Morgunblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978
15
Um myntsöfnun
I undanförnum 5 myntþáttum
hefi ég fjallað um myntsöfnun
almennt og þá sérstaklega
kannski um söfnun á lýðveldis-
myntinni íslenzku. Hefi ég nú
tekið fyrir gangmyntina og 500
króna gullmyntina frá 1961. Þá.
eru eftir 3 peningar, sem slegnir
voru 1974 í tilefni 1100 ára
þjóðhátíðar hér á landi. Þessir
peningar eru mynt af því þeir
eru með verðgildi og í lögunum
um þá er gert ráð fyrir því, að
þeir skuli vera gjaldgeng mynt.
Samt er það þó svo að ég efast
um að nokkur lesara minna hafi
nokkurn tíma fengið silfur eða
gullmynt frá 1974 í beinum
viðskiptum. Allir þessir pening-
ar lentu sem safngripir. Og
þarna er komið inná það erfiða
verkefni að skera úr því hvenær
peningur er mynt og hvenær
minnispeningur enn einu sinni.
Það er freistandi fyrir ríkis-
stjórnir, seðlabanka eða hvern
þann, sem með myntútgáfuna
6. þáttur
fer, að láta slá mynt, sem síðar
er seld með yfirverði, þ.e. hærra
verði en málminnihald myntar-
innar er, og stinga ágóðanum í
vasann. Það eru heilu ríkin sem
lifa á því aö prenta frímerki og
slá mynt á þennan hátt. Vitandi
þess, að aldrei þarf að óttast það 1
að myntin fari í umferð og þurfa
svo að innleysa hana kannski
einhvern tíma. Það er örskammt
síðan íslenzka póststjórnin
neitaði Skáksambandinu um
ágóðahlut af frímerkjaútgáfu,
sem vera ætti vegna heims-
meistaraeinvígis sem halda
mætti hér á landi, ef Skáksam-
bandið fengi af ágóða frímerkja-
sölunnar drjúgan hlut. Islenzka
póststjórnin sagði, réttilega, að
hér væru gefin út frímerki til
almenns brúks. Að vísu lenti
hluti upplagsins auðvitað hjá
frímerkjasöfnurum, en það væri
aukaatriði sem kæmi póst-
stjórninni ekki við, og ekki
kæmi til greina að gera sér mat
úr frímerkjasöfnun í ágóða-
skyni. Það er kannski rétt að
minna í þessu sambandi á
útgáfur Skáksambandsins á
eftir RAGNAR
BORG
minnispeningum í sambandi við
heimsmeistaraeinvígið hér 1972.
Peningarnir urðu 3, upplagið af
seinni tveimur peningunum svo
mikið og spekúlasjónirnar með
peningana svo æðislegar, að
verðið á peningunum hrundi
fljótlega og þeir hafa ekki verið
nema málmsins virði í mörg ár.
Það hefir bjargað þessum
peningum, að gullið í þeim var
gott og mikið af því. Jæja, nóg
um þetta og komum svo aftur að
1974 útgáfunni. Þessir peningar
eru úr fínu silfri og gulli og þar
að auki skrautmynt, eða það
sem Seðlabankinn kallaði
sérunna sláttu. Þessi sérunna
slátta er þannig gerð, að mótin,
sem notuð eru við myntsláttuna,
eru sérstaklega slípuð. Verður
þá myntin sérlega glansandi og
mikil bæbrigði í henni, sérstak-
lega silfrinu. Það má ekki með
nokkru móti snerta á þessum
peningum með fingrunum á
hliðum peninganna, bara taka
þá upp á röndinni og helzt að
nota dúk eða hanzka þegar
hreyft er við þeim. Peningarnir
voru allir sérstaklega innpakk-
aðir í plast, og þar eru þeir bezt
geymdir. Það er bezt að taka það
fram að ekki eru til nema 41.000
sett af silfurskrautmyntinni.
17.000 sett voru brædd upp því
ekki þótti Seðlabankanum salan
ganga nógu hratt. Ég tel þetta
mikinn skaða og bráðlæti. Það
lá ekkert á. Peningarnir stóðu
alveg fyrir sínu.
Eins og ég sagði hér að
framan er oft nokkur vandi að
skera úr um það hvort peningur
er mynt eða minnispeningur, en
ekki er vafi á að myntin frá 1974
er hvort tveggja. Nokkrir
erlendir sérfræðingar hafa
hallast að því að rétt væri að
skrá sérstaklega mynt sem
slegin væri í auðgunarskyni af
ríkisstjórnum. Af þessu hefir
ekki orðið enn og verður sjálf-
Framhald á bls. 36
Þjóðhátíðarmyntin 1974 upplag
500 krónur, silfur 70.000 stk.
500 krónur, silfur, skrautmynt, 41.000 stk.
1.000 krónur, silfur 70.000 stk.
1.000 krónur, silfur, skrautmynt, 41.000 stk.
10.000 krónur, gull 12.000 stk.
10.000 krónur, gull, skrautmynt, 8.000 stk.
Skrautmyntin var þannig seld að 33.000 sett af silfurmynt eru
saman í öskjum og 8.000 sett með gullpeningum að auki.
Páll Bergsson (fyrir miðri mynd) og Jakob Armannsson hafa náð
ágætum árangri við spilaborðið í vetur. Þeir urðu m.a. í fjórða sæti
á stórmóti Bridgefélags Reykjavíkur. Þeir félagar eru meðal fárra
para sem spila Acol-kerfið og hafa ekki smitast af Precision-æðinu,
sem farið hefur sem eldur um sinu með Reykjavíkurspilara. Þá eru
einhverjir farnir að spila pass-kerfið, sem er öndvert við gamla
góða Vínarkerfið og er sagt pass á fyrstu og aðra hönd þegar
spilari er með svokallaða vakningu.
Bridgefélagið
Ásarnir, Kópavogi
Fjórum kvöldum af sex er
lokið í barometerkeppni hjá
félaginu, eða 20 umferðum af 29.
Alls taka 30 pör þátt í keppninni
og er staða efstu para þessi:
Runólfur Pálsson
— Hrólfur Hjaltason 365
Jón Páll Sigurjónsson
— Guðbrandur
Sigurbergsson 234
Olafur Lárusson
— Hermann Lárusson 182
Asmundur Pálsson
— Þórarinn Sigþórsson 160
Sævin Bjarnason
— Óli Andreasson 142
Oddur Hjaltason
— Jón Hilmarsson 133
Einar Þorfinnsson
— Sigtryggur Sigurðsson 126
Armann J. Lárusson
— Sverrir Ármannsson 121
Næstsíðasta kvöld verður á
mánudaginn — en síðasta um-
ferðin verður spiluð 3. apríl.
Þessi keppni var jafnframt
firmakeppni félagsins og verða
úrslit tilkynnt mjög fljótlega.
Næsta keppni félagsins verð-
ur Butler-keppni, líklega þriggja
kvölda, og hefst 10. apríl.
Bridgesamband
Reykjanes-
umdæmis
Reykjanestvímenningurinn,
sem jafnframt er undankeppni
fyrir íslandsmót, hefst í Hamra-
borg 1 á sunnudaginn og hefst
klukkan 13. Reykjanes á rétt á
10 pörum í íslandsmótið.
Bridgefélag
kvenna
Eftir tvær umferðir í para-
keppni félagsins eru eftirtalin
pör efst:
Alda Hansen
— Georg Ólafsson 277
Sigrún Ólafsdóttir
— Magnús Oddsson 258
Halla Bergþórsdóttir
— Jóhann Jónsson 258
Guðríður Guðmundsdóttir
— Sveinn Helgason 256
Ósk Kristjánsdóttir
— Dagbjartur Grímsson 254
Lilja Peterson
— Jón Sigurðsson 242
Sigríður Pálsdóttir
— Eyvindur Valdimarsson 241
Steinunn Snorradóttir
— Agnar Jörgensson 241
Bridge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Kristín Þórðardóttir
— Jón Pálsson 235
Esther Jakobsdóttir
— Guðmundur Pétursson 234
Meðalskori 216 stig.
Þriðja umferðin í þessari
keppni verður spiluð í Domus
Medica mánudaginn 20. marz
n.k., og hefst' keppni kl. 20
stundvíslega.
Bridgefélag
Selfoss
Úrslit í Höskuldarmótinu,
sem lauk 9. mars 1978.
Kristmann Guömundsson
— Þórður Sigurðsson 1289
Guðmundur Sigursteinsson
— Gunnlaugur Karlsson 1251
Sigurður Sighvatsson
— Kristján Jónsson 1163
Sigfús Þórðarson
— Vilhjálmur Þ. Pálsson 1146
Hannes Ingvarsson
— Gunnar Þórðarson 1126
Halldór Magnússon
— Haraldur Gestsson 1095
Jónas Magnússon
— Guðm. G. Ólafsson 1067
Friðrik Larsen
— Grímur Sigurðsson 1046
Leif Österb.v
— Þorvarður Hjaltason 1000
Garðar Gestsson
— Brynjólfur Gestsson 985
4 umferðum er lokið í meist-
aramóti í sveitakeppni og verður
næsta umferð spiluð á fimmtu-
dagskvöldið 16. mars.
Staða efstu sveita er þessi.
1. Sveit Vilhjálms Pálssonar80
2. Sveit Jónasar
Magnússonar 51
— hefur setið yfir
3. Sveit Sigurðar S. Sigurðsson-
ar.
Frá Barðstrend
ingafélaginu
Úrslit í 6. umferð sveita-
keppni félagsins:
Sveit Baldurs Guðmundsson-
ar vann sveit Sigurðar ísaksson-
ar 20 gegn 0 stigum.
Sveit Gísla Benjamínssonar
vann sveit Ágústu Jónsdóttur 20
gegn 0 stigum.
Sveit Helga Einarssonar vann
sveit Guðmundur Guðveigsson-
ar 16 gegn 4 st.
Sveit Ragnars Þorsteinssonar
vann sveit Guðbjarts Egilssonar
20 gegn 0 stigum.
Röðin er þessi:
1. sveit Helga Einarssonar 77
2. sveit Ragnars
Þorsteinssonar 70
3. sveit Sigurðar
Kristjánssonar 68
4. sveit Guðbjarts
Egilssonar 59
Slippfélagið í Reykjavík hf.
auglýsir:
Eigum ávallt fyrirliggjandi í TIMBURVERZLUN vorri:
Fura: mótaviður, smíðaviður u/s og þurrkuð smíðafura af flestum
stærðum
Irako og Siamese Yang í 2 V2" x 5" og 2" x 6".
Frá Kaukas A/B í Finnlandi höfum við hinn viðurkennda vatnsþétta
krossvið í stærð 1,22 x 3,05 m, þykktir 6V2, 9, 12, 15, 18, og 24
m/m og 1,22 x 2,44 m, þykktir 6V2, 9, og 1 2 m/m.
Olíusoðið Masonite 4' x 8' og 4' x 9'
Spónaplötur frá Tiwi O/Y í Finnlandi í öllum þykktum, stærð:
1 80x3,66 m.
Frá Rödekro Savværk A/S í Danmörku höfum við hina frábæru
skipaeik og beyki í öllum þykktum og breiddum.
Oregonfura,
Glerfallslistar,
Málarastigar og tröppur,
Fánastengur
í vélasal okkar er svo þjónustan alkunna. Reynið viðskiptin.
SLIPPFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK HF.
Mýrargötu 2. Simi: 10123