Morgunblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978 7 ifskjör og þjóðskipulög Sú staðreynd var viðruð í stökum stein- um í gær, að vestræn lýðræðis- og þingræð- isþjóðfélög tryggðu þegnum sínum menn- ingarleg, félagsleg og efnahagsleg lífskjör, sem eru — vægt orðað — mörgum áratugum á undan lífskjörum fólks, er býr við marx- lenínskt þjóðskipulag. Almenn þegn- og mann- réttindi eru það mikil í ríkjum Vesturlanda, að samanburði verður vart við komið. Mbl. birti 15. marz sl. samanburðarkort um hagkerfi í heiminum. fengið að láni úr hinu virta timariti TIME, sem dregur þessa stað- reynd ótvírætt fram í dagsljósið. bar kemur í fyrsta lagi fram samanburður á vergri þjóðarfram- leiðslu, sem speglar almenn lífskjör í viðkomandi löndum. Bandaríkjadalur er hafður til viðmiðunar, er þjóðarframleiðsla á mann er mæld, og byggt á spá Alþjóða- bankans fyrir árið 1976. bannig er þjóðar framleiðsla á mann í Bandaríkjunum sögð $7890, í V-býzkalandi $7380, í Danmörku $7450, í Frakklandi $6550 ög á íslandi $6100, svo nokkurra vestrænna ríkja sé getið. Sovétríkin koma hins vegar með $2760, Abýzkaland með $4200, Pólland $2880, Tékkóslóvakíka $3340, Ungverjaland $2280 og Búlgaría $2310. Tölur þessar tala ótvíræðu máli. Efnahagur landa og einstaklinga Daginn eftir að þessi samanburður birtist í Mbl. kom athyglisverð hugvekja í dagskrá bjóðviljans, innlegg f „hugmyndafræðilegan“ ágreining fjölklíku- flokksins. bar segir m.a. „Til eru þeir, sem eru andvígir bflum. því þeir telja sig svo róttæka. í N-Kóreu, Kína, Kúbu og Albaníu eru ekki til einkabflar. bað er mis- skilningur að halda að sósíalismi í framkvæmd sé m.a. að sitja í strætis- vagni. í þessum löndum eru ekki leyfðir einka- bflar, vegna þess að efnahagur landanna og einstaklinganna leyfir það ekki ...“ bá veit maður það. Einkabílar eru ekki leyfðir vegna þess að efnahagur einstakling- anna leyfir það ekki í þessum nafngreindu rfkjum sósfalsks þjóð- skipulags. Greinarhöfundur segir enn. „Ég skil ekki bjóð- viljann, þegar hann tekur syrpur gegn heimilisbílnum, sem hann kallar þá blikk- belju í háðungarskyni. í stóru og strjálbýlu landi eins og okkar er bfll nauðsyn, eins og hesturinn áður fyrr. betta er svo augljóst að ég nenni ekki að rök- styðja það.“ Máske liggur hundurinn þar grafinn, að bjóðviljinn, sem berst fyrir sams konar þjóðskipulagi hér og í þeim ríkjum, sem eru lffskjaralega séð langt að baki okkar, hafi ósjálfráða andúð á velmegunareinkennum hins vestræna heims. Hvað sem þvf lfður skal hér undirstrikaður sá höfuðkostur vestræns lýðræðisþjóðskipulags, að geta þróast frá ann- mörkum sfnum — á friðsaman og farsælan hátt — fyrir áhrif meirihlutavilja í frjáls- um, leynilegum og almennum kosningum. Þegnréttindi og aðbúð Samanburðarkort TIME, sem fyrr var vitnað til, nær til fleiri atriða en verðmæta- sköpunar f viðkomandi þjóðfélögum og efna- hagslegrar afkomu. bað er nær ennfremur til lífsgæðavísitölu, skv. staðli frá The Overseas Development Concil. og grundvallast á læsi, skriftarkunnáttu, ung- barnadauða, möguleik- um á langlffi o.fl. Hámark þeirrar vísi- tölu er 100. Bandarfkin hafa vfsitölu 94. V-býzkaland 93, Dan- mörk 96, Frakkland 94 og ísland 96. Sovétríkin 91, Búlgarfa 91, A-býzkaland 93, Pól- land 91, Albanfa 72. Hér er munurinn ekki mikill, þó að Vesturlönd hafi nokkra forystu enn. begar kemur hins vegar að almennum þegnréttindum breikk- ar bilið. Vísitala stjórn- málalegs frelsis er byggð á athugunum félagsvfsindastofnunar- innar Freedom House í New York. Ilámark hennar er 100. Banda- ríkin fá vísitölu 100. Ennfremur öll Norður- löndin, þ.m.t. fsland, og flest ríki hins vestræna heims — þó ekki öll. Sósfölsku rfkin fá vísi- tölu frá 8 til 25, utan Albanfa, sem fær 0. Sovétríkin fá 8, Kína 17, Pólland og Ung- verjaland 25. Hér hefur aðeins verið drepið á örfá atriði þessarar saman- burðartöflu, sem er fróðleg til athugunar. beir sem vildu kynna sér hana nánar geta flett upp á bls. 14 í Mbl. 15. marz sl. bað er ómaksins vert. I jfHeöáur á morgun GUÐSPJALL DAGSINS: Lúkas 19.: Innreiö Krists í Jerúsalem. LITUR DAGSINS: Fjólublár. — Litur iðrunar 09 yfirbótar. Palmasunnudagur- Dybilvika hefst DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd. Séra Hjalti Guðmundsson. Föstu- guðsþjónusta kl. 2 síöd. Vænst er þátttöku fermingarbarna og for- eldra þeirra. Séra Þórir Stephensen. ÁRBÆJARPRESTAKALL Barnasamkoma í Árbæjarskóla kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta kl. 2. Biskup íslands vígir safnaöarheimili Árbæjarsóknar. Sr. Guömundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2 aö Norðurbrún 1. Séra Grímur Gríms- son. BREIDHOLTSPREST AK ALL Barnasamkoma í Breiöholtsskóla sunnud. kl. 11. Messa kl. 2 e.h. í Breiðholtsskóla. Séra þárus Hall- dórsson. BÚSTAOAKIRKJA Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2, dr. Jakob Jónsson messar. Sóknarprestur. DIGRANESPRESTAKALL Barnasamkoma í safnaöarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 2. Séra Þorbergur Kristjánsson. FELLA- og Hólaprestakall Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Séra Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma kl 11. Guösþjónusta kl. 2. Organ- leikari Jón G. Þórarinsson. Séra Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11. Lesmessa n.k. þriðjudag kl. 10:30 árd. Beðið fyrir sjúkum. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Séra Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Séra Arngrímur Jónsson. Síödegisguös- þjónusta og fyrirbænir kl. 5. Séra Tómas Sveinsson. KARSNESPRESTAKALL Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Séra Árni Pálsson. LANGHOLTSPREST AKALL Barnasamkoma og ferming 19. mars kl. 10:30. Séra Árelíus Níels- son. Fermingarbörn: Hafdís Guð- mundsdóttir, Gnoðarvogi 34, Svava Johansen, Laugarásvegi 46, Ingvar Berg Steinarsson, Skeiðarvogi 61. Guösþjónusta kl. 2. Séra Arelíus Níelsson. Safnaðarstjórn. LAUGARNESPRESTAKALL Hátún 10b (Landspítaladeildir). Guösþjón- usta kl. 10. Barnaguösþjónusta kl. 11. Messa kl. 2. Sóknarprestur. NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10:30. Guösþjónusta kl. 2. Kvenfé- lagiö býður öldruðum til kaffiveit- inga aö lokinni guðsþjónustu. Guðm. Óskar Ólafsson. FÍLADELFÍUKIRKJAN Almenn guösþjónusta kl. 8 síðd. Einar J. Gíslason. SUNNUDAGASKÓLI K.F.U.M. Amtmannsstíg 2b fyrir öll börn kl. 10:30 árd. DÓMKIRKJA Krists Konungs Landakoti Lágmessa kl. 8:30 árd. Hámessa og pálmavígsla kl. 10:30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema á laugardögum, þá kl. 2 síðd. FRÍKIRKJAN Reykjavík Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn Björnsson. SELTJARNARNESSÓKN Barnasamkoma kl. 11 árd. í félags- heimilinu. Séra Guðmundur Óskar Ólafsson. AÐVENTKIRKJAN Reykjavík Biblíukynning kl. 5 síðd. Sigurður Bjarnason. GRUND Elli- og hjúkrunarheimilið Messa kl. 2 síðd. Helgi Tryggvason messar. Fél. fyrrv. sóknarpresta. HJÁLPRÆÐISHERINN Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 2 síöd. Sam- koma kl. 8:30 síðd. Lautinant Evju. FÆREYSKA sjómannaheimilið Samkoma kl. 5 síðd. Jóhann Olsen. GARDAKIRKJA Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Guösþjón- usta kl. 2 síöd. Aöalsafnaöarfundur verður að Garöaholti að messu lokinni. Séra Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Josefssystra í Garða- bæ. Hámessa kl. 2 síðd. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði Guðsþjónusta kl. 2 síðd. — Ferming og altarisganga. Séra Magnús Guðjónsson. VÍÐISTAÐASÓKN Barnaguösþjónusta aö Hrafnistu’kl. 11 árd. — Almenn guðsþjónusta í Hafnarfjaröarkirkju kl. 2 síðd. Séra Sigurður H. Guömundsson. NJARDVÍKURPRESTAKALL Fjölskylduguösþjónusta í Stapa kl. 2 síöd. Kristiö æskufólk og kirkjukór- inn syngja. Séra Páll Þórðarson. KEFLAVÍKURKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 2 síöd. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA Föstumessa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. GRINDAVÍKURKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 10:30 árd. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA Fermingarguðsþjónustur kl. 10:30 árd. og kl. 2 síðd. — Sóknarprestur. HVERAGERDISKIRKJA Fermingarmessa kl. 13:30. Sóknar- prestur. AKRANESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10:30 árd. Messa kl. 2 síöd. Séra Björn Jónsson. Kaffihlaðborð veröur í félagsheimili Fáks sunnudaginn 19. marz. Húsiö opnar kl. 15. Fákskonur sjá um meölætiö. Borðin svigna undan kræsingunum. Allir hjartanlega velkomnir. Fáksfélagar, fjölmenniö nú. Fákskonur Sunnudaginn 19. marz 1978 klukkan 15.30 heldur NÝJA POSTULAKIRKJAN samkomu aö Hótel Borg (Turnherbergi). Kaffi og kökur á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. NAUÐUNGARUPPBOÐ sem auglýst var í 55., 60. og 63. tölublaði Lögbirtingablaösins 1977 á Túnbrekku 4, hluta, þinglýstri eign Harrys Sigurjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 28. marz 1978 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Kvenfélagið Hringurinn heldur flóamarkað í lönskólanum, (gengiö inn frá Vitastíg) sunnudaginn 19. marz kl. 2. Margt eigulegra muna. Allur ágóöi rennur til Barnaspítala Hringsins. AKUREYRI — ítölsk hátíð - í Sjálfstæðishúsinu Akureyri, sunnudaginn 19. marz. ★ Kl. 19.30 Hátíöin hefst með borðhaldi. ítalskur veizlumatur. Verð aðeins kr. 2.850,- ★ Ferðaáætlun Útsýnar lögð fram og kynnt. ★ Sýndar verða myndir frá hinum vinsaelu sólarströnd- um Spánar, Jtalíu, Grikklands og Júgóslavíu. ★ Eiríkur Stefánsson og Helga Alfreðsdóttir syngja við undirleik Áskels Jónssonar. ★ Nemendur úr Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar á Akureyri sýna nýjustu dansana. ★ Feguröarsamkeppni — UNGFRÚ ÚTSÝN 1978 —. Forkeppni. Ferðaverðlaun að upphæð kr 1.000.000- ★ Ferðabingó. Spilaö verður um þrjár sólarlandaferöir með Útsýn. ★ Dansaö til kl. 1 ★ Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi, en ódýrri skemmtun. ★ Hátíöin hefst stundvíslega og borðum verður ekki haldiö eftir kl. 19.30. ★ Munið, alltaf fullt hús og fjör hjá Útsýn. ★ ENGINN AÐGANGSEYRIR. AÐEINS RULLUGJALD. Veriö velkomin. Góöa skemmtun. Kristín Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri hópferóa- deildar Útsýnar verður til viðtals og gefur upplýsíngar um teröir Útsýnar 1978 í verzlun- inni Bókaval, ménudaginn 20. marz kl. 1—5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.