Morgunblaðið - 18.03.1978, Síða 46

Morgunblaðið - 18.03.1978, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1978 STORLIÐIN I ÚRSLITUM TVEIR úrslitaleikir verða í Bretlandi í dag. Á Wembley leikf Nottingham Forest og Liverpool um sigurinn f ensku deildarbikar keppninni og í Skotlandi mætast erkióvinirnir Celtic og Glasgow Rangers. Brian Clough, stjóri hjá Forest, hefur sagt að leikurinn gegr Liverpool verði erfiðasti leikur liðs síns á keppnistímabilinu. — Takist Forest að sigra banna ég mínum stranglega að fagna sigrinum meí kampavínsdrykkju, segir Clough. — Slíkt verður að bíða þar til vii höfum einnig sigrað í keppninni í 1. deild. í Skotlandi er almennt búist við sigri Rangers þar sem liði þeirra hefur gengið mun betur í vetur. Það setur þó skugga á undirbúning leikmanna liðsins að í fyrrakvöld fannst einn leikmanna liðsins látinn í bifreið sinni í bílskúr. Það var Bobby McKean, sem hóf að leika með Rangers fyrir þremur árum. Félagar hans hjá Rangers fengu fréttirnar á æfingu, þá síðustu fyrir úrslitaleikinn. BSI hefur fengið danskan þjálfara STADDUR er á landinu danskur badmintonþjálfari að nafni Jan Bohj Larsen og mun hann dvelja hér f 3 mánuði og þjálfa fslenzkt hadmintonfólk. Hann er hingað kominn á vegum Badmintonsambands Islands. Larsen sagði í stuttu spj".lli við íþróttasíðuna að hann ætlaði ennfremur að efna til þjálfara- námskeiðs á meðan hann dveldi á Islandi. Kvaðst hann hafa orðið þess áþreifanlega var þann stutta tíma, sem hann hefði dvalið hér, að tilfinnanlegur skortur væri á menntuðum badmintonþjálfurum á Islandi, þá mætti telja á fingrum annarrar handar. Sagði hann að sér sýndist í fljótu bragði, að þjálfaraskortur hefði staðið bad- mintoníþróttinni fyrir þrifum hér á landi. Larsen sagði, að ísland ætti nokkra góða spilara, t.d. Jóhann Kjartansson, sem væri bæði tekniskur og útsjónarsamur spilari. Mikill badmintonáhugi er í Danmörku um þessar mundir og hefur hann vaxið geysilega á allra síðustu árum vegna velgengni dansks badmintonfólks á alþjóð- legum mótum. Sagði Larsen, að þessi áhugi væri ekki sízt að þakka öflugu unglingastarfi hjá dönsku badmintonfélögunum. Dagana 7.-9. apríl gengst Bad- mintonsambandið fýrir leiðbein- endanámskeiði í Reykjavík og verður Daninn þar meðal kennara, en auk hans íslenzkir kennarar. Botnliöin í handknattleiknum berjast um helgina: Sfmon Unndórsson læðir skoti f gegnum vörn Haukanna, sem greinilega hafa búist við uppstökki frá hinum skotfasta KR-ingi. Öll ætla þau sérað sigra TVEIR mjög Þýöingarmiklir leikir í 1. deildinni í handknattleik fara fram í dag, en aö Þessu sinni er Það baráttan á botninum, sem er í algleymingi, en ekki á toppi deildarinnar. Framarar mæta KR og síðan leika ÍR og Ármann og hefst fyrri leikurinn klukkan 15.30. Þaö veröur án efa hart barizt í pessum leikjum og ekkert gefiö eftir, pví leikirnir geta pýtt líf eöa dauöa fyrir botnliöin prjú. Fram hefur hlotiö 6 stig, KR-ingar eru meö 5 stig og Ármenningar reka lestina meö aöeins 3 stig. Reyndar eiga Ármann og Fram einnig aö spila á mánudag, en Þá veröa 2 leikir í Höllinni. Morgunblaðiö haföi í vikunni samband viö Þrjá leikmenn pessara liöa og fara viötölin viö Þá hér á eftir. HAUKAR SKEMMTILEGASTA LIÐIÐ — Við sigrum KR og komum okkur þannig af mesta hættusvæð- inu, sagði hinn góðkunni íþróttamað- ur Sigurbergur Sigsteinsson úr Fram. — Leikmenn Fram sýna ekki vilja til að ná sínu besta út úr leik sínum, og það fyrst og fremst er ástæöan fyrir þessum sveiflum í leik liösins. Haukarnir eru meö skemmtilegasta liöið í keppninni og vona ég aö þeim takist að sigra í mótinu. — Það má ekki koma fyrir aftur, aö íslandsmót sé slitiö svona í sundur eins og gert hefur veriö, það er engum til góös. Landsliö okkar var ekkert betra en þaö hefur veriö undanfarin ár þannig aö ekki kom þaö því til góöa, sagöi Sigurbergur aö lokum. ÁRMANN FELLUR EKKI — Þaö eru aöallega meiösli sem valda því aö Ármannsiiöinu hefur ekki gengiö vel í íslandsmótinu, vió höfum veriö án 3ja til 4 leikmanna af og til í allan vetur, sagöi Ragnar Gunnarsson markvöröur Ármanns. — En ég er sannfæröur um aö liöiö fellur ekki nióur í aóra deild, við veröum sterkir á lokakaflanum. — Það liö sem hefur komiö mér mest á óvart í mótinu eru Haukar. Leikgleöin í liöi þeirra er einstök og úrslitaleikur mótsins veröur tvímæla- laust milli Hauka og Víkings, sagöi Ragnar. MIKILL MUNUR Á 1. OG 2. DEILD — Stig þau sem við höfum fengiö gefa ekki rétta mynd af getu KR-liösins, sagöi Haukur Ottesen fyrirliði KR-inga. — Viö höfum misst niöur leiki þar sem sigur var svo gott sem í höfn. Ég kenni því um, aö þetta er í fyrsta skipti í fimm ár, sem KR-liöiö leikur í fyrstu deild og reynsla liösins er ekki nægileg, þaö vantar ró og kjölfestu í leik liösins. Það er nefnilega ótrúlega mikill munur á aó leika í 1. eöa 2. deild. í leiknum á móti Fram er aö duga eöa drepast, og viö ieggjum allt í sölurnar til að vinna þann leik. Ég vil engu spá um hverjir falla niöur, en ég hef trú á því að Haukar sigri í mótinu, en að baráttan um annað sætiö standi milli Vals og Víkings, sagði Haukur aö lokum. — ÞR STAÐAN Staöan í 1. deild karla í hand knattleik: Víkingur 9 6 2 1 186:160 14 Haukar 9 5 3 1 175:158 13 Valur 9 5 1 3 183:180 11 FH 10 5 1 4 191:170 11 ÍR 8 3 3 2 159:148 9 Fram 9 2 2 5 187:206 6 KR 9 2 1 6 186:197 5 Ármann 8 1 1 6 159:172 3 Markhæstu menn 1. deildar: Jón H. Karlsson Val 55 Brynjólfur Markúss. ÍR 48 Andrés Kristjánsson Haukum 48 Björn Jóhannsson Ármanni 47 Símon Unndórsson KR 44 Janus Guölaugsson FH 40 Páll Björgvinsson Víkingi 38 Viggó Sigurðsson Víkingi 38 Haukur Ottesen KR 38 Leikir helgarínnar í efstu deildun- um veröa sem hér segir: 1. deild karla: Laugardalshöll, laugardagur klukk- an 15.30: Fram — KR. Laugardalshöll, laugardagur klukk- an 16.45: ÍR — Ármann. Laugardalshöll, mánudagur kl. 20: Ármann — Haukar. Laugardalshöll, mánudagur kl. 21.15: Fram — ÍR. i r bravo, > AM6RICAHOS' ha>AJC i_enco«:'t>oto £<z- PLAOTA«Úe At= ÁTroeo KHo<£FeiOO\_>f£ Á *>uí' hÓfbo OtTArto ■ad<cIo(_e<rr A> -rÍMAOii<>... ,.,A aAiWIUTU tvconAe i=eAM.Vtí!eeOE. 'HJO ZAtfVA AUOAtt MAK-IC SPAkJ; . oct &K 2. deild karla: Akureyri, laugardagur kl. 16: Þór — KA. 3. deild karla: Varmá, laugardagur, kl. 14: UMB — Dalvík. Njarövík, sunnudagur kl. 13.30: UMFN — Dalvík. Varmá, sunnudagur kl. 13.00: UBK — ÍA. 1. deild kvenna: Akureyri, laugardagur kl. 15: Þór — Valur. Laugardalshöll, laugardagur kl. 18: KR — Haukar. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.