Morgunblaðið - 18.03.1978, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978
Operutónleik-
ar aftur í dag
ÓPERUTÓNLEIKAR Siníóníu-
hljómsveitar íslands verða endur-
teknir í dag í Háskólabiói en
þessir tónleikar fengu góðar
undirtektir áheyranda sl.
fimmtudaK.
Stjórnandi hljómsveitarinnar er
Wilhelm Briikner-Ruggeberg frá
Hamborg en einsöngvarar eru
Astrid Schirmer, sópransöngkona,
og Heribert Steinbach, tenór. A
efnisskránni eru aðallega atriði úr
óperum Wagners en einnig Beet-
hovens.
Tónleikarnir í dag eru kl. 14.30.
Fríðrík blæs lífí í skák-
áhugann á Akranesi
1000. heyblásari Landssmiðjunnar
LANDSSMIÐJAN hefur framleitt 1000. heyblásarann en fyrirtækið hóf framleiðslu á þessum blásurum árið
1956. Framleiddar eru tvær gerðir hvað afköst áhrærir — annars vegar H-12 gerðin og hins vegar H-22.
Að sögn Ágústs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Landssmiðjunnar, hefur fyrirtækinu tekizt að standast
samkeppnina við innflutta heyblásara bæði í verði og gæðum. Árleg framleiðsla heyblásara er á bilinu frá
80 til 120 og heyblásararnir kosta án söluskatts 378 þúsund kr. H-12 gerðin og 450 þúsund H-22 gerðin.
Á mjndinni sjást þeir Finnbogi Jónsson, sem smíðaði þennan 1000. blásara, Markús Guðjónsson, verkstjóri,
og Ágúst Þorsteinsson.
Lodnuveidin O O 1 ^
með bezta möti: 03131* 11160
tæp 20 þúsund tonn
Akranesi _
TAFLFÉLAG hefur starfað
hér á Akranesi í mörg ár, og
áhugi var töluverður. Akra-
nes átti eitt sinn taflkóng
íslands, Hallgrím Jónsson
frá Guðrúnarkoti, sem var
einnig mikill íþróttamaður á
öðrum sviðum.___________
Bandarísk-
ur píanóleik-
ari nyrðra
Akureyri —
BANDARÍSKI píanóleikarinn
Martin Berkofsky heldur tónleika
í Borgarbíói þriðjudaginn 21. marz
kl. 19.00. Þetta eru fjórðu tón-
leikarnir sem Tónlistarfélag Akur-
eyrar gengst fyrir í vetur. Verk-
efni hans eru eftir Beethoven,
Haydn, Brahms og Rachmaninoff.
Daginn eftir leikur Berkofsky
sömu efnisskrá í safnahúsinu á
Sauðárkróki á vegum tónlistar-
félagsins þar og hefjast þeir kl.
Nú að undanförnu hefur
tafláhuginn legið niðri, en í
gær kom Friðrik stórmeistari
Olafsson og lífgaði heldur
betur upp á hann með því að
tefla fjöltefli. Það fór fram í
fjölbrautarskólanum á veg-
um áhugamanna. Friðrik,
sem er ættaður héðan af
Akranesi í föðurætt, tefldi
við 70 manns á aldrinum allt
frá 7 ára tií sjötugs. Hann
vann 67 skákir og gerði 3
jafntefli. Margir áhorfendur
voru mættir og fylgdust vei
mað skákunum, og er nú
reiknað með að Taflfélag
Akraness vakni af værum
blundi.
— Júlíus.
Mosfellsheid-
in jeppafær
MOSFELLSHEIÐIN er nú jeppa-
fær en verður ekki rudd frekar
nú fyrir páskana samkvæmt
upplýsingum vegaeftirlits. Hins
vegar er ágætlega fært á Þingvöll
eystri leiðina um Ljósafoss.
AFLI loðnuskipanna í gær
var með albezta móti á
yfirstandandi vertíð eða
tæplega 20 þúsund tonn, og
dregur nú saman með
heildaraflanum á vertíð-
inni í fyrra og þeirri sem
nú stendur.
Veiði frá miðnætti í gær
og fram til kl. 8 síðdegis var
alls orðin 19.740 lestir af 38
loðnuskipum. Aflinn fékkst
rétt vestan við Ingólfshöfða
og þar úti af, og sigldu
skipin með aflann til Vest-
mannaeyja, -Austfjarða-
hafna og á Faxaflóahafnir.
Heildaraflinn í gærdag var
orðinn 446 þúsund en var á
sama tíma í fyrra 510
þúsund lestir, sem var met-
vertíð.
Morgunblaðið náði tali af
Hjálmari Vilhjálmssyni,
fiskifræðingi sem var um
borð í Árna Friðrikssyni úti
af sunnanverðum Aust-
fjörðum. Hafði verið leitað
þar á allstóru svæði en með
fremur litlum árangri nema
hvað vart hefði orðið við
dálítið af loðnu á norðan-
verðu Papagrunni en
Amtsbókasafnið
fær þýzkar bækur
Akureyri —
VESTUR-ÞÝZKA bókaforlagið
Die Martin-Behaim Gesellschaft
hefur gefið Amtsbókasafninu á
Akureyri 72 þýzkar bækur í tilefni
150 ára afmælis bókasafnsins.
Jochem Sartorius, starfsmaður
þýzka sendiráðsins í Reykjavík,
afhenti bækurnar að viðstöddum
þýzka ræðismanninum á Akureyri,
Kurt Sonnenfeld, tannlækni. Lár-
us Zóphaníusson, amtsbókavörður,
veitti gjöfinni viðtöku og flutti
gefendum þakkir.
- Sv.P.
Aðalfundur
Verzlunarbank-
ans í dag
AÐALFUNDUR Verzlunarbank-
ans verður haldinn í dag á Hótel
Sögu og hefst hann kl. 14. Á
fundinum fara fram venjuleg
aðalfundarstörf. Enfremur verður
lögð fyrir fundinn tillaga banka-
ráðs um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa og aukningu hlutafjár bank-
ans . — Hluthafar geta fengið
afhenta atkvæðaseðla á fundar-
stað.
Hjálmar sagði að ekki hefði
þetta virzt mikil loðna sem
þarna fór.
Skipin sem tilkynntu afla í gær voru>
Dagfarí 500, Rauðeey 500, Hilmir 520,
Albert 570, Gfali Árni 570, Vikurberg 280,
Guðmundur 720, Súlan 750, Börkur 1050,
Araæll 400, Fffill 600, Húnarifat 600, H&kon
790, Vörður 270, N&ttfari 510, Heimaey
150, Sigurbergur 210,' Gullberg 580,
Glófaxi 120, Stapavik 540, Loftur Baidvins-
son 770, Sæbjörg 560, Árni Sigurður 820,
(aleifur IV 170, fsafold 840, Guðmundur
Krístinn 300, Faxi 330, Helga Guðmunda-
dóttir 680, Huginn 560, Skírnir 430, Bergur
II 500, Bjarnarey 150, Óakar Halídórason
400, Narfi 1050, Ljósfari 330, óiafur
Magnúss. 220, Vfkingur 1200, Bira 220.
Alþingi kem-
ur saman á
ný 29. marz
AÐ LOKNUM þingstörfum í
fyrradag hófst þinghlé, páskafrí
þingmanna. Reglulegir fundir Al-
þingis hefjast á ný 20. marz n.k.
Þá er gert ráð fyrir því að fram
verði lögð stjórnarfrumvörp um
skattalagabreytingar og stað-
greiðslukerfi skatta.
Tónleik-
ar á Akur-
eyri í dag
Akureyri —
HLJÓMSVEITIR tónlistarskólans
í Kópavogi halda tónleika í
Akureyrarkirkju kl. 17 í dag,
laugardag. Þar leika bæði
strengjasveit og blásarasveit og
auk þess syngur Berglind Bjarna-
dóttir, nemandi Elísabetar
Erlingsdóttur, nokkur lög með
orgelundirleik. Stjórnendur og
kennarar hljómsveitanna eru Ingi
Grændal og Janine Hjaltason.
Fararstjóri er Kristinn Gestsson,
píanókennari í Kópavogi og fyrr-
um kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri. Þessi ferð er gerð til að
auka samvinnu og samskipti tón-
listarskólanna í Kópavogi og á
Akureyri. Aðgangur að tónleikun-
um er ókeypis.
- SV.P.
Sýnir listræn rúmteppi
SÝNING á stungnum rúmteppum
eftir bandariska listakonu veröur
opnuð að Kjarvalsstööum klukkan
4 í dag. Á sýningunni eru fjörutíu
og fjögur teppi í mismunandi litum
og mynstrum en Linda Schapper
er einna fyrst til aö hanna slik
teppí sem listaverk.
baö er Menningarstofnun Banda-
ríkjanna sem fékk Lindu hingaö til
lands og kemur hún beint frá
London, þar sem listiönaöur hennar
var m.a. kynntur í BBC-sjónvarps-
þætti. Hún er gift svissneskum
arkitekt og búsett í París. Fædd í
Bandaríkjunum árið 1947 en fór
þaðan eftir aö hafa lokið prófi í
stjórnmálafræöi viö háskólann í
Michigan.
Hún byrjaöi á þessari listgrein í
Líbanon árið 1974, en áöur hafði
hún lagt stund á vefnaö og fleira á
Spáni, í Þýzkalandi og í Sviss.
Áöur en hún hóf rúmteppahönn-
unina lagði hún stund á listmálun en
fannst myndir sínar fá of þunglynd-
islegan blæ og kenndi um ástandinu
í Líbanon er borgarstyrjöldin var
skollin á.
í Beirút kynntist hún rúmteppa-
listinni, sem á sér langa sögu sem
listgrein í Mið-Austurlöndum.
í Líbanon kveðst hún hafa fengið
míkinn innblástur, bæði frá lands-
laginu og byggingum. Segir hún
þessa listgrein á háu stigi þar.
Frá Líbanon fluttist hún til Parísar
og síðan hefur hún haldið ótal
einkasýningar m.a. í Mílanó, Múnch-
en, Stuttgart, Frankfurt, París,
Hannover, Stokkhólmi, Kaup-
mannahöfn, Ósló og London og nú
í Reykjavík. Eftir páska sýnir hún í
Lissabon og síðan Dublin. S.l. tvö ár
hefur hún haldið sextán sýningar.
Linda hannar að meðaltali 45
teppi á ári og tekur um 40 til 60
klukkustundir að vinna hvert teppi.
Verðið er frá 175 til 300 bandaríkja-
dalir. Segist hún verða fyrir áhrifum
af hverju landi sem ,hún heimsæki
og komi það fram í litum og
mynstrum teppanna. Tízkufyrirtæki í
París eins og Pierre Cardin hafa
sótzt eftir því að selja teppin undir
eigin nafni en Linda vill alls ekki fara
út í slík viðskipti. Segist hún
jafnframt sjá eftir hverju teppi sem
hún selji.
Myndir af teppunum hennar, sem
surnir kalla „pop-Hst", hafa m.a.
birzt í tízkublöðum eins og Vouge
Framhald á bls. 26.