komið fram um dvalarstað Moros eða líðan hans. Sagt er að Moro þurfi á stöðugri læknishjálp að halda og óttazt er um heilsu hans. Moro var skorinn upp við nýrnasjúkdómi fyrir tveimur árum. í kvöld sagði ftalska lögreglan að nokkrir hefðu verið handtekn- ir vegna ránsins á Moros. Einn hinna handteknu er Gianfranco Moreno, 32 ára gamall, sem var yfirheyrður í aðalstöðvum lög- reglunnar og síðan fluttur f handjárn f fangelsið Regina Coeli. Lögreglan sagði að hún væri að rannsaka að hve miklu leyti hann væri viðriðinn ránið. Samkvæmt annarri orðsendingu sem er sögð komin frá Rauðu herdeildinni er því hótað að Moro verði „útrýmt" á morgun og að aðrir gíslar verði teknir ef félögum Framhald á bls. 26. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kæmi saman til þess að fjalla um ástandið og hvetja til brottflutn- ings ísraelsmanna. Á vígstöðvunum héldu ísraelsk- ar þotur áfram árásum á stöðvar skæruliða umhverfis hafnarbæinn Tyrus og stöðvar þeirra norðan Litani-árinnar samkvæmt ýmsum frásögnum sjónarvotta og opinber- um heimildum. íraelskt herlið lenti í þyrlum og steig á land úr skipum rétt hjá fiskiþorpinu Adloun miðja vegu milli Sidon og Tyrus og sprengdi í loft upp flotastöð róttækra skæruliða samkvæmt heimildum í líbönsku stjórninni. Georg Habash, leiðtogi Alþýðufylkingar- innar til frelsunar Palestínu, (PFLP) hélt því fram að ísraels- menn hefðu verið hraktir á flótta, en viðurkenndi að Israelsmenn hefðu fellt yfirmann PFLP á staðnum, „Jihad Carlos". Seinna voru fréttir um að Israelsmenn hefðu sent lið til Adloun dregnar í efa, en víst er að minnsta kosti 14 flóttamenn voru drepnir í tveimur leigubifreiðum. Sumir íbúar þorpsins segja að Israelsmenn 5 skæruliðastöðvum 1500falla í Erítreu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.