Morgunblaðið - 18.03.1978, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978
41
fclk í
fréttum
+ Eins og menn eflaust muna kom til mikilla mótmæla um heim allan í febrúar siðastliðnum vegna
mikils höfrungadráps við eyjuna Iki suðvestur af Japan. íbúarnir þar, sem aðallega eru fiskimenn,
hafa stundað höfrungaveiðar í áraraðir. Mótmælin komu aðallega frá umhverfisverndarmönnum
hvarvetna í heiminum. — 14. marz kom önnur mikil höfrungaganga við eyjuna og fiskimennirnir
fóru á 30 bátum á eftir henni. beir gátu rekið um 1000 höfrunga í kvf og stefndu göngunni inn
í lítinn vog. Eftir þriggja stunda viðureign tókst þó öllum höfrungunum nema 8 að sleppa. beim
var haldið lifandi og fiskimennirnir ræddu við yfirvöid um, hvað gera skyldi við höfrungana, og
var ákveðið að þeir skyldu seldir til sædýrasafna. — Mál þetta er afar viðkvæmt, þar sem
höfrungarnir eru lifibrauð fiskimannanna. En sjónarmið mótmæiendanna er einnig skiljanlegt vegna
þess að stofn þessi getur verið f hættu ef gegndarlausu drápi verður haldið áfram.
+ Það getur veriÖ þreytandi
að hlusta á langar ræöur og
skiljanlegt aö mann syfji
endrum og eins. En sennilega
telst þaöl ekki kurteisi aö
draga ýsur, þegar maöur
hlustar á forseta Banda-
ríkjanna Jflytja ræöu um
eitthvaÖ merkilegt málefni.
+ Annar þessara Síamstvíbura verður að deyja ef reynt verður
að skilja þá að. Drengirnir heita Kristófer og Timothy, þeir eru
samvaxnir á bringunni og hafa sameiginlegt hjarta og lifur.
Líkurnar á því að aðgerðin heppnist eru mjög litlar. En hægt
væri að framkvæma hana eftir 3—4 mánuði, svo framarlega sem
þeir lifa svo lengi. beir fæddust 17. febrúar sl. í Ohio í
Bandarfkjunum.
+ Þad yetnr verid yott að
fara í heitt bað, þeyar
kalt er í veðri. í heitu
lauyunum í Búdapest í
Unyverjalandi er oft
maryt um manninn, þar
hittast menn til að
spjulla saman oy slappa
af eftir vinnu. Oy />á er
ekki úr veyi að nota
timann oy taka eina,
tmer skákir fyrir kvöld-
matinn.
Lagt upp frá Reykjavík. F.v. Guðlaugur bórðarson. Guttormur
bórarinsson. Jón E. Rafnsson. bór .-Egisson. Bencdikt Kristjánsson
og Guöjón Ó. Magnússon.
Flugbj örgunarsveitarmenn
leggja land undir fót
SEX ungir meðlimir Flugbjörgun-
arsveitarinnar í Re.vkjavík hyggj-
ast nú fyrstir manna, ganga frá
Mývatni yfir Ódáðahraun í Öskju,
þaðan í Kverkfjöll norðan í
Vatnajökli og þaðan yfir jökulinn
suður í Skaftafell í Öræfum.
Þessara erinda flugu þeir félagar
norður í Mývatnssveit í fyrradag
og hugðust leggja af stað í gær og
ætla til ferðarinnar 8—14 daga
eftir veðri og færð.
Ferðin verður öll farin á sér-
stökum ferða-gönguskíðum, sem
eru heldur breiðari en venjuleg
gönguskíði, en allan farangur, sem
er um 40 kíló á mann, hyggjast
þeir draga á eftir sér í sérstaklega
til þess gerðum snjóþotum. Gist
verður í jöklatjöldum alla jafna,
nema hvað gist verður í skála í
Kverkfjöllum og í Grímsvötnum á
Vatnajökli.
Aðalþyngd og f.vrirferð útbúnað-
ar þeirra félaga er í öllum þeim
mat sem nauðsynlegt er að hafa
með, en til nánari hagræðingar
höfðu þeir s.l. haust flutt eitthvað
af matarbirgðum í skálann í
Kverkfjöllum. Uppistaða fæðunn-
ar er þurrkaður matur, súpur og
flatbrauð með kæfu.
í samtali við Morgunblaðið
sögðust þeir félagarnir hafa eytt
gífurlegum tíma i alls kyns
undirbúning fyrir ferðina en hann
hófst fyrir alvöru á s.l. hausti og
undanfarna mánuði hafa þeir
verið við æfingar nánast um
hverja einustu helgi.
^rðaverzlun í Grímsbæ
Sími 86922.
Vorum aö fá mikiö úrval af snyrtivör-
um. Eigum einnig falleg veggteppi í
( barnaherbergi.
Bifreiöastilling,
Smiðjuveg 38, Kópavogi, sími 76400
Allar bifreiöastillingar og viögeröir á
sama staö.
Fljót og góö þjónusta.
Bifreiöastilling,
Smiðjuveg 38, Kópavogi, sími 76400.